Þjóðviljinn - 17.08.1982, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 17.08.1982, Blaðsíða 15
Hringið í síma 81333 kl. 9-5 alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum fra lesendum Að leikslokum — eða er leikurinn að hefjast? Nu hefur S.V.R. lagt Ikarus- vögnunum er keyptir voru frá Ungverjalandi. Fólk hefur fylgst með umræöum um vagna þcssa. Margir hafa lofað vagnana en aðrir lastað. Það sem er svo skritið við allt þetta mál, að þaö er eins og Islendingar séu alls ófærir að skoða málin i rólegheitum. Þeir böðlast áfram oft á tiðum og livorki er litið til hægri né vinstri heldur er fullyrt eitt- hvað út i loftið án þess að hugsa frekara um eitt né neitt. Hvernig væri til dæmis að menn stöldruöu við og færu aö skoða þetta lkarusmál niður i kjölinn. Hvernig stendur á þvi til dæmis að Ikarus reyndist vel i Kópavogi en illa i Reykjavik. Það voru keyptir þrir vagnar á hvorn staðinn. Svarið virðist blasa við. Hjá S.V.K. var vögnunum vel tekið i upphafi en i Reykjavik illa. En þetta er ckkertsvar vegna þess að það á ekki að breyta neinu hvort dauðum hlutum er tekið vel eða illa, altso bilar hafa ekki sál. Menn geta velt þvi fyrir sér hvort bræðrabönd hafa eitthvað spilað inni afstöðu manna en það er kunnugt að forstjóri Veltis sem hefur um- boð fyrir Volvo og forstjóri S.V.R. eru bræður. Ef um það er að ræða að afstaða S.V.R. gegn tkarus sé vegna ættar- tengsla verða menn að geta sannað það en það getur veriö erfitt. Vegna þess hve hallað hefur á Ikarus hér i Reykjavik, ætla ég að varpa fram nokkrum spurningum til umboðsmanna Ikarus og biðja um svör: 1. Er það rétt að bilstjórum S.V.R. hafi veriö afhent dreifi- bréf af forstjóra S.V.R. þar sem bilstjórum var gefinn upp boltinn til að hallmæla Ikarus (þeir vissu um óvild for- stjórans og verkstæðisfor- manns). 2. Geta umboðsmenn Ikarus sannað aö bilstjórar hjá S.V.R. hafi verið þvingaöir til aö skrifa undir kröfu vagn- stjóra um sölu vagnanna. Nægilegt er að einn bilstjóri leysi frá skjóðunni. 3. Geta umboðsmenn Ikarus sannað til dæmis að vögn- unum hafi verið tekið illa af verkstæðisformanni eða öðrum hjá S.V.R. viö afhend- ingu. 4. Er það rétt að Ikarus vagnarnir hafi fengið litia eða enga verkstæðisþjónustu hjá S.V.R. 5. Hver þjónustaði Volvó bil- ana er þeir biluðu? 6. Hver borgaði þá geypi- dýru viögerðir er framkvæma þurfti á Volvóvögnunum er þeir reyndust vera með ónýtan girkassa? 7. Ef verkstæðismenn S.V.R. framkvæmdu viðhald og eftirlit á Volvó, hafa þá verið gerðir reikningar fyrir þvi. Hefur það verið rann- sakað? 8. Er það rétt að ungverski bifvélavirkinn sem er hér til eftirlits hafi liðið bágt vegna andúðar verkstæöismanna S.V.R. Svör óskast frá um- boðsmanni Ikarus. Einn gainall niaður sem séi eftir Ikarus af götum borgar innar. Eldur! heitir þessi mynd og hún er eftir þýskan strák sem heitir Maxim- illian og hann er tíu ára gamall. Margir krakkar kannast við það og Barnahornið hafa oft séð rauða brunabíla þjóta um götur með blikkandi Ijósum og sírenu- væli. Brunabilar í Þýskalandi eru sjálfsagt líkir þeim sem eru hér á íslandi og á þessari mynd getið þið séð hvað er gert þegar þeir koma að log- andi húsum. Þriðjudagur 17. ágúst 1982 ÞJÓDVILJINIý — SÍÐA 15 Þrjú á palli: Halldór Kristinsson, Edda Þórarinsdóttir og Tróels Bendtsen. TRÍÓTÓNLIST ,,Létt tónlist” heitir dag- skrárliður sem er á dagskrá alla dag vikunnar nema um helgar, kl. 11.30. Hér er senni- lega um að ræða einhvers konar viöbrögö við öllu nagg- inu um „eitthvað létt og skemmtilegt” og svo kemur þetta sér ágætlega fyrir fólk i vinnunni sem er farið að lengja eftir martartimanum, enda klukkan orðin hálf-tólf. Þá er gott að skella á það léttari tónlist svo þaö sé rólegt fram að hádegi. t dag eru það þrjú trió sem löngu eru dauð, sem sjá um léttu tónlistina. Þaö eru Savanna trió, Rió trió og Þrjú á palli. Þau skemmta okkur i hálftima. ÆM Útvarp WlW kl. 11.30 Bragi Sigurjónsson „Bregður á laufin bleikum lit” Bragi Sigurjónsson fyrrver- andi alþingismaður spjallar I kvöld um öldrun og efri árin. Bragi verður alls með fjóra þætti um þetta efni. ,,Ég ætla að spjalla um öldr- unina og hvernig mér varð við þegar ég hætti föstu starfi og hvernig mér sýnist að öðrum verði viö, við sömu aðstæður. Það er nú aðalefniö i þessum þætti. Ég ætla að minnast lika aöeins á það við- horf sumra að þetta ár aldraðra gangi út i öfgar, tek þaö aðeins fyrir”, sagði Bragi Sigurjónsson. •Útvarp kl. 20.45 Fólkið á sléttunni „Fólkið á sléttunni” heitir þáttur i útvarpinu sem Friörik Guðni Þórleifsson kennari á Hvolsvelli sér um i kvöld. Þátturinn fjallar ekki um bóndafjölskyldu sem býr á sléttunni og er ákaflega til- finninganæmtog grætur mikið heldur um venjulegt fólk á tslandi sem tók upp á þvi fyrir nokkru að bregða sér inn i Þórsmörk. Friðrik Guðni fór með, og i þættinum i kvöld lýsir hann þvi sem fyrir augu hans og eyru bar á leiöinni. Hann ferðast meö venjulegri áætlunarbifreiö upp Fljóts- hliðina, yfir Markarfljótsbrú og inneftir á sléttuna góðu. Útvarp %//[# jkl. 22.35 Og þarna er sjálft húsið á sléttunni, Feröafélagshúsiö i Þórsmörk. Mynd-eik-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.