Þjóðviljinn - 14.04.1982, Síða 3
Miðvikudagur 14. aprn 1982 ÞJódviljinn — SÍÐA 3
Framkvæmdaáætlanir Bandaríkjastjórnar á næstu fimm árum:
Hundruð kjamorkueldflauga
sett í herskip og kafbáta
sem sigla kringum fsland
ÓRG: Hér er um að ræða nýja
tegund eldflauga sem eru
nákvæmar, fljiiga með jörðu og
eru ætla ðar til skyndiárd sa. Þ etta
eru fyrstog fremst drásarvopn og
með þvi að koma þeim fyrir á
kafbátum og herskipum missa
aðilar „striðsleiksins” alla yfir-
sýn yfir staðsetningu hugsan-
legra árásarvopna. I þeirri tillögu
sem Edward Kennedy og fl. hafa
lagt fram i öldungadeild Banda-
rikjaþings um frystingu kjarn-
orkuvopnakapphlaupsins er m.a.
gert ráð fyrir aö hætt verði við
þessi áform Bandarikjastjórnar.
Sérkennileg tilviljun
Þjv: En hver er ástæðan fyrir
þögn um þessa þróun i skýrslu
utanríkisráðherra?
ÓRG: Ég vil ekkert um þaö
segja að svo stöddu, en i ræöunni
á Alþingi benti ég á að það væri
sérkennileg tilviljun að á sama
tima og utanrikisráöuneytið
þegði um þessar miklu áætlanir
og skýrir hvorki þingi né þjóð frá
þeim þá ákvæði utanrikisráð-
herra aö bandariski sjóherinn
skyldi á þessum sömu árum
eignast sina fyrstu höfn á Islandi
— hina umræddu höfn i Helguvik.
Það er brýnt hagsmunamál is-
lensku þjóðarinnar aö þessari
kjarnorkuvopnavæöingu i
höfunum umhverfis tsland verði
mótmælt harölega af almenningi
og islenskum stjórnvöldum.
—ekh
t umræðum á Alþingi um
skýrslu utanrikisráðherra fyrir
páska vakti ólafur Ragnar
Grímsson alþingismaður sér-
staka athygli á þvf að hvorki i
ræðu ráðherrans né I skýrslunni
væri vikið orði að áætlunum
Bandarikjastjórnar um gifurlega
fjölgun kjarnorkuvopna á höfum
úti. Þjóðviljinn innti Ólaf Ragnar
nánar eftir þeim áætlunum sem
hann gerði að umtalsefni og
miðast að verulegu leyti viö
aukningu kjarnorkuvopna á
Norður- Atla ntshaf i.
500 siimum fimm
ÓRG: Það er nánast furðulegt
að algjör þögn skuli rikja hjá
utanrikisráðuneytinu um þann
hluta kjarnorkuvigbúnaðarins
sem snýr beint að okkur. Þess-
vegna rakti ég það sérstaklega að
á siðastliðnu ári þá hefði rikis-
stjórn Reagans samþykkt áætl-
anir sem fælu i' sér stórfellda
aukningu kjarnorkuvigbúnaðar á
herskipum og kafbátum. Áætl-
anir þessar eru meöal annars
þess efnis að fyrir lok þessa ára-
tugar fái bandariski sjóherinn tvö
þúsund og fimm hundruð stýri-
flaugar, sem settar veröa i her-
skip og kafbáta, og tengist þessi
aukning annarri áætlun um
eflingu flotans á Norður-Atlants-
hafi. Þetta þykja ef til vill engin
stórtiðindi vegna þess að menn
átta sig ekki almennt á þvi við
íslendingum ber aö mótmæla þessum áætlunum
hvaö er átt. En til samanburðar
er gott að hafa það að þau áform
NATO um að koma fyrir nýjum
kjarnorkuvopnum i Evrópu sem
valdið hafa hvað mestum deilum
siðustu misseri snúast um að
staðsetja tæplega 500 stýriflaugar
i fimm rikjum Vestur-Evrópu.
Um hálf miljón manna mótmælti
þessum áformum i Vestur-
Þýskalandi einu um páska-
helgina. En þær áætlanir Banda-
rikjastjórnar sem ég fjallaði um
snúast um fimmfalt fleiri stýri-
flaugar.
1300 stýriflaugar
kringum ísland
Þjv: En hvernig rökstyður þú
þaðálit að þessi gifurlega fjölgun
kjarnorkuvopna snerti okkur sér
á parti?
óRG: Menn veröa aö gera sér
grein fyrir eðli þessara áætlana.
Liður i þeim er m.a. að breyta
herskipunum New Yersey og
Iowa i fljótandi skotpalla fyrir
kjarnorkueldflaugar. Hvort skip-
anna er um 60 þúsund tonn og
yfirdekki þeirra verður gjör-
breytt til þess að koma fyrir skot-
pöllum. Akveðiö hefur verið að
um mitt næsta ár, 1983, verði búið
Nu er verið aö breyta Polaris kafbátum bandaríska flotans, þannig að
þeir geti borið stýriflaugar.
Ólafur Ragnar Grimsson: Þögn
um þessar gifurlegu áætlanir um
leið og leyfa á bandarfska sjó-
hernum að gera höfn á Suöur-
nesjum.
að ljúka smiði skotpalla fyrir
þessi tvöherskip sem borið geti 30
til60 kjarnorkueldflaugará hvoru
skipi. Þegar hefur verið ákveðið
að verja til þessara breytinga á
næstu tveimur árum 350 miljón-
um dollara. Markmið áætlunar-
innar er að hvort herskip geti i
framtiðinni borið 320 stýri-
flaugar.
Auk þessara tveggja herskipa
hefur verið ákveðið að breyta
tveimur systurskipum þeirra,
Wiscounsinog Missouri, i sams-
konar fljótandi skotpalla fyrir
stýrieldflaugar.
Ennfremur hefur bandariskum
fyrirtækjum verið falið að hanna
og smiða skotpalla fyrir aörar
tegundir af herskipum og á þeirri
hönnun og smiöi að vera lokið á
árunum 1985 og 1987.
Innan fjögurra til fimm ára
gætu þvi fjögur herskip með sam-
tals um 1300 stýriflaugar verið á
samfelldrisiglingu ihöfunum hér
i kringum tsland. Það er þvi aug-
ljóst hvert þyngdarpunkturinn i
kjarnorkuvigbúnaöinum færist
nái þesssar áætlanir fram að
ganga.
2500 nýjar
kjarnorkueldflaugar
Þjv.: Þú ræðir hér fyrst og
fremst um herskip, en hvaða
áform eru uppi um stýriflaugar á
kafbáta?
ÓRG: Nú er verið að fram-
kvæma áætlanir um aö breyta
Polaris-kafbátum Bandarikja-
manna á þann hátt að þeir geti
einnig borið stýriflaugar. Samn-
ingar hafa verið gerðir viö West-
inghouse-fyrirtækið um að það
hafi lokið smiði skotpalla fyrir
stýrisflaugar i Polaris-kafbáta
fyrir lok þessa árs, og á árunum
1983 til 1985 verði smiðaðir skot-
pallar fyrir aðrar tegundir kaf-
báta. Alls er hér um að ræða um-
fangsmestu k jarnorkuvig-
búnaðaráætlun hvað snertir her-
skip og kafbáta á síðari árum. Og
markmið Reagan-stjórnarinnar
er að fyrir lok þessa áratugar
verði búiö að koma fyrir 2500
nýjum kjarnorkueldflaugum á
hafsvæðunum.
Árásarvopn
Þjv. Af hverju eru þessar svo-
kölluðu stýrisflaugar slikur
þyrnir i augum kjarnorkuvopna-
andstæðinga?
Stýriflaug bandariska sjóhersins.
I Grunnvörusalan
j hjá Sambandinu; I
: Gífurleg
I aukning
1 mörgum tilfellum getur
I grunnvöruafslátturinn orðið
Isem svarar meir en 20% til
neytendanna, segir i Sam-
bandsfréttum. En eins og
• kunnugt er byggist grunn-
Ivörutilboðið á þvl, aö vegna
aukinnar hagræðingar i
vörupökkun og vörumeðferð
* hefur tekist að fá aukinn af-
Islátt jafnt hjá sölu- sem
flutningsaðilum.
Grunnvörusalan hefur
■ gengiö ákaflega vel undan-
I farið. 1 byrjun bar nokkuð á
! kvörtunum frá smærri kaup-
Ifélögunum yfir þvl, að ein-
ingarnar væru of stórar fyrir
þau. Að ósk Markaðsráðs
• voru einingarnar þvi
Iminnkaðar og jókst þá salan
mjög. 1 grunnvörutilboðinu
eru nú 12 vöruflokkar en
• undirflokkar eru mun fleiri.
Undanfarnar vikur hafa
mæðginin Unnur Guðjónsdóttir
og Þór Bengtsson ferðast um is-
land vitt og breitt og kynnt Svi-
þjóð. Kynningarför þessi er á
vegum Norræna félagsins og
samanstendur dagskrá Unnar og
Þórs af erindum um Sviþjóð, fé-
lags- og menningarmál þar i
landi, og svo visnasöng sem Þór
stendur fyrir.
Unnur hefur búið I Stokkhólmi I
nærfellt 20 ár og hefur hún farið
um Sviþjóð þvert og endilangt og
kynnt Island. Norræna félagið
hafði áhuga á að fá Unni til að
snúa blaðinu við, halda til heima-
haganna og flytja meö sér ýmsa
þekkingu sem hún hefur aflað sér
á langri dvöl sinni I Sviariki. Hef-
ur hún ásamt Þór farið á 20 staöi.
Byrjað var i Borgarnesi, en siðan
haldiö áfram um landið allt. Svi-
þjóðarkvöldin hafa verið i hinum
ýmsu samkomuhúsum. 1 gær-
kvöldi var 20. kynningarkvöldið
og var það á dagskrá i Norræna
húsinu, en meiningin er aö endur-
taka það aftur næstkomandi
laugardagskvöld.
Kynna Svíþjóð
með erindum
og vísnasöng
Mæðginin Unnur Guðjónsdóttir
og Þór Bengtsson, iklædd sænska
þjóðbúningnum.
A blaðamannafundi sem Nor-
ræna félagið hélt I gær með þeim
Unni og Þór, kom m.a. fram að
kynning á Sviþjóð væri ekki sist
til komin vegna þess, að svo virt-
ist sem Sviar væru ekki ýkja vin-
sælir bæði hér á landi sem og á
hinum Norðurlöndunum. Hverju
slikt ylli gátu forsvarsmenn á
fundinum, Hjálmar ólafsson for-
maður Norræna félagsins i
Reykjavik og Unnur Guðjónsdótt-
ir, ekki sagt til um. Hjálmar benti
á að Sviar legðu meira til sam-
norrænna mála en nokkur önnur
þjóð og einnig sagði hann að Is-
land og Islendingar væru sérlega
vel kynntir i Sviþjóð og tók Unnur
i sama streng. Sem dæmi sagöi
Unnur að þótt komur þjóðhöfð-
ingja til Sviþjóöar væru tiðar, þá
hefði uppsláttur sænsku press-
unnar sjaldan verið meiri en þeg-
ar Vigdis Finnbogadóttir heim-
sótti sænsku konungshjónin eigi
alls fyrir löngu.
Kostnaður vegna ferða Unnar
og Þórs er greiddur af félags-
heimilasjóði svo og hinum ýmsu
deildum Norræna félagsins.
_ — hól.
j Verkalýðsfélagið ■
I Hvöt ályktar:____________j
! Stemullina á;
| Sauðárkrók j
■ Þjóðviljanum hefur borist I
Ieftirfarandi yfirlýsing frá I
verkalýösfélaginu Hvöt, |
Hvammstanga: ,
■ Stjórn Verkalýðsfélágsins |
I,,Hvöt” Hvammstanga Vest- I
ur Húnavatnssýslu, lýsir yfir |
eindregnum stuðningi við ■
• staðsetningu steinullarverk- i
Ismiðju á Sauðárkróki, og I
bendir á að i Norðurlands- |
kjördæmi Vestra hefur nær ,
■ engin uppbygging iðnaðar
Iátt sér stað.
Stjórn verkalýðsfélagsins
Iskorar á Alþingi og rikis-
stjórn, aö sjá til þess aö
steinullarverksmiðjan risi á
, Sauðárkróki, og að Alþingi J
Itaki á hverjum tima fullt til- I
lit til hinna fámennari I
byggðarlaga i uppbyggingu *