Þjóðviljinn - 26.03.1983, Side 5
Helgin 26.-27. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Ljósritunarvélin stóra. 120 ljósrit á mínústu takk og að sjálfsögðu í öllum
stærðum og gerðum.
Ljósritunarvélar á sýningu hjá Xerox:
Sú stærsta í
heimi var mætt
Xerox-umboðið á íslandi opnaði
í gær á Hótel Loftleiðum sýningu á
þeim Ijósritunarbúnaði sem fyrir-
tækið hefur upp á að bjóða. Innan
um og saman við Ijósritunartæki af
öllum mögulegum stærðum og
gerðum er á sýningu stærsta Ijósrit-
unarvél heims með afkastagetu
uppá 120 ljósrit á mínútu sem jafn-
framt skilar offsett gæðum. Vél
þessi er búin tölvuborði sem er
tengt hverjum einstökum hluta
hennar, þannig að fari eitthvað úr-
skeiðis segir Ijósborðið til um hvað
að er.
Að auki eru á sýningunni margar
aðrar gerðir af ljósritunarvélum í
mun lægri verðflokkum, en talið er
að stærsta vélin kosti eitthvað í
kringum 45 þús. ensk pund. Fyrir
utan stærstu vélina sem beitir Xer-
ox 9500 þá ber ódýrasta vélin, sem
framleiðir um 10 ljósrit á mínútu,
heitið Xerox 2370, og kostar um
100 þús. íslenskar. Xerox 2830
framleiðir 20 ljósrit á mínútu og
kostar um 120 þús. íslenskar, Xer-
ox 3107 framleiðir 20 ljósrit á mín-
útu er auk þess búin ýmsum auka-
búnaði, Xerox 3450 sem gerð er
fyrir um 10-35 þús. eintök á mán-
uði og loks má nefna að Xerox er
með til sýnis tölvu og símamynda-
vél. Símamyndavélin kostar um 85
þús. íslenskar.
- F. -
Þú getur gjörbreytt heuniíi
með sfáírúmum, fumdriðum og skápum
jrá Ásjdá hf.
Henta á milli veggja i op, l'H) cm, til 250 cm.
Húsgiign i úrvaii — sófasett, boriistofusett Kristalvörur og /leira.
Hafiö samband strax.
OPIÐ LAUGARDAG TIL KL. 4.
ARMULA 20 - SIMAR: 84630 og 84635
„Viö teljum tvímælalaust
gagn af því að koma á
svona ráðstefnu bænda
og sérfræðingaum
landbúnaðinn ekkisíst
þar sem ræddar eru nýjar
leiðirog skipstá
skoðunum um þessa
atvinnugrein, sem nú um
stundir áundirhögg að
sækja“, sögðu hjónin
Sigríður Sigurfinnsdóttir
og GunnarSverrisson
í Hrosshaga í
Biskupstungum, en
þau sátu
landbúnaðarráðstefnu
Alþýðubandalagsins
áAkureyri.
Hjónin Sigríður Sigufinnsdóttir og Gunnar Sverrisson í Hrosshaga: afleysingaþjónusta i landbúnaði er
sjálfsagt mál. - Ljósm. Atli.
Tvímælalaust gagn
af svona ráðstefnu
Þau Sigríður og Gunnar búa
félagsbúi með foreldrum hans að
Hrosshaga og reka þar kúabú með
56 mjólkandi kúm en 90-100 gripi
samtals á fóðrum. „Við værum
ekki hér á Akureyri nú nema vegna
þess að við búum félagsbúi og það
leiðir auðvitað hugann að þeirri
bindingu sem kúabúskapurinn
óneitanlega er“, sögðu þau Sigríð-
ur og Gunnar. „Félagsbúin leysa
þetta vandamál að nokkru leyti en
hvað einyrkjana varðar þarf að
koma hið fyrsta á skipulagðri af-
leysingaþjónustu. Nú er til staðar
nokkur afleysingaþjónusta, t. d.
vegna veikina og þess háttar, en
hvað lengri fjarvistir eins og sumar-
frí varðar, er langt í land ennþá.
Ungt fólk velur sér ekki störf í
landbúnaði í auknum mæli nema
þessi mál verði leyst með einhverj-
um hætti. Öll aðstaða til félagslífs
hefur á síðustu árum batnað veru-
lega almennt í þjóðfélaginu en
innan landbúnaðarins hafa hlutirn-
ir staðið í stað, því miður“.
Hvað viljið þið segja um þá sam-
dráttarstefnu sem um stundir hefur
ríkt í íslenskum landbúnaði?
„Það er erfitt að sjá hvernig
menn eiga í dag að geta stofnað bú
ef litið er til stöðunnar á lánamark-
aðinum og svo hins vegar hvernig
mönnum hefur verið gert að draga
saman seglin. Til dæmis má mefna
að í Biskupstungum hefur
skepnum fækkað á fóðrum um
10% hvort árið 1981 og 1982ogþað
er enginn vafi á því að þessi sam-
dráttarstefna hefur sín áhrif á
atvinnuna í þéttbýlinu sem þjóna
sveitahéruðunum. Fjöldi fólks
vinnur í úrvinnslugreinum ýmiss
konar og heilu þorpin hafa sprottið
upp þar sem íbúarnir lifa nær ein-
göngu á þjónustu við sveitirnar.
Eflaust verður landbúnaðurinn,
eins og aðrar greinar, að laga sig
eftir markaðinum að vissu marki
en þar verður að fara með gát ef
ekki á illa að fara“.
Og hvernig hefur þetta gengið
hj á y kkur? U rðu þið að skera niður
ykkar bústofn þegar kvótinn var
settur á mjólkurframleiðsluna?
„Þegar kvótaskiptingin og
niðurfærslan var ákveðin bjuggum
við ekki félagsbúi heldur sem ein-
yrkjar með blandaðan búskap.
Með stofnun félagsbúsins og því að
við snerum okkur eingöngu að kú-
abúskap náðum við upp ágætum
kvóta sem fullnægir vel okkar þörf-
um. Hvað sjálfan reksturinn
varðar vorum við svo heppin að
búið var að byggja hér upp á
staðnum áður en verðtrygging lána
var almennt tekin upp þannig að
við höfum ekki þurft að taka á okk-
ur þær byrðar sem margir bændur
þurfa að bera í dag“, sögðu þau
Sigríður J. Sigurfinnsdóttir og
Gunnar Sverrisson, bændur að
Hrosshaga í Biskupstungum að
lokum.
Landssambandi
samvinnu-
starfsmanna
Hlotnast
myndarleg
gjof
Landssamband samvinnustarfs-
manna hefur verið að leita fyrir sér
um land fyrir orlofshúsabyggð á
Norðausturlandi. Nú hefur sú leit
borið árangur.
Stjórn LIS hefur borist bréf frá
nokkrum eigendum Rcykjahlíðar
við Mývatn, þar sem þeir færa
Landssambandinu að gjöf spildu úr
landi jarðarinnar. Eru gefendur
Illugi Jónsson, Bára Sigfúsdóttir,
Sverrir Tryggvason og Hólmfríður
Pétursdóttir.
Þessl myndarlega og kærkomna
gjöf er gefin í tilefni af 100 ára af-
mæli Kaupfélags Þingeyinga á sl.
ári og til minningar um samvinnu
frömuðinn Jakob Hálfdanarson og
konu hans, Petrínu Pétursdóttur
frá Reykjahlíð, svo og aðra látna
Mývetninga, sem stóðu með Jako-
bi að stofnun Kaupfélags Þingey-
inga. Fyrirvari er gerður um sam-
þykki allra landeigenda, sveitar-
stjórnar og annarra umsagnar-
aðila.
Stjórn LÍS hefur sent gefendum
bréf, þar sem þökkuð er sú virðing
og vinátta, sem samtökunum er
sýnd með þessari gjöf. “
- mhg
Ármúla 20 Sími 84630
ÁRFELLSSKILRÚM FYRIR FERMINGAR
Mismunandi möguleikar í uppstillingu,
sérstaklega gert ráð fyrir innbyggðri raflögn.