Þjóðviljinn - 01.09.1981, Side 12
12 SIÐA—ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 1. september 1981
Menningarsjóður íslands og Finniands
Tilgangur sjóðsins er aö efla menningartengsl Finnlands
og íslands. t þvi skyni mun sjóðurinn árlega veita ferða-
styrki og annan fjárhagsstuðning. Styrkir verða öðru
fremur veittir einstaklingum, en stuðningur við samtök og
stofnanirkemureinnig til greina ef sérstaklega stendur á.
Umsóknir um styrk úr sjóðnum skulu sendar stjórn Menn-
ingarsjóðs lslands og Finnlands fyrir 1. október n.k..Arit-
un á Islandi er: Menntamálaráðuneytið, Hverfisgötu 6,
101 Reykjavik. Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á
sænsku, dönsku, finnsku eöa norsku.
Stjórn Menningarsjófts tslands og Finnlands.
25. ágúst 1981.
Frá grunnskólum
Reykjavíkur
Nemendur komi i skólana föstudaginn 4.
september sem hér segir:
9. bekkur komi kl. 9
8. bekkur komi kl. 10
7. bekkur komi kl. 11
6. bekkur komi kl. 13
5. bekkur komi kl. 13.30
4. bekkur komi ki. 14
3. bekkur komi kl. 14.30
2. bekkur komi kl. 15
1. bekkur komi kl. 15.30
Forskólabörn (6 ára), sem hafa verið
innrituð, verða boðuð i skólana.
Fræðslustjóri.
Auglýsing um aðalskoðun
bifreiða í lögsagnarumdæmi
Reykjavikur í
septembermánuði 1981
Þriftjudagur 1. sept. R-50501 til R-51000
Miftvikudagur 2. sept. R-51001 til R-51500
Finnntudagur 3. sept. R-51501 til R-52000
Föstudagur 4. sept. R-52001 til R-52500
Mánudagur 7. sept. R-52501 til R-53000
Þriftjudagur 8. sept. R-53001 til R-53500
Miðvikudagur 9. sept. R-53501 til R-54000
Fimmludagur 10. sept. R-54001 til R-54500
Föstudagur 11. sept. R-54501 til R-55000
Mánudagur 14. sept. R-55001 til R-55500
Þriftjudagur 15. sept. R-55501 til R-56000
Miftvikudagur 16. sept. R-56001 til R-56500
Fimintudagur 17. sept. R-56501 til R-57000
Föstudagur 18. sept. R-57001 til R-57500
Mánudagur 21. sept. R-57501 til lt-58000
Þriftjudagur 22. sepl. R-58001 til R-58500
Miðvikudagur 23. sept. R-58501 til R-59000
Fimmtudagur 24. sept. R-59001 til R-59500
Föstudagur 25. sept. R-59501 til R-60000
Mánudagur 28. sept. R-60001 til R-60500
Þriftjudagur 29. sept. R-60501 til R-61000
Miövikudagur 30. scpt. R-61001 til R-61500
Bifreiðaeigendum ber að koma með bif-
reiðar sinar til bifreiðaeftirlits rikisins,
Bildshöfða 8, og verður skoðun fram-
kvæmd þar alla virka daga kl.
08:00—16:00.
Festivagnar, tengivagnar og farþega-
byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna
leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber
skilriki fyrir þvi að bifreiðaskattur sé
greiddur og vátrygging fyrir hverja bif-
reið sé i gildi.
Athygli skal vakin á þvi að skráningar-
númer skulu vera vel læsileg.
Samkvæmt gildandi reglum skal vera
gjaldmælir i leigubifreiðum sem sýnir rétt
ökugjald á hverjum tima. A leigubifreið-
um til mannflutninga, allt að 8 farþegum,
skal vera sérstakt merki með bókstafnum
L.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á auglýstum tima verður hann
látinn sæta sektum samkvæmt umferðar-
lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar
sem til hennar næst.
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardög-
um.
Lögreglustjórinn i Reykjavik.
28. ágúst 1981.
Ólafur Þ.
Jónsson um
uppslátt
Dagblaðsins:
Hreint ótrúlegt hvað
þetta var ógedslegt
I — hægt að stinga fingnnium í gegnum fískinn, svo úldinn var hann
— fórsamtígegn
Tilræði við samelg
inlega hagsmuni
Blaftift hafði spumir af þvf að
Þingeyringum heffti þótt ndg um
uppslátt Dagblaðsins fyrir
skömmu á skoftunum tveggja
stúlkna á vinnubragnum á Þing-
eyri. Vift slógum þvi á þráðinn til
Ólafs Þ. Jónssonar á Þingeyri til
að heyra hljóftift i honum gagn-
vart þessum málflutningi:
— Þessir sneplar sem eru gefn-
ir ut til að standa vörö um þjóðfé-
lagslegt ranglæti, hafa ekki
áhuga fyrir verkafólki vestur á
Þingeyri.
— Auðvitað er fólk hérna hund-
óánægt meft þetta snakk. Það er
ekki aöalmálið að einhverjar
stúlkur séu að nöld.ra úti Kaupfé-
lag Dýrfirðinga. Hitt er máhð, sá
tónn sem kemur þarna fram i
garð vinnandi fólks. Það er látiö
að þvi liggja að hér sé samsafn af
augnaþjónum og fólki sem sé svo
iitið i sniðum að það þori ekki að
kvarta yfir þvi sem aflaga fer. Aö
hinu leytinu er þetta tilræði við
sameiginlegá hagsmuni verka-
lýðsstéttarinnar og yfirstéttar-
innar i landinu; mér kæmi ekki á
óvartaðþetta yrðiþýttá erlendar
tungur og notað gegn okkur.
— Kaupféiagið á Þingeyri er
ekki í sjáifu sér heilög kyr f aug-
um okkar sósiaiista frekar en
samvinnuhreyfingin í heild. Þá
galla,sem eru á rekstri þess og
samvinnuhreyfingarinnar, af-
greiðum við á heimavelli. Ég er
ekki aðsegja að sá dagur sé endi-
lega að koma á morgun eða hinn,
hann kemur þegar þörf er á hon-
um.
— Það eru hvatirnar sem á bak-
við búa þessum uppslætti. Það er
ekki annað en það, að þennan
snepil, vantar eitthvað til að selj-
ast Utá einsog fyrri daginn. Það
er kaupfélag sem gengur vel
hérna og er þá ekki sökum að
spyrja, að ihaldspressan er tilbU-
in að rakka það niður. Dagblaðið
er gefiö út einsog önnur ihalds-
blöð til að verja þjóðfélagslegt
ranglæti — og verkafólk getur
ekki vænst neins þaðan. Það
verður ekki i'haldið á Islandi sem
á eftir að koma málum verka-
fólks I lag, hvorki á Þingeyri né
annars staðar.
— Að okkar dómi hér er það
aukaatriði I málinu hvað stúlk-
urnar eru að segja, aðalmálið er
þessi blaðsnepill það er hann sem
reiði manna beinist gegn. Þessir
skósveinar ihaldsins sem eru
þarna að vinna fyrir kaupinu
sinu. Þetta blað og þessi afstaða
þess er það sem máli skiptir.
Verkafólk á Þingeyri getur alveg
staðið fyrir sinu máli sjálft. Van-
þekkingin og fáviskan hjá þeim
sem skrifar greinina er svo mikil
+
S
I UMFERÐAR
1 RÁÐ
ÓlafurÞ. Jónsson: Vift afgreiftum
gallana á okkar kaupfélagi á
heimavelli.
að ég nenni ekki að tina það allt
til.Til dæmis skrifar hann að það
sé dæmi um að fiskur sé úldinn ef
maöur getur rekið fingur i gegn-
um flakiö. Ég vildi ekki borða fisk
sem maður gæti ekki gert það
við. Það er þessi óþolandi tónn I
garð verkafólksins og tilræði við
sameiginlega hagsmuni allra
landsmanna. Við afgreiöum gall-
ana á okkar kaupfélagi á heima-
velli, það eru hreinar linur. Auð-
vitað má margt að þvi finna, en
kaupfélaginu hefur vegnað vel.
Þetta er öflugt kaupfélag og er
þyrnir i augum ihaldsins. Dag-
blaðið er þekkt af þvi bæði hérna
og annarsstaðarað velta sér upp-
úr mannlegum hörmungum og
slysum. Og ritstjórinn er nú ekki
hátt skrifaður á landsbyggöinni
og bætir ekki stöðu sina með
þessu. Þetta er trúður sem flækist
á milli vertshúsa og étur súpur og
gefur Ut yfirlýsingar um það
hvort þær eru ætar eða ekki.
Kaupfélagið má eiga það, að
það er búið að vera aðalatvinnu-
veitandinn hér í háa herrans tið.
Það verður betra mannlif þegar
afkoman er örugg. Atvinnuveit-
andinn getur ekki hlaupið i burtu
og skapar nauösynlegt öryggi.
Þvi vil ég tala vel um kaupfélag-
ið.
— ög
RÍKISSPÍTALARNIR
Lausar stöður
LANDSPíTALINN
AÐSTOÐARLÆKNAR óskast á Barna-
spitala Hringsins i 6 mánaða stöður. Einn
aðstoðarlæknir óskast frá 1. nóvember og
tveir frá 1. desember n.k.. Umsóknir er
greini menntun og fyrri störf sendist
Skrifstofu rikisspitalanna fyrir 29.
september n.k., Upplýsingar veitir for-
stöðumaður Barnaspitala Hringsins i
sima 29000.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast á
næturvaktir á öldrunarlækningadeild.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast á
vökudeild Barnaspitala Hringsins.
FÓSTRA óskast strax eða eftir samkomu-
lagi á Barnaspitala Hringsins.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir
hjúkrunarforstjóri i sima 29000.
AÐSTOÐARMAÐUR sjúkraþjálfa
óskast á endurhæfingardeild. Upplýsingar
veitir yfirsjúkraþjálfi i sima 29000.
KLEPPSSPITALINN
MEINATÆKNIR óskast á rannsóknastofu
Kleppsspitalans sem fyrst. Upplýsingar
veitir deildarmeinatæknir i sima 38160.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast á
ýmsar deildir Kleppsspitala og á Geðdeild
Landspitalans. Upplýsingar veitir
hjúkrunarforstjóri Kleppsspitalans i sima
38160. Reykjavik, 30. ágúst 1981
Rí KISSPÍ TALARNIR