Þjóðviljinn - 15.09.1981, Page 16
UOÐVIUINN
Þriðjudagur 15. september 1981
Aðalslmi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná i blaöamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum simum : Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt að ná i afgreiðslu blaðsins I sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsimi afgreiðslu ^ 81663
Samband byggingamanna ályktar:
Öflug samstaða
verkalýðssamtakanna
Uppsögn samnlnga hjá byggingamönnum
Á laugardaginn var
haldinn fundur Sambands-
stjórnar og formanna
aðildarfélaga Sambands
byggingarmanna. I
ályktun sem samþykkt var
á fundinum er meðal ann-
ars undirstrikað mikilvægi
sóknar í félagslegum rétt-
indamálum og um aukinn
kaupmátt. Þá er einnig
bent á að markmiðunum
verði frekast náð með öfl-
ugri samstöðu verkalýðs-
samtakanna. Ályktunin er
svohljóðandi:
„Nú, sem jafnan áður skiptir
launaupphæðin sjálf ekki höfuö-
máli I kjarasamningum. Aukinn
kaupmáttur launa, hjöðnun verð-
bólgu, atvinnuöryggi og sókn i
félagslegum réttindamálum,
skiptir ekki minna máli þegar
meta skal hvert stefnir um lifs-
kjör launafólks i landinu.
í þeim samningum sem nú fara
i hönd er kaupmáttaraukning og
full verðtrygging mikilvægasta
viðfangsefnið. Telur fundurinn að
þeim markmiðum verði frekast
náð með öflugri samstöðu verka-
lýðssamtakanna.
A hinn bóginn er ljóst að
byggingamenn þurfa að ná fram
leiðréttingu á ýmsum þáttum
sinna samninga, sem ekki er á
færi annarra en samtaka þeirra
sjálfra að leysa. Fundurinn telur
þvi að við gerð næstu kjarasamn-
inga skuli samningsumboð félag-
anna verða hjá Sambandinu en
bendir jafnframt á að með kaup-
gjaldsvisitölu, tryggingamál og
fleira þess háttar, sé rétt að fjall-
að sé um á vettvangi ASI. Þá
hvetur fundurinn öll aðildarfélög
Sambandsins til þess aö taka upp
umræður um væntanlegar kröfur
og samningsgerð meö það i huga
að segja upp samningum fyrir 1.
október n.k. þannig að þeir verði
lausir frá 1. nóvember. Þvi er
knýjandi nauðsyn að allar kföfur
verði fram komnar fyrir næstu
mánaðamót, svo unnt verði að
taka endanlega ákvörðun um
framkvæmd samninga og kröfu-
gerðina i heild.”
Samvinna stúdenta og ferðamálaráðs:
NYR STUDENTA-
GARÐUR?
Ferðamálaráðstefna sam-
þykkti stuðning
A laugardaginn var haldin
Ferðamálaráðstefna 81 þar sem
meðal annars var samþykkt til-
laga um stuöning við byggingu
nýs stúdentagarðs, sem leysti
húsnæðisvanda námsmanna að
vetri tii og gæti tekið við ferða-
mönnum að sumri til. Ályktunin
fer hér á eftir:
„Félagsstofnun stúdenta við
Háskóla Islands, er sjálfseignar-
stofnun sem á og rekur ýmis
þjónustufyrirtæki i þágu stúdenta
og annarra námsmanna. Félags-
stofnunin rekur m.a. tvö fyrirtæki
er að ferðamálum starfa, þ.e.
Ferðaskrifstofu stúdenta og Hótel
Garð (sumarhótel).
Hótel Garður er rekið á stúd-
entagörðunum tveim, Gamla
Garði og Nýja Garði þann tima
ársins er stúdentar eru ekki við
nám. Þeir stúdentar er á Görð-
unum búa eru alfarið utan af
landi, og er löngu ljóst að garð-
arnir anna hvergi nærri eftir-
spurn eftir garðvist. Það er þvi
brýnt hagsmunamál náms-
manna, einkum stúdenta frá
öðrum byggðalögum en Reykja-
vikursvæðinu, að byggður verði
hið fyrsta nýr garður. Vegna
þessa vill Félagsstofnun stúdenta
leita stuðnings - Ferðamála-
ráðstefnu 1981, sem haldin er i
Stykkishólmi, við þá hugmynd
að reistur verið hið fyrsta nýr
stúdentagarður, i samvinnu og
samráði við Ferðamálaráð,
með hugsanlegri fjármögnun úr
Ferðamálasjóði, enda verið
gert að skilyrði aö garðurinn
verði nýttur til hótelrekstra
mánuðina júni til ágúst ár
hvert.” Tillagan var samþykkt
samhljóða á ráðstefnunni. —óg
Fiskimjölsfram-
leiðendur óánægðir
með loðnuverðið:
Ræða við
ráðherra
Fiskmjölsframleiðendur frest-
uðu á föstudag aðalfundi sinum
fram i október og samþykktu að
óska éftir viðræðum við sjávarút-
vegsráðherra um rekstrarvanda
loðnuverksmiðjanna. Segir i
fréttatilkynningu frá Félagi isl.
fiskmjölsframleiðenda að verk-
smiðjurnar geti ekki starfað
áfram ef rekstrargrundvöllur
þeirra brestur og er s ifiasta verð-
lagning á loðnu til bræðslu átalin
harðlega.
Félag fiskmjölsframleiðenda
telur að i forsendum oddamannsv
hafi verið gert ráð fyrir miklu
hærra verði á afurðum en fáan-
legt sé og ennfremur hafi verið
gert ráð fyrir hærra gengi á
dollar en skráning segir til um.
Þessar „bjartsýnis forsendur”
þýði að verksmiðjurnar fái ekkert
upp i afskriftir eða vexti og litið
upp i viðhaldskostnað. Hins vegar
sé gert ráö fyrir þvi að veiðiskip
fá allan kostnað greiddan, þar
með taldar afskriftir og hafi
hagnað að auki.
Húsnæðisvandi námsmanna:
Fundur OECD:
Auka þarf samstarf
ranns óknastofnana
Verður leigt
hótel í vetur?
Það þarf að leysa húsnæðis-
vanda námsmanna utan af landi
hið bráðasta, sagði Skúli Thor-
oddsen framkvæmdastjóri Fé-
lagsstofnunar stúdenta er blaðið
forvitnaðist hjá honum um tilurð
tiUögunnar um nýjan stúdenta-
garð í Reykjavik, sem Ferða-
má laráðs tefnan samþykkti i
Stykkishólmi nú um helgina.
— Þaðeru nfutiunámsmenn ut-
an af landi sem fá nú inni á stúd-
entagörðunum I einstaklingsher-
bergjum.Ená Hjónagörðum eru
55 fjölskyldur námsmanna. Það
erljóst að SOOstúdentafjölskyldur
vilja búa i stúdentaíbúðum ef að
þær væru fyrir hendi. Umsóknir
um ibúðir á görðunum eru svo
margar að engri tölu tekur. A
þriðja hundrað umsóknir bárust
um vist á StUdentagörðunum i
einstaklingsherbergi — það eru
allt stUdentar utanaf landi. —
— Þegar þetta ástand er skoðað
ásamt þvi ófremdarástandi i
gistihúsamálum sem skapast aö
sumri og til mikilli fjölgun ferða
manna á næstu árum, þykir mér
einsýnt að fari saman tvenns kon-
ar hagsmundir. Þvi samþykkti
ferðamálaráðstefnan i Stykkis-
hólmi stuöning við byggingu fyr-
irhugaðs stúdentagarðs til að
leysa húsnæðisvanda náms-
manna á vetrum og ferðamanna
á sumrin. Ég fagna þessari frum-
sýni allra fulltrúa á Ferðamála-
ráðstefnu ’81 og vænti góörar
samvinnu Félagsstofnunar og
Ferðamálasjóðs, en likur eru á að
hann komi til með að eiga hlut að
fjármögnun á nýju görðunum. —
— Við hafum gert okkar itrasta
til að leysa húsnæðisvanda náms-
manna nU i vetur. Við höfum
reynt aö fá hótel á leigu án árang-
urs. Félagsstofnun fól Stúdenta-
ráði að annast húsnæðismiðlun
nú i haust og eitthvað hefur það
skilað árangri en vandinn stendur
eftir sem áöur. Það eru mörg
dæmi þess að námsmenn hafi
hætt við fyrirhugaö nám sitt
vegna húsnæöisskorts. Ég ber þá
von I brjósti að hóteleigendur
skilji vandamálið þvi með fullri
nýtingu hótel i vetur væri fundin
bráðabirgöalausn á húsnæðis-
vanda námsmanna. — —óg
Dagana 10. og 11. september
var haldin ráðstefna á Hótel Loft-
leiöum um visinda- og tækni-
stefnu á islandi. Þessi ráðstefna
var haldin vegna athugunar sem
Efnahags- og framfarastofnunin
hefur gert að beiðni Rannsóknar-
ráðs ríkisins. i tengslum við ráð-
stefnuna var einnig haldinn fund-
ur visindanefndar Efnahags- og
fram farastofnunarinnar.
•' A ráðstefnunni var f jallað um
skýrslu, sem OECD hefur gert
um visinda- og tæknistefnu á is-
landi. Er hUn löng og efnismikil,
og er þar rakin þróun rannsókna
hér á landi siðasta áratug. Til-
drög skýrslunnar eru þau, að 1960
komu fulltrUar OECD til islands.
Voru þeir að kanna stöðuna i
tækni og visindum hér með tilliti
til efnahagsþróunar i landinu. Tiu
árum siðar voru þeirenn á ferð og
I framhaldi af þvi lét Rannsókn-
arráð rikisins gera langtimaáætl-
un fyrir árin 1974—1978 um meg-
inþróun atvinnuveganna. Á sið-
asta ári komu svo enn á ný sér-
fræðingar frá OECD til aö kanna
stöðu mála og hafa þeir skilað
áliti þvi, sem ráðstefnan fjallaði
um. Þessir menn voru próf.
Christopher Freeman frá Bret-
landi og James Mullin frá
Kanada.
1 skýrslu þeirra félaga kemur
fram, að íslendingar standa sig
best irannsóknum i sjávarútvegi,
orkufrekum iðnaöiog landbdnaöi.
Miðað við nágrannalöndin eru Is-
lendingar hins vegar skammt á
veg komnir I rannsóknum á bygg-
inga- og framleiðslusviði.
Þá kemur fram i skýrslunni, að
óvenju hátt hlutfall heildarfjár-
framlaga til rannsóknarstarfa
kemur Ur opinbera geiranum.
Nemur þaö um 90%, en á Norður-
löndum er talan frá 30—50%. Af-
gangurinn kemur frá einkaaðil-
um. Kom fram á ráðstefnunni i
ræðum manna, að þetta hlutfall
þyrfti að breytast, þannig að
einkaaöilar verðu hærri upphæð-
um til rannsókna.
I umræðum á ráðstefnu þessari
kom fram að samstarf þeirra
stofnana, er stunda rannsóknir i
landinu, væri ekki sem skyldi, og
oft gætti jafnvel tortryggni milli
þeirra. Þessu þyrfti nauðsynlega
að breyta. Þá var það mál
manna aðauka þyrfti mjög fjár-
magn til rannsóknarstarfseminn-
ar i landinu. Tengja þyrfti hana
við langtimaáætlanir, en ekki
bara við úrlausnir smærri vanda-
mála, eins og oft hefði verið gert.
Inn i umræöur ráðstefnugesta
spunnust vangaveltur um þátt-
töku kvenna i visindum og rann-
sóknarstarfi. Einungis þrjár kon-
ur sátu ráðstefnuna og töluðu þær
allar um þetta efni. Töldu þær
skýringuna liggja i innrætingu á
hefðbundinni hlutverkaskiptingu
allt frá barnæsku.
Um 120 þáttakendur sátu ráð-
stefnuna, þar af 20 Utlendingar.
Svkr.