Þjóðviljinn - 08.04.1982, Page 7
Fimmtudagur 8. april 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
ég skammast min ekki fyrir
vinnubrögö af þessu tagi. Ég tel
raunar aö það hafi lengi skort á
vinnubrögö af þessu tagi hjá hinu
opinbera. Maöur sér þaö vel
þegar litið er til baka. Þarna á ég
við handahófsvinnubrögð i fjár-
festingarmálum og vöntun á að
tengja atvinnustarfsemi i landinu
saman. Að mlnum dómi skortir
mikið á að stjórnkerfi okkar sé
undir það búið með skaplegum
hætti að samstilla mál, m.a. milli
ráðuneyta og stofnana. Einnig
skortir mikið á tengsl milli
löggjafavaldsins og fram-
kvæmdavaldsins og er gleggsta
dæmið þar um Framkvæmda-
stofnun rikisins. Sú stofnun gæti
án vafa gert meira gagn, ef tengsl
hennar við ráðuneytið væru bætt
frá þvi sem nú er.
Ég hygg að það hafi komiö mér
einna mest á óvart, þegar ég kom
inn i stjórnarráðið, að finna hve
vanbúin ráðuneytin sjálf eru til að
takast á við þau verkefni sem
eðlilegt er aö krefjast af þeim.
Mörg hver eru þau undirmönnuö
á meðan ýmsar stofnanir rikisins
i kringum þau þenjast út, án þess
aö þær njóti nauösynlegrar
leiðasagnar og eftirlits ráðu-
neytanna. í þessum efnum hafa
áherslur ,verið rangar, enda er
búið að koma þvi inn hjá mörgum
að telja alla útþenslu ráðu-
neytanna af hinu illa. Hið svo-
kallaða „Bákn” er orðinn
persónugervingur hins illa, á
sama tima og öll þjóðfélagsgeröin
verður flóknari. Að minum dómi
þarf að gera kröfur til embættis-
manna og ráðuneytanna, en það
verður lika að tryggja þeim er
þar starfa aöstæöur og kjör til að
sinna starfi vinu vel, en án
allrar tryggingar um æviráön-
ingu.
Stundum hefur verið talað um
að skipta ætti um alla yfirstjórn i
ráðuneytunum með nýjum ráö-1
herrum, þeir ættu að fá að velja
sér verkstjóra, þegar þeir taka
við; ertu sammála þessari
skoðun?
Ég tel að þetta komi fyllilega til
greina, enda er þetta þannig viða.
Ég lit svo á aö ráðuneytin eöa
stjórnarráð sé heili fram-
kvæmdavaldsins, en stofnanirnar
limirnir.
r
Akvarðanir daglegt
brauð
Ein af þeim klisjum, sem
hamraðhefur veriðá i gagnrýni á
þig er að þú kviðir þvi að taka
ákvaröanir; hvað segir þú um
þetta?
Nei, ég kviði ekki ákvarðana-
töku, enda eru ákvarðanir af
ýmsu tagi daglegt brauð i minni
vinnu, þótt misjafnlega mjkiö sé
eftir þeim tekiö. Fjölmargt af þvi
sem við erum að sinna kemur
aldrei fram i fjölmiðlum, og þvi
er litið eða ekkert eftir þvi tekið. t
minni ráöherratiö hafa fjölmiðlar
einkum beint augum að fáum
ákveönum þáttum, sem vekja at-
hygli, einkum umdeildum
málum, en þau eru ekki nema
brot af þvi sem fellur undir orku-
og iðnaðarráöuneytið. Það eru
fyrst og fremst virkjana- og verk-
smiðjumálin sem fjölmiðlar hafa
látið sig skipta.
Og einmitt á þessi mál hefur
gagnrýnin verið hvað mest; hvað
veldur þvi að þinum dómi?
Það er ákaflega auðvelt að ala
á óánægju i þessum málum og
magna upp landshlutarlg. 1
sambandi við virkjanamálin og
orkunýtingu þá hafa þær rikis-
stjórnir sem ég hef átt sæti i, sett
fram ný markmiö og nýja
áherslu i þeim málum, sem hafa
kallað á ný vinnubrögð. Þar á ég
við uppbyggingu virkjana utan
Suðurlands og samtengingu raf-
orkukerfisins með hag allra
landshluta i huga. Tillögur um
Blöndu- og Fljótsdalsvirkjun eru
árangur af mjög miklu undirbún-
ingsstarfi og vonandi tekst mönn-
um á Alþingi að ná saman um þær
stórframkvæmdir. Hinn þáttur-
inn eru iönaðarverkefnin stóru,
þar sem undirbúningsvinna hefur
verið flutt inni landið i stað þess
aö horfa sifellt til útlendinga og
erlends áhættufjármagns i þeim
efnum. A þessu sviöi er að vissu
leyti um frumvinnu að ræða. Viö
erum að búa okkur sjálf undir að
ráða við þessi stóru verkefni og
tengja þau annarri atvinnustarf-
semi I landinu.
Ráðherra einn fær
litlu áorkað
Þess misskilnings gætir viöa og
það er auðvelt að ala á honum, að
valdið i virkjunarmálum og
öðrum stórmálum sé allt i hönd-
um viðkomandi fagráðherra.
Fagráðuneytin bera vissulega
ábyrgð á undirbúningsvinnu og
tillögugerð, en siðar verður að
skapa samstöðu innan viökom-
andi rikisstjórnar og á Alþingi og
siðast en ekki sist hjá fjárveit-
ingavaldinu. Það er ekki einhliöa
á minu valdi að segja, næst
byggjum við Blönduvirkjun eða
Fljótsdalsvirkjun. Það er fráleitt
að halda sliku fram. I þessum
málum reynir á atfylgi margra
aöila, samráðherra, þingflokka
og þingsins alls. Enda blasir þetta
raunar við þessa dagana. Eftir
að tillaga min umt virkjanaröö og
Texti: S.dór
Ljósm.: eik
staðsetningu steinullarverk-
smiðju var lögð fram, er það ekki
iðnaðarráðherra sem er I eldlín-
unni, heldur einstakir þingmenn,
sem greinir á um þessi mál. Þetta
sýnir ljóslega að ráðherra ræöur
ekki einn öllum málum, sem und-
ir hans fagráðuneyti heyra, sem
betur fer mun margur segja.
Óhóflegur vinnutími
Hvernig er vinnutima ráðherra
háttað lljörleifur; er þar farið að
lögum um 8 tima lágmarkshvild?
Nei, sennilega er nú ekki farið
eftir þeim lögum, enda er vinnu-
tima ráðherra engin takmörk
sett. Vinnusamir menn i embætti
ráðherra eiga það sannarlega á
hættu að ofgera sér með vinnu.
Ég tel að það sé nauðsynlegt fyrir
menn i sliku starfi, þegar til
lengri tima er litið aö reyna aö
setja vinnutima sinum einhver
skynsamleg mörk. Menn veröa aö
skapa sér fristundir i þessu starfi
eins og öörum, einnig starfsins
vegna og sinna nánustu.
Hefuröu tekiö þér sumarfri
siðan þú tókst við embætti iðn-
aðarráðherra?
Ég tók mér fri i 2 vikur sumariö
1979 og liklega eina 10 daga 1980,
en i fyrra tók ég mér ekkert fri,
nema ef telja ætti fundarsetu
erlendis, sem varð með meira
móti. Slikt er að visu tilbreyting,
en þó oft þreytandi með tilheyr-
andi ferðalögum.
t Noregi mun það vera þannig
að þingmaður sem verður ráð-
herra segir af sér þingmennsku
og varamaður tekur við. Væri til
bóta að taka slikt fyrirkomulag
upp hér á landi, myndi það ekki
minnka vinnuálag á mönnum?
Vissulega myndi timi ráðherra
þannig nýtast betur og ég teldi
það skynsamlegt að skilja aö
þingmennsku og ráðherrastarfið,
á meðan á þvi stendur. Þetta
myndi hafa það i för með sér aö
ráðherra þyrfti ekki aö sitja á
Alþingi nema fyrst og fremst
þegar verið er að fjalla um mál,
sem heyra undir hans sviö. Með
þessu móti fengi hann mun meiri
tima til að sinna stefnumarkandi
störfum og verkstjórn i sinum
málaflokki.
Timaþröngin er vest
Aö lokum Hjörleifur, hefurðu
haft ánægju af þessu starfi?
Já, það get ég fullyrt, enda hef
ég haft ánægju af öllum störfum,
sem ég hef fengist við um dagana,
mér hefur sjaldnast leiðst það
sem ég hefi færst I fang. I þessu
starfi er það eins og I öllum
öðrum, maður er alltaf að læra
eitthvað nýtt frá degi til dags og
það er sannarlega lifsfylling að
glima við ný og vandasöm
viðfangsefni, bæta við reynslu
sina og vikka sjóndeildarhring-
inn. Það sem mér hefur þótt
leiðinlegast i starfi ráðherra, er
þegar ég hef haft á tilfinningunni
að þurfa aö fara á hundavaöi yfir
hlutina vegna timaskorts og þvi
miður er timinn harður húsbóndi i
þessu starfi, þannig að sjaldnast
gefst færi á aö skoða hlutina ofan i
kjölinn svo sem vert væri.
— S.dór.
„Eina gagnrýnin sem mér
þykir hvimleiö, hvort heldur
ég sjálfur eða aðrir verða fyrir henni,
er ef henni fylgir rótarskapur"
„Gagnrýni er hverjum manni
holl svo fremi sem hún
sé borin fram
á málefnaljegum grundvelli”
Vinnumála-
samband sam-
vinnufélag-
anna ályktar
um kjaramál
Aðalfundur Vinnumálasam-
bands samvinnufélaganna var
haldinn föstudaginn 2. april.
A aðalfundinum var fjallað
um ástand og horfur i kjaramál-
um nú og samþykkti fundurinn
eftirfarandi ályktun i þeim efn-
um.
„Vinnumálasamband sam-
vinnufélaganna álitur að stöðug
veröbólga valdi rýrnun kaup-
máttar, og þeim mun meiri
rýrnun, sem verðbólgan er
meiri. Það er jafnframt skoðun
VMS, að verðbólgan hafi nú
þegar valdið mikilli kaupmátt-
arrýrnun og sú þróun muni
halda áfram með vaxandi hraða
nema spyrnt verði við fótum.
Jafnframt þessu grefur verð-
bólgan undan rekstri atvinnu-
fyrirtækjanna með þvi að rýra
eigið fé og draga inn lánsfé með
vaxandi kostnaði.
Þess vegna leggur VMS höf-
uðáhersla á það við gerð yfir-
standandi kjarasamninga að
ná verðbólgunni niður, i bráð og
lengd, og væntir þess aö sam-
komulag geti náðst um þaö við
verkalýðshreyfinguna.”
Ósigur
mann-
legrar
skynsemi
t umræðum á alþingi um ut-
anrikismál f fyrradag létu tals-
menn allra flokka i ljós áhyggj-
ur vegna aukinnar spennu i al-
þjóðamálum.
Ólafur Jóhannesson utanri"k-
isráðherra sagði að afvopnun-
armálin væru i sjálfheldu og
þyrfti aö rjúfa þann vitahring.
Lagði hann áherslu á þaö aö af-
vopnunin yrði að vera gagn-
kvæm. En einhver verður að
stiga fyrsta skrefið sagöi utan-
rikisráðherra. „Þaö er ekki
fjarri sem sænski utanrikisráð-
herrann hefur sagt, að hugsunin
á bak við vigbúnaöarkapp-
hlaupið er i raun og veru ósigur
fyrir mannlega skynsemi”.
______________— óg
Skipað í stöðu
hagsýslu-
stjóra
Forseti islands hefur að til-
lögu fjármálaráðherra skipað
Magniis Pétursson til aö gegna
stöðu hagsýsiust jóra frá og með
1. mars sl.
Staða hagsýslustjóra var aug-
lýst laus til umsóknar i janúar
sl. og barst aðeins ein umsókn
um stöðuna, frá Magnúsi Pét-
urssyni skrifstofustjóra, settum
hagsýslustjóra. Magnús er
fæddur 1947 og stundaöi hag-
fræðinám bæði i Englandi og
Sviþjóð.
Ný
söguskoðun
I umræðunum um utanrikis-
mál á alþingi I fyrradag sagði
Geir Hallgrimsson formaður
Sjálfstæðisflokksins að senni-
lega heföi verið hægt að komast
hjá seinni heimsstyrjöldinni
hefði núverandi „varnarfyrir-
komulag” verið við lýði, þ.e. ef
Nató hefði verið stofnaö fyrr.
— óg