Þjóðviljinn - 08.04.1982, Page 11
Fimmtudagur 8. april 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
aftur
ifla
Efndir á
kosningaloforðum
— Hvað um efndir á kosninga-
loforðum? Hvað t.d. um slagorðið
fræga „samningana i gildi’’ sem
mjög var hampað af Alþýðu-
bandalaginu fyrir siðustu kosn-
ingar?
— Það var loforð sem við stóð-
um fyllilega við þó að sumir hafi
kannski gleymt þvi. Nýi meiri-
hlutinn i borgarstjórn setti samn-
ingana i gildi.
— Hvaða málaflokka viltu
nefna fleiri?
— Það er náttúrléga hægt að
nefna fjölmörg mál þar sem
gagnger umskipti hafa orðið t.d.
skipulagsmál og verndun gam-
alla húsa, sem skiptir mig miklu
máli. Og ég ætla að nefna til fáein
hinna svokölluðu „mjúku” mála
af þvi að þú hefur verið að spyrja
mig sérstaklega um málefni
kvenna. Núverandi meirihluti
getur t.d. verið stoltur af þeim 600
nýju dagvistarplássum fyrir
börn, sem komist hafa i gagnið á
þessu kjörtimabili auk þess sem
gerðhefur verið 10 ára áætlun um
uppbyggingu dagvistarheimila
sem nú er unnið eftir. A næstu
tveimur kjörtimabilum er áætlað
að hægt verði að fullnægja þörf-
inni fyrir dagvistun barna i Rvik.
Einnig hefur mikið átak verið
gert i málefnum aldraðra og ég
vil hvetja fólk til að skoða eitt-
hvert hinna nýju dvalarheimila
t.d. á Dalbraut þar sem búið er
svo vel að hinum öldruðu að til
fyrirmyndar er.
Embættismennirnir
— Nú hefur þvi veriö haldið
fram að embættismenn borgar-
innar væru þröskuldur i vegi
þeirra breytinga sem þið hafiö
viljað gera. Er það rétt?
— Auðvitað er allt öðru visi að
starfa með fólki sem hefur sömu
hugmyndir og maður sjálfur um
hvernig eigi að vinna að hlut-
unum. Og við i Alþýðubandalag-
inu höfum allt aðrar hugmyndir
en flestir embættismenn borgar-
innar. Satt að segja hefur mér
stundum fundist mál verða fyrir
miklum töfum og náð seint fram
að ganga vegna þess að em-
bættismönnum er gert að fylgja
fram hlutum sem eru andstæðir
þeirra skoðunum. Einnig hefur
mér fundist skorta á frumkvæði
sumra embættismanna og stund-
um standa á að upplýsingar ber-
ist nægilega vel og fljótt. Hér er
auðvitað alls ekki átt við alla em-
bættismenn, það er rétt að taka
fram. Iraun er samtekki við aðra
aö sakast en okkur sjálf þvi að
þaðeruhinir kjörnu fulltrúar sem
bera ábyrgðina. Ég tel það samt
ekki eðlilegt að æðstu embættis-
menn borgarinnar séu endilega
æviráðnir og finnst það til bóta að
þeirséut.d. aðeinsráðnir til 5ára
eins og gerst hefur á þessu kjör-
timabili t.d. með embætti for-
stöðumanns Borgarskipulags.
Heildarendurskoðun
á leiðarakerfi SVR
— Nú ert þú formaður stjúrnar
Strætisvagna Reykjavikur.
Strætisvagnakerfið var gagnrýnt
mjög af vinstri mönnum I tlð
meiri hluta Sjálfstæðisflokksins.
Hafa orðið einhverjar úrbætur á
þvi?
Viatal við
Gudrúnu Ágústsdóttur
3. manrk á lista
Alþýöubandaiagsins
i vor
Texti: GFr
Myndir: gel
— Stjórn strætisvagnanna
ákvað á i byrjun árs 1981 heildar-
endurskoðun á kerfinu og átti hún
að vera tilbúin fyrir alllöngu en
þvimiðurhefurorðiðdrátturá að
henniyrði lokið. Við töldum alveg
nauðsynlegt að drifa i þessari
endurskoðun þvi að borgin hefur
breyst griðarlega frá þvi að nú-
verandi kerfi var búið til. Fyrstu
tillögur um breytingar eru
komnar fram og i þeim eru mörg
atriði,sem yrðu verulega til bóta,
t.d. mikil aukning á ferðum úr
nýrri úthverfum sem hafa setið á
hakanum. Miðað er að þvi að allir
hafi sem jafnasta möguleika á
þvi, hvar sem er i borginni, að
notfæra sér þessa þjónustu. Enn-
fremur á að tengja kerfið vel við
alla stærstu vinnustaði og þar
með talið skóla. Það kom fram i
almennings vagnakönnun, sem
gerð var árið 1976, að straumur-
inn liggur niður á Hlemm og
Lækjartorg og hraði virðist skipta
fólk miklu máli. Þess vegna er
lögð áhersla á hraðferðir úr út-
hverfum borgarinnar alveg niður
i bæ.
— Er ckki erfitt að vera
stjórnarformaöur almennings-
vagnafyrirtækis I þjóðfélagi þar
sem 10 þúsund bilar eru fluttir inn
á ári?
— Við verðum að sjálfsögðu að
horfast i augu við þá staðreynd.
Ég er hins vegar þeirrar skoð-
unar að töluvert mikill fjöldi
fólks, sem kaupir sér bil, vildi
fremur eyða peningunum i eitt-
hvað allt annað og hafa frekar
góðar almenningssamgöngur.
Þær eru góðar úr sumum hverf-
um borgarinnar á daginn en á
kvöldin er tiðni ferða að minu
mati of litil. M.a. þess vegna
fórum við i það i haust að setja á
nýja leið — leið 15 — sem bætir
þarna verulega úr. En það tekur
mjög langan tima að kynna fyrir
fólki breytingar á kerfinu og þær
breytingar sem við höfum hingað
til gert eru i raun ekki annaö en
að lappa upp á núverandi kerfi.
Mjög erfitt er að breyta einni leið
smávegis þvi að það er kannski til
hagsbóta fyrir jafnmarga og tapa
á breytingunni. Þess vegna er
heildarendurskoðun nauðsynleg.
Við erum nú að endurnýja vagna-
kostinn og sú vagnaaukning, sem
nýtt kerfi gerir ráð fyrir, ætti
nokkurn veginn að vera til staöar
með þessari endurnýjun.
Aukning á rekstri
og merkilegar
nýjungar
— Er um aö ræöa mikla aukn-
ingu á rekstri SVR með fyrirhug-
uöu kerfi?
— Það er reiknað með svona
13—15% aukningu á rekstrinum
við þessar breytingar og þess
vegna skiptir það miklu máli að
Alþýðubandalagið fái áfram
stuðning kjósenda til þess að
þessi mál nái fram að ganga.
Sjálfstæðisflokkurinnhefur aldrei
haft SVR sem sitt sérstaka óska-
barn — öðru nær — það hefur
verið olnbogabarn hans og nú
þegar Sjálfstæðisflokkurinn éi- i
minnihluta hafa þeir flutt tillögur
um niðurskurð á framlagi til SVR
við gerð fjárhagsáætlunar. Það er
þvi ákaflega óliklegt að Sjálf-
stæðisflokkurinn gengist inn á
slika aukningu ef svo óliklega
vildi til að hann kæmist aftur til
valda.
— Eru strætisvagnarnir stór
liður i útgjöldum borgarinnar?
— Já, beir taka mikið til sin.
Farjyöldin eru greidd niður um
40% og þess vegna er erfitt að fá
meira fé úr borgarsjóði, sérstak-
lega núna þegar verið er að
endurnýja vagnakostinn. Hver
vagn kostar um 1,3 miljónir
króna. En það er lika margt hægt
að gera sem ekki kostar mikla
peninga t.d. að bæta biðskýlaað-
stöðuna. Borgarbúar hljóta að
hafa orðið varir við að þau
spretta nú upp eins og gorkúlur
um borgina.
— Einhverjar fleiri nýjungar?
— Það sem mér hefur fundist
einna merkilegast af öllu sem
gert hefur verið á kjörtimabilinu
varðandi SVR er ferðaþjónusta
fatlaðra sem komst á árið 1979.
Nú eru þrir sérhannaðir bilar i
gangi fyrir fatlaða og sá fjórði
kemur næsta haust. Með honum
ertaliðaðhægtverði að fullnægja
ferðaþjónustu viö hjólastólafólk i
Reykjavik. Farþegar borga
venjulegt strætisvagnagjald og
eru fluttir i og úr vinnu og skóla
og hvert sem er, t.d. á böll. Það
þarf að panta hverja ferð með
dags fyrirvara. Fyrsta árið voru
farnar rúml. 4000 feröir af þessu
tagi en á siðasta ári fjölgaði þeim
upp i rúml. 16000. Þessi þörf hefur
ailiaf verið fyrir hendi og manni
verður á að hugsa, þegar svona
þjónusta er komin á: af hverju
ekki miklu fyrr? Þetta er gjör-
breyting á möguleikum latlaðs
fólks til að komast leiðar sinnar.
Vinnutíminn
of langur
— Ertu ánægð meö samfclagið
okkar hér i Reykjavik, Guðrún?
— Ég get ómögulega sagt að ég
sé allskostar ánægð með það
hvernig við lifum okkar lifi. Við
vinnum alltof mikiö, sumir til að
eignast fin húsgögn og flottan bil
en aörir til þess að eiga fyrir
nauðþurftum sinum. Það er nauð-
synlegt að stytta þennan langa
vinnutima og horfast i augu við
það að við eigum börn og þau
þurfa á okkur að halda og við á
þeim, ekki bara mamman heldur
lika pabbinn. Þegar kvöldin og
helgarnar fara i það að safna
kröftum fyrir næstu vinnu-
törn — eða vinna yfirvinnu — þá
verða þessi börn okkar bara
hreinlega útundan og við höfum
ekki efni á að sinna þeim ekki. Ef
við horfum i kringum okkur
sjáum við að fólk á sárafáar fri-
stundir nema e.t.v. tveir hópar.
Það eru aldraðir og börn.
— Hvaö er i húfi i komandi
borgarstjórnarkosningum? Ertu
fylgjandi þvi að sami meirihluti
verði áfram viö stjórn?
— Alvcg eindregið. Hann hefur
sýnt að hann getur starfað saman
og mjög margt gott hefur náðst
fram. Það var auðvitað gifurlega
erfitt að taka við eftir 50 ára
valdaaðstöðu Sjálfstæðisflokksins
hér, og núverandi borgarfulltrúar
höfðu mjög skamman tima til að
útbúa sameiginlegan málefna-
grundvöll þessara þriggja meiri-
hlutaflokka. Menn voru i sigur-
vimu og fólk hafði ekki búist við
þessum úrslitum. E.t.v. höfum
við lagt of mikla áherslu á að
sýna samstöðu og þurft þá að
kyngja hlutum sem við hefðum
viljað hafa öðru visi, en slikt
hlýtur þó að gerast i stjórnarsam-
starfi. Mjög mörg verk, sem
þegarhefur verið byrjað á, þurfa
aðná fram aðganga,en það gerist
ekki ef Sjálfstæðisflokkurinn fær
völdin hér á ný. Þá erum við
komin i gamla andfélagslega
farið aftur.
— Að lokumt Ertu bjartsýn?
— Ég er bjartsýn, ef okkur
tekst að koma þvi á framfæri
sem gert hefur verið á undan-
förnum 4 árum, og svo er mjög
hollt fyrir fólk að hugsa um
hvernig það var áður en við
tókum við.
— GFr