Þjóðviljinn - 18.05.1982, Qupperneq 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 18. maí 1982
VELSKOLI ISLANDS
REYKJAVÍK
Innritunarfrestur er til 10. júni nk. Inntöku-
skilyrði eru að umsækjandi hafi náð tilskyld-
um aldri og kunni sund.
Störf og réttindi vélstjóra
Vélstjórar vinna margvísleg störf til sjós og
lands, við vatns- og orkuveitur, í smiðjum og
iðnaði. Störfum vélstjóra í iðnaði fer f jölgandi
með vaxandi iðnvæðingu. Réttindi vélstjóra til
starfa á sjó eru sem hér segir: .
1. stig veitir réttindi til yf irvélstjórnar á f iski-
skipi með allt að 250 hestaf la vél og undirvél-
stjórnar á fiskiskipi með allt að 500 hestafla
vél.
2. stig veitir réttindi til undirvélstjórnar á
fiskiskipi meðalltað 1000 hestaf la vél.
3. stig veitir réttindi til undirvélstjórnar á
fiskiskipi með allt að 1800 hestafla vél og á
f lutningaskipum og farþegaskipum.
4. stig veitir ótakmörkuð réttindi eftir að nem-
andi hef ur lokið sveinspróf i í velvirkjun.
Réttindi hvers stigs aukast síðan að fenginni
starfsreynslu eftir ákveðnum reglum.
I Reykjavík fer fram kennsla í öllum f jórum
stigum vélstjóranáms: á Akureyri, í Vest-
mannaeyjum og á fsafirði og 1. og 2. stigi; á
Húavik og í f jölbrautaskólum Akraness og
Suðurnesja í 1. stigi.
Skipulag
námsins og námsmat
Sl. haust var tekið upp áfangakerfi við skól-
ann og fer námið i 1. og 2. stigi fram sam-
kvæmt því skólaárið 1982—83. Þeir nemendur
sem hef ja nám við skólann haustið 1982 stunda
því nám eftir áfangakerf i.
Nemendur, sem hafa stundað nám við aðra
skóla og vilja innritast i Vélskólann, fá fyrra
nám sitt metið að þvi leyti sem það fellur að
námsefni skólans.
Þeir sem lokið hafa sveinsprófi í vélvirkjun,
bifvélavirkjun eða rennismíði fá fyrra nám
sitt metið eftir sérstökum reglum.
Framhaldsnám eftlr
vélskólanám
Nám við Vélskólann veitir möguleika á f ram-
haldsnámi, við tækniskóla og tækniháskóla.
Einkum skal bent á f ramhaldsnám í véltækni-
greinum, rafmagnsgreinum og tölvutækni en
tölvukennsla var tekin upp sl. haust. Tölvu-
kennslan við Vélskólann hef ur þá kosti að vera
tengd verklegu námi og hagnýtri reynslu og er
því ákjósanlegur undanfari að framhalds-
námi í greininni. Stef nt er að því að Vélskólinn
útskrif i stúdenta eftir að4. stigs námi er lokið.
Grunndeildlr
verknámsskóla
Nemendur, sem eru að Ijúka grunnskólanámi
og hyggja á vélskólanám, skal einnig bent á
grur ndeildir verknámsskólanna (fjölbrauta-
skóla og iðnskóla) en þar er hægt að Ijúka
hluta námsins, t.d. í verklegum greinum eins
og smíðum, suðu og grunnteikningu.
Allar frekari upplýsingar er að fá í Námsvísi
Vélskólans sem fæst á skrifstof u skólans.
Þar liggja einnig f rammi umsóknareyðublöð.
Skrifstofa Vélskólans (f Sjómannaskólahús-
inu) er opin alla virka daga frá kl. 8.00 til
16.00. Sími 19755.
Skólastjóri.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
Hlöðver Sigurðsson fyrrverandiskólastjórí verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 19 maikl. 16.30
Páll Hlöðvesson Anna M. Hlöðvesdóttir Sigurður Hlöðvesson Þorgerður H. Hlöðvesdóttir og barnabörn Ilannveig Valtýsdóttir Sigurleif Þorsteinsdóttir
Minning:
Jórunn Jónsdóttir
Fædd 4. april 1893 — Dáin 10. maí 1982
í dag verður til moldar borin
frá Fossvogskapellu Jórunn
Jónsdóttir Lönguhliö 3 hér i borg.
Jórunn var fædd aö Bakka i
Svarfaðardal, þann 4. april 1893
og var þvi 89 ára er hún lést. For-
eldrar hennar voru Svanhildur
Björnsdóttir og Jón Zophoniasson
bæði Svarfdælingar að ætt og
uppruna. Þau Svanhildur og Jón
eignuöust 8 börn en tvö þeirra dóu
i æsku. Jórunn var 4. elst þeirra
barna en 3 eru á llfi, en þau eru
Jóhanna er dvelur á sjúkrahúsi á
Sauðárkróki, Zoponias búsettur i
Kópavogi og Frimann búsettur i
Reykjavik. Jórunn fluttist með
foreldrum slnum 11 ára gömul að
Neðra Asi i Hjaltadal og dvaldist
þar i foreldrahúsum fram yfir
tvitugsaldur er hún fluttist til
Reykjavikur i atvinnuleit. Stund-
aði hún að jafnaði þjónustustörf á
vetrum en kaupavinnu á sumrum
eins og algengt var á þessum ár-
um. Var hún eftirsótt til stafa
vegna dugnaöar og ósérhlifni en
hvort tveggja var henni i blóð
boriö. Eftir 1930 hóf hún störf á
Hótel Borg I Reykjavik og starf-
aði þar um langt árabil. Siöar
vann hún við þvottahúsið Drifu
allt fram á elliár, þ.e.a.s. meðan
kraftar entust. Jórunn var ein-
hleyp alla sina ævi og eignaðist
ekki afkomendur. Persónuein-
kenni Jórunnar og eðliskostir
voru eins og áður er að vikið,
samviskusemi I starfi og einstök
húsbóndahylli. Þeir munu ekki
hafa verið margir þeir dagar er
hana vantaði til vinnu á hennar
löngu starfsævi, en hún átti þvi
láni að fagna að vera heilsuhraut
fram á allra siðustu ár.
Einn var sá páttur i fari Jór-
unnar sem einkenndi hennar lifs-
hlaup ailt en það var einstök
frændrækni og væntumþykja
gagnvart öllum sinum stóra
frændgarði. Þaö mun hafa verið
G. Eliot sem sagði þessi fleygu
orð: „Maður þarf aö vera fátækur
til þess að þekkja munað þess að
gefa”. Jórunn safnaði ekki auði á
Krabbameins-
iélagið
byggir við
Hvassaleiti
Krabbameinsfélagið undirbýr
nú byggingu nýs húss fyrir starf-
semina á k>ð sem félagið hefur
fengið úthlutað við Hvassaleiti I
Reykjavlk. Fjársöfnun verður I
haust og stefnt að þvi að fram-
kvæmdir hefjist næsta vor. Þeim
á að Ijúka á árinu 1984.
Þetta kom m.a. fram á aðal-
fundi Krabbam einsfélags
tslands, en hann var haldinn 7
mai s.l. Formaður félagsins,
dr. Gunnlaugur Snædal yfir-
læknir, skýrði frá starfsemi
siðasta árs. Var hún svipuð og
áður, en þd var fjöldi kvenna sem
mættu I hópskoðun f hámarki.
Ætlunin er að auka leitarstarfið
þegar flutt verður i nýja húsið.
Veröur þá aukin leit að krabba-
meini i leghálsi og brjóstum en
cinnig eru nú til athugunar niður-
stöður nefndar sem lagt hefur
mat á hagkvæmni leitar að
krabbameini i ristli og enda-
þarmi, svo og i öörum liffærum
Stjórn Krabbameinsfélags
tslands var endurkosin. Hana
skipa: Dr. Gunnlaugur Snædal
formaður. Meðstjómendur eru
Baldvin Tryggvason sparisjóðs-
stjóri, Erlendur Einarsson for-
stjóri, Hjörtur Hjartarson for-
stjóri, Matthias Johannessen rit-
stjóri, Ólafur örn Arnarson yfir-
læknir, Sigurður Björnsson
læknir, Tómas Árni Jónasson.
læknir, og Vigdis Magnúsdóttir
hjúkrunarforst jóri. Fram-
kvæmdastjóri Krabbameins-
félags tslands er Halldóra
Thoroddsen.
veraldar visu, þrátt fyrir langan
vinnudag og langa starfsævi.Hún
naut þess að rétta öðrum hjálp-
arhönd, og voru það þá fyrst og
fremst frænkur hennar og frænd-
ur sem þess nutu. Hér var ekki
minna um vert að njóta nærveru
hennar og glaðlyndis sem hún átti
i rikum mæli. Jórunn var hógvær
kona og litillát en slik var vinnu-
semi hennar og hjálpsemi að hún
gat tæpast heimsótt frændfólk sitt
án þess að taka til hendinni gest-
gjöfunum til hjálpar.
Ég og fjölskylda min erum i
þeim stóra hópi sem naut sam-
fylgdar Jórunnar siðustu áratug-
ina. Við þökkum henni margar á-
nægjulegar samverustundir og
svo mun vera um alla þá er höfðu
af henni einhver kynni. Hennar er
sárt saknað. Systkinum hennar
og öðru venslafólki sendi ég sam-
úðarkveðjur og kveö hana með
þessum orðum Daviðs Stefáns-
sonar:
„Þú hafðir öllum hreinni reikn-
ingsskil.
t heimi þinum gekk þér allt í vil.
Þú hirtir litt um höfðingsnafn og
auð.
Þvi hógværð þinni nægði daglegt
brauð.”
Blessuð sé
Jónsdóttur.
minning Jórunnar
Gunnar R. Magnússon.
Bróðir minn
Eiður Á. Sigurðsson
áður til heimilis að Vesturgötu 54, lést i Landakotsspitala
aðfaranótt laugardagsins 15. mai.
Helga Sigurðardóttir.
Sameiginleg
verkfallsstjórn 18. maí
á vegum:
Málarafélags Reykjavikur,
Múrarafélags Reykjavikur,
Sveinafélags bólstrara,
Sveinafélags húsgagnasmiða,
Sveinafélags pipulagningamanna og
Trésmiðafélags Reykjavikur
hefur aðsetur sitt að Suðurlandsbraut 30,
2. hæð. Siminn er 39180.
FÉLAGSMENN FJÖLMENNIÐ Á
VERKFALLSVAKTINA.
Verkfallsstjórnin
Þjónustustarf
Viljum ráða starfsmann til að annast
kaffistofu og þrif i verksmiðju okkar.
Upplýsingar á staðnum og i sima 83399.
Kristján Siggeirsson
Lágmúli 7
Frá kjörstjórn
Bessastaðahrepps
vegna framkominnar óskar um hlutfalls-
kosningar i sveitarstjórnarkosningum i
Bessastaðahreppi i sveitarstjórnarkosn-
ingum i Bessastaðahreppi 26. júni n.k.
skal bent á að frestur til að skila fram-
boðslistum er til 25. mai n.k.
Kjörstjórn verður við i Bjarnastaðaskóla
þriðjudaginn 25. mai kl. 22—24.
Kjörstjórn Bessastaðahrepps
16. mai 1982
Vaigeir Gestsson
Gunnar Stefánsson
Gunnar Halldórsson