Þjóðviljinn - 16.01.1982, Qupperneq 17

Þjóðviljinn - 16.01.1982, Qupperneq 17
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 16.— 17. janúar 1982. Helgin 16.— 17. janiiar 1982. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17 BREIÐHOLTIÐ Rætt við Lenu M. Rist formann Framfarafélags Breiðholts III Lena Rist, form. Framfaraféiags Breiðholts III. út um gluggann má sjá yfir i Selásinn. ,Hinn almenni borgari hefur meiri völd en hann heldur” Framfarafélag Breiö- holts III er senn áratugar- gamalt; það var stofnað 1973 og er eitt af fyrstu hverfasamtökum borgar- innar. Lena M. Rist hefur verið formaður þess í eitt ár, en áður sat hún i stjórn. Við ræddum við Lenu um félagið/ viðfangsefni þess og markmið. Næg verkefni „Ég held aö það hafi sýnt sig á undanförnum árum að þörfin fyr- ir slikan félagsskap var mjög brýn hér i Breiöholti. Auðvitað má segja að hún sé brýnust á meðan hverfið er að byggjast upp, en þó koma stöðugt ný og ný verkefni fyrir svona félag. Viö höfum breytt félaginu þannig, aö nú eru engin félagsgjöld, heldur eru allir ibúar hverfisins sjálf- krafa i félaginu. Það reyndist ógerlegt að halda félagaskrá með félagsgjöldum, þar sem hreyfing- in er svo mikil i hverfinu. Við fá- um hins vegar styrk frá borginni sem endist fyrir nauösynlegasta skrifstofurekstri, þ.e. frimerkj- um og litilsháttar útgáfustarf- semi. Við erum nú að undirbúa gerð nýrra laga fyrir félagið og höfum reynt að leggja i þau mikla vinnu, t.d. fengið lögfræöiaöstoð, þar sem ljóst er að þessi lög geta orðiö öðrum hliðstæöum félögum að leiðarljósi.” Árangur „Getiö þiö rakiö einhverjar framfarir ■ hverfinu beint til ykk- ar?” „Það er alltaf erfitt að segja hvað er hverjum að þakka. Viö höfum yfirleitt átt ágætt samstarf við borgarstjórn og ýmsa þá aðila sem bera ábyrgö á skipulagsmál- um, skólamálum og fleiru i hverf- inu. Oft er viljinn hjá þeim þó meiri en efndirnar. Ég held þó að það sé hægt að segja að við höfum haft bein eða óbein áhrif á mörg framkvæmdamál hér i hverfinu. Ég get nefnt gangbrautar- og gangstéttamál, þrengingar á göt- um, skipulagningu sundnám- skeiða, skiðabrekku á Vatnsenda- hæð, hátiöahöld 17. júni, dagvist- armál, skipulagningu strætis- vagnanna, sundlaugarbyggingu og fleira.” Heilsugæsla „En hvaöa mál eru brýnust hja ykkur þessa stundina?” „Meðal mála sem við höfum áhuga á er að fá skautasvell i hverfið. Skipulag heilsugæslu- þjónustunnar er einnig mjög þýö- ingarmikiö mál, en nú liggur fyrir aö byggja hér i hverfinu heilsu- gæslustöð. Eru mjög skiptar skoðanir um þetta mál. I heil- brigðisráðuneytinu hefur veriö gert ráð fyrir að byggð verði ein heilsugæslustöð I hverfinu, en læknar stöðvarinnar hér telja æskilegra að hafa tvær litlar stöðvar, svo hægt sé að ná per- sónulegra sambandi við sjúklinga sem þangað leita.” ,,Ug hver er afstaöa ibúa hverf- isins?” „Við erum frekar á bandi lækn- anna. Við teljum að beir. vinna við þessi störf daglega nafi mesta þekkingu til að dæma um fyrirkomulagið. Það má segja að sú afstaöa okkar gildi um fleiri málefni. Við teljum að þaö eigi yfirleitt að leita álits þess fólks sem mun vinna i stofnunum þeim sem er verið að reisa i hverfinu. Umferðarmál eru lika mjög of- arlega á baugi hjá okkur i Fram- farafélaginu. Nú er fyrirhugað að leggja veg sem tengir nýja Selás- hverfið við Breiöholt III. Vegur- inn á aö vera framhald af Suður- hólum niður i Elliðaárdal yfir brú nálægt gömlu vatnsveitubrúnni uppi i Seláshverfi. Við erum mjög uggandi um þennan veg, og viljum að fyrst verði lokið svonefndum Ofan- byggðarvegi sem tæki við allri umferö af Suðurnesjum upp á Rauðavatnssvæðiö, þvi annars leggst gifurlegur umferðarþungi á veginn um Suöurhóla, en þar eru skólar, dagheimili og þétt ibúöabyggö.” Menningarmiðstöð „Geturöu nefnt fleiri dæmi um mál sem eru brýn i nánustu fram- tiö?” „Það má ekki gleyma menn- ingarmiðstööinni, sem senn er risin. Forsaga þess máls er sú að þegar Framkvæmdanefnd bygg- ingaráætlunar hafði lokið sinum verkefnum, komu i ljós hundruð miljóna gamalla króna, er safn- ast höföu saman vegna afskrifta á tækjum. Var hverfinu gefin þessi upphæö og skyldi hún nýtast til byggingar fyrrgreindrar menn- ingarstöðvár. Er þar gert ráö fvrir margvis- legri aðstöðu m.a. fyrir leik- list, tónlist, myndlist, fristunda- iðkanir, ýmiss konar föndur og einnig fyrir eldri borgara ásamt fleiru. Þá verður Borgarbóka- safnið með útibú i húsinu. Sérstök nefnd hefur verið sett á laggirnar til þess að skipuleggja starfsem- ina, en áætlað er að menningar- miðstöðin verði tilbúin 1983. Framfarafélagið fór fram á það i bréfi til borgarstjóra að fá að eiga sæti i nefndinni eöa á anna'ð hátt að vera i tengslum við hana og höfum við nú fengiö áheyrnarfull- trúa i henni. Ekki höfum við þó verið boðuð á fund ennþá, en rætt hefur verið við okkur. Það sem við teljum brýnast i þessu sam- bandi er að þegar i stað veröi haft samband við ýmsa þá aðila sem þekkingu hafa á hinni óliku starf- semi sem þarna á að fara fram, þvi eftir þvi sem best er vitað eru ýmis vandkvæöi á þvi að i þessari menningarmiðstöð verði þægt aö stunda skapandi menningu, t.d. tónlist og leiklist. Bæði er að sal- irnir eru margir og litlir, sem þýðir að eingöngu veröur hægt að vera þarna með mjög fámenna eða ódýra tónleika eða leiksýn- ingar, þar sem slik starfsemi ber sig engan veginn nema ákveðinn áhorfenda — áheyrendahópur sé til staðar. Það segir mér fólk sem þekkir til,t.d. tónlistar og leik- listar,að það sé mjög erfitt að fá slikt húsnæöi hér i Reykjavik, þvi á langflestum stööum hefur þekk- ingarleysi valdið mistökum sem ekki verða bætt. Það verður þvi að leita til fagfólks áður en það er um seinan. Viö viljum aö þessi menningarmiðstöð risi undir nafni, þvi hún getur haft ótrulega mikið að segja fyrir hverfið og borgina alla”. Félög í öðrum hverfum „Hafið þiö I Framfarafélaginu haft mikil samskipti viö hliðstæð félög i öörum hverfum?” „Já, við höfum haft einna mest samskipti við félögið i Arbæ og Selási og sóttum t.d. ráðstefnu sem þau höfðu frumkvæði að, þar sem fjallað var um Elliðaárdal- inn og skipulag hans. Þá hafa ibúasamtök á Kjalarnesi haft samband við okkur með það fyrir augum að kynnast starfsemi okk- ar”. „Hvað með önnur félög i hverf- inu t.d. iþróttafélög og foreldra- félög?” „Við höfum talsvert samband okkar á milli og höfum staðið að sameiginlegum yfirlýsingum um einstök málefni”. Ahrif félagsins „Finnst þér fólk i hverfinu al- mennt gera sér grein fyrir þýð- ingu og áhrifum félagsins?” „Það má segja að hinn almenni ibúi geri sér ekki grein fyrir þvi hversu mikil áhrif hann getur haft á framgang mála i gegnum svona félagsskap. Þaö gerist kannske ekki fyrr en með næstu kynslóð. Ég held aö fólk vinni al- mennt svo mikiö aö það hafi ekki tima til að sinna ýmsum félags- og framfaramálum. Hjá flestum er þessi mikla vinna ill nauðsyn og það þarf að bæta ýmiss ytri skilyrði til aö fólk geti sinnt félagsmálum. Við vitum að fólk verður helst að eiga eigiö húsnæði ef það er með fjölskyldu og það byggir enginn af lágum tekjum. En þó að fólk sé oft full sinnulaust um mál sem snerta það sjálft, verð ég þó að segja að það hefur orðið mikil breyting á viöhorfum foreldra til skólanna. Sambandið er miklu meira og opnara en þaö var”. Sérstök „borgarstjórn”? „Nú er það Ijóst að hverfi með 25 þús. ibúa eins og Breiðholtiö skilar drjúgum tekjum til rikis og borgar. Heldur þú að i framtíö- inni verði sér „borgarstjórn” fyrir hverfi af þessari stærð?” „Ég tel þaö ekki nauðsynlegt en borgarstjórn verður að gera sér grein fyrir að hér býr fólk sem skapar borginni mikinn hluta tekna hennar. Og það er ljóst að á Alþingi eru áhrif eins Vestfirð- ings meiri en eins Breiðhyltings. Það er eins og sumir dæmi Breið- holtið sem einhvers konar „af- kima” ef dæma má ummæli fréttamanns i útvarpi á dögunum, sem spurði gest á nýja dansstaðn- um „Broadway” hvernig honum þætti að sækja dansstað sem væri svona „útúr”! Skilur fólk ekki aö þaö er útúr fyrir Breiðhyltinga að fara t.d. vestur á Sögu? Ég held þó al- mennt aö ibúar i Breiðholti séu ánægöir meö að búa hér og sjái marga kosti við hverfiö, sem ekki eru annars staðar. En fólk veröur að muna að þótt það krefjist af- skipta af málefnum hverfisins er það ekki aö biðja um annað en það sem er sjálfsagt og réttlátt. Hinn almenni borgari hefur mun meiri völd en hann heldur,” sagði Lenaaölokum. —þs Breiöholtið er barnflesta hverfi borgarinnar. Mvndirnar eru teknar í Hólabrekkuskóla. — Ljósm. — I nágrenni skólanna iefra Breiðholti hafa verið gerðar þrengingar á götum. Menningarmiðstöðin- við Gerðuberg, sem senn er tilbúin. Nýja sundlaugín iefra Breiðholti er mjög vinsæl af ibúunum bæði sumar og vetur.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.