Þjóðviljinn - 15.09.1981, Page 14
14 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 15. september 1981
F ramle iðslus t j óri
— síldarvinnsla
A/S Ibestad Sild er nýtt fiskvinnslufyrirtæki sem á aö
framleiða sild fyrir neytendamarkað. Fyrirtækið byggir
nú sérstakt verksmiðjuhúsnæði fyrir sildariðnað 1500 fer-
betra. Aætlað er að framleiðsla hefjist i febrúar 1982.
Haustið 1981 verður keypt hráefni þannig að tilrauna-
framleiðsla geti hafist strax og verksmiðjan er tilbúin.
Gæði og fullvinnsla eru einkunnarorð fyrirtækisins sem er
hið fyrsta sinnar tegundar i Norður Noregi.
Fyrirtækið óskar að ráða:
Fra mleiðslust j óra
Verksvið: Innkaup
Framleiðsluáætlanir
Vöruþróun
Gæðaeftirlit
Áhersla verður lögð á starfsreynslu frá
sildarvinnslu. Laun eftir samkomulagi,
ráðning sem allra fyrst, fyritækið útvegar
húsnæði.
A/S Ibestad Sild er á Rollöya austan við Harstad. Sam-
göngur við fastalandið eru með ferju. Það er u.þ.b.
klukkustundar akstur til Harstad og u.þ.b. tveggja stunda
akstur til Narvik. Á Rollöya eru skólar, og þjónustutilboð
er gott.
Nánari upplýsingar veita:
Disponent J. Bergvoll, Ytre Rollöya Fiskarsamvirke, simi
082/74055.
Disponent V. Sörensen, A/S Ibestad Sild, simi 082/95116.
Oddmar Jenssen, Statens Teknologiske Institutt/Nord
Norge, simi 082/44180.
Umsóknarfrestur er til 30./9. — 1981. Skrifleg umsókn meö
afriti af prófskirteinum og meðmælum sendist:
Ytre Rollöya Fiskarsamvirke
Postboks 504,
9401 Harstad
Norege.
Laust embætti
sem forseti íslands veitir
læknadeild Háskóla
Prófessorsembætti ’i vefjafræði
Islands er lausttilumsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um visindastörf um-
sækjenda, ritsmiðar og rannsóknir svo og námsferil og
störf skulu sendar menntamálaráðuneytinu, fyrir 10.
október n.k.
Menntamálaráðuneytið,
10. september 1981
Ferðamálaráó Islands
efnir til námskeiðs fyrir verðandi leið-
sögumenn ferðafólks veturinn 1981—1982,
ef næg þátttaka fæst.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á
skrifstofu Ferðamálaráðs, Laugavegi 3,
Reykjavik.
Umsóknarfrestur rennur út 21. sept. n.k.
FERÐAMALARÁÐ ÍSLANDS
Kennarar — skipstjórnarmenn
Kennara með annars stigs eða farmanna-
próf vantar að stýrimannadeild við Gagn-
fræðaskólann á Höfn næsta vetur.
Húsnæði til staðar. Upplýsingar veitir
skólastjóri i sima 97—8321 eða 97—8384
næstudaga. Skólastjóri.
Baðverðlr óskast
til starfa i íþróttahúsinu i Keflavik.
Nánari upplýsingar veitir starfsstjóri
íþróttahúsins i sima 1771.
Bæjarritarinn i Keflavik.
75 ára
ídag
75. ára er í dag 15. september.
Munda Stefánsdóttir Skarp-
héðinsgötu 2. Reykjavik. Hún
tekur á móti gestum i félags-
heimili Sóknar Freyjugötu 27.
eftir kl. 6. i dag.
Mjólkur-
framleiðsla
minnkar
1 júli sl. var innvegin mjólk hjá
mjókursamlögunum tæplega 11,7
milj. ltr. eða 0,7% minni en I júli i
fyrra. Fyrstu 7 mánuði ársins var
innvegin mjólk hinsvegar 60,2
milj. ltr.eða 4,6milj. ltr, minnien
sömu mánuði I fyrra. Minnkunin
7,2%.
Flest mjólkursamlögin tóku á
móti Ivið meiri mjólk i júll i ár en
i fyrra. Eitt samlag sker sig þó
verulega úr en það er samlagið i
Borgarnesi. Þar minnkaði inn-
vegin mjólk I júli um 15,7% miðað
við sama mánuö 1980. Nokkur
minnkun varð og hjá Mjdlkur-
stööinni i Reykjavik, I Búöardal
og á Hvammstanga. Hjá
Mjólkursamlagi KEA á Akureyri
varð aukning, 2,45%, svipuð á
HUsavik, og hjá Mjólkurbúi Flóa-
manna 0,16%.
Smávegis aukning varð i sölu
nýmjólkur og irjómaum 3%. En
undanrennan er enn á undan-
haldi. Fyrstu 7 mánuöina i ár
minnkaði sala á henni um 9,5%
frá árinu áður.
Sm jörsalan gekk mjög vel á sl.
ári, enkum þegar veröiö er lægst
og trúlega hafa ýmsir átt nokkrar
birgðir fram á þetta ár,
enda samdráttur i sölu nú, miðað
viö fyrra ár. Smjörbirgðir hafa þó
sjaldan verið eins litlar og nú,
miðað við árstima. Þann 1. ágúst
voru til i landinu 544 lestir af
smjöri en á sama tima I fyrra
voru þær 1.137 lestir.
Mjög mikil aukning hefur orðiö
i sölu á feitum ostum eöa um
26%, en sala á mögrum ostum fer
minnkandi. —m hg
Afgreióum
einangmnar
plast a Stór
Reykjavikur4
svoeðió frá
mánudegi
fóstudags.
Afhendum
vömna á
byggingarst
vióskipta
monnum aó
kostnaóar
lausu.
Hagkvoemt vero
og greiðsluskil
málar vió ftestra
hoefi.
einangrunat
^^■plastið
Aórar
framl«ióskfvorur
pipueinangrun
>OR skrufbutar
ALÞÝÐUBANDALAGIO
Félagsfundur um borgarmálefni:
Breiðholt
Almennur félagsfundur um borgarmál verður haldinn i kaffistofu
KRON við Eddufell n.k. fimmtudagskvöld 17. september kl. 20.30.
Frummælandi: Guðmundur Þ. Jónsson, borgarfulltrúi.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta bæði vel og stundvislega.
Stjórn 5. deildar ABR, Breiðholti.
Alþýðubandalagið,
Selfossi og nágrenni
Félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 16. september að Kirkju-
vegi 7, kl. 20.30. Dagskrá: 1. Forvalsreglur. 2. Otgáfa blaðs um bæjar-
mál. 3. önnur mál. — Stjórnin.
Breytt heimilisföng
Félagar i Alþýðubandalaginu i Reykjavik eru hvattir til að tilkynna
skrifstofu félagsins (simi 17500) um nýheimilisföng. —Stjórn ABR.
Alþýðubandalagsféiagar i Reykjavik
Giróseðlar vegna árgjalds fyrir 1981 hafa verið sendir til félags-
manna. Hvetur stjórn félagsins félaga til að greiða árgjöldin við allra
fyrstu hentugleika. — Stjórn ABR.
Alþýðubandalagið i Kópavogi. — Bæjarmálaráð
Fundur verður haldinn miðvikudaginn 16. september kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Skólamál. 2. Lóðaframboð-lóðaþörf. 3. önnur mál.
Allir félagar i ABK eru velkomnir.
Stjórn Bæjarmálaráðs ABK.
Kjördæmisráð Alþýðu-
bandalagsins, Austur-
landi
Aðalfundur Kjördæmisráðs Al-
þýðubandalagsins i' Austurlands-
kjördæmi verður haldinn á Seyð-
isfirði dagana 26. og 27 september
1981.
Aöalumræðuefni á fundinum
veröur flokksstarfið og undirbún-
ingur fyrir sveitarstjórnarkosn-
ingarnar á næsta ári.
Auk þess verður rætt um byggða-
mál og drög að stefnumótun i
þeim efnum.
Helgi Seljan, alþingismaður og
Hjörleifur Guttormsson, iðnaðar-
ráðherra verða á fundinum.
Dagskrá:
Laugardagur 26. september 1981
Kl. 13.00
1. Fundarsetning.
2. Kosning fundarstjóra og rit-
ara.
3. Kosning kjörbréfanefndar og
nefnanefndar.
4. Avarp: Helgi Seljan, alþingis-
maður.
5. Avarp: Hjörleifur Guttorms-
son, iðnaðarráðherra.
Kl. 15.30:
Kafffihlé.
Kl. 16.00
6. Flokksstarfið og undirbúning-
ur fyrir sveitarstjórnarkosn-
ingar: Einar Már Sigurðsson
og Stefán Thors.
7. Umræður.
Kl. 19.30:
Kvöldverður.
Kl. 20.30:
8. Nefndarstörf.
Sunnudagur 27. september 1981
Kl. 10.00:
9. Byggöamál. Drög að stefnu-
mótun i atvinnu-, félags- og
samgöngumálum: Halldór
Arnason.
10. Umræður.
Kl. 12.00:
Hádegisverður.
Kl. 13.00:
11. Nefndarstörf og framhald um-
ræðna.
12. Aðalfundarstörf og kosningar.
Kl. 16.00:
Fundarslit.
Auglýsing
um starfslaun til listamanns
Stjórn Kjarvalsstaða auglýsir eftir umsóknum um starfs-
laun til listamanns i allt að 12 mánuði. Þeir einir lista-
menn koma til greina við úthlutun starfslauna. sem
búsettir eru i Reykjavik, og að öðru jöfnu skulu þeir ganga
fyrir við úthlutun, sem ekki getað stundaö lisígrein sina
sem fullt starf. Það skilyrði er sett, að listamaðurinn
gegni ekki fastlaunuðu starfi meöan hann nýtur starfs-
launa.
Fjárhæðstarfslauna fylgir mánaðarlaunum samkvæmt 4.
þrepi 105. lfl. i kjarasamningi Bandalags háskólamanna
og fjármálaráðherra f.h rikissjóðs. Starfslaun eru greidd
án orlofsgreiðslu eða annarra launatengdra greiöslna.
Að loknu starfsári skal listamaðurinn gera grein fyrir
starfi sinu með greinargerð til stjórnar Kjarvalsstaða,
framlengingu, flutningi eða upplestri á verki i frumflutn-
ingi eða frumbirtingu, allt eftir nánara samkomulagi við
stjórn Kjarvalsstaða hverju sinni og i tengslum viö Lista-
hátið eða Reykjavikurviku. Ekki er gert ráö fyrir sér-
stakri greiðslu samkv. þessari grein, en listamaðurinn
heldur höfundarrétti sinum óskertum.
1 umsókn skal gerð grein fyrir viðfangsefni þvi sem um-
sækjandi hyggst vinna að og veittar aðrar anuðsynlegar
upplýsingar.
Umsóknum skal komið til stjórnar Kjarvalsstaða fyrir 1.
okt. 1981.
11. september 1981,
Stjórn Kjarvalsstaða.