Þjóðviljinn - 04.03.1983, Page 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
íslenskt fullveldi í veði
Framhald af 5 siöu.
heildsöluvísitölu í Bandaríkjunum.
Sé hins vegar miðað við bygging-
arvísitölu á íslandi er raforku-
verðið nú um það bil helmingur
upphaflegs raungildis - þ.e. hefur
lækkað um helming. Frá árunum
1969-1981 lækkaði raforkuverðið
sem hlutfall af heimsmarkaðsverði
á áli úr 8,0% í 5,9%. Hvernig sem
litið er á málið þá hafa forsendur
hins upphaflega samnings brugð-
ist, og eru breytingarnar allar ís-
landi í óhag og Alusuisse í hag.
Þegar Alusuisse talar um „jöfn
býti” við hugsanlega endurskoðun
samninga er átt við að þessa þróun
eigi að samningsbinda á nýjan leik
með hugsanlegum millifærslum
eins og gert var 1975.
30 ára samnings-
bundin ánauð
Aðalsamningurinn við ÍSAL var
gerður til 45 ára. Enn eru því eftir
30 ár af samningstímabilinu. Engar
lögfræðilegar forsendur geta
skyldað íslendinga til þess að bera
afleiðingar þeirrar þróunar sem átt
hefur sér stað á sviði efnahags og
orkusölu með því að greiða niður
raforku til Alusuisse í sívaxandi
mæli. Þvert á móti er það siðferði-
leg skylda stjórnvalda sem á sér
lagalega stoð í ályktunum Sam-
einuðu þjóðanna um efnahags-
legan rétt og skyldur ríkja, að þau
sjái til þess að náttúruauðlindum
þjóðarinnar sé ekki sóað, heldur
séu þær nýttar með hagsmuni
þjóðarheildarinnar fyrir augum.
Verði raforkuverðið til ÍSAL á-
kvarðað einhliða með löggjöf eins
og lagafrumvarp Hjörleifs Gutt-
ormssonar og fleiri gerir ráð fyrir,
þá er það réttur Alusuisse að láta
reyna á það fyrir dómstólum hvort
um eignaupptöku sé að ræða og
hvort hækkunin varði bótaskyldu
Alusuisse vill
ekki sœkja
fyrir gerðardómi
Að mati sérfróðra manna er talið
ólíklegt að Alusuisse sjái sér hag í
slíkri málsmeðferð, enda afar
sjaldgæft að til slíks hafi komið á
síðari tímum. Þvert á móti bendir
margt til að Alusuisse vilji fyrir alla
muni komast hjá því að verða
sóknaraðili gegn íslenskum stjórn-
völdum fyrir gerðardómi. Þannig
hefur endursköttun sú sem fjár-
málaráðuneytið framkvæmdi á ár-
inu 1981 ekki enn verið lögð fyrir
gerðardóm.
Sú endursköttun var byggð á
bókhaldsendurskoðun Coopers &
Lybrand, sem talin er varfærnis-
lega unnin enda hafa þeir sagst
reiðubúnir að standa við hana fyrir
hvaða dómstól sem er. Stjórnend-
um Alusuisse er ugglaust manna
best ljóst að forsendur Coopers &
Lybrand eru byggðar á traustum
grunni, auk þess sem þeir vita að
við slík réttarhöld yrðu þeir
nauðbeygðir til að opna bókhald
sitt betur en þeir hafa gert hingað
til, og gæti þá ýmislegt gruggugt og
óþægilegt komið í ljós.
Háðung við full-
veldi Islands
Það væri hins vegar háðung við
íslenskt fullveldi ef íslensk stjórn-
völd tækju upp á því að leggja fyrir
alþjóðlegan gerðardóm það endur-
mat á sköttum ÍSAL, sem þegar
hefur farið fram í samræmi við
aðalsamning og íslensk lög.
Skattayfirvöld hafa hingað til
ekki talið það skyldu sína að óska
eftir viðurkenningu dómstóla á
fjárhæðum skatta, sem lagðir eru á
þegnana.
Það hefur verið réttur þegnanna
að skjóta málum til dómstóla, ef
þeir hafa talið sig vera hlunnfarna í
skattalegu tilliti. Hvers vegna
skyldi annað eiga að gilda um Alu-
suisse?
Það er til marks um þá hættulegu
stefnu, sem mál þetta hefur nú
tekið, að síðustu fregnir herma að
þingflokkur Framsóknarflokks,
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks
hafi nú komið sér saman um að
ganga að kröfum Alusuisse um
stækkun álversins. f tillögu til
þingsályktunar sem fulltrúar þess-
ara flokka hafa nú til meðferðar og
knýja á í gegnum þingið segir að:
„Til að stuðla að því að viðrœðurgeti
hafist án tafar verði fallist á að setja
deilumál um verð á súráli og raf-
skautum og skatta í gerðardóm sem
aðilar koma sér saman um.”
íslenskur mál-
staður véfengdur
Þetta felur það í sér, að til þess
að fá Alusuisse til viðræðna séu ís-
lensk stjórnvöld reiðubúin að
draga í efa allt sem áður hefur verið
gert í þessu máli, þar með talda
bókhaldsendurskoðun Coopers &
Lybrand, sem er forsenda þeirrar
endursköttunar sem þegar hefur
farið fram en fulltrúar þessara
flokka ætla nú að skjóta fyrir al-
þjóðlegan gerðardóm.
Tillaga þessi miðast jafnframt að
því að ríkisstjórn skipi 6 manna
viðræðunefnd með fulltrúum þing-
flokka, og fulltrúa forsætisráð-
herra og Landsvirkjunar.
Þar með er málið tekið úr hönd-
um hins lögmæta stjórnvalds sem
er iðnaðarráðuneytið auk þess sem
skattaálagningu fjármálaráðuneyt-
isins er af íslenskum aðilum skotið
til alþjóðlegs 'gerðardóms. Er
vandséð að áður hafi verið gerð
jafn gróf aðför að íslensku fullveldi
af íslenskum aðilum í mikilvægu
hagsmunamáli. Spyrja má þeirrar
spurningar, hvernig hinn íslenski
aðili ælti að verja sinn málstað fyrir
alþjóðlegum gerðardómi ef hann
hefur sjálfur dregið forsendurnar í
efa með því að leggja málið fyrir
slíkan dómstól.
Ef mál þetta verður afgreitt með
þeim hætti sem nú horfir mun það
ekki einungis þýða sundrungu rík-
isstjórnar. Það mun verða íslensku
fullveldi til háðungar innanlands
sem á alþjóðavettvangi um ó-
komna framtíð.
»>
„Það er markmið Bandalagsins að
koma á valddreifðu lýðræði á öllum
sviðum þjóðlífsins og ráðastgegn þeirri
spillingu sem allt ofvíðafœr að blóm-
stra“.
Til varnar
lýðræðislegri
stjórnskipan
2. gr.
Aiþingi og forseti Islands fara saraan með löggjnfarvaldiC.
Forseti og önnur stjórnarvöld sarakvæmt stjórnarskrá þcssari
og öörum landslögura fara meC framkvæmdarvaldið. Dóra-
cndur fara nieð dórasvaldið.
13. gr.
Forsetinn lætur ráðhcrra framkvæma vald »itt.
Ráðuneytið hefur aðsctur í Reykjavik.
14. gr.
Ráðhcrrar bcra ábyrgð á stjórnarframkvæmdum öllum. Ráð-
herraábyrgð cr ákvcðin með lögum. Alþingi gctur kært ráð-
hcrra fyrir embættisrckstur þeirra. Landsdómur dæmir þau
mál.
15. gr.
Forseti skipar ráðhcrra og veitir þeim lausn. Hann ákveður
tölu þcirra og skiptir störfum með þeim.
lö. gr.
Forscti lýðvcldisins og ráðherrar skipa rikisráð, og hefur
forseti þar forsæti.
Lög og mikilvægar stjórnarráðstafanir skal bcra upp fyrir
forseta i ríkisráði.
17. gr.
Ráðherrafundi skai halda um nýmæli i lögum og um mikil-
væg stjórnarmálefni. Svo skal og ráðherrafund lialda, cf ein-
hver ráðherra óskar að bcra þar upp mál. Fundunum stjórnar
sá ráðherra, er forseti lýðvcldisins hcfur kvatt til íorsætis,
og ncfnist hann forsætisráðherra.
Umræða um stjórnskipan
landsins hefur sennilega sjaldan
verið líflegri en um þessar mund-
ir. Orsakir þessa aukna áhuga má
óefað rekja til efnahagslegrar ó-
stjórnar í landinu, sem greinilega
er afleiðing kerfislægrar spilling-
ar hjá æðstu stjórnvöldum.
Bandalag jafnaðarmanna er
éina stjórnmálahreyfing landsins
sem komið hefur fram með til-
lögur sem líklegar eru til að forða
þjóðinni frá efnahagslegum ragn-
arökum. Stjórnmálaflokkarnir
fjórir hafa hinsvegar sameinast
um stjórnarskrártillögur sem
festa núverandi ófremdarástand í
sessi. Fjórflokkarnir stilla alræði
Alþingis upp sem valkosti gegn
valddreifðu lýðræði. Almenning-
ur á þess kost að ráða úrslitum
þessa máls. Við verðum hvert á
sinn hátt að líta upp frá dagsins
önn og fylkja liði til varnar
lýðræðislegri stjórnskipan
landsins.
Stjórnkerfi
landsins.
fslenska lýðveldið er hluti af
vestrænni lýðræðisheild, sem við
berum allflest hlýhug til og fyrir
mörgum er beinlínis forsenda til-
verunnar. Lýðræðið verður því
að skoða sem dýrmætan arf sem
okkur ber skylda til að varðveita
og glæða auknu inntaki.
í hnotskurn snýst málið um það
að fólk ráði sjálft eigin örlögum.
Valdið má ekki lenda í höndum
fámenns hóps manna, heldur
verður að setja traustar skorður
við valdasöfnun hverskonar, þá
ekki hvað síst við æðstu stjórn
landsins. Hér er komið að
eilífðarvanda lýðræðisins, hvern-
ig tryggja eigi fullnægjandi vald-
dreifingu í stjórnkerfinu.
Sú leið sem víðast hefur verið
farin er að þrískipta opinberri
stjórnsýslu í löggjafarvald, fram-
kvæmdavald og dómsvald.
Ákvæði um þessa skiptingu eru
allajafna sett í stjórnarskrár
þjóða og af fremsta megni reynt
að tryggja að ekki verði orðin
tóm.
Sú óværa hrjáir okkur fslend-
inga að þrískipting ríkisvaldsins
er ekki höfð í heiðri, þrátt fyrir
skýr stjórnarskrárákvæði um að
svo skuli vera. Samkvæmt stjórn-
arskránni fer forseti landsins með
framkvæmdavaldið, en velur sér
ráðherra fleiri eða færri til að
framkvæma það. f tímans rás hef-
ur þetta vald verið dregið úr
höndum forsetans af Alþingis-
mönnum, útsendurum stjórn-
málaflokkanna. Því búum við nú
við stjórnarfar sem að mörgu
leyti er ekki bara ólýðræðislegt
heldur hefur einnig mörg ein-
kenni alræðis. í framkvæmd, hef-
ur þingmönnum tekist að njörva
svo saman löggjafarvaldið og
framkvæmdavaldið að þessir
stjómarfarsþættir verða trauðla
sundurgreindir. Með gildum rök-
um má fullyrða að við búum við
alræði Alþingis.
Hemaðaráætlun „Samtrygg-
ingarráðs Lýðræðisfiokkanna”
gerir ráð fyrir að núverandi
ástand verði innsiglað með ný-
birtum tillögum Stjórnarskrár-
nefndarinnar. Ekki er mælirinn
þar með fylltur heldur gera tillög-
umar ráð fyrir að vaídsvið Al-
þingis verði einnig teygt til dóm-
stólanna. Hér birtist framtíðar-
sýn sem stórhættuleg er stjórnar-
fari landsins.
Bandalag jafnaðarmanna hef-
ur í frammi andóf gegn þessum
fyrirætlunum fjórflokkanna og
gerir tillögu um nýtt stjórnar-
form, án þess að grundvallar-
hugsun stjórnarskrárinnar sé
breytt.
Tillögur
Bandalagsins
Bandalag jafnaðarmanna gerir
þá kröfu, fyrir hönd þjóðarinnar,
að reglan um þrískiptingu valds-
ins verði höfð í heiðri. Til að
komast hjá að hrófla við stöðu
núverandi forseta er lagt til að
forsætisráðherra verði kosinn
beinni kosningu af þjóðinni.
Hann og ríkisstjórn hans fari með
framkvæmdavaldið til fjögurra
ára hverju sinni, en fjárveitinga-
vald, löggjafarvald og eftirlit með
framkvæmd laga verði í höndum
Alþingis. Þetta er einfaldasta
leiðin til að vernda markmið
stjómarskrárinnar um valddreif-
ingu við æðstu stjórn landsins.
Mikilvægur hluti af tillögum
Bandalagsins er að kosning for-
sætisráðherra verður í tveimur
umferðum, ef enginn fram-
bjóðenda hlýtur hreinan meiri-
hluta í fyrstu umferð. Með þessu
móti er t.d. tryggt að fram-
bjóðandi stærsta stjórnmála-
flokksins hefur ekki óyfirstígan-
legt forskot á aðra frambjóðend-
ur. Jafnframt er sú lýðræðisregla
uppfyllt að sá sem kosningu
hlýtur hefur meirihluta kjósenda
að baki.
Ekki er síður mikilvægt að
kjósendur munu vita fyrir kosn-
ingu hverskonar ríkisstjórn þeir
eru að kjósa. Breytingin er
augljós ef menn leiða hugann að
því hvort þeir hafi talið sig vera
að kjósa Gunnar Thoroddsen
sem forsætisráðherra í síðustu
Alþingiskosningum.
Þrátt fyrir þau rök sem þegar
hafa verið tilgreind, kann ein-
Loftur Al.
Þorsteins
son
skrifar
hverjum að virðast sem hér sé
einungis um formsatriði að tefla,
engu skipti hvort framkvæmda-
valdið sé kosið af þjóðinni eða
það sé notað sem skiptimynt í
viðskiptum þingmanna; svo er þó
hreint ekki. í skjóli þessa stjórn-
arfars, sem fjórflokkarnir hafa
komið á, hefur dafnað hin versta
spilling sem öllum heiðarlegum
mönnum hrýs hugur við. Þannig
er starf þingmanna ekki lengur
bundið við að setja þjóðféíaginu
almennar leikregíur, heldur eru
þeir einnig á kafi í sjóðakerfi
ríkisins. Að eiga þingmann í
Framkvæmdastofnun er ekkert
minna en stóri vinningurinn í fyr-
irgreiðsluhappdrættinu.
Sukkið birtist í margvíslegum
öðrum myndum. Þannig veldur
alræði Alþingis því að ríkisstjórn-
ir verða að sitja og standa eins og
þingheimi sýnist. Hafi ríkis-
stjórnin nauman meirihluta á
Alþingi er hún ofurseld kenjum
einstakra þingmanna, sem til
stuðningsmanna teljast þá stund-
ina. Fjölmargar ríkisstjórnir hafa
fallið fyrir aldur fram vegna
brotthlaups stuðningsmanna sem
hafa gengið of langt í heimtu-
frekju. Hnefaréttur Alþingis
ræður hér úrslitum, en vilji lands-
manna er hlægilegt hugtak sem
þingmenn nota einungis í hefð-
bundnum trúðadansi fyrir Al-
þingiskosningar.
Niðurlag
Þrískipting æðstu landsstjórn-
arinnar er frumforsenda vald-
dreifðs lýðræðis. Valdaþættir
verða að skáka hver öðrum og
þjóðin að hafa eftirlit með taflinu
og ráða innbyrðis styrkleika. Sé
þessum valdaþáttum ekki haldið
skýrt aðgreindum getum við ver-
ið örugg með að uppskera spill-
ingu og það er einmitt ástandið
sem við búum við um þessar
mundir.
Stjórnmálaflokkarnir fjórir
hafa byggt upp samtryggt valda-
kerfi í blóra við stjórnarskrá
þjóðarinnar og búast nú til að
innsigla feng sinn til langrar fram-
tíðar. Það er ekki nóg með að
þeir ætli að leggja framkvæmda-
valdið endanlega undir Alþingi
heldur hafa þeir uppi vissa til-
burði til að sölsa einnig undir sig
dómsvaldið.
Bandalag jafnaðarmanna hef-
ur tekið upp baráttu gegn þessum
áformum fjórflokkanna. Það er
markmið Bandalagsins að koma
á valddreifðu lýðræði á öllum
sviðum þjóðlífsins og ráðast gegn
þeirri spillingu sem allt of víða
fær að blómstra. Skoðanakann-
anir um afstöðu kjósenda sýna að
Bandalagið nýtur öflugs
stuðnings á meðal almennings og
það gefur góðar vonir um bjartari
tíma.
Kópavogi 27. febrúar 1983