Þjóðviljinn - 04.03.1983, Page 11
Föstudagur 4. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
Utnsjón:
Viöir Sigurösspn
B-keppnin í handknattleik:
„Okkar sérgrein að
ráða ekki við svona”
„Þetta er bara óskiljanlegt,
hreint óskiljanlegt að það skuli
vera haegt að tapa niður svona for-
ystu”, sagði Bjarni Guðmundsson
landsliðsmaður í handknattleik
eftir að íslenska landsliðið hafði
tapað niður átta marka forskoti
gegn Israel í B-keppninni í HoIIandi
í gærkvöldi og mátti síðan sætta sig
við jafntefli, 22-22. „Annars virðist
það vera okkar sérgrein að ráða
ekki við svona forskot. Eitt stig er
þó betra en ekkert og við reynum
að taka okkur saman í andlitinu
fyrir leikina gegn Frökkum og Hol-
lendingum um helgina”, sagði
Bjarni.
Já, þetta var ótrúlegt. ísland
komst í 7-1 í byrjun og síðan 10-2. f
stöðunni 10-3 var varið víti frá Þor-
bergi Aðalsteinssyni en áður hafði
annað frá Kristjáni Arasyni farið
sömu leið. Undir lok fyrri hálfleiks
gekk ekkert í sóknarleik íslenska
liðsins, Israel Plata, markvörður
ísrael, varði fimm skot á þeim tíma
og tvö skot fóru í tréverkið. Staðan
var 14-9 í hálfleik en Brynjar Kvar-
an markvörður átti lokaorðið í fyrri
hálfleik, varði vítakast, og hóf
þann síðari á sama hátt, varði víti á
þriðju mínútu.
ísrael saxaði smám saman á for-
skotið og jafnaði, 19-19 þegar 13
mínútur voru eftir. Næstu tíu mín-
úturnar skoraði fsland tvö gegn
engu, 21-19, og einni og hálfri mín-
útu fyrir leikslok var staðan 22-20,
íslandi í hag, og ísraelir einum leik-
manni færri í þokkabot. Þeir skor-
uðu þó laglega úr horninu, 22-21,
og 20 sekúndum fyrir leikslok
„stal” Beni Guz knettinum af ís-
lensku leikmönnunum, brunaði
upp og jafnaði, 22-22. Á lokasek-
úndunum small síðan knötturinn í
stöng ísraels eftir þrumuskot Al-
freðs en íslensku strákarnir máttu
sætta sig við jafntéflið.
„Misstu alla
yfirvegun”
„Strákarnir misstu alla yfirvegun
í síðari hálfleiknum. Sóknirnar
styttust og það var slakað á í vörn-
inni”, sagði Hilmar Björnsson
landsliðsþjálfari eftir leikinn. „Það
átti að gera mikið á stuttum tíma í
sókninni og þegar menn slaka á
eins og nú skeði getur allt gerst”.
Alfreð átti einna bestan leik ís-
lensku leikmannanna og Þorberg-
ur átti ág<eta kafla. Brynjar varði
þokkalega, og liðið lék allt ágæt-
lega þegar vel gekk en enginn verð-
ur undanskilinn frá doðanum sem
ríkti í síðari hálfleiknum. Sóknar-
nýtingin var um 43% en Alfreð átti
fjögur stangarskot og Þorbergur
þrjú. Þá fóru þrjú víti í súginn og
Israel markvörður ísraels varði
fimmtán skot í leiknum. ísraelir
léku líka vörnina þannig í síðari
hálfleiknum að íslensku skytturnar
freistuðust til að skjóta snemma og
þá Israel Plata að mæta.
Alfreð skoraði 7 mörk, Þorberg-
ur 5, Bjarni 3, Jóhannes Stefánsson
2, Sigurður Sveinsson 2/1 víti,
Guðmundur Guðmundsson, Hans
Guðmundsson og Kristján Arason
eitt hver. Kristjáp er í 5.-8. sæti yfir
markahæstu leikmenn keppninnar
með 22 mörk og Alfreð er níundi
með 21 mark. Efstir eru Kovacs frá
Ungverjalandi og Wunderlich,
V-Þýskalandi, með 34 mörk, Ver-
hofstadt, Belgíu, hefur skorað 29
og Uria, Spáni, 25.
Frakkar efstir
Úrslit í B-hluta keppninnar í
gærkvöldi og staðan fyrir leiki helg-
arinnar:
ísland-ísrael..............22-22
Belgía-Holland.............23-22
Frakkland-Búlgaría........20-18
Frakkland........3 2 1 0 62-55 5
ísland...........3 2 1 0 71-66 5
Holland..........3 1 1 1 57-51 3
ísrael...........3 1 1 1 55-61 3
Belgía...........3 1 0 2 61-68 2
Búlgaría.........3 0 0 3 65-70 0
Úrslit í efri hlutanum:
Tékkóslóvakía-Sviss.......25-14
Ungverjaland-Spánn........20-19
V-Þýskaland-Svíþjóð.......18-15
V-Þýskaland....3 2 1 0 51-47 5
Tékkósl.........3 2 0 1 64-51 4
Ungverjal.......3 2 0 1 66-61 4
Sviss...........3 1 1 1 53-63 3
Svíþjóð.........3 1 0 2 60-63 2
Spánn...........3 0 0 3 60-69 0
Miklar sviftingar voru í leikjun-
um í gærkvöldi. Sviss var yfir í hálf-
leik gegn Tékkum, 10-9, en skoraði
síðan 4 gegn 16 í síðari hálfleik. Þá
var Svíþjóð yfir, 10-6, í hálfleik
gegn Vestur-Þýskalandi.
Kærumálin frá hendi Búlgara eru
úr sögunni og framhaldið því eins
og áður var ráð fyrir gert, leikið við
Frakka á morgun og Hollendinga á
sunnudag.
-GM/VS
Alfreð Gíslason var markahæstur
í gærkvöldi.
Guðmundur náði að sigra
bæði í svigi og stórsvigi
Unglingar
1 Svíþjóð
íslensks unglingalandsliðið í bad-
minton hélt í gærmorgun til Upp-
sala í Svíþjóð þar sem það tekur
þátt í Norðurlandamóti unglinga
um helgina. Keppnin hefst í dag.
Liðið er þannig skipað: Indriði
Björnsson, Ólafur Ingþórsson,
Elísabet Þórðardóttir, Inga Kjart-
ansdóttir og Þórdís Edwald, öll frá
TBR, og Þórhallur Ingason, ÍA.
Að auki sendi TBR tvo keppendur
utan, þau Pétur Hjálmtýsson og
Guðrúnu Júlíusdóttur. Liðið er
væntanlegt heim á mánudag.
UMSE í
3. sætið?
UMSE á nú góða möguleika á að
ná 3. sætinu í 1. deild karla í blaki
eftir sigur á Bjarma, 3-1, á mánu-
dagskvöldið. Bjarmi vann fyrstu
hrinuna 10-15 en Eyfirðingar hinar
þrjár, 15-12, 15-7 og 15-3. Annað
þessara liða leikur í undanúrslitum
bikarkeppninnar gegn ÍS fyrir
norðan um helging. I hinum und-
anúrslitaleiknum mætast efstu lið
2. og 1. deildar, HK og Þróttur.
Um síðustu helgi var haldið
punktamót skiðamanna á Akureyri.
Mótið átti að fara fram á Húsavík,
en sökum snjóleysis var það flutt til
Akureyrar. A laugardeginum spilltu
veðurguðir nokkuð fyrir gangi
mótsins, en seinni dag þess var
veður ákjósanlegt til keppni.
Á laugardag var keppt í stórsvigi
kvenna og svigi karla.
Eftir fyrri ferð í stórsviginu hafði
Guðrún H. Kristjánsd. bestan
tíma, á eftir henni kom nafna henn-
ar Magnúsdóttir og þriðja var Ástá
Ásmundsdóttir. I síðari umferð
keyrði Guðrún J. Magnúsdóttir
best allra og sigraði, önnur varð
Guðrún H. og þriðja varð Ingi-
gerður Júh'usdóttir, frá Dalvík, en
hún náði öðrum besta brautartíma
í seinni ferð.
f svigi karla var keppnin mjög
jöfn og spennandi. Eftir fyrri ferð
hafði Daníel Hilmarsson, Dalvík,
nauma forystu á þá Guðmund Jó-
hannsson, frá ísafirði, og Erling
Ingvason, Akureyri. í seinni ferð
náði Guðmundur að komast fram-
fyrir Daníel og stutt á eftir þeim
kom Erling. Tímamismunur milli
þessara þriggja manna var einungis
hálf sekúnda.
Síðari dag keppninnar var keppt
í stórsvigi karla og svigi kvenna.
f stórsvigi karla sigraði Guð-
mundur Jóhannsson nokkuð ör-
ugglega. Hann hlaut bestan tíma
þátttakenda í báðum- umferðum,
annar varð Elías Bjarnason og
þriðji Daníel Hilmarsson.
í svigi kvenna var keppnin aftur
á móti tvísýnni. Eftir fyrri ferð
hafði Ingigerður Júlíusdóttir,
Dalvík, bestan tíma, önnur var
Nanna Leifsdóttir og þriðja Hrefna
Magnúsdóttir. í síðari umferð náði
Nanna bestum tíma og nægði það
henni til sigurs. Önnur varð Ingi-
gerður Júlíusd. og þriðja Guðrún
H. Kristjánsd.
Það undarlega veðurfar er hefur
verið hér í vetur, hefur gert skíðaá-
hugamönnum gramt í geði. Nú er
svo komið sökum snjóleysis að
skíðaíþróttin er ekki stunduð hér á
Norðurlandi nema á Dalvík og Ak-
ureyri. Þó er það ljóst að skíða-
menn á þessum tveimur stöðum
þurfa fljótlega að snúa sér að ein-
h ver j u öðru efekkiverður brey ting
á veðráttu.
Burridge varði tvær víta-
spyrnur og Wolves vann 1 -0
Víkingar
lögðu Val
Víkingar unnu góðan sigur á
Valsmönnum, 5-3, í A-deild ís-
landsmótsins í innanhússknatt-
spyrnu sem hófst í Laugardalshöll-
inni í gærkvöldi. Önnur úrslit: A-
deild: KR-Fylkir 4-1, Þróttur
R.-Valur 3-3, Breiðablik-Fylkir 6-
2. B-deild: Afturelding-Stjarnan
6-5. C-deild: ÍR-ÍK 5-3.
Wolves vann Sheffield Wednes-
day 1-0 í sögulegum leik í 2. deild
ensku knattspyrnunnar á þriðju-
dag. Wayne Clarkc skoraði fyrir
Wolves úr vítaspyrnu á 22. mínútu.
Síðan fékk Wednesday víti en John
Burridge markvörður Wolves
varði frá Gary Bannister. Fimm
mínútum fyrir leikslok var Mick
Lyons hjá Wednesday rekinn af
leikvelli sem samt fékk liðið aðra
vítaspyrnu á lokamínútunum.
Bannister tók hana einnig, en
skaut beint á Burridge, og ósann-
gjarn sigur Úlafanna var í höfn.
Úrslit í neðri deildunum í vik-
unni:
á.deild:
Cardift City-Reading..............0-0
Chesterfield-Walsall............ 0-0
Doncaster-Huddersfield............0-4
Exeter City-Lincoln..............3-1
Orient-Gillingham.................2-0
Oxford-Bradford City.............0-1
Plymouth-Millwall............... 3-1
Portsmouth-Wigan.................o-O
Preston N.E.-Brentford............3-0
Sheffield Utd-Newport.............2-0
Southend-Wrexham.................1-1
Portsmouth er efst með 65 stig,
Cardiff hefur 63, Huddersfield 57,
Lincoln 55, Bristol Rovers og New-
port 53.
4.deild:
Aldershot-Darlington.............1-6
Bury-Hull City...................2-3
Colchester-Northampton...........3-1
Halifax-Peterborough.............1-2
Hartlepool-Port Vale............ 2-2
Hereford-Stockport...............0-0
Scunthorpe-Mansfield.............2-2
Torquay-Blackpool................1-3
Tranmere-SwindonTown.............2-0
York City-Crewe..................2-0
Hull er á toppnum með 65 stig,
Port Vale hefur 64, Wimbledon 59,
Bury 58, Colchester 57 og Scunt-
horpe 51 stig.
Glenn Hoddlc, hér að ofan á flótta
eftir tertukastkcppni, er eftirsóttur
af frægustu knattspyrnufélögum
Evrópu.
Hoddle til
BayemM.?
Forráðamenn vestur-þýska
knattspyrnustórvcldisins, Bayern
Munchcn, bíða nú með óþreyju
eftir því að enski landsliðsmaður-
inn Glenn Hoddle hjá Tottenham
nái sér fullkomlega af meiðslunum
sem hafa hrjáð hann að undan-
förnu. Þeir hafa hug á að Hoddle
taki við af Paul Breitner sem stjórn-
andi leiks liðsins á miðjunni, en
Breitner hættir í vor.
„Við fljúgum til Englands næst
þegar Hoddle getur leikið“, segir
Uli Höness, framkvæmdastjóri Ba-
yern. „Það verður hins vegar ekk-
ert rætt um samninga af okkar
hálfu fyrr en við erum vissir um að
meiðslin séu ekki til staðar
lengur".
Fleiri stórlið í Evrópu hafa
áhuga á Hoddle, þar á meðal AC
Milano á Ítalíu og spænska stór-
liðið Real Madrid. Samningur Hod
dle við Tottenham rennur út í vor
og hann hefur gefið í skyn að hjá
honum sé áhugi fyrir því að leika á
meginlandinu. -VS
Anderson
á útleið!
Viv Anderson, enski landsliðs-
bakvörðurinn hjá Nottingham For-
est, er líklega á leið til Everton.
Anderson er nýfarinn að leika að
nýju eftir að hafa verið frá vegna
meiðsla í fjóra mánuði, en hann fær
ekki að leika sem bakvörður, því
Forest hefur keypt Ken Swain frá
Aston Villa, heldur sem
miðvörður, og það sættir hann sig
ekki við.
Brian Clough, framkvæmda-
stjóri Forest, er reiðubúinn að selja
Anderson. Hann vill kaupa
miðvörð í staðinn og hefur auga-
stað á Kenny Clements, sem hefur
verið burðarás í 2. deildarliði Old-
ham síðan félagið keypti hann frá
Manchester City fyrir nokkrum
misserum. _VS
Júdó
Fyrsti hluti íslandsmótsins í júdó
fer fram á morgun, laugardag, í í-
þróttahúsi Kennaraskólans.
Keppni hefst kl. 15 og verður keppt í
öllum þyngdarflokkum karla, sjö
að tölu. Allir bestu júdómenn
landsins verða meðal þátttakenda.
Annar hluti íslandsmótsins verður
svo laugardaginn 19. mars, einnig í
íþróttahúsi Kennaraháskólans.
Birkir á
Vopnafjörð
Birkir Sveinsspn, 18 ára gamall
markvörður frá Vestmannaeyjum,
leikur líklega með 2. deildarliði
Einherja frá Vopnafirði í knatt-
spyrnunni í sumar. Hluti liðs
Vopnfirðinga æfir á Reykjavíkur-
svæðinu í slagtogi með 1. deildarl-
liði ísfirðinga.Vopnfirðingar verða
annars með svipað lið og í fyrra,
nema vafi er á að Ingólfur Sveins-
son, sem lék með ÍBV í 1. deildinni
fyrir tveimur árum, verði með í
sumar. _VS
-VS