Þjóðviljinn - 18.05.1982, Qupperneq 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 18. mal 1982
Einkennilegur
draumur
Borgara nokkurn í Reykjavík dreymdi f yrir skömmu
einkennilegan draum. Honum þótti sem Drottinn alls-
herjar kæmi að máli við sig og færi að tala um þjóð-
kunnan mann. ,,Ég hef nú haft í svo mörgu að snúast að
undanförnu," sagði Drottinn allsherjar, „að ég hef ekk-
ert getað fylgst með manni þessum, en veit að sjálf-
sögðu, að honum hefur verið hyglað á ýmsan hátt
samkvæmt gömlum fyrirmælum mínum. Nú þykist ég
geta ráðið af glaðklakkalegu kvisi úr Neðra, að sálar-
birta hans kunni að vera í daufasta lagi. Hvað heldur þú
um það, væni minn?" Og borgari’nn þóttist í draumnum
hafa svarað Drottni allsherjar með tveimur vísum, sem
hann mundi reyndar, þegar hann vaknaði. Þær hljóða
svo:
Hringli í krónum, hverfur allur friður,
hrifsar og krafsar svartur dálkasmiður.
Sveiar hann jafnframt norður bæði og niður
Norrænu ráði og öllu sem það styður.
Þannig er piltur. Þvi er verr og miður.
Þrútið er skapið, sígráðugur kviður.
Fái 'hann á disk sinn bráðfeitt blóðmörsiður,
byrjar hann strax að heimta svið af yður.
Ekki er þess getið, hverju Drottinn allsherjar svaraði,
en hitt fylgdi sögunni, að hann hefði andvarpað þung-
lega.
Frá Héraðsskólanum
á Laugarvatni
Umsóknarfrestur um skólavist er til 15.
júnin.k.
1 skólanum eru 8. og 9. bekkur grunnskóla,
fornámsdeild, iþróttabraut og uppeldis-
braut.
Upplýsingar hjá skólastjóra simi 99-6112.
Laus staða
Staða lektors i félagsfræði i Kennarahá-
skóla íslands er laus til umsóknar.
Lektornum er ætlað að kenna bæði i
kjarna og valgrein kennaranámsins.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið há-
skólanámi i uppeldisfræðum og veiti
kennsluréttindi i framhaldsskólum.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn
sinni rækilega skýrslu um visindastörf
sin, ritsmiðar og rannsóknir svo og náms-
feril sinn og störf.
Umsóknir skulu sendar menntamálaráðu-
neytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik,
fyrir 13. júni n.k.
Menntamálaráðuneytið,
13. mai 1982.