Þjóðviljinn - 29.08.1981, Síða 20
HANN
LIFIR
Alekos, zi zi zi.
Alekos, zi
Alekos, lifir lifir lifir.
Alekos, lifir.
Þessi orð ómuðu i hug margra
þegar loksins hafði tekizt
ætlunarverk launböðla að drepa
Alexandros Panagoulis með
þjónustubrögðum leigu-
morðingja. Og viða á húsveggjum
stóð bókstafurinn Z. Allir vissu
hvað það táknaði: Þið hafiö myrt
hann, hann lifir samt. Þið getið
aldrei framar drepið hann. Dáinn
er hann orðinn tákn ódauðleikans.
Nú er þessi einherji orðinn sam-
eign allra sem hatast viö kúgun
og spillingu, þeirra sem risa gegn
haröstjórn, og veröa ekki
bugaöir.
Hvaða Alekos? Hver var
Alexandros Panagoulis?
1 ágúst 1968 reyndi ungur
maður að koma þvi kvikindi fyrir
kattarnef sem þá var höfuð hinnar
hatrömmu hershöfðingjastjórnar
i Grikklandi. Sextán mánuðum
fyrir tilræðiö hafði það boröaiagða
illþýöi skotið 'kónginum ref fyrir
rass, og oröið á undan honum tif
að afnema mannréttindi. Pana-
Panagoulis
goulis hugöist snúa taflinu við.
Hann stóð fyrir ævintýralegri
uppreisnarráðagerð sem mis-
tókst herfilega i flestum liðum
framkvæmdarinnar; en tókst þó
kannski það sem var brýnast, að
verða sjálfur baráttutákn, vekja
goðsögn, kveikja. Tæplega þrem
vikum eftir valdaránið strauk
Panagoulis úr hernum, þá átti
hann eftir fimm mánaða her-
skyldu . Hann leyndist i Aþenu,
safnaði liði, og reyndi að skipu-
leggja öfluga mótspyrnu-
hreyfingu ásamt eldri bróður
sinum Giorgios sem var foringi i
hernum. Ofurhuginn ætlaði á
augabragði að steypa hyskinu;
með harðsnúinni sveit hugðist
hann hremma útvarpsstöðina og
helztu ráðuneyti á tæpum tveim
timum, og nota útvarpið til að
reisa þjóðina, og jafnvel þann
hluta hersins sem kynni að vera
andsnúinn valdaræningjunum.
Siðan áttu kóngur (sem ýmsir Is-
lendingar eru tregir að trúa að
geti verið fantur eða vingull
vegna spúsu sinnar, Onnu Mariu
Friðriksdóttur Danasjóla og telur
ekki eftir sér að saxa i eldivið i
arininn heima hjá sér með
karatehöggum) Konstantin og
stjórnmálaforingjarnir Kanello-
poulos og Paparidreou yngri að á-
varpa þjóðina, foringjar helztu
stjórnmálaflokkanna; og skyldu
lýsa yfir að aftur væri stjórnar-
skráin i' gildi og lýöréttindin, og
þingið færi á ný meö æðstu völd.
I hugmóði sinum og hreinlyndi
ætlaði hetjan sér ekki af. Hann
sást ekki fyrir i óskhyggju sinni.
Þá má lita á það að her-
foringjarnir höfðu ekki fulltreyst
völd sin þegar hér var komið
sögu. Kúgunartæki þeirra var enn
i mótun. Þeir höfðu ekki náð að
spenna þjóðlifið þeim heljar-
greipum sem siðar varö. Enn
þorðu menn að hvislast á, og jafn-
vel formæla valdaræningjunum i
sinn hóp. Seinna varð almennur
ótti eins og tiökast i fasistarikjum
við njósnara sem jivarvetna
leyndust, oft er i holti heyrandi
nær. Að visu kann Panagoulis þá
þegar að hafa hugsaö sér aö þótt
mistækist uppreisnin kyrini hann
þó sumpart að sigra með þvi að
veita þjóð sinni lýsandi fordæmi
sem yröi munað um ókomin ár:
Það er betra aö láta sér mis-
takast en aö halda að sér höndum.
Mistök eru dáð, athöfn sem
kveikir eldmóð 1 hinum kúguðu,
sagði Panagoulis við blaðamann
skömmu fyrir dauða sinn.
Ýmis atvik leiddu til þess að
Panagoulis breytti áformum
sinum.l seinni ráðagerð hans var
að hefjast skyldi handa með fjöl-
breyttum hætti þann 13. ágúst
1968. Sjálfur ætlaði hann að
sprengja Papadopoulos i loft upp
á þjóövegum úti, á ieiðinni til
Sounion frá Aþenu. A meðan átti
að skapa umferðaröngþ\0ti i
Aþenu miöri með þvi að sprengja
hjólbarða á öllum bilum sem áttu
leið um ýmsa helztu vegi sem
iágu inn i Aþenu og út úr henni:
strá þúsundum nagla oddsorfinna
i báða enda sem hefðu veriö
sveigðir svo þeir gætu bitið hjól-
barðana örugglega, og á þessari
hátiðlegu stund áttu að springa
eldsprengjur í þjóðgörðum
borgarinnar og gera myndarleg
bál þar og i þurrum furuskógum á
Lykabettoshæð og viðar; svo
slökkvilið hefði nóg að starfa og
lögreglan öll, herlið borgarinnar
lika; þannig átti að verða auðveld
undankoma á báti þegar harð-
stjórinn hefði verið sprengdur i
tætlur við tilkomumikla upp-
ljómun hins goðsögulega báls i
skógunum og lystigörðum Aþenu.
Allt mistókst.
Engir eldar kviknuðu, engum
nöglum var stráð. Ein sprengja
sprakk, og orkaði litlu nálægt
Ólympiuvanginum.
Og þó hafði Panagoulis farið
með hvern einasta mann sem
hafði hlutverki aö gegna við
að kveikja bálin,og starfað með
þeim að undirbúningi i-
kveikjunnar svo að ekki var
annað eftir en að lykilmaðurinn i
þeim þætti á viðkomandi stað
kæmi akandi á umsaminni
stundu, hentist út úr bil sinum og
bæri sigarettu að kveikju-
þræðinum og, æki burt áður en
sprengjan spryngi.
Enginn þessara manna átti að
vita um annan.
Allt fór i handaskolum fyrir
handvömm, og hik, og allskonar
óheppni. Hin öfluga sprengja
Panagoulis sprakk án þess aö
senda Papadopoulus heim til hel-
vitis i armkrika andskotans.
Panagoulis fyrir rétti I Aþenu, haldið af vörðum.
Upphafning.
Undankomubáturinn sigldi til
hafs, Panagoulis hirðist undir
kletti, kaldur og hrakinn, meðan
hin rósfingraða morgungyðja
tendraði himinhvelið. Þar fundu
varðliðar hann þegar þeir voru i
þann veginn að hætta leit eftir tvo
og hálfan tima.
Þetta var Donkikótisk keðja af
mistökum. Og þar hófst fimm ára
pislarvætti Panagoulis i höndum
böðla sinna sem aldrei tókst að
kúga hann né beygja með
pyntingum og hvers kyns harð-
ræði, og hann svaraði fólsku
þeirra með sifelldum ögrunum,
og svivirti óspart þá sem áttu
allskostar við hann. Þeir þorðu
ekki að drepa hann: dauður yrði
hann þeim ennþá erfiðari.
Og þar kom að honum var
sleppt úr fangelsi; og komst til
Italiu þaðan sem hann reyndi að
efla andspyrnuna gegn her-
foringjunum sem hann frekast
mátti. Hann fór um lönd viða og
reyndi að virkja og samfylkja út-
lægum Grikkjum, og fór á laun
nokkrar ferðir til Grikklands til
að skipuleggja mótspyrnuflokk
þar. Sú saga verður ekki rakin
hér né hvernig hann bjargaöist
iðulega með ævintýralegum hætti
undan flugumönnum andskota
sinna sem vildu hann feigan sem
fyrr, ef mætti vefða með nokkurri
leynd.
II
Litið þið þarna til hægri,
hvislaði Kevin Andrews að okkur
i leigubilnum á veginum frá
Aþenu til Glyfada, eftir strand-
lengjunni.
1 flóanum er flotalægi Nató,
herstöð mikil I Glyfada og flug-
völlurinn, og flugvélarnar sem
eru að koma og fara klippa
sundur setningarnar með drunum
sinum fyrir ferðamönnum sem
sitja á svölum úti á hótelunum
með útlenzku nöfnunum eins og
Beau Rivage, Fagraströnd,
klingja glösum við hægar
sveigjur upptypptra Eukalyptus-
trjá nna.
Eftir næstu beygju, sagði hann:
ég segi ykkur seinna.
Sólin skein eins og alla daga, og
bakaði skrokkana á bað-
ströndinni við stóru hótelin, og
færiböndin runnu stanzlaust með
farmana noröurbleika svo
brúnast mættu á baðströndinni
(þó það sé reyndar komið á
daginn að litverpir lysthafendur
geti oröiö jafnbrúnir af þvi að éta
sérstakar pillur einsog súkkulaði
eða harðfisk heima hjá sér).
Bilstjórinn skipti um stöð i út-
varpinu og náði bouzoukimúsik i
staðinn fyrir ameriskt söng-
breim. Þögul horfðum við til
hægri á þeim stað þar sem Kevin
benti okkur. Akreinarnar voru
tvær, og tengibraut skammt frá.
Stórt skilti auglýsti heimsveldið
Texaco (sem er upprunniö á
sömu slóðum og siðbornir gisti-
vinir islenskra heimila, Dallas-
fólkiö). Það var á bilageymslu, og
autt svæöi þar fyrir framan, en
gryfja tii hliöar opnaöi leið með
undirgöngum i bilageymslurnar.
Skilti þar áletraö: KALON
TAXIDHl sem þýöir góöa ferð.
Viö stigum út Ur leigubflnum á
milli Glyfada sem margir is-
lenzkir feröamenn hafa gist og
Voulagmeni sem íslenzkir hafa
lika gist og notið margrömaörar
fyrirgreiöslu Siguröar A.
Magnússonar.
Viö vorum á leið með Kevin
Andrews til að ganga á fjall, gult
með gráum klettum með hvitum
skellum, og engum gróðri nema
hibiscusrunnum sem þola öllum
gróðri betur þurrk. Þar ætluðum
við aö skoða hella i þessu eyði-
landi helgaða skógarguðnum
Pan. Um þá vita fáir.. Frá
veginum var nokkurn spöl að fara
áður en kæmi á fjallið.
Við vorum varla komin út af
veginum þá snarstanzar Kevin:
Staðurinn, sagði hann: sem ég
sýndi ykkur, þar var hann
drepinn. Panagoulis. Hann var
einn á leiðinni frá skrifstofu sinni
i Aþenu._Um nótt. (7t i Glyfada,
þarsem inóðirhans bjó. Það voru
tveir bilar að verki. Annar þeirra
fannst seinna. Með sérstakri á-
keyrslutækni hröktu þeir hann Ut
af veginum. Þetta voru sér-
fræöingar.
Gróðurinn var orðinn
þyrrkingslegur. Það var ekkert
notalegt að ganga á ilskóm upp
fjallshliðina. Það var mjög heitt.
Bara iággróður grjót og sandur.
Kaktusar á stangli. Sólin beint
yfir um nón. Sjórinn hvitnaði i
mistrinu fyrir neðan og rann
saman við himin, utan við her-
skipin á læginu. Tveir asnar á
ferð um vegarbrún drógu hvor
sina vinámuna á tvihjólaðri kerru
með afturhalla, og dottandi
strákará öörum kjálkanum undir
stórum stráhatti með danglandi
keyri, þræðandi laufskugga
meðan langferðabifreiðar þutu
með hvin og lúðurvæli.
Billinn hentist út af veginum,
sagði Kevin: yfir auða svæðið,
bremsurnar dugðu ekki á þessari
fleygiferð til að forðast gryfjuna,
svo billinn endastakkst niður hjá
skiltinu sem bauö góða ferö:
KALON TAXIDHI.