Þjóðviljinn - 08.04.1982, Blaðsíða 28
28 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. aprll 1982
um helgina
myndlist
Ómar og Óskar sýna
í Gallerí Lækjartorgi
Þessa dagana stendur yfir I
Gaileri Lækjartorgi samsýning
tveggja ungra nýlistarmanna,
Óskars Thorarensen og ómars
Stefánssonar. Þó nýlistin hafi
fram til þessa dags átt hugi
þessara ungu manna, þá eru ný-
listarverk engin á sýningunni.
Hinsvegar frömdu þeir gjörning
mikinn um slöustu helgi vib
mikla hrifningu áhorfenda og er
þaft mál manna aö dauöur
punktur sé hvergi þar sem
piltar þessir koma nálægt.
t skrá um sýninguna er þess
getið að Öskar sé fæddur i
Reykjavik 1959 og sé eiginlega
ekki mikið meira um hann
vitað, utan þess aö mi hafi hann
I fyrsta sinn árætt að koma
verkum sinum á framfæri. Um
Ómar er það að segja að hann
ku vera fæddur i Keflavík árið
1960 og var snemma kominn á
stúfana með verk sin undir
handakrikanum. Þannig hafi
hann þegar árið 1976 komið upp
sýningu á Mokka-kaffi, gestum
kaffihússins til yndisauka. Þá
hefur hann tekið þátt i mýgrút
af samsýningum og i ofanálag
bætt við einkasýningu i Rauða
húsinu á Akureyri.
Til þess að bæta gráu ofaná
svart mætti ómar galvaskur
upp á ritstjórn Þjóðviljans og
tjáði blaðamanni eigi alllitiö um
lifshlaup sittogþjónkun sina viö
listgyðjuna. Hann kvaðst hafa
útskrifast Ur Myndlista- og
handiðaskólanum 1981 ogþaöúr
hinni umdeildu nýlistardeild.
Var hann nokkuð myrkur i máli
gagnvart stjdrnendum skólans
og kvað nýlistardeildina hafa
orðið fyrir ómaklegum árásum.
Engu væri lfkara en að nem-
endum væri uppálagt að halda
sér á mottunni námsár sin i
skólanum, listrænnar Utrásar
gætu þeir ekki vænst innan
veggja hans.
Ómar sagöi að samsýning
þeirra óskars hefði gengiö vel
og fjölmörg verk heföu selst
Hann sagðist vera með oliumál-
verk, grafik og teikningar, en
Óskar væri eingöngu meö akril-
málverk. Sagði hann sýninguna
senn á enda, siðasti dagur yrði
12. aprfl. ómar kvaðst harð-
ákveðinn I að komast eitthvað
Ut, væri reyndar búinn að sækja
um skólavist i listaakademiúnni
i Berlin, en i V-Þýskalandi ættu
Gratik a Isatiröi
Laugardaginn 4. apríl opnaði Jenný Guðmunds-
dóttir sýningu í bókasafninu á isafirði á grafíkverk-
um. Sýning þessi er á vegum Menningarráðs Isaf jarð-
ar.
Þetta er fyrsta einkasýning Jennýar, en hún hefur tekið þátt i
sýningum á Norðurlöndunum, Þýskalandi, Póllandi og i Bandarikj-
unum. Sýningin stendur yfir til 18. april og er opin á timum bóka-
safnsins og frá kl. 2-6 yfir páskana, en lokaö á föstudaginn langa.
Jónas í Eden
Jónas Gúðmundsson heldur málverkasýningu i Eden i Hvera-
gerði um páskana. Sýningin verður opin frá skirdegi til 25. april. A
sýningunni verða oliumálverk og vatnslitamyndir. Eden hefur opið
um páskana.
Þeir félagar Óskar Thorarensen og Ómar stefánsson. Myndin var
tekin I Galleri Lækjartorgi. — Ljósm.: — eik.
þeir óskar reyndar hauk í horni
þar sem væri kona nokkur sení
hefði boðið þeim að setja upp
sýningu i Köln. Kváðust þeir
hafa fullan hug á að leggja land
undir fót og halda Ut.
1 lok spjallsokkar Ómars vildi
hann koma þvi á framfæri að i
Galleri Lækjartorgi, en for-
stöðumaður gailerisins er
Jóhann G. Jóhannsson, væri sú
nýbreytni i tilhögun, að teknar
væru myndir frá hverri sýningu
inná videóspólur og þeim
spólum væri siðan komið til for-
ráðamanna ii'stahúsa um allt
land.
—hól.
Ingvar Þorvaldsson
opnar sýningu í dag
A skirdag kl. 15.00 opnar
Ingvar Þorvaldsson mynd-
listarsýningu i Listsýningarsal
Myndlistarskólans á Akureyri.
Ingvar sýnir þar 40 nýjar
vatnslitamyndir. Þetta er 12.
einkasýning Ingvars, en auk
þess hefur hann tekið þátt I fjöl-
mörgum samsýningum.
Sýningin verður opin daglega
frá 15-22 og lýkur annan i pásk-
um.
Valgarður Gúnnarsson
sýnir í Nýlistasafninu
Valgaröur Gunnarsson opnar
sýningu I Nýlistasafninu Vatns-
stig 3b föstudaginn O.april kl. 16.
Sýningin veröur opin kl. 16-22
virka daga og kl. 14-22 um
helgar. Sýningunni lýkur sunnu-
daginn 18. april.
Valgarður Gunnarsson út-
skrifaðist úr Myndlista- og
handiðaskóla Islands árið 1979.
Stundaði framhaldsnám við
State University of New York og
Empire State College árin
1979-1981.
Þetta er fyrsta einkasýning
Valgarðs, en hann hefur áður
tekið þátt i tveimur samsýning-
um.
Sýnd eru oliumálverk unnin á
striga.
Myndir
frá
Landinu
helga
Nú á föstunni hefur veriö tek-
in upp sú nýbreytni I starfi Nes-
kirkju aö sr. Frank M.
Haildórsson sóknarprestur hef-
ur sýnt kvikmyndir eða Iit-
skyggnur á föstudagsguðsþjón-
ustum.
Hefur þetta gefiðgóða raun og
mælst mjög vel fyrir i söfnuðin-
um, þvi að segja má að húsfyllir
hafi verið i safnaðarheimilinu
nærfellt hvert einasta fimmtu-
dagskvöld.
A eftir guðsþjónustu á skir-
dagskvöld kl. 20.00 verður
siðasta sýningin. Sýndar verða
myndir frá páskahaldi i Israel,
en i Israel halda menn páska á
ýmsa vegu.
Skemmtistaðir
um páskana
Skemmtistaöir Reykjavik-
ur veröa opnir i dag, skir-
dag, til klukkan 23.30, á
föstudaginn langa verður allt
lokaö, á laugardag opið til kl.
23.30, allt lokaö á páskadag
en opiö til kl. 1.00 á annan
páskadags. Þaö sem fram
fer á stöðunum er þetta:
Hótel Borg:
Skirdagur:létt tónlist. Laug-
ardagur: létt tónlist. Annar
páskadagur: gömlu dans-
arnir.
Glæsibær:
Grétar Laufdal verður ávallt
i diskótekinu og hljómsveitin
Glæsir leikur fyrir dansi.
Broadway:
Allir dagar: Dansflokkur
Heiðars Astvaldssonar sýnir
ávallt Lúsiferdansinn og
Jassport dansa s-ameriska
dansa.
Þórscafé:
Lokað á skirdag og á laugar-
deginum. Efri hæðin opin á
annan.
Klúbburinn:
Skirdagur: Hljómsveitin
Landshornarokkarar leikur
fyrir dansi og diskótek á
tveimur hæðum. Á laugar-
dagogá annanverður diskó-
tek.
Leikhúsk jallarinn:
Lokaöá skirdag og á laugar-
deginum. Annar i páskum:
Kjallarakvöld; skemmtiatr-
iði 1 og 2 i kjallaranum.
Sigtún:
Skirdagur: Bingó kl. 19.30.
Laugardagur: Bingó kl.
14.30. Annar: Diskótek.
Hótel Saga:
Hljómsveit Ragga Bjarna og
Helena.
Óðal:
Avallt diskótek.
Snekkjajn:
Diskótek á annan —- annars
lokað.
Hreyfilshúsið:
Gömlu dansarnir á laugar-
deginum.
Lindarbær:
Gömlu dansarnir á laugar-
deginum — Valgerður Þóris-
dóttir syngur undir leik
hljómsveitar Rúts Kr. Hann-
essonar.