Þjóðviljinn - 05.06.1982, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 05.06.1982, Blaðsíða 15
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 5.-6. júnl 1982 Helgin 5.—€. júnl 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 Þorleifur Friðriksson varð vitni að óeirðunum í Varsjá 3. maí s.l. og var handtekinn af öryggis- lögreglunni. Hann segir hér frá reynslu sinni í máli og myndum. Hermenn stóðu I beinum röð- um, munduöu byssustingi og slógu taktfast saman hælum. Wojciech Jaruzelski ásamt fylgd- arliöi stóö á stalli. Eftir skamma stund var athöfinni lokiö. Stór- mennin brunuöu á braut I stórum limósinum umluktir öryggis- vöröum. Aöur en varöi var „gamli bærinn” orðinn eins og áöur, — rétt eins og ekkert heföi hent. Strjálingur af fólki rölti eftir þröngum götum án þess aö virö- ast upptendraö af hinu „sögu- lega” atviki fyrir fáum augna- blikum. Liklega er þaö rétt sem Nietzsche benti á — múgurinn skilurekkigildi mikilmenna. Að morgni þriðja maí var múgur mikill samankominn á Zomkowi-torginu i Varsjá. Vopnumskrýtt öryggislið við skyldustörf/ pólitísk stórmenni pólska ríkisvaldsins. Forvitið fólk/ er engum skyldum hafði að gegna, bara stóð og virti fyrir sérdýrðina. Þessi viðburður er árlegur og á orsök að rekja til þess er Pólverjar fengu stjórnar- skrá árið 1791. Með stjórnarskránni/ sem almennt er nefnd /,Þriðja maí stjórnarskráin", lögleiddist þing- bundin konungsstjórn i fyrsta sinn í sögunni. Hún var ekki aðeins merkilegt plagg séð með pólskum þjóðernis- augum, heldur var um að ræða heimssögulegan viðburð. Aðeins eitt ríki hafði þá lögtekið stjórnarskrá, — Banda- riki Norður-Ameríku. I tilefni þessa atburðar, sem fyrir nær 200 árum var annars vegar tákn framfara og djörfungar og hinsvegar vonar um að bæta hið pólitíska og efnahagslega ófremdarástand, fagna Pólverjar, bæði hvunndagsmaðurinn á götunni sem enn hefur djörfung að vona, sem og hinn borðumskrýddi sem nú er tákn þess sem stjórnarskráin átti að bæta fyrir 200 árum. Svipmynd frá 1. mal göngunni Með á götum Varsjár Þótt boröumskrýdd stórmennin og mestur hiuti öryggisgæslunnar hyrfu á braut og múgurinn dreifö- ist um þröngar steinilagöar götur og torg þá var samt eitthvaö eftir. Loftiö var þrungiö spennu. Nokkrum timum siöar var ég staddur inni á simstöö viö Rynek Storomieski torgiö. Eg haföi mælt mér mót viö vinafólk þar á torg- inu hálfri klukkustund síöar. Varla haföi ég lagt frá mér sim- tóliö þegar á hlustum minum skall brimgnýr og hugur minn flaug þangaö sem ég frá æsku minnist brimhljóöa — á Eyrar- bakkann. En þetta voru engin brimhljóö og ég var ekki á Bakk- anum. Ég var i Varsjá og hljóöin jukust aö styrk. Þetta var fólk sem hrópaöi slagorö. Þúsundir manna höföu safnast saman á Zomkowi-torgi en nú voru þar engin boröumskrýdd stórmenni, — aöeins múgurinn andspænis þungvopnaöri örygg- islögreglu. Þar var ekki aöeins hin venjulega öryggislögregla, heldur einnig urmull af hinum mjög svo hötuöu ZOMO-öryggis- vöröum. Nærvera þeirra boöaöi ekkert gott. Uppistaöan i ZOMO eru strákar utan af landsbyggö- inni sem hafa þarna fengiö tæki- færi aö sleppa frá hokri i sveit- inni. Þeir eru vel launaöir, miöaö viö þaö sem gengur og gerist, þeir geta verslaö i sérstökum verslun- um og hafa auk þess ýmis friöindi sem venjulegt fólk hefur ekki. Á hlnn bóginn veröa þeir aö lúta ströngum aga og eru sérþálfaöir I aö berja niöur uppþot. Þvi er hvislaö að ZOMO-liðar fái örvandi lyf til aö nám og þjálfun nýtist sem best. Þaö er einkennileg tilfinning aö standa mitt i fólksmergö sem tel- ur þugi þúsunda, — fólksmergö sem er svo samtaka aö þaö er eins og einn maöur sé. Skyndilega gera þúsundir fingra sigurmerki og um leiö skellur „SOLIDAR- NOSC” á hlustunum meö ægi- legum krafti — ekki einu sinni heldur aftur, aftur og aftur. I næstu andrá byrjar fólkiö aö syngja og þeir karlar sem bera höfuðföt taka ofan. Um leiö og söngurinn þagnar er hrópaö „GESTAPO, GESTAPO, GESTAPO”. Oryggislögreglan skilur greinilega kveöjuna og gerir skyndiáhlaup. Það fer geös- hræringarkliöur um fjöldann. Hrópin og söngurinn halda samt áfram en ZOMO-liöar gerast æ ólmari. Þeir kasta táragasi og sprauta vatni og um leiö gera þeir skyndiáhlaup inn i manngrú- ann og láta kylfur sinar dynja á öllu kviku. Ég berst með straumnum upp mjóa steinilagöa götu upp á Rynek Staromiejskitorg. Timinn, sem ég á að hitta vinafólk mitt er kominn. Harla ósennilegt er aö mér takist aö finna þaö i öllum þessum látum og ég ákveö aö fylgjast heldur meö þvi sem er aö gerast. A horni torgsins og göt- unnar, sem liggur aö St. Jóhanns- kirkju stendur hópur fólks and- spænis vopnuöum öryggisvörö- um. Þar stendur gömul kona meö mynd af heiiagri jómfrú á kápii- kraganum og pólska flaggið i hendinni. A þaö hefur veriö skrif- aö SOLIDARNOSC veiku letri. Skyndilega brýst einn öryggis- vöröurinn fram meö reidda kylfu og ber á konunni. Hvilikt „mótif”. Ég þrif myndavélina en áður en mér tekst aö smella af er gripiö þéttingsfast i öxl mér. Ég lit viö. Borgaralega klæddur ungur maö- ur meö Zolidarnosc merki i barminum beinir aö mér byssu. Hann gerir mér ljóst aö ég skuli fylgja meö. Olfur I lambsgæru. Mér varö þaö ekki ljóst fyrr en eftir nokkurn tima á lögreglu- stööinni aö þaö er greinilega al- geng aöferð aö klæöa öryggisveröi i venjuleg föt og jafnvel skreyta þá meö Solidar- nosc-merki aö utan en byssum, kylfum og hatri aö innan. Myndavélin og vegabréfiö eru tekin af mér. Ég spyr mann sem viröist vera einhverskonar yfir- maöur, hvort ekki sé um mis- skilning aö ræöa, „ég er bara ferðalangur”. 1 staö þess aö svafa hvæsti hann: „þú lýgur, þú lýgur öllu, þiö ljúgiö allir. Skil- uröu ekki aö þetta er striö?” SIÖ- an þrifur hann af mér skjattann minn góöa og fer aö róta. Þar er ekkert nema nokkrar bækur og litil snyrtitaska. Hann opnar hana, tekur upp rakspirann, þef- ar og lætur vel af. Siöan færir hann skjattann meö öllu i inná skrifstofu. 1 fyllingu timans fékk ég allt aftur, — eöa næstum allt. Ilmur rakspirans kitlar sennilega nasir pólskrar frúar. Á þessari stöö var ég I haldi næstu 5 tima viö góöan aöbúnaö miöaö viö þá Pólverja sem komiö var meö inn. Þaö mætti skrifa langt mál um þann hrotta, þenn- an fúlmennskulega niöingsskap, sem ungir og aldnir voru beittir þarna inni, en slikt þjónar engum tilgangi öörum en ef til vill að kitla einhverjar annarlegar kenndir. Hrotti og fólskulegar piningar er nokkuö sem þvi miöur er ekki eingöngu bundiö viö pólskar lögreglustöðvar, i þvi efni gætum viö litiö okkur nær. Generáll Kiszczak innanrikis- ráðherra sagöi á þingi þann 4. mai aö vestrænir heimsvalda- sinnar heföu staöiö á bak viö upp- þotin daginn áöur. Hann fullyrti aö orsökin væri sú aö hinir vest- rænu heimsvaldasinnar væru komnir I slika úlfakreppu, og átti þá viö Falklandseyjastriöiö, aö þeir reyndu aö draga athygli al- mennings frá hneykslinu meö þvi aö efna til uppþota I Póllandi. Þaö var ekki aðeins Varsjá sem logaöi þann 3. mai i flestum stærstu borgum kom til óeirða, sértaklega þó I stóru Eystrasalts- borgunum. Þar logaöi allt i óeirö- um langt fram eftir vikunni. Litiö er samt vitaö um þróunina þvi strax aö kvöldi þess 3. var siminn tekinn úr sambandi.útgöngubann sett á og öllum vestrænum blaöa- mönnum neitaö um vegabréfs- áritun til Póllands og þeim sem þegar voru I landinu var meinaö aö feröast til þeirra borga, sem róstusamastvari. Samstaða hefur sett fram 4 kröfur sem stjórnvöld veröa aö uppfylla áöur en um nokkra sam- vinnu getur orðiö aö ræöa milli hinna tveggja striöandi afla. 1. Herlögin veröi numin úr gildi. 2) Þeir Samstööufélagar sem haldiö er i fangbúöum veröi látnir lausir. 3) Samstaöa fái starfsfriö og veröi viöurkennd sem lögleg samtök. Allar þessar kröfur voru uppi 1. mai,aftur 3. mai og veröa senni- lega uppi á morgun 13. mai, en þá er búist viö miklu átökum i þvi til- efni aö 5 mánuöir eru siöan herlög voru sett á. Markmið Samstööu er þriþætt, þ.e. 1) menningarlegt, 2) pólitiskt og 3) efnahagslegt. 13. desember haföi fyrsta liönum veriö náö, en þá var fariö aö brenna undir rassi flokksins og reynt að kæfa allar frekari breytingatilraunir. 1 bili hefur þaö tekist en Samstaöa er samt ekki dauð. Samtökin eru aö breyta um form, valdiö er aö dreifast og fólk er aö læra aö vinna neöanjarðar. A meöan hef- ur mestur hluti þeirra 80—90% pólsku þjóöarinnar sem studdi Samstööu tekiö upp þann gamla siö sem aldalöng reynsla hefur kennt Pólverjum aö viröa, — aö fy lgjast meö og biöa. Kaupmannahöfn 12/5 1982 Þorleifur Friöriksson. A Zomkowy-torgi í Varsjá 3. mai. Fyrir miöju er Sigmundarsúlan, sem reist var 1644, og er elsti minnisvaröi borgarinnar. Þúsundir manna höföu safnast saman á Zomkowy-torginu 3. mal. Ljósm.: Þorleifur Friöriksson. Manngrúinn á götum Varsjárborgarar 3. mai. öryggislögreglan býr sig undir aögeröir. Ljósm.: Þorleifur Friöriksson. Fólkiö hrópaöi: Gestapo,Gestapó.Gestapo. Ljósm.: Þorleifur Friöriksson. Eftir aö öryggislögreglan á Zomkowy-torgi hefur látiö til skarar skrlöa. A flótta undan táragasi. Ljósm.: Þorleifur Friöriksson.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.