Þjóðviljinn - 18.05.1982, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 18. mal 1982
MOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds
hreyfingar og þjóðfrelsis
Ctgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Ólafsson.
Fréttastjóri: Þórunn Siguröardóttir.
úmsjónarmaöur sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson.
Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir.
Afgreiðslusljóri: Eilip W. Franksson.
Blaðamenn: Auður Styrkársdó'tir, Helgi Ólafsson
Magnús H. Gislason, Olalur Gislason, Óskar Guðmundsson,
Sigurdór Sigurdórsson, Sveinn Kristinsson, Valþór Hlöðversson.
íþróttalréttaritari: Viðir Sigurðsson.
L'tiil og hönnun: Andrea Jónsdóttir Guðjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir:Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Ilandrita- og prófarkalestur: Elias Mar, Trausti Einarsson.
Auglýsingar: Hildur Kagnars, Sigriður H. Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa: Guörún Guðvarðardóttir, Jóhannes Haröarson
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristin Pétursdóttir.
Simavarsla: Sigriður Kristjánsdóttir, Sæunn óladóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guöjónsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir.
Innheimtumenn: Brynjóllur Vilhjálmsson, Gunnar
Sigúrmundsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen
Jónsdóttir.
L'tkeyrsla. afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6,
Reykjavik, simi 811133
Prentun: Blaðaprent hf.
Vígi verkafólks,
eða...
• í yf irstandandi kjarasamningum verkalýðsfélag-
anna hefur ísinn nú verið brotinn. ( lok síðustu viku
var undirritaður nýr kjarasamningur til eins árs milli
Starfsmannafélagsins Sóknar annars vegar og f jár-
málaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar hins vegar.
• Á sama tíma og ráðamenn ríkis og borgar semja
um nokkra launahækkun við eitt f jölmennasta stéttar-
félag láglaunafólks, þá þverneitar Vinnuveitenda-
sambandið öllum kjarabótum til láglaunafólksins og
stendur fast á kröfu sinni um vísitöluskerðingu, sem
hefði í för með sér 20-30% lækkun kaupmáttar.
• Sú mynd, sem þarna birtist af ólíkum viðhorfum
er svo skýr sem f ramast má verða.
• Við krefjum Vinnuveitendasambandið og
pólitíska ábyrgðarmenn þess svara:
• Ætlið þið enn að krefjast kjaraskerðingar hjá
fólkinu innan Verkamannasambandsins, innan Land-
sambands iðnverkafólks og annarra láglaunafélaga,
enda þótt ríkið og Reykjavíkurborg hafi samið við
Sókn um kjarabætur?
• Þessu komist þið ekki hjá að svara, ef ekki í orði
þá á borði.
• Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verka-
mannasambandsins, sagði í viðtali við Þjóðviljann
sama dag og samið var við Sókn: „Það skiptir gífur-
lega miklu máli, hvort peningavaldið í landinu er alls
ráðandi hjá borg og riki, eða hvort verkalýðshreyf ing-
in á þar sínum samherjum að mæta. Meðan Sjálf-
stæðisf lokkurinn réði Reykjavíkurborg, þá gat Vinnu-
veitendasambandið jafnan notað borgaryfirvöld eíns
og því sýndistog beitt borginni fyrir sinn vagn. Sama
gilti um ríkisvaldið, þegar flokkseigendur Sjálf-
stæðisf lokksins höfðu þar mest ráð."
• Vill nokkur maður i verkalýðsstétt kalla þá tíma
yfir sitt fólk á ný?
• Reykjavíkurborg á að vera vígi verkalýðs-
hreyfingarinnar i baráttunni fyrir bættum kjörum og
auknum réttindum hinna lakar settu í þjóðfélaginu, en
ekki doría sem hengd er aftan í stríðsskip Vinnuveit-
endasambandsins og Verslunarráðsins í stéttabarátt-
unni.
— k.
Þeir bíða frétta
• I þeim kosningum sem nú fara í hönd leggja ráða-
menn Sjálfstæðisf lokksins ofurkapp á það að f lokkur-
inn komi fram sameinaður, hvað sem veigamiklum
innri ágreiningi líður.
• Rökrétt andsvar vinstri manna við þessu getur
aðeins verið eitt: Eining um Alþýðubandalagið. Það
eru styrkleikahlutföll Alþýðubandalagsins og Sjálf-
stæðisflokksins, sem marka stöðuna að einu og öllu
leyti í íslenskum stjórnmálum. Það er styrkur þessara
tveggja andstæðu póla í íslenskum stjórnmálum, sem
öllu ræður um það hvort milliflokkar halla sér til
hægri eða vinstri. Það sýna ótal dæmi fyrr og síðar.
• Ráðamönnum Sjálfstæðisf lokksins er það vissu-
lega kappsmál, að f lokkur þeirra komi vel út í sveitar-
stjórnarkosningunum nú, — en miklu meira kappsmál
er þeim þó hitt, að draga úr mætti Alþýðubandalags-
ins. Það getur enginn yfirgefið Alþýðubandalagið án
þess að þóknast um leið þeim öf lum sem ferðinni ráða
í innsta hring Sjálfstæðisflokksins. Þeir herrar vilja
helst sjá virfstri hreyfinguna á íslandi sundraða í
marga parta,t.d. eftir búsetu, aldri eða kynferði. Þá
yrði eftirleikurinn auðveldur þeim stjórnmálaöflum,
sem hér vilja ráðast á lifskjör almennings, opna allar
gáttir fyrir stórauknar framkvæmdir bandaríska
hersins og taka Alusuisse í guða tölu.
• Aðeins samhent og sterk vinstri hreyfing getur
hrundið leiftursókn frá hægri.
• Alusuisseog ameríski herinn bíða eftir f réttum af
atkvæðaseðlinum þínum á laugardaginn kemur.
— k.
j Mikið
! í kassanum
IÞað á ekki af Framsóknar-
flokknum að ganga. Fyrst er
, kosningasjóðnum stolið og
Ivar að sögn kosningastjór-
ans mikið i kassanum eftir
heila helgina og mátti skilja
t að mikil traffik hefði verið
Ihjá flokknum þá helgi.
Heimildir herma aö eitt
hundrað krónur hafi verið i
, kassa kosningasjóðsins þeg-
Iar nánar var eftir grennsl-
ast, og má segja að þarna
hafi Vöggur orðið litlu feg-
, inn, og gildir þaö bæði um
Iþjófinn og Framsóknar- ’
flokkinn.
j Veltan og
I atkvœðin
■
IMaður hefði háldið að velt-
anhjá Framsóknarflokknum
væri meiri þegar hann hefur
, heila auglýsingastofu sem
Ihannar allt i smáatriðum,
áróðursmál, ræður, fram-
komu og auglýsingar fram-
■ bjóðenda. Það hlýtur aö
Ikosta eitthvað meira en
hundraðkall. En árangri
skilar auglýsingastofan; ekki
, er um það að villast. Allir
Ivita hver eru kosningamál
Framsóknarflokksins. Hins-
vegar er ekki alveg vist að
| þauhaliinn atkvæði. Það má
, þvi segja um kosningabar-
páttu Framsóknarflokksins
I að hún gangi vel að öllu ööru I
I leyti en þvi, að atkvæðin ■
, vantar.
I Ljótt að !
■ |
I kveikja í
J En það á ekki af flokknum ■
Iað ganga. Ein auglýsinga- I
brella auglýsingastofunnar I
áðurnefndu var að segja I
t Framsóknarmönnum að •
| dreifa áróðursmiðum limd- I
J um á eldspýtustokka, sem ■
Iframleiddir eru i Rússlandi I
og heita upp á ensku Safety I
Matches. Hinumegin lima I
, svo Framsóknarmenn X B— *
Ibetri borg! Og hvað gera f
menn svo meö eldspýtur? |
Kveikja á þeim að sjálf- I
t sögðu. Og þar sem Fram- *
Isóknarmenn vilja draga at- |
hyglina að sér með eldspýtu- I
stokkunum hefur sjálfsagt I
t einhverjum „húmoristan- •
Ium” þótt við hæfi að kenna |
þeim til hvers þeir eru notað- |
ir. En það er ljótt að kveikja i I
kosningaskrifstofum — jafn- 1
i vel þó að kosningastjórarnir |
| sjálfir hafi lagt til eldspýt- |
I urnar. I
klippt
Tala fátt en
hyggja flátt
Jamm, fhaldið er fskyggilega
fátalaö fyrir þessar kosningar.
Sjálfstæðisflokkurinn og Morg-
unblaðið hans hafa gert sér
grein fyrir því, að þvi fleira sem
þeir segja frá ætlunarverkum
sinum i pólitikinni, þeim mun
fleiri fara í andstööu við flokk-
inn. Þeir hafa áttað sig á þvi að
besti kosturinn fyrir svo félags-
lega andstyggilegan flokk er að
þegja sem ákafast um póli-
tikina. Þvf hún hleypir hrolli i
hvurn mann sem kynnist. Sú
þrúgandi þögn virðist þvi vera
pólitiska linan fyrir þessar
kosningar og komi eitthvaö
efnislega fyrir I Mogganum
vegna kosninganna eða hrekkur
út úr virðulegum frambjóð-
endum flokksins þá gerist það
ekki nema fyrir slys. Fyrir utan
tölur til hefðbundinna blekk- k
inga.
neðra sæki að þeim hjartaprúðu
riddurum með aur og skit. Og
sósialisma.
Heimsmet í
vöðvahnykk
I dýrlegum fagnaöi Sjálf-
stæðisflokksins I Laugardals-
höllinni I siöustu viku voru
margar svona ræður fluttar.
Allt hvarf það I skuggann fyrir
ástarjátningum fjölmiðlapopp-
ara og heimsmeti i vöðva-
hnykkjum. Til dæmis flutti
Katrin Fjeldsted þar ágæta
ræðu um það í hve mikilli hættu
fjölskyldan væri, mörg öfl i
þjóðfélaginu sækja að fjölskyld-
unni og vilja rýra stööu hennar,
Sjálfstæðisflokkurinn er styrk-
asta stoð fjölskyldunnar i sam-
félaginu. Allir lesendur þekkja
þennan bulluganginn. Uppá
veggjum voru borðar þarsem
letraö stóð skýrum stöfum:
Hógværöin skein úr andliti borgarstjóraefnis Sjálfstæöisflokksins I
Laugardalshöll.
Sameinuð birta
í þéttri
djörfung
Hér höfum við líka fengið
skýringuna á hinum undarlegu
ræðuhöldum frambjóðenda
Sjálfstæöisflokksins. Annars er
það ekki bara vegna okkar
sósialista sem ihaldiö kýs að
fela vígtennurnar (sem biða
bráðarinnar). Kvennafram-
boðið er þeim skeinuhætt og
vænlegra að fara með bliðmælgi
á fund kjósenda úr þeim áttum,
sem I rauninni eru til vinstri við
Sjálfstæðisflokkinn þó til hægri
sé viö Alþýðubandalagið (fyrir
þá sem enn vilja halda i gamla
mælikvarða).
1 ræöum og riti tala Sjálf-
stæðismenn ótrúlega mikiö um
ekki neitt. Pokaprestar heföu
verið fullsæmdir af oröa-
gjálfri frambjóðendanna um
„birtuna f augsýn, lftum með
djörfung til framtiðarinnar,
sigurinn er vis, fram til sigurs,
stöndum þétt saman, sameinuð
sigrum við” og svona
meiningarlausir oröaleppar i
löngum bunum. Með þessu virð-
ist íhaldið vera aö telja sér tftí
um aö það sé upphafiö til guð-
anna meöan einhver óútskýran-
leg öfl (allir hinir flokkarnir) úr
„Sjálfstæöi gegn sósialisma”.
Þetta er tilbrigði við þaö þýska
„Freiheit statt Soziaiismus” og
allir ihaldsflokkar heimsins
taka upp í einhverri mynd.
íhaldið eða kaos
Friðrik Sophusson varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins
skrifar i Moggann á laugardag
grein I sama dúr og moll.
„Sameinumst til sigurs” heitir
greinin sú þarsem segir m.a.
„Sjálfstæðisflokkurinn, flokkur
athafhafrelsis og einkafram-
taks, hefur lengst af veriö kjöl-
festan i islenskum stjórn-
málum. Rótleysi stefnuleysi og
upplausn í þjóðfélaginu á meðal
annars upptök sin I þvi, aö flest-
ir vilja kröfur á hendur sam-
félaginu, en fáir axla ábyrgö”.
Lesandi góður, þá vitum við
það, okkar er rótleysið, stefnu-
leysiö og upplausnin, en allt hitt
er Sjálfstæöisflokksins. Þú
stendur frammi fyrir vali:
ihaldiö eða kaos. Auðvitaö þýðir
þetta valið um einræði ihaldsins
i borgarstjórnarapparatinu ell-
egar fjölflokkastjórn á borginni.
Mætti nú spyrja lýðræðissinn-
ana hvar sem þeir annars halla
sér i' flokkunum hvort þeir telji
heilbrigöara einræði Sjálf-
stæöisflokksins eöa fjölflokka-
stjórn hinna flokkanna?
— óg
99 skorNL