Þjóðviljinn - 14.04.1982, Blaðsíða 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 14. aprll 1982
Frá Sjálfsbjörgu
í Reykjavík og nágrenni
Ákveðið hefur verið að Sjálfsbjörg taki
þátt i kröfugöngu verkalýðsfélaganna 1.
mai. í tilefni af þvi verður haldinn fundur
fimmtudaginn 15. april kl. 20.30 i Félags-
heimilinu, Hátúni 12. Sjálfsbjargarfélagar
eru hvattir til að mæta á fundinum eða
hafa samband við skrifstofuna i sima
17868 um nánari upplýsingar.
Frá grunnskólum
\ | f Reykjavíkur
Innritun sex ára barna (þ.e. barna sem
fædd eru á árinu 1976) fer fram i skólum
borgarinnar fimmtudaginn 15. og lýkur
föstudaginn 16. april n.k., kl. 15 —17 báða
dagana.
Það er mjög áriðandi að foreldrar láti inn-
rita börnin á þessum tilgreinda tima, eigi
þau að stunda forskólanám næsta vetur.
Fræðslustjórinn i Reykjavik.
ipÚTBOÐ |p
Til sölu
Tilboð óskast i nokkra járnklædda timburskúra sem verða
tilsýnisvið birgðastöð Rafmagnsveitu Reykjavikur á Ar-
túnshöfða i dag,fimmtudag 15. og föstudag 16. þ.m.
• Tilboðum skal skila á skrifstofu vora eigi siðar en 19. þ.m.
og er réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
INNKAUPASTOFNUN REYKJ AVIKURBORGAR
Frikirkjuveyi 3 — Simi 25800
®Frá Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur
Innritun skólaskyldra barna og unglinga
sem þurfa að flytjast milli skóla fyrir
næsta vetur fer fram i fræðsluskrifstofu
Reykjavikur, Tjarnargötu 12, simi 28544,
fimmtudaginn 15. og föstudaginn 16. april
n.k., kl. 10 — 15 báða dagana.
Þetta gildir um þá nemendur, sem flytjast
til Reykjavikur eða úr borginni, koma úr
einkaskólum eða þurfa að skipta um skóla
vegna breytinga á búsetu innan borgar-
innar.
Það er mjög áriðandi vegna nauðsynlegr-
ar skipulagningar og undirbúningsvinnu
að öll börn og unglingar sem svo er ástatt
um verði skráð á ofangreindum tima.
Þá nemendahópa sem flytjast i heild milli
skóla þarf ekki að innrita, en það eru börn
er ljúka námi i 6. bekk Breiðagerðisskóla
og Fossvogsskóla og fly tjast i Réttarholts-
skóla, börn úr 6. bekk Laugarnesskóla
sem flytjast i Laugalækjarskóla og börn
úr 6. bekk Melaskóla og Vesturbæjarskóla
sem flytjast i Hagaskóla.
Fræðslustjórinn i Reykjavik.
Sjúkraliðar
Félagsfundur verður haldinn að
Hótel Heklu, Rauðarárstig 18,
þann 15. april kl. 16
Fundarefni: úrskurður kjara-
nefndar.
Stjórnin
OPIÐ BRÉF
til félagsmálaráðherra Svavars Gests -
sonar formanns Alþýðubandalagsins
bú hafðir siðasta orðið á
ráðstefnu Alþýðubandalagsins,
um sveitarstjórnarmál, sem
haldin var i Kópavogi laugardag-
inn 27. febr. Þar kom orðum
þinum i loka ræðunni, að þú
skoraðir á alþýðubandalags fólk á
Selfossi að standa vel saman, þar
sem ekki væri um neinn málefna-
ágreining að ræða. Tilefni þessa
bréfs er aö spyrjast fyrir um það,
hvaðan þér komi sú vitneskja.
Ekki hefur þú spurt mig eða aðra
félaga i Ab., sem mér eru kunn-
ugir um þessi mál.
En kannski hefur þú átt orða-
stað viö það fólk i Ab. sem hefur
gætt þess vandlega síöastliöin
fjögur ár, að engin rödd heyrðist
frá okkur á þeim ráðstefnum og
fundum sem Ab. hefur boðað til.
Þeim hefur veriö mjög i mun að
ekkert slikt bærist út fyrir Sel-
foss. En hér veit þaö hvert
mannsbarn að ekki finnst snefill
af sósialiskri hugsun hjá þeim
ruglukollum, sem fást við
sveitarstjómar málin hér. Enda
þó þekkt fyrirbrigði að enda-
leysan hljóti ekki einróma sam-
þykkt allra viðstaddra i bæjar-
stjórn.
Þaö er hverjum manni nauð
syn, sem kveður upp jafn ákveð-
inn dóm og þú gerðir I þessu til-
felli að kynna sér málin frá
báðum hliðum, og ekki hvað sist
formönnum stjórnmálaflokka.
En til þess að þú og þeir sem á þig
hlýddu vaði • ekki i villum er ég til
neyddur að senda þér þessar iinur
og nefna hér örfá dæmi, þótt ég
telji ekki rétt aö færa allt málið
inn á landsmála umræðu að svo
stöddu.
Ég spyr: Samræmist það stefnu
Ab. að afhenda einstaklingum
hluta af heilbrigðisþjónustunni —
og láta þá reka þá þjónustu fyrir
eigin reikning? Er þitt ráðuneyti
kannnski búiö að veita einstakl-
ingi — úr ööru sveitarfélagi —
leyfi til þess að byggja og reka
hjúkrunarheimili á Selfossi fýrir
eigin reikning?
Hefur sá sem kallaöur er full-
trúi Ab. i bæjarstjórn Selfoss rætt
þessi mál við þig? Eða rétti hann
bara upp hendinga út i loftið til
samþykktar þessu svona eins og
venjulega meö ihaldi og fram-
sókn. Samræmist það kannski
stefnu Ab. að fulltrúi þess i
hreppsnefnd Selfoss gangist fyrir
þvi, að fiskvinnsluhús i eigu al-
mennings hlutafélags — þar sem
hreppurinn á 1/4 hlutafjárins —
sé selt útgerðarmanni i Þorláks-
höfn? Þegar það er haft I huga, að
tveim til þrem mánuðum seinna
kemur nýr togari til landsins að
1/3 hluta i eigu Selfosshr.
Þessvegna hefur Selfossbær
aldrei getað látið vinna einn
einasta fiskugga af afla þessa
skips, þar sem þetta var eina
fiskvinnsuhúsið, sem hann átti
hlut i. En aflinn hefur nú um 5 ára
skeið verið seldur fiskvinnslu-
stöðvunum á Stokkseyri og
Eyrarbakka. Og þannig koma svo
Selfyssingar auömjúkir og spyrja
hvort þeir geti ekki fengiö vinnu
við að flaka fiskinn sinn?
Er þetta i anda þeirrar sam-
þykktar, sem gerð var á nýaf-
staðinni ráðstefnu og ég ætla aö
leyfa mér að birta kafla úr?
„Aðþýðubandalagið leggur
áherslu á að forsenda raunveru-
legs lýðræðis i landinu er að fólkið
eigi framleiöslutækin. Sveitar-
félög og samtök þeirra, sam-
vinnufélög starfsmanna og önnur
samvinnufélög svo og ýmiss
konar almannasamtök önnur eiga
ásamt stærri rikisfyrirtækjum að
taka við hlutverki auðfélaga.
Sveitarfélögin eiga að stuðla að
atvinnuuppbyggingu á félags-
legum grunni til að veita sam-
borgurunum fjárhagslegt og
félagslegt öryggi og tryggja gott
mannlif. Arður verður ekki til
nema af vinnu og til að nýta hann
I þágu fólksins verða atvinnu-
tækin að vera I félagslegri eign
heimamanna. Alþýðubandalagið
telur brýnt að verkalýðsfélögin
gerist nýtt afl i atvinnurekstr-
inum hvarvetna á landinu likt og
samvinnufélögin á fyrstu árum
aldarinnar.”
Mér skilst að viðkomandi
bæjarstjórnarfulltrúi Selfoss hafi
setið ráðstefnuna þegar þessi
samþykkt var gerð. Hann hlýtur
að hafa greitt atkvæði á móti
henni þótt Þjóðviljinn kunni ekki
við að geta þess.
Er það ekki vel útfærð stefna
Alþýðubandalagsins hjá bæjar-
stjórnarfulltrUa þess á Selfossi —
sem jafnframt er formaður
félagsmálanefndar — að hafa
getaö fengið ihald og framsókn til
þess að samþykkja sölu á þrem
ibúðum af fjórum, sem bærinn
hafði uppá að hlaupa til þess að
hjálpa fólki, sem átti erfitt með
að koma sér fyrir. Hafði það ekki
orðið þungur róður hjá Ab. I
Reykjavik að bjarga húsnæðis-
Fram er kominn framboðslisti
Alþýðubandalagsins og óháðra
við hreppsnefndarkosningarnar á
Hvammstanga. Er hann þannig
skipaður:
1. Matthias Halldórsson, læknir.
2. Guömundur Sigurðsson, brúa-
smiður.
3. Sigurósk Garöarsdóttir, gæslu-
kona.
málunum i haust, ef það hefði
ekki haft til ráöstöfunar þessar
800 ibúðir I eigu borgarinnar, sem
ihaldið var búið að angla saman.
Og hefur það þó aldrei fengið orð
fyrir það hjá okkar flokki að láta
félagslegar þarfir fólks ganga
fyrir.
Hefur ihaldið i Reykjavik eða
kannski bæjarstjórnarfulltrúi Ab.
á Selfossi misskilið orðið sósia-
lismi?
Ég læt hér staðar numið að
sinni en af nógu er þó að taka. Þú
sagöir I samtali við mig — að
þetta væri mál sem þér kæmi
vissulega við. Þá held ég að þú
hafir átt við ágreining þann sem
er I Ab. á Selfossi. Já, vissulega
kemur þér hann við, en ég held að
þér komi þó meira við hvaða
stefnu Ab. á Selfossi rekur. Það er
nú reyndar ekki hægt að tala um
stefnu i þvi sambandi.
4. Flemming Jessen, kennari.
5. Elisabet Bjarnadóttir, ganga-
stúlka.
6. Hreinn Kristjánsson, smiður.
7. Fjóla Berglind Helgadóttir,
matartæknir.
8. Valgeir Agústsson, vörubil-
stjóri.
9. Tryggvi Ölafsson, rafvirki.
10. Eyjólfur R. Eyjólfsson,
verkamaður.
St. Jósefsspítali
Landakoti
HJÚKRUNARFRÆÐINGA
vantar á lyflækningadeildir, gjörgæslu-
deild, skurðdeild og svæfingu.
Einnig á allar deildir sjúkrahússins til
sumarafleysinga.
SJÚKRALIÐA
vantar til sumarafleysinga á allar deildir
sjúkrahússins. Upplýsingar veitir hjúkr-
unarforstjóri i sima 19600 kl. 10—12 og
13—14. /
Reykjavik 7. april ’82
Hjúkrunarforstjóri
Rafmagnsverkfræðingur
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen
óskar að ráða sterkstraumsverkfræðing
til starfa sem fyrst.
VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN hf
ÁRMÚU 4 REYKJAVlK SlMI 84499
Innilegt þakklæti til allra þeirra f jölmörgu
sem glöddu mig á sjötugsafmæli minu 4.
april s.l. með heimsóknum, góðum gjöfum
og heillaóskum.
Guð blessi ykkur öll.
Eggert E. Hjartarson
Holtagerði 20, Kópavogi
Selfossi 5. mars 1982.
Með vinsemd,
Bergþór Finnbogason.
Hvammstangi:
Framboðslisti Alþýðu-
bandalagsins og óháðra