Þjóðviljinn - 18.05.1982, Síða 7
Þri&judagur 18. mal 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Lærdómar
Falklandseyj a-
stríðsins:
Þegar eldflaugar og
tundurskeyti sökkva meö
lítilli fyrirhöfn argen-
tínsku beitiskipi og nýjum
breskum tundurspilli við
Falklandseyjar verður
mikið fjaðrafok í flota-
málaráðuneytum, sem fá
yfir sig úr öllum áttum
eina og sömu spurningu:
eru herskip dauðadæmd í
stríði?
Breska tundurskeytið sem
sökkti argentinska beitiskipinu
Belgrano hershöfðingi heitir Tig-
erfish. Það er um sjö metrar að
lengd, vegur hálft annað tonn og
dregur um 30 km. Eftir að þvi
hefur verið skotið (frá kafbáti)
fer það með um 80 km hraða i átt
til skotmarksins og breytir um
stefnu eftir fyrirmælum tölvu i
kafbátnum. Þegar skeytið nálg-
ast skotmarkið og kafbátsmenn
þykjast sjá að allt sé i lagi tekur
innbyggður stýrisbúnaður við og
beinir skeytinu á skotmarkið.
Sérfræðingar segja illmögulegt
að verjast Tigerfish þvi að það sé
i raun ömögulegt fyrir væntanleg
fórnarlömb að vita af þvi að
skeytið sé á leiðinni.
Eldf laugin franska
Tundurspillirinn Sheffield sökk
fyrir franskri eldflaug af gerðinni
Exocet AM 39. Henni er hægt aö
skjóta úr flugvél sem flýgur lægst
i 300 feta hæð og hæst i 33 þúsund
feta hæð. Flugmaðurinn gefur
tölvubúnaði skeytisins upplýsing-
ar um staðsetningu skotmarksins
og skýtur þvi i 50 - 68 km fjarlægð
frá þvi skipi sem sökkva skal.
Exocet leitar niður að yfirborði
og tekur siðan stefnu á skotmark-
ið um það bil átta fet yfir sjávar-
máli og þýtur á það með hraða
hljóðsins. Það eru til varnareld-
flaugar sem gætu mætt Exocet —
en það er mjög hæpið að menn
geti áttað sig nógu snemma á þvi
sem er að gerast til að þær varnir
komi að haldi.
Stóru skipin
Þessar staðreyndir ýta undir þá
sem hafa mikla vantrú á flota-
uppbyggingu, og þó einkum á
smiði stórra skipa. En það hlá-
lega er, að meðan tundurspillir-
inn Sheffield brann við Falk-
landseyjar var bandariska þingið
að ræða um fyrsta áfangann i
áætlun Reagans um 168 miljarða
dollara framlag til að stækka flot-
ann. Og efst á listanum eru tvö 90
þúsund smálesta flugvélamóður-
skip, sem eiga að koma upp i
fimmtán skip þeim flugvélamóð-
urskipaflota sem eiga að geta
,,fært bandariskan hernaðarmátt
upp i kjaftinn á sovéskum vörn-
Þetta er eldflaugin sem grandaði breska tundurspillinum; hún fer með hraða hljóðsins átta fet yfir yfir-
borði sjávar...
Eru herskipin
dauðadæmd?
Argentínska beitiskipið Belgrano hershöfðingi sekkur I sæ: meira að scgja spáný flugvélamóðurskip
Bandarikjanna mundu aðeins duga i tvo daga...
um” eins og vikuritið Newsweek
kemst að orði.
Ekki sýnast miklar likur á þvi
að hætt verði við þessi áform,
enda þótt þeim fjölgi með degi
hverjum sem efast um, að flota-
deildir sem snúast mikið um flug-
vélamóðurskip og urðu til i seinni
heimsstyrjöld, geti lifað af i þeim
tæknihernaði sem nú er hægt að
heyja. Rickower aðmiráll var að
þvi spurður fyrir bandariskri
þingnefnd hve lengi kjarnorku-
knúin flugvéla móðurskip
Bandarikjamanna gætu enst ef að
allsherjarstrið brytist út. Hann
svaraði því. Svar hans var: 1 tvo
daga.
Smáu skipin?
Flest er á tækni- og tölvuöld
andsnúið langlifi herskipa. Fjar-
skiptahnettir gera það mögulegt
að vita hvar hvert einasta herskip
er statt á hverjum tima. Og, sem
fyrr segir, árásareldflaugarnar
eru jafnan skrefi á undan þeim
jFyrstu
tónleikar
'Þórunnar
! Guðmunds■
! dóttur
Þórunn Guðmundsdóttir
flautuleikari hcldur tónleika á
sal Tónlistarskóla Kópavogs að
Ilamraborg 11, þriðju hæð, i
kvöld, þriðjudagskvöld kl. 20.30.
Undirleik annaðist Guöriöur St.
Sigurðardóttir.
Þórunn er að ljúka burtfarar-
prófi við Tónlistarskóla Kópa-
vogs og eru þetta hennar fyrstu
sjálfstæðu tónleikar. Kennari
hennar er Bernard Wilkinson.
Á efnisskránni eru verk eftir
C. Ph. E. Bach, Puolenc, Rouss-
el og Martinu.
L.
Þórunn Guðmundsdóttir
FRÉTTASKÝRING
búnaði sem hægt yrði að beita til
að verjast þeim — auk þess sem
sá sem verst þarf alltaf að vera á
verði, en árásaraðilinn þarf ekki
annað en fiska hentugt augnablik
til árásar. Herfræðingum ber svo
ekki saman um það, hvernig
bregðast eigi við þeim háska sem
herskip eru i. Ein viðbrögðin eru
blátt áfram þau, að hætta ekki á
að geysidýrir gripir eins og flug-
vélamóðurskip komi nálægt um-
talsverðum háska: til dæmis
stillti bandariski flotinn sig um aö
senda flugvélamóðurskip inn á
Persaflóa meðan á stóð gisladeil-
unni. (En þá má lika spyrja: ef
flugvélamóðurskip eiga að færa
bandariskan árásarbúnaö og
flugvélar sem næst Sovétrikjun-
um, hvaða gagn er að þeim, ef
ekki má setja þau i hættu?) Enn
er ráðlagt að hugsa minna um
stærri skip en áður og smiða
þeim mun fleiri smáskip. Þá er
vitnað til Sovétmanna, sem hafi
smiðað allmikið af smáskipum
— sem séu m.a. sérhæfð i að
koma stærri skipum fyrir kattar-
nef.
Gröfum Custer upp
En þótt gifurlega örar tækni-
byltingar gerist á sviöi hernaðar
er herfræðileg hugsun fremur
hæggeng. Tii dæmis er Reagan nú
að 'aka i notkun nokkur stór or-
ustuskip frá þvi i seinni heims-
styrjöld, sem búið var að leggja,
og ætlar að nota þau sem skot-
palla fyrir stýrisflaugar. Ekki
einu sinni herskáir menn úr flokki
Reagans sjálfs eru hrifnir af
þeirri áætlun. Til dæmis er það
haft eftir Barry Goldwater, öld-
ungardeildarþingmanni frá Ari-
zona, að þegar þessir kláfar eru
aftur teknir i notkun þá sé það
eins og að „endurnýja herinn með
þvi að grafa upp Custer hershöfð-
ingja”. En Custer var riddara-
liösforingi sem beið ósigur fyrir
Indjánum við Little Big Horn fyr-
ir hundrað árum.
AB
í fyrri viku lést i Stokk
hólmi úr hjartaslagi
hinn heimskunni rithöf-
undur Peter Weiss.
Hann var 65 ára að aldri.
Weiss var fæddur i
Þýskalandi og var af
gyðingaættum. Eftir
valdatöku Hitlers flúði
fjölskylda hans, fyrst til
Tekkóslóvakiu en siðan
til Sviþjóðar.
Weiss hóf feril sinn sem málari
og kvikmyndageröarmaður.
Siðan tók hann að skrifa, bæði á
þýsku og sænsku, en það var með
leikritinu Moröið á Marat (1964)
sem hann náði heimsfrægð — þaö
leikrit hefur tvisvar verið sett á
sviðhéri Reykjavik.
Peter Weiss varð einn áhrifa-
mestur frömuður hins pólitiska
leikhúss eftirdaga Brechts. Hann
hefur samið leikrit um fanga-
búðir nasista, um Trotski, um
Vietnamstriðið og fleiri þau
stórmæli sem okkar öld hefur
heyrt og séð. Siöustu æviárin
vann hann að skáldsagnaflokki
meðsjálfsævisöguivafi.sem hann
nefndi „Fagurfræði andspyrn-
unnar”. Nýlega var frumsýnd i
Slokkhólmi ný leikgerð hans á
Málaferlunum, skáldsögu Franz
Kafka.
VALIÐ ER ÞITT!
3 Frábær | greiðslukjör. X 11 ■-» Verð á götu station kr. 45.000.- Verð á götu fólksbifr. kr. 42.500.-
INGVAR HELGASON Melavöllum v/Rauðagerði simi 33560