Þjóðviljinn - 08.04.1982, Síða 23
Fimmtudagur 8. april 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 23
Rafís hf. með radíoneyðarbaujur:
Ómissandi öryggistæki
— Við viljum þakka öllum
þeim, sem lagt hafa þessu máli
lið um leið og við gleðjumst yfir
þvi, að þegar hefur radioneyðar-
baujan okkar orðið að liði við
giftusamlega björgun áhafnar-
innar á Suðurlandinu, sem fórst
nýverið.
Eitthvað á þessa leið fórust
Stefáni Guðjohnsen orð á fundi
með fréttamönnum, þar sem
fyrirtækið Rafis hf. kynnti raf-
eindatækjaframleiðslu sina, en
Rafis hf. var stofnað árið 1976.
Radióneyðarbaujan TRON 1 G,
er sérstaklega hönnuð fyrir is-
lenskar aðstæður og samkvæmt
kröfum reglugerðar frá sam-
gönguráðuneytinu i ágúst 1979.
Rafis hf. og Jotron elektronikk i
Noregi, unnu saman að þróun
tækisins.
Fyrstu tækin af TRON 1 G
komu til landsins frá Noregi, til
prófunar hjá Póst- og simamála-
stofnun og Siglingamálastofnun
rikisins seint á árinu 1980. Siðan
voru tækin endurbætt og komu
fyrstu fullbúnu tækin aftur til
prófunar i janúar 1981. Hlust-
unarprófanir voru gerðar af
Landhelgisgæslunni á reynslu-
tiðnum radióbaujunnar, þ.e.a.s. á
122,55 MHZ, sem er mjög nálægt
neyðartiðni flugvéla i farþega-
flugi og á tiðninni 245,1 MHZ, sem
er alveg i nánd við þá tiðni, sem
herflugvélar nota. Hlustunar-
prófanirnar komu mjög vel út á
báðum tiðnunum. Heyrðist lengst
frá baujunni þar sem hún lá i
gúmmibát austan við Papey, i
Frá v.: Halldór Almarsson, fyrrv. skipstjóri á Suðurlandinu, Einar
Aðalsteinsson, tæknilegur framkvæmdastjóri öryrkjabandalagsins,
Hannes Hafstcin, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins. Mynd:
—eik.
flugvél, sem var stödd i 35 þús.
feta hæð yfir Skagatá.
Þegar prófanir höfðu farið
fram kom til kasta Pósts og sima
og Siglingamálastofnunar að
veitasamþykki fyrir notkun tækj-
anna i gúmmibjörgunarbátum.
Samþykki Pósts og sima iá fyrir
3. april 1981 og Siglingamála-
stofnunar 5. ágúst. Var þá áætlun
gerð um framleiðslu tækjanna
þannig, að fyrstu 250 tækin yrðu
framleidd af reynsluaðilum i
Noregi, næstu 300 tækin yrðu sett
saman að hluta á Islandi og hefur
verið samið við öryrkjabanda-
lagið um samsetninguna, en siðan
fari framleiðslan alfarið fram á
lslandi.
Fyrir árslok 1981 var búið að
setja 250 radióneyðarbaujur af
gerðinni TRON 1 G i gúmmibáta
islenska flotans, en skylt er nú
orðið að hafa slikar neyðarbaujur
i bátunum. Og þegar samþykki
Siglingamálastofnunar lá fyrir
var pantað efni i nægilega mörg
tæki til þess að svara þörf flotans
fyrir þau og er nú um það bil að
hefjast fullnaðarframleiðsla á
neyðarbaujunum hér heima. Þá
hefur og verið hannaður búnaður,
sem ver tækin fyrir áföllum.
—mhg
ad kaupa ný|an Skoda
Nonni litli þarf ekki einu sinni að bijóta baukinn sinn og lána þér, því verðið er aðeins
inu sinni ao Drjota DauKinnsinn og íana per,
frá66.950kr.
• Gangisskráning 2Q 3 1962
og greiðsluskilmálamir eins góðir og hugsast getur. Enda selst hann grimmt þessa
dagana nýi Skódinn og því betra að tiyggja sér bfl strax.
JÖFUR hr
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600
SKÍÐAFERÐIR
Skíðadeildir ÍR og VÍKINGS ásamt Ferða-
skrifstofu ÚLFARS JACOBSEN auglýsa
skíðaferðir í skíðalönd félaganna í Hamra-
gili og Sleggjubeinsskarði.
ÞRIÐJUDAGA 0G FIMMTUDAGA
bíll i.
FráJL-húsinukl.17.30
Norðurströnd
Lindarbraut
Skólabraut
Mýrarhúsaskóli
Esso v/Nesveg
Hofsvallagata
Hringbraut
r'.\jí
Biðskýli v/Landspftalann
Miklubraut Shellstöð
Austurver
Bústaðavegur
Réttarholtsvegur
Garðsapótek
Vogaver
Breiðholtskjör
BILL //
Miðvangur/ Hafnarfirði kl. 17.30
Biðskýli Silfurtúni
Biðskýli Karlabraut
Karlabraut Búðir
Víghólaskóli
Versl. Vörðufell
Esso Smiöjuvegi
Stekkjarbakki
ölduselsskóli
Miðskógar
Seljabraut
Seljaskógar
Kjöt og Fiskur
Fellaskóli
Austurberg
Hólabrekkuskóli
Arahólar— Breiðholtskjör
Frá Breiðholtskjöri kl. 18.15
Árbæjarhverfi við Bæjarbraut
LAUGARDAGA 0G SUNNUDAGA
Miðvangur, Hafnarfirði kl. 9.10
Biðskýli Silfurtúni
Biðskýli Karlabraut
Karlabraut Búðir
Frá JL-húsinu kl. 9.30
Norðurströnd
Lindarbraut
Skólabraut
Mýrarhúsaskóli
Esso v/Nesveg
Hofsvallagata
Hringbraut
Biðskýli v/Landspítalann
Miklubraut Shell-stöð
Austurver
Bústaðavegur
Réttarholtsvegur
Garðapótek
Vogaver
ölduselsskóli
Kjötog fiskur
Frá Breiðholtskjöri kl. 10.15
Árbæjarhverfi við Bæjarbraut
ÁRÍÐANDI AÐ SKÍÐISÉU í SKÍÐAPOKUM
Nánari upplýsingar gefur Úlfar Jacobsen.
Ferðaskrifstofa í síma 13491 og 13499.
Sími í ÍR- skála, Hamragili 99-4699.
Símií Víkingsskála, Sleggjubeinsskarði
99-4666.
ífv GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA.
Skrifstofustarf
Hjá Orkustofnun er laust til umsóknar
starf skrifstofumanns. Starfið er i af-
greiðslu stofnunarinnar, við simavörslu,
vélritun og önnur skrifstofustörf. Laun
samkvæmt launakerfi opinberra starfs-
manna.
Umsóknir, sem greini menntun og fyrri
störf, sendist starfsmannastjóra fyrir 15.
april n.k.
ORKUSTOFNUN
GRENSÁSVEGI 9 - 108 REYKJAVlK
simi 83600