Þjóðviljinn - 15.09.1981, Side 3
Þriðjudagur 15. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
ÞáUakendur I pallborðsumræðunum, fr.v. Adda Bára Sigfúsdóttir, ólafur Jónsson, Skúli Thoroddsen,
Sigurjón Pétursson, Jón Ásgeir Sigurðsson, Guðmundur Þ. Jónsson, Guðmundur J. Guðmundsson, Þor-
björn Broddason, Svavar Gestsson og Guðjón Jónsson. Ljósm. eik.
Ráðstefna Alþýðubandalagsins um húsnæðismál:
og úrbætur
Úttekt
A sunnudaginn var haldinn fjöl-
menn ráðstefna á vegum Aiþýðu
bandalagsins i Reykjavík um
lausnir á húsnæðisvandanum.
Fjölmargir ræðumenn fulltrúar
Alþýðubandalagsins og verka-
lýðshreyfingarinnar i húsnæðis-
málum ■ þjóðféiaginu gerðu
vendilega grein fyrir ástandinu i
dag og reifuðu ýmsar hugmyndir
til úrbóta. Þá var einnig bent á
óhróður borgarfjölmiðlanna um
Alþýðubandalagið og verkalýðs-
hreyfinguna — og voru menn á
einu máli um nauðsyn þess að
standa vörö um félagslega ávinn-
inga verkalýðshreyfingarinnar.
Margir þeirra, sem starfað hafa á
pólitiskum vettvangi húsnæðis-
málanna, minntust fyrri gjörn-
inga íhaldsins gegn athafnasemi
verkalýðshreyfingarinnar I hús-
næðismálum. Sögðu þeir flokk og
verkaiýðshreyfingu vel geta stað-
ið af sér þessa lygahryðju ihalds-
pressunnar nú einsog áður fyrr.
Þorbjörn Guðmundsson for-
maður Alþýðubandalagsins i
Reykjavik setti ráðstefnuna með
nokkrum orðum. Fundarstjóri
var Adda Bára Sigfúsdóttir. Jón
Asgeir Sigurðsson fjallaði um
málefni leigjenda. Þorbjörn
Broddason rakti hlutverk félags-
málastofnunar Reykjavikurborg-
ar i húsnæðismálum. Skúli
Thoroddsenfjallaöi um húsnæðis-
mál námsmanna og framkvæmd
nýju húsaleigulaganna. Guö-
mundur Þ. Jónsson flutti erindi
um húsbyggingar i Reykjavik og
atvinnumál.
Guðmundur J. Guðmundsson
flutti ræðu um þátt verkalýðs-
hreyfingarinnar i byggingu hús-
næðis á félagslegum grundvelli
og Guðjón Jónsson hélt ræðu um
félagslegar ibúðarbyggingar sem
framtiðarlausn. Stefnumótun i
húsnæðismálum og hlutverk
Reykjavikurborgar var yfir-
skriftin á erindi Sigurjóns Péturs-
sonar. Ölafur Jónsson fjallaði um
framkvæmd nýju húsnæðislag-
anna og að lokum flutti Svavar
Gestsson framsögu um hlutverk
rikisins og stefnumótun i hús-
næðismálum.
Að loknum framsöguerindum
voru opnaðar umræður sem stóðu
fram á kvöld. I dag og næstu daga
verður i blaðinu greint frá
erindum framsögumanna og um-
ræöunum á ráðstefnunni. —óg
. /
Islenskar
vorflugur
1 kvöld, þriðjudaginn 15.
september heldur GIsli Már
Gislason erindi á vegum Liffræði-
félags tslands og nefnist það „Um
útbreiðslu og lifsferla vorflugna”.
Erindið verður flutt I stofu 101 I
Lögbergiog hefst kl. 20.30. ÖUum
er heimill aðgangur.
Vorflugur hafa eflaust borist til
Islands frá nágrannalöndunum
eftir lok isaldar. Þekktar eru 11
tegundir á íslandi og finnast allar
i Skandinaviu og 8 þeirra á Bret-
landseyjum, en á þessum svæð-
um eru á milli 200—250 tegundir
vorflugna.
1 fyrirlestrinum verður fjallað
um niðurstöður nýlegra rann-
sókna á vistfræði islenskra vor-
flugna.Lirfurvorflugna, sem eru
vatnadýr, hafa hérlendis tekið sér
bólfestu i miklu fleiri gerðum bú-
svæða en þær gera i nágranna-
löndunum, og stafar það liklega
af minni samkeppni milli þeirra á
Islandi eða minni áhrifum frá
öðrum tegundum.
Leið-
rétting
Það verður ekki annað
sagt en við, aðstandendur
Lystræningjans, höfum
mikla trú á lesendum Þjóð-
viljans. Um siðustu helgi
birtist frá okkur auglýsing
þar sem fyrirsögnin var:
Gerist áskrifendur að tima-
ritum Lystræningjans og
sama auglýsing birtist svo
aftur i þriðjudagsblaðinu. En
þrátt fyrir þessa ágætu aug-
lýsingu var ekki hlaupið að
þvifyrir lesendur blaðsins að
gerást áskrifendur að tima-
ritunum. Okkur láðist sem sé
að gefa upp simanúmer og
heimilisfang. sima 71060,
71719 eða 28716, og Pósthólf
9061, 129 Reykjavfk. Með
kveðju, Lystræningjar.
(A) Auglýsing
Framkvæmdanefnd árs fatlaðra og stjórn
Öryrkjabandalags íslands efna til opins
fundar miðvikudaginn 16. september kl.
20.30 i Norræna húsinu. Norman Acton
aðalframkvæmdastjóri Alþjóðlegu endur-
hæfingarsamtakanna mun flytja erindi
um störf og stefnu samtakanna svo og
stefnulýsingu samtakanna i málefnum
fatlaðra fyrir 9. áratuginn. Allir velkomn-
ir.
ALF A-nefnd
Stjórn ÖBí
TÆKNIFULLTRÚI
Staða tæknifulltrúa er veitir forstöðu
teiknistofu Hafnamálastofnunar rikisins
er laus til umsóknar.
Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum
um aldur, menntun og starfsreynslu,-
sendist Hafnamálastofnun rikisins, fyrir
22. september 1981.
HAFNAMÁLASTOFNUN RÍKISINS
Auglýsinga- og áskriftarsíimi
81333
Blaðbera vantar strax!
Bergstaðastræti — Smáragata
Hávallagata — Sóleyjargata
Háaleitisbraut—oddatölur
UOÐVIUJNN
Lausar stöður
|ÍÍ VIÐ HEILSUVERNDARSTÖÐ
’ i " REYKJAVIKUR
Stöður hjúkrunarfræöinga við
barnadeild
heilsugæslu í skólum
heimahjúkrun
Bæði er um hlutastarf og heilt starf að ræða.
Einnig síðdegisvakt kl. 16—20 á heimahjúkr-
un.
Heilsuverndar/félagshjúkrunarnám æskilegt.
Staða sjúkraþjálfara við heimahjúkrun.
Staða Ijósmóður við mæðradeild/ hálf staða.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
22400.
Stöður tannlækna við öskjuhlíðarskóla — skóli
fyrir börn með sérþarf ir — hluta starf, einnig
ýmsa aðra skóla í borginni.
Upplýsingar gef ur skólayf irtannlæknir í síma
22400.
Skrif legar umsóknir þurfa að berast fyrir 20.
september.
Umsóknareyðublöð fást á Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur.
Heilbrigðisráð Reykjavíkur
Námsflokkar
Kópavogs
Innritun i verslunar- og skrifstofudeild fer
fram i sima 44391 miðvikudaginn 16. og
fimmtudaginn 17. sept. kl. 16.00 til 19.00.
Innritun i almenn námskeið fer fram dag-
ana 21,—25. sept. i sima 44391 kl. 16.00 til
19.00.
Kennslugreinar: Enska, danska, norska,
sænska, franska, þýska, spænska, leður-
vinna, skrautskrift, bókfærsla, myndvefn-
aður, trésmiði, leirmótun, myndlist, hnýt-
ingar, barnafata- og kjólasaumur og vél-
ritun.
Forstöðumaður
Þjóðviljinn —
Bíldudalur
Ráðinn hefur verið nýr umboðsmaður Þjóðviljans á Bildu-
dal. Hann heitir Ilalldór Jónsson, Lönguhlið 22, s. 2212.
D/OBV/U/m
StOUMÚLA 6, StMI 81333
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför
Gunnars Benediktssonar
rithöfundar
Valdis Halldórsdóttir
Heiðdis Gunnarsdóttir Árni óskarsson
Halldór Gunnarsson Jarþrúður Þórhallsdóttir
Þorsteinn Gunnarsson Ingunn Guðbrandsdóttir
Benedikt Gunnarsson Ólafia Guðjónsdóttir
Styrmir Gunnarsson Kristin Sigurðardóttir
og barnabörn
Bálför
Kristins Péturssonar
listmálara
verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 16.
september kl. 13.30.
Vandamenn,
Pétur Sumarliðason
kennari
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju kl. 13:30 i dag 15.
september.
Guðrún Gisladóttir
Gisli ól. Pétursson
Bjarni B. Pétursson
Vikar Pétursson
Pétur örn Pétursson
Björg Pétursdóttir