Þjóðviljinn - 04.03.1983, Side 12
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN' Föstudagur' 4. mars 1983
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Norðurlandskjördæmi
eystra - Aukafundur kjördæmisráðs
Alþýðubandalagið í Norðurlandskjördæmi eystra boðar til aukafundar
kjördæmisráðs sunnudaginn 6. mars í Lárusarhúsi á Akureyri kl. 10
árdegis.
Dagskrá: 1) Tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista, umræður. 2)
Kosningastarfið. 3) Kosningastefnuskrá. 4) Gjald til kjördæmisráðs. 5)
Önnur mál. - Stjórn kjördæmisráðs.
Landbúnaðarráðstefna á Akureyri
Alþýðubandalagið heldur landbúnaðarráðstefnu á Akureyri, dagana 18. -
20. mars.
Þátttakendur eru beðnir að láta vita af sér í síma 17500.
ABR - Félagsvist
Ný 3ja kvölda keppni
Ný 3ja kvölda keppni í félagsvist hefst
þriðjudaginn8. marskl. 20.00íSóknarsaln-
um, Freyjugötu 27 (gengið inn frá
Njarðargötu). - Auk heildarverðlauna eftir
3 kvöld eru veitt sérstök verðlaun fyrir
hvert kvöid og geta þeir sem vilja komið í
eitt og eitt skipti. - Adda Bára Sigfúsdóttir
borgarfulltrúi kemur í kaffihléi og segir nýj-
ustu fréttir úr borgarstjórn.
Blaðamennskunámskeið
í Keflavík
Alþýðubandalagið í Keflavík gengst fyrir blaðamennskunámskeiði fyrri
hluta marsmánaðar. Hefst það laugardaginn 12. mars ki. 10 árdegis og
seinni hluti þess verður fimmtudaginn 17. mars og hefst kl. 20.00. -
Leiðbeinendur verða Vilborg Harðardóttir og Jón Asgeir Sigurðsson. -
Þátttökugjald er kr. 200.-. - Námskeiðið er öllum opið en menn eru
beðnir um að tilkynna þátttöku sem fyrst því fjöldi þátttakenda verður
takmarkaður. - Skráning fer fram hjá Jóhanni Geirdal (s. 1054), Ásgeiri
Árnasyni (s. 2349).
Ritnefnd og stjórn
Alþýðubandalagið í Reykjavík
F ulltr úaráðsfundur
Alþýðubandalagið í Reykjavík boðar til fulltrúaráðsfundar fimmtudaginn
10. mars kl. 20:30 í Sóknarsalnum við Freyjugötu.
Fundarefni: Tillaga kjörnefndar um framboðslista félagsins við komandi
alþingiskosningar. Fulltrúaráðsmenn fjölmennið - Stjórn ABR.
Alþýðubandalagsfélagar
Greiðið félagsgjöldin
Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík minnir þá sem enn skulda gjald-
faílin félagsgjöld á útsenda gíróseðla. Stöndum í skilum með félagsgjöldin
og eflum þannig starf félagsins. - Stjórn ABR
Alþýðubandalagið Vesturlandi
- Kjördæmisráð
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Vesturlandi er boðað til fundar í
Félagsheimilinu Rein á Akranesi,sunnudaginn6. marskl. 13.30. Fundar-
efni: 1. Framboðslisti flokksins við komandi alþingiskosningar kynntur.
2. Kosningastarfið framundan og skipulag þess til umræðu. 3. Önnur mál.
-Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
- Félagsfundur
Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík boðar til félagsfundar, þriðjudag-
inn 15. mars kl. 20:30 í Hreyfilshúsinu á horni Grensásvegar og Miklu-
brautar.
Dagskrá:
Ákvörðun framboðslista við komandi alþingiskosningar.
Félagar fjölmennið. - Stjórn ABR.
Öryrkjabandalag íslands rekur tæknivinnustofuna Örtækni, en þar vinna að jafnaði um 26 öryrkjar.
Fyrirhugað er, að Örtækni verði stór aðili í sambandi við samsetningarvinnu.
\
¥
Ataks er þörf í mennta-
og atvinnumáhim öryrkja
þrátt fyrir ótvíræðan árangur á ári fatlaðra
Aðalfundur Öryrkjabandalags
Islands var haldinn seint á síðasta
ári að Fannborg 1 í Kópavogi, en
aðildarfélög bandalagsins eru
blindrafélagið, Blindravinafé-
lagið, Félag heyrnarlausra,
Foreldra- og styrktarfélag
heyrnardaufra, Geðverndarfélag
íslands, Gigtarfélag íslands,
Heyrnarhjálp, SÍBS, Sjálfsbjörg
og Styrktarfélag vangefinna.
Formaður bandalagsins er Ar-
inbjörn Kolbeinsson og í skýrslu
hans kom fram, að viðfangsefn-
um Öryrkjabandalagsins fer
fjölgandi ár frá ári og störfin þar
af leiðandi ört vaxandi. í því sam-
bandi má nefna störf í nefndum
og ráðum er varða á einn eða
annan hátt réttindi fatlaðra, svo
sem endurhæfingarráði, um-
ferðarráði, samstarfsnefnd um
atvinnumál fatlaðra, stjórnar-
nefnd um málefni þroskaheftra,
ferlinefnd, alfanefnd, öldrunar-
ráði, starfshópi um náms- og
endurhæfingu fatlaðra og fleira
mætti tilgreina. Mikið starf hefur
verið unnið í sambandi við frv. til
laga um málefni fatlaðra og í sam-
bandi við sjálfseignarstofnanir
bandalagsins, Hússjóð og Vinn-
ustofusjóð.
Ásgerður Ingimarsdóttir
stjórnar skrifstofu bandalagsins
og í skýrslu hennar kom fram, að
eitthvert viðamesta verkefni
hennar er í sambandi við úthlut-
un öryrkjabifreiða og þar fer
einnig fram margskonar
upplýsinga- og þjónustustarfsemi
við öryrkja ásamt fyrirgreiðslu og
aðstoð við þá, sem í íbúðum
bandalagsins búa. Lögfræðiþjón-
usta hefur verið starfrækt af Hall-
dóri S. Rafnar í 7 ár og þar er
öryrkjum veitt ókeypis ráðgjöf og
aðstoð.
Hússjóður Öryrkjabandalags-
ins hefur nú byggt þær 250 leiguí-
búðir, sem ákveðið var 1966 að
byggðar yrðu. Allar fbúðir hús-
sjóðs eru leigðar öryrkjum eða
öldruðum, en íbúðirnar eru í 4
háhýsum: við Hátún 10, lOa og
lOb og að Fannborg 1 í Kópavogi.
Auk þess á hússjóður nokkrar
íbúðir í íbúðarhverfum í
Reykjavík.
Anna Ingvarsdóttir, frk.stj.
vinnustofunnar Örtækni, flutti
skýrslu um öryrkjavinnuna. 26
öryrkjar vinna að jafnaði á tækni-
vinnustofunni en þar er auk
framleiðslu á gjaldmælum fyrir
leigubifreiðar unnið að verkefn-
um fyrir önnur rafeindafyrirtæki
og nú er unnið að náinni sam-
vinnu allra rafeindafyrirtækja í
landinu og stendur til, að hlutur
Örtækni verði stór í þeirri sam-
vinnu sem samsetningaraðila.
Auk rafeindaiðnaðarins er jafn-
an unnið að hreinsun og
viðgerðum á símatækjum fyrir
Landsíma íslands. Þetta verkefni
fyrir Landsímann er bandalaginu
ómetanlegur styrkur vegna
atvinnuöryggis, en verkefna-
skortur háir oft öryrkjavinnu-
stofum.
Á fyrra ári gáfu hjónin Ingi-
björg Hallgrímsdóttir og Björn
Guðmundsson Öryrkjabanda-
laginu saumastofu í fullum
rekstri. Sú saumastofa er rekin af
ÖBÍ en mun flytja í nýtt húsnæði í
tengibyggingunni að Hátúni fyrir
mitt þetta ár.
1 umræðum um skýrslur kom
fram þakklæti til starfsfólks fyrir
frábært vinnuframlag í þágu
bandalagsins. Fram kom, að
þrátt fyrir ótvíræðan árangur af
ári fatlaðra, þá væri langt í land
að markmiðum ársins væri náð.
Þörf væri stórátaks í ferlimálum,
menntamálum og atvinnumálum
öryrkja, svo nokkuð sé nefnt.
-ast
í stuttu máli
Um starf hjálparsveitar skáta
Kópavogi
Mikið annríki hefur verið hjá Hjálparsveit skáta í Kópavogi það sem af
er árinu. Vegna óveðursins sem geisaði á höfuðborgarsvæðinu í ársbyrjun
var mikið um útköll og aðstoð við bæjarbúa. Þá sendi sveitin 11 manna
björgunarlið til Patreksfjarðar þegar náttúruhamfarirnar urðu þar í janú-
ar sl.
Á aðalfundi sveitarinnar nýverið var sex nýliðum veitt innganga í
sveitina. Að venju gaf sveitin út dagatal, en dagatalið er ávallt prýtt
málverkum eftir listamenn sem búsettir eru í Kópavogi. Að þessu sinni
var það Sigurður Sigurðsson sem lagði til myndina á dagatal Hjálpar-
sveitarinnar.
Kaffisala í Landakotsskóla
Á sunnudaginn munu foreldrar barna í Landakotsskóla halda kaffisölu
í skólanum. A boðstólum verða margar tegundir af gómsætum kökum.
Kaffisalan hefst kl. 14.30 og eru allir hjartanlega velkomnir.
Lesið úr verkum Jóns Thorarensen
í tilefni 80 ára afmælis séra Jóns Thorarensen gengst Leikfélag Kefla-
víkur í samvinnu við Bæjarbókasafnið fyrir bókmenntakynningu á verk-
um séra Jóns á laugardaginn í Félagsbíói kl. 13.30. Andrés Kristjánsson
fyrrum ritstjóri flytur erindi um höfundinn. Félagar úr Leikfélagi Kefla-
víkur lesa úr verkum hans. Karlakór Keflavíkur syngur og fulltrúar
sveitarfélaga á Suðurnesjum ávarpa séra Jón Thorarensen.
Gjöf til skóla fatlaðra
Lionsklúbburinn Njörður hefur fært Skóla fatlaðra sextíu þúsund krón-
ur að gjöf. Peningunum verður varið til þess að greiða kostnað við akstur
nemenda í og úr skóla.
Júlíus S. Ölafsson, formaður Lionsklúbbsins Njarðar, afhenti Jóni
Ásgeirssyni, framkvæmdastjóra Rauða kross fslands, peningagjöfina og
sagði við það tækifæri að féð væri úr sjóði sem stofnaður var á ári fatlaðra
en þá söfnuðu klúbbfélagar m.a. fé með því að selja herðatré.
Síðustu daga hafa borist framlög frá öðrum aðilum. Hjálparstofnun
kirkjunnar gaf 30.000,- krónur, Styrktarféiag Iamaðra og fatlaðra 10.000.-
krónur og Tryggingastofnun ríkisins lagði fram 15.000.- krónur sem nota á
til að kaupa námsbækur.