Þjóðviljinn - 26.03.1983, Síða 21
Helgin 26.-27. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21
Tíu ára leit
vísindamanna:
Skrímslið
fræga í
Loch Ness
gæti
verið til!
Vísindamenn hafa eftir tíu ára
rækilega leit í Loch Ness játað,
að þar geti verið skrímsli að
finna. Að minnsta kosti hefur
þessi leit, sem gerð hefur verið
með bestu ratsjárkerfum og
neðansjávarmyndatökutækju-
m ekki getað afsannað
sögurnar um skrímslið í
vatninu.
Það var skömmu eftir 1930 að
mikið líf færðist í sögur af skrímsl-
inu, hundruð manna hafa talið sig
séð það og menn hafa verið ósínkir
á alls konar kenningar um það
hvað þarna væri á ferð. Hin kerfis-
bundna og vísindalega leit hefur að
minnsta kosti kveðið niður skýr-
ingar á borð við þær, að hinar
undarlegu sýnir ættu rætur að rekja
til rotnandi vatnagróðurs sem gas-
bólur lyftu, eða að menn hefðu séð
trjástofna skjótast upp úr vatninu.
Mjög vel var til leitarinnar vand-
að. Tæknimenn og háskólaprófess-
orar skipulögðu leitina og margir
áhugasamir sjálfboðaliðar komið
við sögu. Þeir komust svo að þeirri
niðurstöðu, að það séu engar yfir-
þyrmandi líffræðilegar ástæður
gegn því að Loch Ness, hið fræga
skoska stöðuvatn, geti ekki haldið
lífi í einhvers konar skrímsli.
Stórar skeprtur?
Adrian Shine, sem stjórnaði
leitinni, kemst svo að orði í tímarit-
inu New Scientist: „Eitthvað er
það í vatninu sem skilar mjög sér-
kennilegum hljóðmerkjum þegar
fullkomnum tækjabúnaði er beitt -
og þetta „eitthvað” krefst skýr-
ingar.”
Tvær tegundir leitartækja
skráðu um 40 tilfelli sem ekki verða
skýrð með því að venjulegir fiskar
hafi verið á férð í vatninu.
Bergmálsmerkin sem vísinda-
mennirnir skráðu voru mjög sér-
stæð. Hér er átt við allsterk boð,
sem fundust yfirleitt fyrir neðan 60
metra dýpi, en stundum ofar.
Suma daga varð ekki vart við þessi
merki á svæðinu en eins gat verið
að í næstu leitarferð væru skráð tvö
eða þrjú slík merki.
Adrian Shine segir á þá leið, að
færustu sérfræðingar hafi komist
að þeirri niðurstöðu að ekki væri
um einhver tilviljunarkennd merki
frá dauðum hlutum að ræða. „Við
getum ekki haldið því fram að
skrímslið sé fundið - en ef að í vatn-
inu væru stórar skepnur, þá mundu
þær koma fram á ratsjám eins og
þau boð sem við höfum skráð.”
áb tók saman
(London Press Service)
Hvað er að gerast
í Háskólanum?
STÚDENTABLAÐIÐ
er málgagn allra stúdenta við
Háskóla íslands og andlit
stúdentasamtaka út á við.
Blaðið er vettvangur umræðu
um málefni háskólans,
námsmannahreyfinga og
menntamál almennt.
STUDENTABLAÐIÐ
kemur út 8 sinnum á ári.
Áskrift kostar kr.150 -
Gerist áskrifendur að STÚDENTABLAÐINU!
Fyllið út seðilinn hér að neðan og þú færð blaðið ásamt
gíróseðli fyrir áskrift 1983 sent í næsta mánuði.
Ég undirrit. óska eftir að gerast áskrifandi að.Stúdentablaðinu.
Nafn
Heimili Þóstnr.
Sendist: Stúdentablaðinu Stúdentaheimilinu v/HringbrautlOl Reykjavík.
Amammun
UGLÝSIR
Svínakjöt
nýtt og reykt
Úrbeinað hangikjöt
Londonlamb
Léttreyktir lambaframpartar
Kjúklingar
Hangikjöt að norðan
Úrval annarra kjötvara
Mjólk, brauð og
nýlenduvörur í miklu úrva
Grillaðir kjúklingar
Leitið ekki langt yfir skammt
Kvöld-og helgarþjónusta
Opiö alla daga frá kl. 9-22
Laugardaga frá kl. 9-20
Sunnudaga frá kl. 10-20
Verslið í hverfinu
Sendum heim
KREDITKORT
ARNARHRAUN
Arnarhrauni 21, sími 52999
VELKOMIN