Þjóðviljinn - 16.01.1982, Page 24
24 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 16.— 17. janúar 1982.
ALÞYÐUBANDALAG1Ð
Alþýöubandalagið í Reykjavík
OPIÐHÚS
Kosningavaka aö Grettisgötu 3
Opið hús fyrir félagsmenn ABR veröur i risinu aö Grettisgötu 3, i dag,
laugardaginn 16. janúar.
Húsiö opnaö kl. 21.00
Kaffi og kökur
Kjörnefnd stefnir aö þvi aö birta niöurstöður úr fyrri umferð forvalsins
upp úr miðnætti.
Mætið og hittiö félagana og fáið upplýsingar um niðurstöður forvalsins.
Stjórn V. Deildar ABR.
Alþýðubandalag Selfoss
og nágrennis
Opnu húsi sem átti að verða i dag, 16. janúar, er
frestað. Einnig fundi með Asmundi Stefánssyni 23.
janúar. Nánar auglýst siðar.
Viðtalstimi Garðars Sigurðssonar alþingismanns,
verður að Kirkjuvegi 7, Selfossi, laugardaginn 23.
janúar kl. 14.
Kaffi verður á könnunni. Fjölmennum.
Stjórnin
Alþýðubandalag Selfoss
og nágrennis
Forval vegna bæjarstjórnarkosninga á Selfossi hefur verið ákveðið.
Fyrri forvalsdagur er 13. febrúar, seinni forvalsdagur 20. febrúar.
Félagsfundur verður haldinn 6. febrúar og er inntaka nýrra félaga m.a.
á dagskrá. Nánar auglýst siðar. — Uppstillinganefnd.
Ráðstefna um Atvinnumál
i Norðurlandi eystra
Norðurlandskjördæmi eystra — Atvinnumálaráð-
stefna á vegum stjórnar kjördæmisráðsins verður
haldin á Húsavik dagana 23. til 24. janúar. Eft-
irtaldir málaflokkar verða á dagskrá:
1) Stefna Alþýðubandalagsins i atvinnumálum.
2) Atvinnuástand og horfur i kjördæminu.
3) Möguleikar létts nýiðnaðar.
4) Stóriðnaöur.
5) lönþróun og verkalýðshreyfingin
Frummælendur verða meðal annarra: Þröstur
Ólafsson, Pétur Eysteinsson, Helgi Guðmundsson.
Þátttökutilkynningar þurfa að berast Siguröi
Rúnari Ragnarssyni i sima: 44136 (Reykjahlið)
Stjórn kjördæmisráðs.
Alþýðubandalagið Keflavik
Alþýðubandalagiö i Keflavik heldur almennan félagsfund i Tjarnar-
lundi mánudaginn 18. janúar kl. 20.30.
Dagskrá:
1) Undirbúningur starfs fyrir kosningar. 2) Inntaka nýrra félaga. 3)
önnur mál.
Þorrablót— Húsavík
Þorrablót Alþýðubandalagsins á Húsavik veröur haldiö laugardaginn
23. janúar og hefst með borðhaldi kl. 19.30.Húsið opnaö kl. 19.00.
DAGSKRA: l) Samkoman sett — Freyr Bjarnason.
2) Alþingismennirnir Guðrún Helgadóttir og Heígi Seljan skemmta
með söng og spjalli.
3) Visnasöngur Helga Bjarna og Villa Baldurs.
4) Sigurður Hallmarsson stjórnar fjöldasöng.Veislustjóri er Freyr
Bjarnason. Bragi.Siddi og Kalli sjá um fjörið. Félagar úr kjördæminu
eru hvattir til að fjölmenna og taka meðsérgesti. Miðapantanir i sima:
41139 — 41761 og 41743 e.kl. 17.00. — Alþýöubandalagsfélagið Húsavik
Laus staða
Fulltrúastaða við embætti rikisskattstjóra
er laus til umsóknar. Umsækjendur þurfa
að hafa lokið embættisprófi i viðskipta-
fræði, lögfræði eða endurskoðun. Viðtæk
þekking á skattamálum, þjálfun og starfs-
reynsla á sviði þeirra, sem umsækjandi án
embættisprófs i áðurnefndum greinum
hefur öðlast, getur þó komið til álita við
mat á umsóknum og ráðningu.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, skal senda rikis-
skattstjóra, Skúlagötu57, Reykjavik, fyrir
15. febrúar nk.
Rikisskattstjóri
12. janúar 1982
Þökkum innilega auðsýnda samúð viðandlát og útför
Sigursveins Óla Karlssonar
Jenný Sigurbjartsdóttir, börn
Karl Sæmundarson
Jón Óttarr Karisson
Maria Valgerður Karlsdóttir
Særún Æsa Karlsdóttir
Fanney Magna Karlsdóttir
Ragna Freyja Karisdóttir
um helgina
Dýrin i Hálsaskógi
Akureyringar sýna nú „Dýrin i Hálsaskógi” við gifurlega aðsókn.
Uppselt er á allar sýningar um helgina, en næstu sýningar verða á
þriðjudagogfimmtudag.MyndinerafMikka ref (Gestur E. Jónas-
son) á spjalli við bangsahjónin (Sunna Borg og Theodór Júliusson).
Með þeim á myndinni eru Andrés Sigurvinsson, Hildigunnur
Þráinsdóttir og Marinó Þorsteinsson.
Leikbrúðuland á sunnudaginn
A sunnudaginn kl. 15.00 verður sýning hjá Leikbrúðulandi að
Frikirkjuvegi 11. Sýnd verða tvö leikrit Eggið hans Kiwi nefnist
annað og hitt héitir Hátið dýranna. Miðasalan opnar að Frikirkju-
vegi 11, kl. 13 á sunnudaginn og miðapantanir eru i sima 15937.
Alþýðuleikhúsið um helgina
Á laugardaginn kl. 20.30 sýnir Alþýöuleikhúsið Þjóöhátiö eftir
Guömund Steinsson. A sunnudaginn veröur Sterkari en Superman
sýndur kl. 15.00 en klukkan hálf niu á sunnudagskvöldiö veröur Illur
fengur sýndur. Næsta sýning á Sterkari en Superman veröur svo á
mánudagskvöldiö kl. 20.30.
Galdraland í Tónabæ
*
,,Galdraland”eftirBaldurGeorgsverðuráfjölunum um helgina i
Tónabæ. Leikritið var sýnt fyrir jól i Reykjavik og nágrenni. Leik-
stjóri er Erlingur Gislason, en leikarar Aðalsteinn Bergdal, Þórir
Steingrimsson ogMagnús Ólafsson, — Baldurog Konni koma einnig
iheimsókn.Siðustusýningar verða iTónabæ næstu sunnudaga kl. 3.
Miðsala er við innganginn og á laugardag og sunnudag frá kl. 1—3.
tónlist
Sigríður
Ellaá
Akureyri
Sigriður Ella Magnúsdóttir og
eiginmaöur hennar Simon
Vaughan halda söngtónleika á
Akureyri nú um helgina. Undir-
leikari er Jónas Ingimundarson.
Á efnisskránni veröa dúettar
eftir Mozart, Brahms, Rossini
o.fl. og einsöngslög eftir Grieg,
Purcell Mendelsohn, Borodin,
Sigvalda Kaldalóns og Þórarinn
Guðmundsson. Þau eru bæöi
landsfrægir söngvarar og hafa
einnig sungið mikiö erlendis.
Aögöngumiöasala veröur I
bókabúöinni Huld og viö inn-
ganginn. Þaö er Tónlistarfélag
Akureyrar, sem stendur fyrir
tónleikunum og hefjast þeir kl.
17 laugardaginn 16. ianúar.
Orgeltónleikar í
Garðakirkju
Orgeltónleikar verða nú á
sunnudaginn 17. janúar kl. 17.00
i Garðakirkju. Verða þá flutt
verk frá 16., 17. og 18. öld. Það
er Antonio Corveiras sem
spilar, en viku sfðar, 24. janúar
verða aðrir tónleikar i kirkj-
unni, þar sem leikin verður tón-
list frá 17. öld og fram á okkar
daga.
Nýlist á
sunnudagskvöld
Tónleikar og gerningur verða
haldnir 17. janúar kl. 20.30 I Ný-
listasafninu við Vatnsstig og eru
þar á ferðinni bandarisku lista-
mennirnir Philip Corner og Ali-
son Knowles.
Þau voru á meðal frumkvöðla
Fluxus-hreyfingarinnar á
sinum tima, en hún var ein rót-
tækasta listahreyfing siðasta
áratugs. Philip Corner var hér á
ferð sl. sumar á vegum
Mob-Shop (Norræn sumar-
vinnustofa listamanna) og hélt
þá tónleika i Norræna husinu.
Þau hafa bæöi unnið við margar
listgreinar og brotiö meö þvi
niöur hin hefðbundnu mörk
þeirra. Allt áhugafólk er hvatt
til að mæta.
ýmislegt
Vinnuvaka í
Bústaðasókn
Kvenfélag Bústaðasóknar
efnir um helgina til „vinnu-
vöku”. Tilgangur þessarar vöku
er að afla peninga i þágu aldr-
aðra á nýbyrjuöu ári þeirra og
einnig að mótmæla ástandinu i
þjóöfélaginu þar sem allt logar i
sundurþykkju og ófriði.
Verður fjölmennt i félags-
heimili Bústaöakirkju og skipst
á aö vinna og vaka stanslaust
frá kl. 20 á föstudagskvöld 15.
janúar til sunnudagsins 17.
janúar. Hlýtt verður á messu kl.
14 sunnudag en siöan opnaöur
basar og seldir munir þeir sem
unnir veröa á vökunni. Félagiö
heitir á allar félagskonur og
aöra þá sem áhuga hafa á mál-
efninu aö koma á fyrrnefndum
tima og hafa meö sér verkefni
eöa eitthvaö til skemmtunar.
Séð verður um að heitt verði á
könnunni á allri vökunni.
Bænavika
18.—24. janúar
Arleg bænavika er haldin um
allan heim i næstu viku, frá
1.—24. janúar. Yfirskriftin er i
ár: Bústaður Drottins,veröld-
in — kirkjan.
Ahersla bænavikunnar hvilir
á bæn um friö, sáttagjörö og út-
breiöslu orösins.
Bænavikunnar veröur
væntanlega minnst i sem flest-
um söfnuðum landsins, sem
auglýsa staö og stund.
1 Reykjavik verða samkom-
urnar þessar:
Mánud. 18. jan. Kristskirkja
kl. 20.30. Miðvikud. 20. jan, Að-
ventkirkjan kl. 20.30, Fimmtud.
21. jan. Hjálpræðisherinn kl.
20.30. Föstud. 22. jan. Fri-
kirkjan I Rvk. kl. 20.30. Laugard
23. jan. Flladelfia kl. 20.30.
Sunnud. 24. jan. Hallgrims-
kirkja, guösþj. kl. 11.
Námskeið
PROUT nefnist alheimshreyf-
ing sem starfar i um 100 þjóö-
löndum og nefnist deild þeirra
hér á landi Þjóömálahreyfing
Islands. Nú er staddur hér
kennari og starfsmaöur hreyf-
ingarinnar, Ac. Sudiiptananda
Avt., og mun hann halda nám-
skeiö hér laugardaginn 16.
janúar og sunnudaginn 17.
janúar og hefst kl. 14.00. Nám-
skeiðiö, sem er i formi sjálf-
stæöra fyrirlestra og umræöna
veröur haldiö I miöstöö Þjóö-
málahreyfingarinnar I Aðal-
stræti 16. Nánari uppl. i sima
23588.