Þjóðviljinn - 04.03.1983, Blaðsíða 1
DWDVnUNN
Árni Bergmann
skrifar um Fröken
Júiíu
Gránufjelagsins og
Galdra-Loft
Menntaskólans við
Sund.
Sjá 14
4mars 1983
föstudagur
31. tölublað
48. árgangur
Tillaga þríflokkanna um að taka álmálið úr höndum iðnaðarráðherra
„Þetta er stórhneyksli”
Öfl í Framsóknarflokknum vilja rjúfa
stjómarsamstarfið, segir Svavar Gestsson
„Ég tel þessa tillögu þríflokkanna stórhneyksli“,
sagði Svavar Gestsson, er Þjv. spurði hann um þá
tillögu Sjálfstæðismanna, Framsóknarmanna og Ál-
þýðuflokks í atvinnumálanefnd Alþingis, að taka ál-
málið úr höndum iðnaðarráðherra.
„Hún bendir til þess að í Framsóknarflokknum séu
öfl, sem vilja rjúfa stjórnarsamstarfið. Hún er einnig
hneyksli vegna þess að tillagan sýnir viðhorf gagnvart
hinum erlenda auðhring, sem ég hélt að væri í mesta
lagi til í skúmaskotum álfélagsins og Verslunarráðs
fslands.
í tillögunni er beinlínis gert ráð fyrir því að Alþingi
íslendinga álykti að Alusuisse fái stækkun álversins í
eins konar forgjöf í hugsanlegum samninga-
viðræðum.
Okkar afstaða í Alþýðubandalaginu hefur legið
fyrir lengi. Við höfum talið að íslendingar ættu ekkert
eftir annað en einhliða aðgerð og þess vegna höfum
við flutt frumvarp á Alþingi um hækkun raforkuverðs
til álversins.
Það er hinsvegar ljóst að meirihluti Alþingis vill
kanna málið aðeins betur og við erum tilbúnir til þess,
enda verði staðið að málinu með eðlilegum hætti
undir forystu Hjörleifs Guttormssonar, iðnaðarráð-
herra.
Tillaga okkar ráðherranna þriggja í ríkisstjórn í
morgun laut einmitt að þessu atriði, að farið yrði í
viðræður undir forystu iðnaðarráðherra, enda snúist
þær um tafarlausa hækkun raforkuverðs.
Við höfum viljað stíga skref til samkomulags í með-
ferð þessa máls, en Framsókn hefur nú hafnað því
sáttaboði.
Viðleitni stjórnarandstöðunnar og nokkurra Fram-
sóknarmanna hefur einkennst af því undanfarið, að
taka málið úr höndum iðnaðarráðherra. Með tillögu
okkar ráðherranna er þessum kröfum í raun hafnað
og gert ráð fyrir því að Hjörleifur fari áfram með
málið.
Þess vegna leyfi ég mér að láta þá von í ljós að
tillaga þríflokkanna í þinginu í dag verði aldrei annað
en tillaga og þeim til verðugs sóma sem að henni
standa.”
Þjv.: En hver verða áhrifin á stjórnarsamstarfið?
„Við skulum ekki hrapa að ályktunum um bað fyrr
en séð er hvað verður um þessa tillögu", sagðiSv'avar
Gestsson. - en8
Framsókn er gengin
í varnarlið Alusuisse
Þingflokkurinn felldi tillögu sem formaður Framsóknar-
flokksins stóð að
Sameiginleg tillaga ráðherranna
Steingríms Hermannssonar, Svav-
ars Gestssonar og Gunnars Thor-
oddsen um viðræður við Alusuisse
var felld af þingflokki Framsóknar-
flokksins í gær, en samþykkt af
þingflokki Alþýðubandalagsins.
Þessi sameiginlega tillaga var
sáttatilraun vegna þeirrar hættu
fyrir stjórnarsamstarfið, sem skap-
aðist er fulltrúi Framsóknarflokks-
ins í atvinnumálanefnd þingsins
gekk inn á tillögu Sjálfstæðis-
flokksins um að taka álmálið úr
höndum iðnaðarráðherra.
í tillögunni, sem einnig nýtur
stuðnings Alþýðuflokksins, er gert
ráð fyrir að þingflokkarnir tilnefni
nefnd til viðræðna við Alusuisse,
að fallist verði á stækkun álversins
og að leiðrétting sú á sköttum, sem
nýverið var gerð, skuli endur-
kölluð.
í hinni sameiginlegu ráðherratil-
lögu er gert ráð fyrir viðræðum við
Alusuisse, með áherslu á tafar-
lausa hækkun raforkuverðs.i
Nefndin verði 5 manna, 3 frá
stjórnarflokkunum, 2 frá stjórnar-
andstöðu. Iðnaðarráðherra skipi
nefndina og tilnefni formann.
Veðurfarið hefur verið rysjótt og umhleypingasamt. Snörp él hafa
gengið yflr öðru hverju og gera mönnum lífíð leitt eins og sjá má á
þessari mynd eik.
Nú þurfa börn að
borga 10 kr. í hvert
sinn sem þau fara
inn á gæsluleikvelli
borgarinnar. Við
litum inn á
gæsluvöllinn við
Iðufell í Breiðholti.
AUJSUISSK
Ú707
/ ■ v-
jf; *><
Það væri háðung
við íslenskt fullveldi
ef íslcnsk stjórnvöld
yrðu til þcss að vísa
deilumálum við
ÍSAL fy rir erlcndan
gerðardóm.
Greinargerð „samningamannanna” frá 1975
staðfestir niðurstöðu iðnaðarráðherra:
Rafmagnshækkun öll
greidd úr ríkissjóði
Engar skýringar á mörgum atriðum, og enn þögn um endurskoðun
reikninga ÍSAL 1974
Greinargerð Jóhannesar Nordal og Steingríms Her-
mannssonar, sem send var fjölmiðium í gær, staðfestir
upplýsingar Hjörleifs Guttormssonar iðnaðarráðherra
að endurskoðun samninganna við Alusuisse 1975 hafi
reynst hrikaleg mistök, sem fært hafi Alusuisse meira í
hlut auðhringsins á heildina litið en fékkst til baka með
nokkurri hækkun raforkuverðs.
í sex blaðsíðna greinargerð er
engu hnekkt af því sem Hjörleifur
hafði greint frá og hér er því um
endanlega staðfestingu á máli hans
að ræða, ef einhverjir hafa velkst í
vafa.
„Um þessa tölulegu niðurstöðu
er í sjálfu sér ekki ágreiningur”,
segir í greinargerðinni, og það
liggur því ótvírætt fyrir að raforku-
verðshækkunin frá ÍSAL var sótt
beint í ríkissjóð með eftirgjöf í
sköttum.
Helsta „málsvörn” þeirra Stein-
gríms og Jóhannesar er sú, að taka
ekki leiðréttingu íslenskra stjórn-
valda á skattgreiðslum ÍSAL, sem
byggð er á endurskoðun Coopers
og Lybrand fyrir tímabilið 1976-80,
með inn í dæmið. .Hins vegar forð-
ast þeir með öllu að minnast á önn-
ur atriði, sem miklu skipta, Alu-
suisse í hag. Þar á meðal að gefinn
var eftir eignarréttur á skattinni-
stæðu, að Alusuisse hefur hagnast
stórlega af vaxtamun á þessari inni-
stæðu, að ÍSAL var veitt heimild til
að leggja allt að 20% af hagnaði í
skattfrjálsan varasjóð, og síðast en
ekki síst er áfram hrópandi þögn
urri það athæfi að stinga undir stól
niðurstöðum af endurskoðun á árs-
reikningum ÍSAL 1974, sem leiddi
í ljós dulinn hagnað upp á rúmar
þrjár miljónir dollara.
Sérstaka athygli vekur yfirklór
varðandi verðlagningu á raforku til
Íieirrar 20 megawatta stækkunar á
SAL sem um var samið og komst í
gagnið á árinu 1980. Stjórnarfor-
maður Landsvirkjunar virðist í því
sambandi hafa gíeymt mikilvægri
ákvörðun sem fyrirtækið tók, eins
og nánar er skýrt annars staðar í
blaðinu. Greinargerðin er síst til
þess að bæta hlut höfunda og sýnir
vel að ítrekaðar viðvaranir iðnað-
arráðherra um nauðsyn þess að
koma í veg fyrir að samningavið-
ræður við Alusuisse féllu í sama
farveg og 1975 voru meira en tíma-
bærar. -ekh