Þjóðviljinn - 15.09.1981, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 15. september 1981
Þann 17. júlí sl. hélt Bob
Dylan hljómleika á „Frei-
lichtblihne" (útisviöi) uppi
á kletti þeim, er kenndur
hefur veriö við Lorelei,
andspænis St. Goar í Rin-
ardal. Var þetta liöur í
Evrópuferö Dylans, sem
hófst i Toulouse 21. júní og
lauk í Avignon 25. júlí.
Hljómleikarnir voru skipu-
lagðir af KonzertbOro
Fritz Rau í Frankfurt en á
Lorelei sá „Die Lore-
lei-Amphi-Theater GmbH"
um alla framkvæmd.
Blaðamaöur Þjóðviljans á
staðnum brá sér upp á Lorelei
seinnipart dags þann 17. og yfir-
skyggði staðinn. Ekki var við það
komandi að hleypa honum inn á
blaðamannapassa, undirrituðum
af Arna Bergmann, þar eð blm.
var ekki á gestalista konsertsins.
Auk þess var stranglega bannað
að taka með sér myndavélar sem
og skotvopn, og þar sem blm.
vildi fyrir enga muni skilja
myndavél sina við sig hvarf hann
á braut rétt áður en hljómleikarn-
ir hófust.
Daginn eftir brá blm. sér aftur
á staðinn og ræddi við nokkra,
sem hlýtt höföu á boöskap Dyl-
ans. Einn þeirra, sem hafði farið
á Dylan-tónleikana ’78, taldi und-
irritaðan ekki hafa farið mikils á
mis, hljómleikarnir ’78 hefðu ver-
ið margfalt betri.
Búist hafði verið við um 20 þús-
und manns en að sögn lögregl-
unnar i Goarshausen, sem hafði
auga með hljómleikahaldinu,
Baksvipur bandarisks ungmennis, sem spurði hvort blm. ætti ekki
„gras”. A bolnum má lesa nöfn og dagsetningar borga þeirra, sem
Dylan heiðraði með nærveru sinni þetta árið.
Bob Dylan á Lorelei
voru „aðeins” um 16 þús. áheyr-
endur mættir til leiks. U.þ.b. 1/4
hluti áheyrenda voru kanar, eink-
um hermenn, og af þeim sökum
voru ameriskir herlögreglumenn
lika á staðnum. Hljómleikarnir
áttu að hefjast kl. 20 en hófust 1/2
klst. siðar og þeim lauk um kl.
22.30.
Alltfórþetta friðsamlega fram,
glæpalöggan (KriPo) tók aðeins
28 fasta fyrir „eiturlyfjanotkun”
(hass, marijuana og LSD voru
einu lyfin sem fundust) og sá tals-
maður lögreglunnar ástæðu til að
benda mér sérstaklega á að amk.
7 þeirra heföu verið ameriskir
hermenn. Þvi má bæta hér við að
könnun, sem gerð var i V-Þýska-
landi fyrir 3 árum, leiddi i ljós, að
helmingur þeirra bandarisku
hermanna, sem gæta kjarnorku-
vopna i V-Þýskalandi, neyta eit-
urlyfja.
1 klst. áður en tónleikarnir áttu
að byrja, fór blm. gangandi frá
svæðinu og niður i St. Goarshaus-
en, sem er 5 km spölur, og voru
bilastæðin á Lorelei þá óðum að
fyllast. Engu að siður var bill við
bil á leið upp fjailið og var ekið á
hægum lestargangi og fjöldinn
allur var fótgangandi. Þó reynd-
ist mögulegt að koma öllum öku-
tækjunum fyrir þar efra og aðeins
2 smáumferöaróhöpp áttu sér
stað.
Mikill fjöldi gisti á svæðinu I
tjöldum og minnti þetta mjög á
Þjóðhátið, nema hvað allar tjald-
götur, svo sem „Veltusund”,
„Týsgötu” og „Þórsgötu”, bar
hvergi fyrir augu, þrátt fyrir
heimsfrægt, þýskt skipulag.
Mótorhjólatöffarar (Rockers),
sem tilheyrðu ákveðinni kliku,
voru viö innganginn, en slikt er
alsiða i V-Þýskalandi við slik
tækifæri, að sögn lögreglunnar,
og þykir gefa góða raun!! Beita
þeir miskunnarlaust aðferðum,
sem jafnvel þýska löggan veigrar
sér við að brúka, — amk. opinber-
lega. Óvart komu mér i hug orð-
in: „Sitthvað er gæfa og gjörvi-
leiki”, er ég leit töffarasveitina
augum. En kannski eiga slikar
sveitir eftir að leysa blessaðar
hjálparsveitir skáta af hólmi á
Þjóðhátiðum Vestmannaeyinga i
framtiðinni.
ingis.
„Sitthvaö er gæfa og gjörvi leiki”. Hér má sjá 3 úr töffarasveitinni.
Das Mitbríngen m TlaschenJ)csen,
TcnbandgerátenJob-TÍtm-a. Video~
kameras.Waffen u.fyrctechníschen
ðeráten ist grundsatzlúh untersagt
Jt i$ forbidden to bríng 'm botttes.
cans, taperecordens, photo-film-and
videocameras, weapons
or fireworks
„Það er stranglega bannað að taka með sér flöskur, dósir, segulbands-
tæki, mynda-, kvikmynda- og myndsegulbandsupptökuvélar, vopn og
„fyrværkeri” (flugelda)”. Þetta skilti hékk yfir innganginum.
Að sjálfsögðu var innihaldi þeirra hvitvins-, rauðvins- og bjórflaskna,
sem gerðar voru upptækar, ekki hellt niður i viðkvæman grassvörðinn:
Þessir 2 tiiheyrðu töffarasveitinni.
Reykjavik
Auglýsing
Stjórn Byggingarsjóðs Reykjavikur-
borgar hefur verið falið að leita eftir
kaupum á allt að 20 ibúðum, sem notaðar
verða sem leiguibúðir á vegum borgar-
innar. Fyrst og fremst er leitað eftir
ibúðum, sem nú standa ónotaðar. Einnig
kemur til greina að kaupa húsnæði, sem
áður hefur verið notað til annars, ef hent-
ugt þykir að brey ta þvi i ibúðarhúsnæði.
Þeir sem hafa hug á að bjóða húsnæði til
kaups samkvæmt framanrituðu, eru
beðnir að senda tilboð til stjórnar Bygg-
ingarsjóðs Reykjavikurborgar, Skúlatúni
2, 105 Reykjavik, fyrir 28. sept. n.k. í
tilboði komi fram: Verð eða verðhug-
mynd, greiðslukjör, stærð húsnæðis, lýs-
ing á húsnæði o.fl. þess háttar.
Reiknistofnun
Háskólans
óskar eftir að ráða starfsmann i vinnslu-
deild sem fyrst. Mjög fjölbreytt starf.
Stúdentspróf eða hliðstæð menntun æski-
leg.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum
um menntun og fyrri störf sendist fyrir 21.
sept.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður i
sima 25088.
Reiknistofnun Háskólans
Hjarðarhaga 2
nBBiwimE
Staða deildarstjóra á dagdeild.
Staða deildarstjóra á göngudeild. .
Æskilegt er að umsækjendur hafi sér-
menntun i geðhjúkrun.
Stöður hjúkrunarfræðinga á geðdeild
A—2.
Stöður hjúkrunarfræðinga i Arnarholti.
2 stöður aðstoðardeildarstjóra á hjúkr-
unar- og endurhæfingardeild (Grensás)
eru lausar til umsóknar nú þegar.
Staða deildarstjóra á lyflækningadeild
(A—6).
Staða aðstoðardeildarstjóra á lyflækn-
ingadeild.
Stöður hjúkrunarfræðinga á skurðlækn-
ingadeild, hjúkrunar- og endurhæfingar-
deild i Hafnarbúðum, Grensás og á
hjúkrunardeildina við Barónsstig.
Stöður sjúkraliða á öllum deildum.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á
skrifstofu hjúkrunarforstjóra i sima 81200
(207,201).
Reykjavik, 11. sept. 1981.
BORGARSPÍTALINN
Borgarspítalinn
Læknaritari
Óskum eftir að ráða læknaritara til starfa
nú þegar. Starfsreynsla eða góð vélrit-
unarkunnátta áskilin.
Upplýsingar um starfið veitir Brynjólfur
Jónsson i sima 81200 / 368.
Reykjavik, 11.09.1981.