Þjóðviljinn - 16.01.1982, Side 20
20 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 16.— 17. janúar 1982.
dseaurtónlíst
Skondið úr
sk j alasafninu
Undirrituð stóðs ekki þá freistingu að stela með-
fylgjandi úrklippu úr New musical express. Hér er á
ferðinni kveðja til Phils Oakey, aðalsöngvara og laga-
smiðsbresku hljóðgerfla hljómsveitarinnar Human
League (sem kvað vera væntanleg til íslands). Kveðj-
una sendir honum gömul bresk rokkhetja, Screaming
Lord Sutch, sem er búin að vera í rokkinu í rúma tvo
áratugi.
Andrea
Jónsdóttir
skrifar
A litlu myndinni er „nýróm-
antikerinn” Phil Oakey árið
1981. A þeirri stóru er Scream-
ingLordSutch (fyrirmynd Phils
að þvi er viröist). Sú mynd var
tekin á þvi herrans ári 1964. Og
kveöjan frá Lord Sutch hittir
óneitanlega i mark: „Þú varst
ekki sá fyrsti, Philip Oakey”.
Siðan notar lávarðurinn tæki-
færið til að auglýsa sig i leiðinni
og hvetur fólk til að kynna sér
nýjustu tiltektir „hins góða lá-
varðar” (á ensku taka þeir
gjarnan svo til orða, þegar talað
er um Jesús Krist) á hljóm-
leikaferðalagi með Stray Cats.
„Enn rokkandi eftir 21 ár...”.
Ekta lávarður
Screaming Lord Sutch kom i
heiminn áriö 1942 og var skirður
David. Fyrir utan ættarnafn sitt
Such ber hann með réttu aðals-
titilinn fimmti jarl af Harrow.
Arið 1958 stofnaði hann sina
fyrstu hljómsveit, The Savages,
en meðal liðsmanna var pianó-
ieikarinn Nicky Hopkins sem
m.a. hefur leikið með Rolling
Stones, Jeff Beck og Rod Stew-
art.
Sviðsframkoma Such lávarð-
ar var frá upphafi mjög villt og
sótti hann margt i hryllings-
kvikmyndir 6. áratugsins (t.d.
Jack the Ripper) og til amer-
iska söngvarans Screaming
Jack Hawkins (f. 1929) sem not-
aði t.d. lfkkistur, slöngur og
hauskúpur á hljómleikum sin-
um. Dr. John, Alice Cooper og
Arthur Brown hafa líka fetað i
fótspor Hawkins.
Arið 1974 bauð lávarðurinn
öskrandi sig fram i kosningum
til enska þingsins fyrir Þjóðar-
flokk táninga en tókst ekki að
komast langt i vinsældum á
þeirri braut. Þá kom hann á fót
sjóræningjaútvarpsstöð en ekki
varð hún gróðavænleg né lang-
lif. Hann sneri sér þvi að fyrri
iðju — að syngja á klúbbum út
um landsbyggðina.
Eingöngu er mér kunnugt um
tvær hljómplötur frá Screaming
lord Sutch: Lord Such and
heavy friends (Atlantic — 1970),
og hans „þungu” vinir eru engir
aðrir en Nicky Hopkins, Jeff
Beck og helmingur Led Zeppe-
lin, Jimmy Page gitarleikari og
John heitinn Bonham tromm-
ari. 1971 kom út Hands og Jack
the Ripper.
Screaming Lord Such hefur
ekki aldrei náð miklum vinsæld-
um sem músikant, þótt uppá-
tæki hans hafi af og til valdið
umtali og hneykslan. Kannski
tekst honum það nú á vegna
hljómleikahalds með Stray Cats
og... og i kjölfar vinsælda Hum-
an League með Phil Oakey i
broddi fylkingar þar sem Phil
Oakey er i broddi fylkingar...
með hinn „nýja” gamla stil lá-
varðarins. Og allt er jú fertug-
um fært...
A
Friðryk í lagi
Ekki er hægt að segja að
hljómplata Friðryks hafi þyrlað
upp skrifum er hún kom út sl.
haust. Skýringin á þvi mun vera
slæleg dreifing á gripnum og inn
á Þjóðvilja barst Friðryk ekki
fyrr en i desember. Það verður
bara að segjast eins og er, að
ætli plötufyrirtækið að standa
þó ekki væri nema jafnfætis
Steinum hf. i dreifingu, þá verða
þau að taka á honum stóra
sinum.
En nóg um dreifingarslys.
Friðryk er sómahljóm-
plata,— ljóörænt rokk með
djassivafi og hljóðfæraleikur
allur með ágætum. Ég vil þó
leyfa mér að nefna sérstaklega
góðan gitarleik Tryggva
Hiibner alla plötuna út i gegn.
Lagasmiðar eru flestar góöar
og skemmtilega útsettar; bara
eitt leiðinlegt lag á plötunni.
Það er að visu alveg hundleiðin-
legt, A balliðeftir Paul Collins.
Ég skil ekkert i Friðryksmönn-
um að vera að leita til útlanda
þegar þeir semja sjálfir eins góð
lög og platan ber vitni um.
Bestu lögin finnast mér Há-
degisbardagar og Friðryk eftir
Tryggva, Fyrir og eftir vopna-
hlé eftir Pétur Hjaltested
hljómborðsleikara (og söngv-
ara), Astin eftir Sigurð Karls-
son trommara, og svo Póker
eftir Jóhann Helgason. Pálmi
túlkar vel þann ágæta texta
þeirra Valtýs Þórðarsonar
(Gunnabróður) og Jóhanns G.
Annars á Viktor A. Guðlaugsson
bestu texta plötunnar að minu
mati, Bræðralag við lag Björg-
vins Gisla og 1 kirkju við lag
Pálma Gunnarssonar, aðal-
söngvara og bassaleikara
þeirra Friðryksmanna. (A Friö-
ryk er reyndar að finna lag sem
Asgeir óskarsson gerði við ljóð
Steiris Steinarrs, Myrkur, en
Steinn er undanskilinn i þessari
einkunnargjöf. Með eru Krist-
ján Hreinsmögur og Pétur
Hjaltested).
Boðakspur Friðryks er i anda
friðarhreyfinga eldri og
nýrri,— og hljómlistin þar aö
auki þrælvönduð. Þó má klaga
undan dálitið loðnu „sándi” á
stundum. Loks vil ég bara
þakka hljómsveitinni hressilega
uppákomu I útvarpinu á
gamlárskvöld... eða var þaö ný-
ársnótt...?
A
Áf ARCHIVE
FUN
Top: Phil
Oakey.
Right:
Oakey
copyist
Screamin'
Lord David
Sutch in
1964 —
before he
made his
name as
leader of
the
National
Teenage
Party
Check out
the good
Lord's
latest
barnet on
the Stray
Cats tour
starting
next
week,
fans! "Still
rocking
after21
years ..."
Wéf*Mr "ffhf
°ftKgy<
Labbi og Smári ætla að bjóða fólki upp á gistingu er það vinnur við
upptökur I stúdióinu i Glóru.
Stúdíó,
stúdíó...
Dreibbbýlingar (hér var
freistandi að nota fræbbblsku,
... að athuguöu máli Guðna
kj....sku, sem- notaði orðið
„dreibbbylisbekkur” til forna)
....já, dreibbbýlingar eru smám
saman að koma á Upptöku-
stúdióum. 1 Glóru i Hraun-
gerðishreppi biður Ólafur
Þórarinsson eftir manni utan-
lands frá til að setja upp tækin i
stúdióisem hann hefur smiðað i
ibúðarhúsi sinu ásamt fyrrum
félaga sinum úr Mánum, Smára
Kristjánssyni. Þeir félagar
munu reka þetta fyrirtæki i
sameiningu og ætla jafnframt
að búa þannig um hnútana að
fólk geti gist þarna i sveitinni,
þegar það er að vinna i stúdió-
inu. Það er glóra i þvi.
1 Keflavik er verið að reka
smiðshöggið á stúdió sem er til
húsa i Kjallaranum hjá Rúnari
Júliussyni (er hann ekki ennþá
kenndur við Hljóma?), en
ásamt Rúnari hefur Þórir
Baldursson unnið að uppsetn-
ingu þess. Stúdióið mun geta
tekið til starfa i næsta mánuði.