Þjóðviljinn - 18.05.1982, Qupperneq 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 18. mai 1982
Prýðis-
góður
árangur
sagði Helga
Magnúsdóttir
formaður
Framfarafélags
Breiðholts III
Framfarafélag Breiö-
holts 3 gekkst fyrir
hreinsunardegi á laugar-
daginn. Breiðholt 3 saman-
stendur af hverfunum í
Fellum, Hólum og Bergi. A
þessu svæöi býr nær helm-
ingur Breiöholtsbúa, en
íbúasamtökin hafa geng-
ist fyrir slíkum hreinsun-
ardegi árvisst á hverju
vori.
Að sögn Helgu Magnúsdóttur,
formanns Framfarafélagsins
tókst hreinsunardagurinn i alla
staði mjög vel. Nokkur hundruð
manns störfuðu ötullega obbann
af laugardeginum. Hreinsunar-
deild Reykjavikur dreiföi 1500
pokum sem i var safnað rusli. Var
gengið i að hreinsa skólalóðir,
stéttir, götur og stiga. Sagði
Helga að mikill munur væri að sjá
Breiðholt 3 eftir framkvæmdirn-
ar. —hól
Landspítalinn
og Borgar-
spítalinn
með
neyðarvaktir
Ekkert samkomulag varð á
fundi hjúkrunarfræðinga og fjár-
málaráðuneytisins I gær og hefur
neyðarástand skapast eftir að
Landakotsspitali hefur neitað að
taka að sér neyðarvaktir.
Svavar Gestsson heilbrigðis-
ráöherra fór þess á leit i gær við
Landspitalann og Borgar-
spitalann að þeir tækju að sér þær
neyðarvaktir sem Landakots-
spitali hefði neitað að taka aðsér.
Ólafur Ólafsson landlæknir
sagði i gærkvöldi að hann hefði
setið fund með formönnum
læknaráða Landspitalans,
Borgarspitalans og Landakots
svo og borgarlækni, og hefði þar
verið ákveðið að Borgarspitalinn
tæki að sér neyðarvaktina á
þriðjudag, en Landspitalinn á
miðvikudag. Siöan yrði boðaður
annar fundur með formönnum
læknaráðanna á miðvikudag.
Ólafur sagði að Landakot veitti
vissa bráðaþjónustu, en þess
hefði verið farið á leit, að Landa-
kot veitti samskonar þjónustu og
hin sjúkrahúsin.
Þá sagði Ólafur að læknum
væri ljóst, að samkvæmt lækna-
lögum bæri læknum að svara kalli
og veita þjónustu, en hún hlyti
hins vegar óhjákvæmilega að
takmarkast af þvi, hve aðstoð við
sjúrahúsin væri litil.
Á fundi sinum i dag sendu
formenn læknaráða
sjúkrahúsanna jafnframt frá sér
yfirlýsingu, þar sem þeir segja að
erfitt sé að halda uppi lág-
marksþjónustu við rikjandi
aðstæður og skora þeir jafnframt
á fjármálaráðherra að hefja nú
þegar raunhæfar viðræður til
lausnar deilunni.
Ingibjörg Gunnarsdóttir hjá
Hjúkrunarfræðingafélaginu sagði
i gær að það væri i höndum
hjúkrunarfræöinga á hverjum
vinnustað að ákveöa hversu
margir sinntu neyðarþjónustu, en
hins vegar væri það á valdi
læknanna hversu margir væru
teknir inn á hverja stofnun.
-ólg.
Hreinsunardagur í Breidholti
Hverfasamtök boða til
stj ómmálafundar
Þingholtsbúar harma byggingarframkvæmdir
íbúasamtök Vestur-
bæjar norðan Hring-
brautar og Þingholtanna
halda sameiginlegan
stjórnmálafund með
fulltrúum framboðslist-
anna að Hótel Borg i
kvöld, þriðjudaginn 18.
mai kl. 20.30
Fyrirhönd Alþýðubandalagsins
mæta þau Sigurður Harðarson og
Alfheiður Ingadóttir.
Félagsfundur tbúasamtaka
Þingholtanna samþykkti nýverið
ályktun, sem hljóðar svo:
tbúasamtök Þingholtanna
fagna þeirri samþykkt sem gerð
var á Skipulagsnefndarfundi ný-
verið þar sem ibúasamtökum i
gamla bænum er gefinn kostur á
að starfa með Borgarskipulagi
Reykjavikur við endurvinnslu og
mótun deiliskipulags fyrir gömlu
hverfin.
Hinsvegar harma samtökin
hvernig staðið hefur verið að
byggingarframkvæmdum við
Þórsgötu 29.
tbúar við Þórsgötu og Lokastig
ásamt Stjórn samtakanna hafa
leitað allra löglegra leiða til að fá
stöðvaðar þær framkv. meðan
málið yrði tekið upp að nýju.
Kærum sem fram hafa komið
hefur i engu verið sinnt og telur
fundurinn það vitavert að yfir-
völd þessara mála skuli gjörsam-
lega hafa brugðist sinu hlutverki
þ.e. að sjá til þess að lögum sé
framfylgt. Fundurinn krefst þess
að byggingarframkvæmdir við
Þórsgötu verði þegar I stað stöðv-
aðar og málið tekið upp að nýju,
þar sem fullt tillit verði tekið til
ibúa við ofanverða Þórsgötu og
Lokastig.
Vegna fyrirhugaðrar bygg-
ingarframkvæmdar á lóð nr. 16
við Óðinsgötu óskar fundurinn
eftir að tekið verði fullt tillit til
óska ibúa nærliggjandi húsa,
þegar ákvörðun veröur tekin
varðandi teikningar af þessari
lóð.
Sigurður Harðarson
K.jarnorkuvopnalaus Norðurlönd
100 þúsund í friðar-
göngunni í Gautaborg
Fulltrúi SHA
flutti ávarp
Fiölmennasta friðarganga
setn sögur fara af i Sviþjóð átti
sér stað i Gautaborg á laugar-
dajginn.
Tilefni göngunnar var að mót-
mæla vigbúnaðarkapphlaupinu
ogí krefjast kjarnorkuvopna-
lausra Norðurlanda.
Högni Eyjólfsson námsmaöur
i Gautaborg sagði i simtali við
Þjööviljann i gær að gengið
'heiföi verið frá 5 stöðum i borg-
inOi. að Ullevi-iþróttaleikvang-
inúm þar sem sameiginlegur
fundur var haldinn, og var mat
lögreglunnar að um 100 þúsund
mgnns hefði tekið þátt i göngun-
um.
Jóhannes Agústsson
Inni á sjálfum leikvanginum
rúmast hins vegar ekki nema
um 50 þúsund áhorfendur, og
var hann þétt setinn.
Fulltrúum frá öllum Norður-
iöndunum var boðið að taka til
máls, og flutti Jóhannes
Agústsson nemi i þjóðhagfræði
ávarp fyrir hönd Samtaka her-
stoðvaandstæðinga við upphaf
einnar göngunnar.
Högni sagði að aðgerðir þess-
ar heföu ekki verið skipulagðar
af félagasamtökum, heldur
hefðu einstaklingar átt frum-
kvæðið að þeim og fengið til liðs
vjö sig hreyfingar og félaga-
sámtök. Þá hefðu borgaryfir-
völd i Gautaborg einnig veitt að-
geröunum stuöning, meöai ann-
ars með þvi að leyfa afnot af
iþróttaleikvanginum og þá var
einnig öllum sem báru merki
dagsins leyft að fara ókeypis i
strætisvögnum borgarinnar.
Einnig var ókeypis fyrir borg-
arbúa i tivolí-skemmtigarðinn á
Lyseberg um kvöldiö.
A fundinum á Ullevi-leik-
vanginum töluðu meðal annarra
þau Daniel Ellsberg, sem kunn-
astur er fyrir uppljóstranirnar á
„Pentagon-skjölunum” um
Vietnamstriöiö og norska leik-
konan Liv Ullman.
Fánar allra Norðurlandanna
voru bornir i göngunni og á leik-
vanginum, og Jóhannesi
Agústssyni var falið að færa is-
lensku rikisstjórninni boðskap
fundarins i þartilgerðu kefli,
sem send voru rikisstjdrnum
allra Norðurlandanna.
Högni Eyjólfsson sagði að
veður hefði verið mjög gott, og
sumarið væri nú komið til
Gautaborgar með sólskini og 20
gráðu hita. Hann sagði að
a.m.k. 100 Islendingar hefðu
tekið þátt I friðargöngunni á
laugardaginn. — ólg.