Þjóðviljinn - 04.03.1983, Page 9
Föstudagur 4. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
búsýslan
Bandalag kvenna um
neytendamál
víkur. Greiða skal fjögurra mán-
aða fullt fæðingarorlof ef móðirin
hefur verið veik meira en mánuði
fyrir fæðingu barnsins, ef barnið
er veikt þannig að það krefst nán-
ari umönnunar foreldris og ef um
fleirburafæðingu er að ræða.
Sérreglur um
1-2ja mánaða
greiðslur
Ef barn fæðist andvana er fæð-
ingarorlofið 2 mánuðir. Ef konan
lætur fóstri á þann hátt að jafna
megi við fæðingu er orlofið einnig
2 mánuðir.
Ef móðir lætur frá sér barn, svo
sem til ættleiðingar eða fósturs,
skal greiða fæðingarorlof í minnst
einn mánuð.
Kjörforeldri og fósturforeldri
eiga rétt á 2ja mánaða fæðingar-
orlofsgreiðslum vegna töku barns
undir 5 ára aldri. Sé um fleira en'
eitt barn að ræða í sömu fóstur-
ráðstöfun eða ættleiðingu, greið-
ist fæðingarorlof í 3 mánuði.
Réttur feðra
klipinn af
rétti mæðra
í lögunum er kveðið á um, að
faðir eigi rétt á að taka síðasta
mánuð fæðingarorlofsins, þ.e.
þriðja mánuð þess, ef móðir sam-
þykkir, og fellur þá greiðsla til
móður niður. Upphæð fæðingar-
orlofs til föður miðast við vinnu-
stundafjölda hans síðustu 12
mánuði áður en fæðingarorlof
hans hefst, eins og hjá móður.
Það hefur komið fram hjá
Tryggingastofnun ríkisins, að fáir
karlmenn noti þennan rétt sinn.
Ástæðan sýnist mér augljós: fæð-
ingarorlofið er ekki það langt, að
það sé til skiptanna. 3 mánuðir
eru lágmarkshvíld fyrir konur
eftir barnsburð - ef hvíld skyldi
kalla að annast ungabarn. Þetta
ákvæði er því miður ekki tekið til
endurskoðunar í frumvarpi Alex-
anders Stefánssonar, en væri full
þörf á því. Karlar ættu að taka
upp sína réttindabaráttu í.þessum
efnum, eins og konur hafa gert,
en þá baráttu þarf að heyja á
annan hátt en þann að ganga á
nauman rétt kvenna.
-ast.
Neytandinn
er besta
verðlags-
eftirlitið
„Aðalfundurinn skorar á alla neytendur að vera vel á verði um vörugæði og verðlag,” segir í samþykkt frá
neytendamálanefnd Bandalags kvenna, en það hélt aðalfund sinn um síðustu helgi. (Ljósm. -eik-)
BANDALAG KVENNA í
Reykjavík hélt aðalfund sinn dag-
ana 26. og 27. febrúar síðastliðinn.
Meðal þess sem fundurinn tók
fyrir, voru tillögur til ályktunar frá
nefndum bandalagsins. Þar á með-
al voru nokkrar frá neytendamála-
nefnd og þykir mér við hæfi að
birta þær hér.
1. „Aðalfundur Bandalags
kvenna í Reykjavík skorar á ríkis-
stjórn að fella niður hátolla af
lækningatækjum til sjúkrahúsa og
annarra heilsugæslustöðva, sem
þurfa á tækjum að halda, svo hægt
sé að veita þá bestu þjónustu við
almenning, sem völ er á.
2. Fundurinn þakkar
Verðlagsráði það framtak, sem
það hefur gert í sambandi við
verðkannanir, sem framkvæmdar
hafa verið að undanförnu á neyslu-
vörum. Hvetjum við Verðlagsráð
til að áfram verði haldið svo hinn
almenni neytandi fái sem bestar
upplýsingar um verð og vörugæði á
hverjum tíma.
3. Fundurinnlýsiránægjusinni
yfir að hljóðvarp skuli hafa tekið
upp að nýju þátt um neytendamál.
Skorum við á sjónvarp að það taki
einnig upp fræðslu um þessi mál
þágu neytenda.
4. Aðalfundurinn skorar á alla
neytendur að vera vel á verði um
vörugæði og verðlag, því neytand-
inn getur verið og er besta
verðlagseftirlitið í landinu.”
-ast
„En við sem ferðumst
eigum ei annars völ”
Með lögum sem tóku gildi hinn
1. janúar 1981 tóku almanna-
tryggingar að sér að greiða fæð-
ingarorlof að vissum skilyrðum
fullnægðum. Þau lög voru vissu-
lega mikil framför og sjálfsagt
réttlætismál. Nú hafa komið upp
raddir um aukið réttlæti, þannig
að börnum verði ekki lengur mis-
munað eftir vinnuframlagi móð-
ur sinnar á opinberum vinnu-
markaði. 160 konur á fæðingar-
deild Landspítalans undirrituðu
nýverið áskorun til ráðamanna
um að afnema dilkadrátt fæðandi
kvenna og nú hefur Alexander
Stefánsson flutt frumvarp til laga
um slíkt afnám, þannig að allar
konur sitji við sama borð.
vegar áhrif á upphæð fæðingaror-
lofs. Og flokkunin er þannig:
Flokkur nr. 1:
Full fæðingarorlofsgreiðsla
greiðist þeim, sem unnið hafa
1032 dagvinnustundir undan-
farna 12 mánuði. Upphæðin nú,
eftir 1. mars, er kr. 12.566.00 á
mánuði.
Flokkur nr. 2:
2/3 hlutar fæðingarorlofs-
greiðslu greiðast þeim, sem unn-
ið hafa 516-1031 dagvinnustund
á 12 mánaða tímabilinu. Upp-
hæðin þann 1. mars 1983 er kr.
8.377.00 á mánuði.
Flokkur nr. 3:
1/3 hluti fæðingarorlofs-
greiðslu greiðist þeim, sem unnið
hafa 515 dagvinnustundir eða
minna á 12 mánaða tímabilinu.
Undir þennan lið heyra einnig
þeir umsækjendur sem hafa enga
vinnu stundað á almennum
vinnumarkaði síðastliðna 12
mánuði, svo sem þeir sem stunda
heimilisstörf eingöngu. Upp-
hæðin þann 1. mars var 4.188.00
á mánuði.
Sérreglur um
útreikning
á vinnuframlagi
Um dagmæður og bóndakonur
gilda sérreglur. Þannig segir um
dagmæður, að hcilsdagsgæsla
eins barns í 12 mánuði teljist
nema 25 prósentum af fullu starfi,
þ.e. 43 stundum á mánuði, eða
516 stundum á ári. (Þetta er nú
með því kostulegra, sem maður
sér! Umönnun lítils barns er bara
fjórðungur úr vinnu!).
Um bóndakonur segir, að
vinnuframlag á búinu teljist vera
790 stundir á ári (það er ekki von,
að þreyttar bóndakonur skilji
þennan brandara).
Sérreglur um
4urra mánaða
greiðslur
Þá gilda einnig sérstakar reglur
um greiðslur þegar út af venjunni
Ljóðlínurnar í fyrirsögninni
eru teknar úr kvæðinu „Hótel
Jörð“ eftirTómas
Guðmundsson, en það kvæði
líkir jarðvistinni við hóteldvöl
þarsem herbergin eru mörg
og misjöfn að gæðum og
þægindigestanna
mismunandi. Reglurumfæð-
ingarorlofsgreiðslur eru gott
dæmi um það, hvernig
viðbúnaður er misjafn þegar
gestirnir koma í bæinn. Þeim
er vísað inn í herbergin eftir
vinnuframlagi móðurinnará
opinberum markaði.
Um
fæðingarorlof:
Vinnuframlag
ræður upphæðinni
Þar sem nokkrar umræður
munu sjálfsagt eftir að eiga sér
stað um þessi mál, þótti mér rétt
að kynna lögin eins og þau eru
nú. I upplýsingabæklingi Trygg-
ingastofnunar ríkisins um fæðing-
arorlof segir, að foreldri, sem á
lögheimili á Islandi, eigi rétt á 3ja
mánaða fæðingarorlofi almanna-
trygginga (alls staðar er raunar
talað um konur, en ekki foreldri,
þannig að réttast væri að segja að
konur, sem lögheimili eiga á ís-
landi, o.s.frv.). Undanskildar
þessum rétti eru þó konur, sem
vinna í opinberri þjónustu eða
bönkum, en þær eiga rétt á
þriggja mánaða fullum launum í
fæðingarorlofi skv. kjarasamn-
ingum. Fæðingarorlof greiðist til
bæði heimavinnandi og útivinn-
andi mæðra og námskvenna, en
vinna við launuð störf hefur hins
Jæja, skinnið litla, svo hún mamma þín vann bara 500 stundir utan
heimilis síðustu 12 mánuði. Þá fær hún 12.566 krónur til að klæða þig og
sjá þér fyrir því sem þú þarft.