Þjóðviljinn - 14.04.1982, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 14. apríl 1982
UOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
ólafsson.
Fréttastjóri: Þórunn Siguröardóttir.
L'msjónarmaöur sunnudagsblaös: Guðjón Friðriksson.
Auglýsingasljóri: Svanhildur Bjarnadóttir.
Afgreiðslustjóri: Filip W. Franksson.
Blaöamenn: Auöur Styrkársdó'tir, Helgi Ólafsson
Maenús H. Gislason, ólaiur Gislason, Óskar Guðmundsson,
Sigurdór Sigurdórsson, Sveinn Kristinsson, Valþór Hlöðversson.
iþróttalréttaritari: Viöir Sigurðsson.
Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir-Guðjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir:Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Ilandrita- og prófarkalestur: Elias Mar, Trausti Einarsson.
Auglýsingar: Hiidur Kagnars, Sigriöur H. Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa: GuörUn Guövaröardóttir, Jóhannes Haröarson.
Afgreiðsla: Bára Siguröardóttir, Kristin Pétursdóttir.
Sfmavarsla: Sigriöur Kristjánsdóttir, Sæunn Öladóttir.
Húsmóöir: Bergljót Guöjónsdóttir.
Bilstjóri: SigrUn Báröardóttir.
lnnheimtumenn: Brynjólfur Viihjálmsson, Gunnar
SigUrmundsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen
Jónsdóttir.
Útkeyrsla. afgreiösla og auglýsingar: Sföumúla 6,
Keykjavik, simi 81223
Prentun: Blaöaprent hf.
Gegn kjaraskerðingu
og flokksræði
•. Eftir 10 daga hefst utankjörstaðaratkvæða-
greiðsla í komandi sveitarstjórnarkosningum en
framboðslistum verður að skila fyrir miðnætti næst-
komandi þriðjudagskvölds þann 20. apríl.
• ( sveitarstjórnarkosningunum verða hin mikil-
vægustu málefni byggðarlaganna hvers um sig og
allra sameiginlega vafalaust efst á dagskrá svo sem
eðlilegter.
• Hitt þurfa menn þó einnig að muna mjög vel, að
niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna kunna að
skipta sköpum varðandi alla stjórnmálaþróun í
landinu á næstunni. Nærtækaster í þeim efnum að líta
á kjaramálin og áhrifin á stöðu kjarasamninganna
svo f remi að nýir kjarasamningar haf i ekki tekist f yr-
ir sveitarstjórnarkosningarnar í mái.
• Á samningaborði aðila vinnumarkaðarins liggja
harðvítugar kröfur Vinnuveitendasambandsins um
leiftursókn gegn lífskjörum almennings í landinu. Að
dómi talsmanna Alþýðusambandsins fela þessar
kröf ur í sér 20—30% almenna kjaraskerðingu á tveim-
ur árum. — Þetta eru f yrst og f remst pólitískar kröf ur
úr vopnabúri þess flokkseigendafélags sem stýrir
Sjálfstæðisflokknum með annarri hendinni og Vinnu-
veitendasambandinu með hinni.
Að sjálfsögðu verða það úrslitin í Reykjavík, sem
mesta pólitiska þýðingu haf a.
• Nái flokkseigendafélag Sjálfstæðisflokksins
meirihluta á nýjan leik í borgarstjórn Reykjavíkur, þá
hefur Vinnuveitendasambandið unnið sinn stærsta
sigur. Þá hefur meirihluti kjósenda í borginni gert
kjaraskerðingarkröfur þess að sínum kröf um og víg-
staða verkalýðshreyfingarinnar hefur þá veikst að
sama skapi.
• Það var sigur Alþýðubandalagsins í síðustu
borgarstjórnarkosningum, sem batt endi á hálfrar
aldar flokksræði Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Sá
sigur var naumur og munaði aðeins örfáum at-
kvæðum. Það voru þá síðustu 58 atkvæðin tryggð lista
Alþýðubandalagsins, sem úrslitum réðu. Það ættu
menn að hafa í huga þegar gengið verður til kosninga í
næsta mánuði.
• Kenning ráðamanna Sjálfstæðisf lokksins var
löngum sú, að f ulltrúar annarra f lokka gætu með engu
móti komið sér saman um stjórn Reykjavíkurborgar.
Alger glundroði tæki við um stjórn borgarmála, ef
Sjálfstæðisflokkurinn tapaði meirihlutanum. — Þessi
glundroðakenning hef ur nú orðið höf undum sínum svo
rækilega til skammar sem verða má. Einsf lokkskerf i
Sjálfstæðisflokksins hrundi í kosningunum 1978, en
um stjórn borgarinnar tókst eðlilegt samstarf þriggja
f lokka. A þeim f jórum árum sem síðan eru liðin hef ur
glundroðinn ekki verið í herbúðum meirihluta-
flokkanna þriggja heldur hefur sú óáran sótt Sjálf-
stæðisf lokkinn heim með átakanlegri hætti en nokkru
sinni fyrrsvosemalþjóðer kunnugt.
• Samstarf meirihlutaflokkanna þriggja hefur í
öllum höf uðatriðum gengið vel.
• Og hér eru nokkur dæmi um árangurinn:
1. Fjármálum borgarinnar hefur verið komið í mun
betra horf en áður var.
2. Borgarstjóri er nú embættismaður allra borgarbúa
en ekki flokkspólitískur varðmaður ráðandi afla í
því einsflokkskerfi, sem Sjálfstæðisflokkurinn
hafði komiðsér upp
3. Klíkuskapur er úr sögunni við lóðaúthlutanir.
4. AAikil uppbygging hefur orðið hjá Bæjarútgerð
Reykjavíkur.
5. Bæst hafa við á fjórum árum yfir 600 dagvistar-
rými, og fylgt er áætlun um að fullnægja dag-
vistarþörf inni á næstu tveimur kjörtímabilum.
6. Þrjár æskulýðsmiðstöðvar hafa verið opnaðar og
næsta haust hefst dreif ing málsverðar i skólum.
7. Þrjú dvalarheimili fyrir aldraða hafa verið opnuð
og framkvæmdir við það f jórða hef jast í haust.
• Slíkri upptalningu mætti halda lengi áfram. Það
hefur enginn héraðsbrestur orðið í Reykjavík, þótt
flokksræði Sjálfstæðisflokksins væri hnekkt fyrir
f jórum árum. Þvert á móti hef ur atvinnulíf og mann-
líf allt verið hér blómlegra en nokkru sinni f yrr.
IMcNamara
Pólitísk
I atómsprengja
I Andstæðingar atómvopna-
■ kapphlaupsins hafa tekið
Ifrumkvæðið i bandariskri
umræðu. Hver stórvið-
burðurinn rekur annan, og
• stjórnvöldin eru i mestu
Ivandræðum. Bandarisku
friðarhreyfingunni hefur
vaxið ásmegin með slikum
■ undrahraða að blaðamenn
Itala um að pólitiskri mega-
tonnasprengju hafi verið
varpað að Hvita húsinu.
| NATO-stefnu
j verói breytt
Meöal tiðinda má nefna að
, fjórir öryggismálasér-
Ifræöingar i Bandarikjunum
hafa krafist þess að atóm-“"
vopnastefnu NATÓ verði
, breytt. Það eru þeir Robert
IMcNamara, varnarmála-
ráðherra Kennedys og John-
sons, George F. Kennan,
, fyrrverandi sendiherra
IBandarikjanna i Moskvu,
McGeorge Bundy, aðalráð-
gjafi forsetans I öryggismál-
, um 1961 til 1966, og Gerard
ISmith, aðalsamningamaður
Nixons i SALT-1 viðræðun-
um. Þeir mótmæla þvi að
, gert skuli ráð fyrir þvi að
I' NATÓ verði fyrri til að beita' ‘
atómvopnum — það er svari
árás með „hefðbundnum”
, vopnum með stigmögnun til
Iatómstriðs, sem þeir telja að
ekkiséhægtaðhemja. Þessa
stefnu um „fyrstu notkun”
^ telja þeir vera aðalorsök
Iendalausra tilrauna til yfir-
burða á hernaðarsviðinu.
i 74% fylgjandi
j frystingu
I Þá hefur Associated Press ,
• gert könnun sem sýnir að i
174% Bandarikjamanna eru j
þvifylgjandi aðhætt verði að |
framleiða bandarisk og ,
■ sovésk kjarnorkuvopn. ■
IHaig og Reagan, utan- |
rikisráðherrann og forset- |
inn, hafa veriö sallaðir niður ,
• i bandarisku umræðunni i
Ivegna yfirlýsinga um |
hernaðaryfirburöi Sovét- |
manna, og ýmsar „óþægi- ,
■ legar” staðreyndir verið i
Idregnar fram i dagsljósið |
sem sanna hið gagnstæða. |
Loks er að geta tillögu Ed- ,
• wards Kennedys og fleiri i ■
Ibáðum deildum Bandarikja- |
þings, þar sem lagt er til að I
kjarnorkuvopnabúr stór- ,
• veldanna verði „fryst”ánú- i
Iverandi stigi, þar til |
samningar nást um gagn- |
kvæman samdrátt. Þessar ,
• tillögur hafa vakið mikla at- i
Ihygli, og árásum forsetans j
og utanrikisráðherrans á |
þær hefur verið svaraö full- ,
• um hálsi. •
klrippt
Bandaríska
fátæktin
Bandariskur almenningur er
farinn að átta sig á þvi að
stjórnarstefna Reagans forseta
i efnahagsmálum felst i þvi aö
gera hina riku rikari og hina
fátæku fátækari. Breyting hefur
orðið á almenningsálitinu i
Bandarikjunum, forsetinn orö-
inn óvinsælli en Carter var á
sinum verstu stundum, og fjöl-
miðlarnir farnir að laga sig að
nýrri stemmningu, sem er yfir-
gnæfandi kritisk 1 garö Hvita
hússins. Efnahagsstefnan hefur
mótast af feikilegri áherslu á að
auka fjárfestingar i fram-
leiðslugreinum með skatta-
lækkunum á eignum, hátekjum,
og gróða, samhliða niðurskurði
á útgjöldum alrikisstjórnarinn-
ar til félagsmála. Eitthvað hef-
ur slegið á verðbólgu, en at-
vinnuleysi og almenn fátækt
^eykst hröðum skrefum.
Fátœkir leggi
ríkum lið
Efnahagssérfræðingar
Reagans halda þvi fram aö út-
gjöld rikisins til félagsmála og
riku mælist ekki vel fyrir I
Bandarikjunum þegar á reynir,
þvi að þrátt fyrir allt hefur
Roosevelt-timinn og löggjafar-
starf Johnsons forseta i félags-
málum innprentaö meðal-jóni i
Bandarikjunum þann hugsun-
arhátt velferðarrikisins að þeir
sem „hafa” verði á einhvern
hátt að koma til aöstoðar þeim
sem ,,hafa ekki”. Vikuritið
Newsweek birti 5. april töflu
sem sýnir hvemig hagfræði
Reagans kemur út I skattamál-
um. í grófum dráttum sýnir
taflan aö sá sem hefur yfir 80
þúsund dollara á ári heldur
eftir 15.000 dollurum meira en
áður, en sá sem hefur undir 10
þúsund dollurum á ári greiöir
240 dollurum meira i skatta.
Þetta er Reaganréttlætiö.
RICH MAN, POOR MAN: REAGANOMICS AT WORK
Whan aH the plusas and minuses a/e totaled, Ifte Reagan budget’s proposed tax cuts and
spendlng reduetions leave the poor with less—and the wealthy with much more.
Not eftect on annual tamliy Incomes ot Reagan'a 1 »3 tax and benetlt cuts
+5810
+$15,000 +51,700 +5220 -5240
°- g0*\
Percentot m
population
$60,000
andabove
$40,000 $20,000
to $80,000 to $40,000
Annual Income
$10,000 $10,000
to $20,000 and under
Soofc«; Congra»»tonal Budgot Otftco
framfærslu þurfandi hafi litlum
sem engum árangri skilað, og
betra sé aö láta einkaframtakið
um aö skapa atvinnu, heldur en
að stuðla að félagslegu réttlæti
gegnum rikiskassann. Andstæð-
ingar Reagans viðurkenna aö
útgjaldaaukning til félagsmála
hafi verið gifurleg, en hún hafi
fyrst og fremst veriö fólgin i
þenslu útgjalda til almanna-
trygginga, sjúkratrygginga og
eftirlauna (social security,
medicare, og veterans bene-
fits) sem fyrst og fremst komi
millistéttum til góða en ekki
fátæklingum. Enda þótt ýmiss-
konar beinar stuöningsaðgerðir
stjórnvalda viö raunverulega
fátæklinga i Bandarikjunum
hafi aöeins kostað einn fjórða af
kostnaöi við áöumefnda út-
gjaldaliði, þá er þaö aðstoðin við
fátæklingana sem Reagan sker
niður — hitt ekki. Af þeim 11.3
billjónum Bandarikjadala sem
dregnir voru frá útgjaldaaukn-
ingu til félagsmála i Bandarikj-
unum á liönu ári voru 60% tekn-
ir af opinberri aöstoð við
fátæka.
Reagan-réttlætið
Reagan-stjórnin lofar öllum
betri afkomu i náinni frámtið en
batamerkin láta á sér standa.
Sú leið að létta álögum af hinum
29.3 miljónir
fátœklinga
Og samkvæmt annarri töflu I
spám er gert ráö fyrir að rúm-
lega 15% bandarisku þjóðarinn-
ar lifir nú undir opinberum
fátæktarmörkum, eða 29.3
milljónir manna, þar af 11.4
milljónir barna. 30% fátæklinga
eru blakkir þó að svertingjar
séu aðeins 12% þjóðarinnar, og
40% börn undir 8 ára aldri. Hin
opinberu fátæktarmörk I
Bandarikjunum eru miðuð viö
8.414 dollara árstekjur fyrir
fjögurra manna fjölskyldu 1980,
50% fátækra fjölskyldna hafa
konu sem einu fyrirvinnu. „Op-
inberum” fátæklingum hefur
fjölgað ógnvænlega I Bandarikj-
unum frá 1978 eða úr 11.5% I
15% og Reagan stefnan virðist
ætla að fjölga þeim enn hraöar
en raunin varð á i forsetatið
Carters.
Um veruleikann að baki þess-
um tölum er eðlilega fjallað
mikið i fjölmiölum vestra.
Meira segja hér á íslandi hefur
veriö frá því greint I rikisfjöl-
miðli aö Reagan-forseti gefi af
gæsku stjórnar sinnar 9 milljón-
ir matarskammta á dag til
sveltandi fólks meðal þjóöar-
sinnar.
—ekh
og skorrið
— k.