Þjóðviljinn - 18.12.1982, Qupperneq 13
Helgin 18. - 19. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Henrik
Tikkanen
BRENNUVEGUR 8
BRENNU
SÍMI35
Viðarreki, mikil rótarhnyðja, sem
Bolungarvík á Hornströndum
stárleg og fróðleg lesning.
Greinagóð kort auka skilninginn.
Aftast í bókinni er skrá um heim-
ildir í rituðu máli. Þar er greint frá
uppruna gamalla teikninga og
mynda, korta, línurita - og enn-
fremur er þar frekari fróðleikur um
atriði, sem getið er í bókinni. Skrá-
in er rúmlega 6 tvídálka blaðsíður
og verður hún haldgóð þeim, sem
svala vilja forvitni sinni enn frekar
um einstök atriði. - í lokaorðum
gerir höfundur grein fyrir samningu
bókarinnar, rannsóknum sín-
um og samskiptum hennar vegna
við marga fróða menn, sem hann.
þakkar veitt liðsinni. - Hvorki er
þó sagt nokkuð um þrauthugsaða
leiðangra listamannsins um land og
söfn né greint frá því, hvernig hann
mundar galdratólið, ljósmynda-
vélina - hvernig myndameistarinn
heldur á „pensli“ sínum.
Þess skal að lokum getið, að
þessi glæsilega bók er ætluð al-
brimið hefur skolað upp á sandinn í
menningi erlendis jafnt sem íslend-
ingum. Hún kemur því út bæði á
ensku og þýsku, samtímis íslensku
útgáfunni.
Erfitt er að gera upp á milli
mynda í hinni nýju bók Hjálmars.
Hver mynd er áhorfanda ánægju-
legt ferðalag. Sólarupprás á Vatna-
jökli (bls. 318), lambagrasþúfa
(340), súía á flugi (159), eru dæmi
um gullfallegar myndir, þótt ólíkar
séu. Miðnætursólargangur (236,
237) er röð 10 rnynda, sem teknar
voru, af sól og haffleti, á hálftíma
fresti um júnínótt. Sérstæðar
hringmyndir (panorama) eru frá
Heimaey og Ásbyrgi. Þannig mætti
lengi telja.
En „sjón er sögu ríkari"! Nánari
lýsing mín á nýjum tindi í íslensk-
um listbókmenntum yrði harla rýr
miðað við, að menn skoði hann
sjálfir hver fyrir sig - og fræðist um
leið um ísland og íslendinga.
Bersöglismál
Tikkanens
Út er komin á vegum Iðunnar
bókin Brennuvegur 8, Brennu,
sími 35 eftir finnska höfundinn
Henrik Tikkanen. Ólafur Jónsson
þýddi. Bók þessi er fyrsti hluti
sjálfsævisögu höfundar sem er sæn-
skumælandi Finni. Segir hann hér
frá bernsku sinni og unglingsárum
á eynni Brennu úti fyrir Helsing-
fors. „Hann er sprottinn af fjöl-
skyldu betri borgara og lýsir hér lífi
hennar eins og það var undir fág-
uðu yfirborði," segir í kynningu
forlags á kápubaki. „Frásögnin
einkennist af sérkennilegri blöndu
andúðar og hlýju, kerskni, jafnvel
miskunnarleysi, en umfram allt
ríkri skopgáfu. Framar öllu er
bókin þroskasaga unglings sem
hlýtur sína manndómsvígslu í
vetrarstríðinu 1939-40.“ - Henrik
Tikkanen er fæddur árið 1924 og er
kunnur rithöfundur og myndlist-
armaður.
Ljósmynda-
bók frá
Iðunni
Iðunn hefur gefið út bókina
Taktu betri myndir eftir breska
höfundinn Michael Langford. Hún
hefur undirtitilinn: Allt um ljós-
myndun fyrir byrjendur og reynda
ljósmyndara. Bók þessi leiðbeinir
ljósmyndaranum stig af stigi svo
hann geti þreifað sig áfram og náð
æ betri árangri. Hér er fjallað um
alla þætti ljósmyndunartækni,
bæði litmyndir og svart-hvítar.
Kaflaheiti eru meðal annars:
Frumlögmál ljósmyndunar, Mynda-
vélatækni, Myndbygging, Svart-
hvít framköllun og prentun. Fleiri
tæki og meiri tækni, Þróuð myrkra-
herbergistækni, Litljósmyndun,
Litframköllun og prentun, Að
þroska eigið markmið. - Einar Er-
lendsson þýddi bókina á íslensku.
ÞÆR ERU SPENNANDI í ÁR,
SKEMMTISÖCURNAR FRÁ SKUCGSJÁ!
Barbara Cartland
Ástin blómstrar á öllum
aldursskeiðum
Eftir lát konu sinnar segir Malcolm Worthing-
ton skilið við starf sitt í utanríkisþjónustunni og
fer til Miðjarðarhafsins í þeim tilgangi að gleyma
fortíðinni og hefja nýtt líf. Þar verða tvær konur
á vegi hans og þær eru ólíkar eins og dagurinn
og nóttin. Elísabet er fínleg, lífsglöð og óeigin-
gjörn og kennir honum að elska á ný. Marcia er
há og grönn, fögur og fönguleg, en Malcolm
metur hana einskis. En þegar Marcia er að því
komin að hverfa að fullu úr lífi hans, ske óvæntir
atburðir, sem Malcolm hafði ekki séð fyrir...
£T~' ~—i. Theresa Charles
viö systurnar
Althea er fögur, alvörugefin og mjög gáfuð og
stjórnar yngri systur sinni, full afbrýðisemi og
öfundar. Rósamunda er iífsglöð og skemmtíleg,
aðlaðandi og kærulaus, en full af mannlegri
hlýju. Adrían er aðstoðarprestur föður þeirra og
þær eru báðar ástfangnar af honum. Hann kvæn-
ist Altheu. Cecil er frændi Adríans, glæsilegur
og sjálfsöruggur. Hann kvænist Rósamundu.
Þessar systur voru mjög ólíkar, en áttu þó svo
margt sameiginlegt i fari sínu, að mennirnir, sem
urðu á vegi þeirra hrifust af þeim báðum.
Sigge Stark
Skógarvörðurinn
Anna frá Hiíð var sautján ára og mjög þögul
og fáskiptin. Hún tjáði engum hug sinn, heldur
hélt sig út af fyrir sig, rölti ein um skóginn með
hundinum sínum, sem í raun var hennar eini
félagi. En einn indælan sumardag, þegar sólin
hellti geislum sínum yfir skóginn, fjöllin og mýr-
arnar, hitti hún skógarvörðinn nýja. Þessi sumar-
dagur festist henní í minni sem einn mesti
hamingjudagurinn í lífi hennar, enda þótt hann
bæri í senn með sér sorg, biturleika og tár...
SIGGE STARK
SKÓGAR-
VÖRÐURINN
ELSE-MARIE IUOHR
HVCR ER ÉG?
Else-Marie Nohr
Hver er ég?
Eva Birk er að undirbúa brúðkaup siii og
Henriks Borg, þegar hún fær þær óvæntu upp-
lýsingar, að af vígslunni geti ekki orðið, þar sem
hún sé þegar gift öðrum manni. Eva verður að
sjálfsögðu skelfingu lostin. Hún hafði orðið fyrir
bifreiðarslysi og þjáðst af minnisieysi um tíma,
en þegar hún tekur að kanna málið, kemst hún
að því að hún er þegar gift, og það manni sem
henni er ákaflega ógeðfelldur, — og að með
þessum manni á hún þriggja ára gamla dóttur...
Erik Nerlöe
Hvítklædda brúðurin
Karlotta var á leið til kirkjunnar þar sem Jesper
og veizlugestirnir biðu hennar. Hún var klædd í
brúðarkjólinn hvíta, með fagran brúðarvönd í
fanginu og fyrir brúðarvagninn voru spenntir
tveir fagrir gæðingar. En hún komst aldrei alla
leið til kirkjunnar, — og enginn vissi um mennina
tvo, sem í brúðarvagninum sátu og óku á brott
með Karlottu, tvo íllskeytta menn, sem til alls
voru vísir. Og þar með fékk Benedikta Liljen-
krona möguleika til að vinna ástir Jespers á ný...
,Erik Nerlöe
HVITKIÆDDA
BRÚÐURIN
vj
tQ.á
Francis Durbridge
Með kveðju frá Gregory
Fáir útvarpsþættir hafa vakið jafnmikla
spennu meðal íslenzkra útvarpshlustenda sem
Gregory-þættirnir sællar minningar. Með kveðju
frá Gregory er sagan sem þessir æsilegu þættir
voru byggðir á, — og sagan er ekki siður
spennandi. Hver var hann þessi leyndardómsfulii
glæpamaður, sem skildi eftir orðsendinguna
„Með kveðju frá Gregory,“ ritaða með rauðu
bleki, sem minnti óhugnanlega á blóð, og festi
á fórnarlömb sín? — Það kostar vökunótt að
byrja lestur þessarar bókar.