Þjóðviljinn - 17.08.1982, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 17.08.1982, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 17. ágúst 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 I I i i t I Bæði og. Stuðmenn og þeirra fylgifiskar eru að vinna við sið- ustu upptökur á hugarfóstri sinu, kvikmyndinni ,,Með allt á hreinu”. Þjóðviljamenn snöpuðu hópinn uppi, og út úr þvi komu myndir og samtal, yfir „uppá- heilingi og astraltertum sex”,eða þannig, sjáiði til. Hugmyndin að myndinni Valgeir: Mér skilst að þessi hugmynd hafi fæðst á sýningu á Ofvitanum. Það var einhvers konar kveikja að þvi leikriti sem tendraði neista. Siðan er búið að skipta um kerti og platinur um þriggja ára skeið, þangað til var ákveðið að ganga i þetta með oddi og egg núna um áramótin. Stuð- mannahópurinn hefur verið rauð- ur þráður i þessum áformum, annars má segja að þessi ákvörð- un um að gera myndina hafi verið tekin svona frekar fyrir tilviljun. Handrit Tómas: Þetta eru eiginlega margar hugmyndir sem siöan hafa þróast yfir i eitt handrit. Valgeir: Ágúst lagði fram rúmgóða grind að handriti ein- hvern timann i janúar eða febrú- ar, og siðan var fyllt út i hana. Bóas Daði: Þetta er eins og þessar teikningar sem hægt er að fá i Skiltagerðinni, sjáðu til, með svona númerum fyrir hvern lit. Hjá okkur hefur hver leikari sinn lit, sem hann fyllir inn i myndina og gefur henni þannig dýpt og áferð, sjáðu til. Valgeir: Þetta hefur verið mikið samvinnuverkefni, og allt- af verið pláss til að viðra nýjar hugmyndir, þó svo allt hafi ekki komist á filmu, eða þannig! Kvikmyndafélagið Bjarmaland Valgeir: Það er þessi hópur, Stuðmenn, Agúst og Þursabit og þeirra fjölskyldur sem standa að myndinni. Við hér hugsum eigin- lega ekki um kostnað, það er á öðrum stuð-herðum aö standa i þvi vafstri. Tómas: Það er farin þessi si- gilda leið að veðsetja allt sem menn eiga. Valgeir: Þetta hefur gengið hjá okkur, annars værum við ekki hér með ljósin og myndavélarn- ar. Leikarar Valgeir: Við vitum nú ekki al- veg hversu margir eru með i allt. Þetta er mest á okkar herðum og Grýlnanna, og siðan en ekki sist Eggerts Þorleifssonar. Annað eru minniháttar hlutverk og ég vona að ég halli ekki á neinn, þó ég segi það. Tæknifólk Valgeir: Það er þessi kjarni, sem er 7 til 8 manns, og er eitil- harður. Bóas Daði: Jafnast hiklaust á við stúarana austur á Seyðisfirði. Eftirvinna Valgeir: Klipping er þegar byrjuð, en eftir er að ganga frá hljóði og öllum þessum lausu spottum sem ég kann ekki að nefna. Frumsýning Valgeir: Þaðer stefnt að frum- sýningu annan i jólum. Eins og þetta hefur gengið, sýnist mér að það ætti alveg að hafast og verði ekki einu sinni mjög knappt. Lokaorö Bóas Daði: Jú, sjáðu til. Þetta hefur verið dáldið gaman, voða erfitt og soldið kreisi, sko. Dáldið kreisi, sko. I I I I Agúst Guðmundsson stýrir... með alit á hreinu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.