Þjóðviljinn - 17.08.1982, Side 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 17. ágúst 1982
Lausar stöður
Tvær lausar stöður lögreglumanna i rikis-
lögreglunni á Keflavikurflugvelli eru
lausar til umsóknar.
Auk almennra skilyrða um veitingu lög-
reglustarfs skv. 1. gr. reglugerðar nr. 660
frá 1981, er góð enskukunnátta æskileg.
Laun skv. launakerfi opinberra starfs-
manna.
Umsóknir sendist undirrituðum eigi siðar
en 15. september n.k.
Umsóknaeyðublöð fást hjá yfirlögreglu-
þjóni og hjá lögreglustjórum um land allt.
Lögreglustjórinn á Keflavikurflugvelli
12. ágúst 1982.
Tæknimaður
Leiklistarskóli íslands óskar að ráða i
stöðu tæknimanns við skólann. Þekking og
reynsla á sviði tæknistarfa i leikhúsi er
nauðsynleg. Laun og kjör samkvæmt
kjarasamningi opinberra starfsmanna.
Umsóknir um stöðuna ásamt upp-
lýsingum um menntun og fyrri störf berist
skrifstofu skólans fyrir 1. september n.k.
Allar nánari uppl. veitir skólastjóri.
Leiklistarskóli íslands
Lækjargötu 14. B.
simi 25020
Hjúkrunarfræðingar
óskast að Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri.
Lausar stöður eru á ýmsum legudeildum
og á skurðstofu við svæfingar.
Barnaheimili og skóladagheimili eru á
staðnum og reynt verður að útvega hús-
næði, sé þess óskað.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarfor-
stjóri i sima 96-22100.
Kennara
vantar að Menntaskólanum við Sund til
stundakennslu i efnafræði allt að 20
stundum vikulega.
Upplýsingar i sima 33419 eða 35519.
liektor.
Frystikista
Öska eftir litilli frystikistu i skiptum fyrir
aðra 500 litra. Upplýsingar i sima 81333
milli kl. 9 og 17 og sima 86941 eftir kl. 19.
Fóstra
Fóstra óskast á dagheimilið Völvuborg.
Upplýsingar gefur forstöðumaður i sima
73040
Blikkiðjan
Ásgaröi 7, Garðabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar biikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SIMI 53468
Það var mikið um gestakomur á Byggðasafninu hjá Þórði í Skógum er blaðamann og ijómyndara Þjóðviljans
bar þar að dyrum á dögunum. Margt af gestunum voru útlendingar en Þórður skildi alla og allir skildu Þórð.
Gunnar Ijósmyndari „skaut“ í sífellu og hér hefur hann hæft einn, sem horfir hugfanginn á skipsbjöllurnar.
Kannski er þetta gömul sjóhetja? Mynd: —gel
Ný íslensk frímerki
rvwww'v wvw i m>i w \
»
LJI.A|J|||> > < MmtktMnMkJLAmMjlL.
Póst- og simamálastofnunin
hefur sent frá sér kynningu á
tveim nýjum islenskum frimerkj-
um sem verða gefin út 8. sept-
cmber nk.
Annars vegar er um að ræða
frimerki i tilefni árs aldraðra, en
á Allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna 1978 var ákveðið að
halda heimsráðstefnu um málefni
aldraðra á árinu 1982. Nafni ráð-
stefnunnar var siðan breytt á
Allsherjarþinginu 1980 og ákveð-
ið, að hún skyldi heita heimsráð-
stefna um öldrun til þess að
minna á þau tengsl, sem eru milli
aldraðra einstaklinga og hækk-
andi aldurs jarðarbúa. 1 fram-
haldi af þessari ákvörðun Alls-
herjarþingsins var þeim tilmæl-
um beint til allra aðildarrikja
Sameinuðu þjóðanna, að sérstök
áhersla yrði lögð á málefni aldr-
aðra á árinu 1982, og i hverju
landi yrðu skipaðar fram-
kvæmdanefndir til þess að undir-
búa þátttöku þeirra i heimsráð-
stefnunni. — Islensk stjórnvöld
urðu við þessum tilmælum, enda
hafði Island á sinum tima verið
meðflytjandi tillögunnar um
heimsráðstefnuna.
öldrunarráð Islands var siðan
stofnað 21. okt. 1981 og á Alþingi
þá um haustið var samþykkt
þingsályktun þess efnis, að árið
1982 skyldi á tslandi helgað mál-
efnum aldraðra og er tsland eina
landið, sem þannig hefur opinber-
lega lileinkað þetta ár þessum
málaflokki.
— A frimerki þvi sem Póst- og
simamálastofnunin gefur út i
þessu tilefni er mynd af málverki
eftir lsleif Konráðsson. Málverk-
ið er af fjaliinu Herðubreið,
drottningu öræfanna. Isleifur
Konráðsson fæddist 5. febrúar
1889 að Stað i Steingrimsfirði en
fluttist til Reykjavikur 1935. Hann
starfaði sem sjómaður og verka-
maður, en hóf sem kunnugt er
ekki að leggja stund á málaralist
fyrr en hann var kominn á efri ár.
tsleifur andaðist 9. júni 1972.
Hitt frimerkið er i flokknum
Merkir Islendingar og er til minn-
ingar um Þorbjörgu Sveinsdóttur
ljósmóður. Hún var fædd á Sand-
felli i öræfum árið 1828. Foreldr-
ar hennar voru séra Sveinn Bene-
diktsson, prestur á Sandfelli og
siðar i Þykkvabæjarklausturs-
prestakalli, og kona hans Kristin
Jónsdóttir frá Skrauthólum á
Kjalarnesi.
— Séra Sveinn og Kristin
bjuggu á Mýrum i Álftaveri, þar
ólst Þorbjörg upp og átti heima til
25 ára aldurs. — Veturinn 1855 -
1856 dvaldi Þorbjörg i Kaup-
mannahöfn við ljósmóðurnám,
lauk hún þar prófi með 1. eink-
unn. Að prófi loknu kom Þorbjörg
heim og hóf ljósmóðurstörf i
Reykjavik. Hún var skipuð ljós-
móðir i Reykjavikurumdæmi árið
1864.
Ibúar voru þá um 1500, en voru
orðnir hálft sjöunda þúsund, i
Reykjavik einni, um aldamót. —
Þorbjörg var starfandi ljósmóðir
i Reykjavik i nær hálfa öld, elskuð
og virt af öllum, sem hjálpar
hennar nutu. Hún bar gott skyn á
lækningar og var sýnt um að ann-
ast sjúka. Sorgmæddir áttu visa
huggun þar sem Þorbjörg var,
enda var hún trúuð kona og þrátt
fyrir skörulegt fas og oft á tiðum
hrjúft yfirborð, sló henni kær-
leiksrikt hjarta i barmi.
— Þorbjörg Sveinsdóttir var
stórbrotin kona i sjón og raun. —
Hún lét þjóðmál mjög til sin taka,
og sótti fundi, sem var þá óvenju-
legt um konur á þeim tima. Hún
var gáfuð og mælsk svo af bar,
eldheitur aðdáandi Jóns Sigurðs-
sonar og barðist oft við hlið bróð-
ur sins Benedikts Sveinssonar al-
þingismanns, um ýmis þjóðþrifa-
mál og má þar merkast telja bar-
áttu fyrir stofnun islensks há-
skóla. Varð það kveikjan að þvi,
að Þorbjörg gekkst fyrir stofnun
,,Hins islenska kvenfélags”, árið
1894.
— Auk háskólamálsins skyldi
félagið stuðla að menntun og rétt-
indum kvenna, og bindindismál-
um. Þorbjörg var formaður fé-
lagsins frá 1897 til dauðadags. —
Mun barátta hennar fyrir fram-
förum i landinu, og bættum hag
fátækra og umkomulausra, eiga
sér enga hliðstæðu á þeim tima.
Sagt var um hana látna, ab hún
hefði veriðþaðstórveldi i bænum,
að enginn treysti sér að neita
henni um orðið á fundum, og fólk-
ið trúði henni óhikað fyrir málum
sinum. Þorbjörg andaðist i
Reykjavik 6. janúar 1903.
Verðgildi merkjanna er annars
vegar 800 aurar og hins vegar 900
aurar og hefur Þröstur Magnús-
son teiknað. Frimerkið i tilefni
árs aldraðra er prentað i Sviss en
frimerkið i flokknum Merkir Is-
lendingar er prentað hjá fri-
merkjaþjónustu frönsku póst-
þjónustunnar.
rN Auglýsið í
ly' Þjóð\viljanum