Þjóðviljinn - 26.03.1983, Page 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 26.-27. mars 1983
um helgina
tónlist
Háskólakórinn:
Aukatónleikar I Félagsstofnun stúd-
enta á sunnudag Pálmasunnudag kl.
17.00.
Á efnisskrá eru íslensk verk, þjóölög og
verk samtímatónskálda, sem kórinn
flutti á vel heppnaðri söngferö sinni um
Sovétríkin ekki alls fyrir löngu. Söng-
stjóri er Hjálmar H. Ragnarsson.
SATT:
Lifandi tónlist á veitingahúsum borgar-
innar um helgina. I Klúbbnum í kvöld
frá kl. 21-24 Q4U og Þeysarar.
Sýndur verður músíkþáttur SATT og
Imyndar frá Músiktilraunum í Tónabæ
um sl. áramót meö hljómsveitinni
EGO.
íslenska hljómsveitin:
Ungu tónskáldin
í dag, laugardag, heldur fs-
lenska hljómsveitin sérstæða tón-
leika: þar verða leikin verk eftir
Mozart, Benjamin Britten og
fleiri tónskáld, m.a. eitt íslenskt,
sem öll eiga það sameiginlégt, að
höfundarnir voru kornungir, tví-
tugir eða yngri, þegar verkin voru
samin. Og það fer vel á því að
Sigrún Eðvaldsdóttir, kornungur
fiðluleikari, sem hér sést á mynd-
inni, leikur einleik í einu verka-
nna. Tónleikarnir hefjast kl. 14 í
Gamla bíoi.
Tónskóli Sigursveins:
Árlegir vortónleikar verða haldnir í sal
Fellaskólans i Breiðholti á sunnudag
kl. 15.00.
Fjölbreytt tónlist á einleikshljóðfæri og
samspil yngri og eldri nemenda. Ein-
nig verður kynnt áætlun um byggingu
við Hraunberg í Breiðholti sem nú er í
. undirbúningi og fjársöfnun til bygging-
arinnar.
Norræna husið:
Dóra Reyndal, sópransöngkona og
Guðríður St. Sigurðardóttir, píanó-
leikari halda tónleika í Norræna húsinu
n.k. mánudagskvöld þ. 28. mars kl.
20.30.
Á efnisskrá eru verk eftir Pál Isólfsson,
Jórunni Viðar, Haydr>, Mozart, Richard
Strauss og Moussorgsky.
myndlist
Hjördís Bergsdftir sýnir tauþrykk
Ásmundarsalur:
Jón Þór Eggertsson sýnir 70 olíu- og
vatnslitamyndir unnar á siðustu árum.
Margar landslagsmyndir af Vest-
fjörðum einkum úr Dýrafirði. Oþið um
helgina frá 14 - 22.
Gallerí Austurstræti 8:
Hanna Kr. Hallgrímsdóttir sýnir málv-
erk í veggkössum. Eina sýningin í
borginni sem er oþin allan sólar-
hringinn.
Gallerí Djúpið:
Guðlaugur Ásgeirsson sýnir oliu- og
grafíkverk fram til 10. apríl.
Gallerí Lækjartorg:
Skúli Ólafsson opnar í dag mynd-
listarsýningu þar sem hann sýnir ex-
pressioniskar litblýantsmyndir og
blekteikningar.
Gerðuberg Breiðholti:
Samsýning 16 .myndlistarmanna sem
allir eru búsettir í Breiðholti. Málverk,
grafík, skúlptúrar og teikningar. Ath.
Síðasta sýningarhelgi.
Hallgrímskirkja:
I anddyrinu stendur nú yfir sýning á 50
teikningum eftir Barböru Árnason sem
unnar eru við Passiusálma Hallgrims
Péturssonar. Opið nema mánudaga
frá 16-22.
Nytjalist í Langbrók
Hjördís Bergsdóttir opnar sýn-
ingu á tauþrykki í Gallerí Lang-
brók við Amtmannsstíg í dag, kl.
14.00.
Á sýningunni eru málaðar
myndir á tau, handþrykktir
púðar og handþrykktar lengjur
sem hægt er að panta eftir í
metratali. Einnig er hægt að
kaupa púðaverin á sýningunni.
Hjördís sýnir 4 mynstur í mis-
munandi litum, sem ekki hafa
verið sýnd áður, en myndefnið
sækir hún að eigin sögn í jap-
anska grafíklist og einnig í gamlar
búningabækur.
Sýningin verður opin frá kl. 12
- 18 daglega frarn til 20. apríl.
Nýja
málverkið
Árni Ingólfsson, Daði Guðbjörnsson, Helgi Þ. Friðjónsson, Kjart-
an Ólafsson, Kristinn G. Harðarson, Tumi Magnússon og Valgarður
Gunnarsson sýna málverk, grafík og teikningar í Norræna húsinu.
Þessir myndlistamenn eru allir boðberar nýja málverksins og hafa
sýnt verk sín víða erlendis á undanförnum árum.
Hásselbý-höllin i Stokkhólmi:
Ef einhver lesanda Þjóðviljans á leið
um Stokkhólm næstu vikur, þá getur
hann litið inn í menningarmiöstöðina í
Hásselbýhöll þar sem á morgun
verður opnuð samsýning 9 íslenskra
myndlistarmanna undir heitinu Is-
lenskt landslag.
Heimilisiðnaðarfélagið:
Sýning um helgina að Laufásvegi 2 í
tilefni 70 ára afmælis félagsins á
þessu ári. Sýndir verða handprjónaðir
munir úr eingirni; hyrnur, dúkar, lang-
sjöl, veggmyndir, skermar og fatnaður
ýmiss konar. Opið kl. 14 - 19 laugar-
dag og sunnudag.
Kjarvalsstaðir:
Geysimerk sýning á íslenskri kirkjulist í
öllum sölum. Hátt á annaö hundrað
kirkjuleg verk sem unnin hafa verið á
síðustu árum og nærri 30 gamlir kirkju-
Langbrók:
Hjördís Bergsdóttir opnar sýningu á
tauþrykki en þetta er fyrsta einkasýn-
ing Hjördísar. Handþrykktar lengjur
eða púðar sem hægt er að kaupa eða
panta á sýningunni.
Listasafn ASÍ:
Kristján Guðmundsson og Ólafur Lár-
usson . sýna skúlptúra, teikningar,
bækur og málverk þar sem ævintýrin
og sofandi prinsessur eru í aðalhlut-
verkum.
Listmunahúsið:
Samsýning 7 ungra og vel þekktra
listamanna. Alls 50 verk á mjög fjöl-
breyttri sýningu.
Norræna húsið:
Þeir Árni Ingólfsson, Daði Guðbjörns-
son, Helgi Þ. Friöjónsson. Kjarlan Óla-
son, Kristinn G. Harðarson, Tumi
Magnússon og Valgarður Gunnars-
son sýna málverk, grafík og teikningar.
Þessir myndlistamenn hafa sýnt viða
heima og erlendis undanfarin ár og eru
yfirleitt flokkaðir undir svokallað nýja
málverk.
I tilefni sýningarinnar gefa þeir félagar
út grafíkmöppu í fimmtíu eintökum.
Sigriður Gunnarsdóttir sýnir listrænar
Ijósmyndir í anddyrinu.
Nýlistasafnið:
Helgi Þorgils Friðjónsson sýnir mál-
verk, teikningar, skúlptúra, grafík-
myndir og bækur.
Rauða húsið Akureyri:
Jón Gunnar Árnason opnar sýningu
í dag þar sem hann sýnir sambland
af málverki og skúlptúr og um leiö um-
hverfisverk þar sem áhorfandinn
gengur inn í verkið sjálft og verður hluti
af því...
Safnahúsið á Selfossi:
23 félagar i Myndlistarfélagi Árnes-
sýslu eru með sölusýningu á verkum
sínum, alls 80 talsins. Málverk, vatns-
litamyndir, teikningar, skúlptúr, textíl
og hnýtingar. Opið kl. 14 - 22.
Skruggubúð:
Sýning á málverkum, teikningum og
klippimyndum eftir súrrealistana Su-
sann Vald og Ludwig Zeller. Opið 15 -
21 um helgina.
Gránufjelagið:
Nú eru allra siðustu forvöð aö sjá hina
umtöluðu sýningu fjelagsins á Fröken
Júlíu eftir meistara Strindberg. Síðasta
sýning verður í Hafnarbíó á laugardag-
inn kl. 20.30. Jafnvel síðasta leiksýn-
ingin í gamla bragganum.
Islenska óperan:
Gamanóperan Míkadó eftir þá félaga
Gilbert og Sullivan verður sýnd á
sunnudagskvöld kl. 21.00,
Leikfélag Hveragerðis:
I boði menningarmiðstöðvarinnar við
Gerðuberg i Breiðholti ætla Hvergerð-
ingar að setja upp tvær sýningar í höf-
uðborginni á gamanleiknum Delerium
búbónis eftir þá bræður Jónas og Jón
Múla Árnasyni. Sýnt verður á mánu-
dagskvöld og þriðjudagskvöld í menn-
ingarmiðstöðinni og hefjast báöar sýn-
ingar kl. 21.00.
Leikfélag Mosfellssveitar:
Revian, „Allir á bomsum" í Hlégarði á
laugardags- og sunnudagskvöld kl.
21.00. Miðapantanir eru í símum
66195 og 67150. Leikstjóri er Guöný
Halldórsdóttir.
Leikfélag Reykjavíkur:
I fyrrakvöld var nýjasta íslenska leik-
rit, „Guðrún" eftir Þórunni Sigurð-
ardóttur leikara frumsýnt í Iðnó.
Þriðja sýning er á sunnu-
dagskvöld. Leikritið er byggt á Lax-
dælasögu og þá einkum ástar- og
harmsögu þeirra þremenninga
Guðrúnar Ósvífursdóttur, Kjartans
Ólafssonar og Bolla Þorleikssonar.
Með aðalhlutverk fara þau Ragn-
heiður Arnardóttir, Jóhann Sigurðar-
son og Harald G. Haraldsson.
Á laugardagskvöld verður Salka Valka
á sviðinu og Hassið hennar mömmu
á miðnætursýningu í Austurbæjarbíói.
Leikklúbbur Fjölbrautaskólans
í Breiðholti:
Leikritið „Jakob og Hlýðnin" eftir Eug-
ene lonesco verður sýnt í Menning-
armiðstöðinni við Gerðuberg laug-
ardaqs- oq sunnudaqskvöld kl.
21.00. Sýningarnar hafa hlotið góða
dóma áhorfenda og eru tvær síðast-
nefndu sýningarnar aukasýningar.
Þjóðleikhúsið:
Jómfrú Ragnheiður verður á sviði
Þjóðleikhússins á sunnudagskvöld.
Lína langsokkur verður tvisv-
ar á feröinni á laugardag og sunnu-
dag og að sjáltsögðu er löngu upp-
selt. Griski þrileikurinn Oresteia
verður sýndur á laugardagskvöld og
Súkkulaðið hennar Silju verður sýnt á
þriðjudagskvöld.
ferðalög
Myndsköpun í Þórsmörk:
I tengslum við ferðir Útivistar í Þórs-
mörk um páskana veröur þátttakend-
um gefinn kostur á aö vera með í
frjálsri myndsköpun í skála félagsins í
Básum. Það veröur Björgvin Björ-
gvinsson myndlistarkenneri sem
leiðbeinir.
Sogin og Lambafellsgjá:
Sogin eru gamalt útbrunnið hvera-
svæði á miðjum Reykjanesskaganum
þar sem litadýrðin minnir á Land-
mannalaugar og Lambafellsgjá er
þröng hraunsprunga sem liggur í
gegnum fjallið Lambafell.
Utivist fer á þessar slóðir kl. 13.00 á
sunnudag.
Tunglskinsganga:
Gengið um Bessastaðanes og tendrað
fjörubál á mánudagskvöld ef veður
leyfir.
fundir
Heimspekideild Háskólans:
Málþing á vormisseri. Rætt um
menntastefnu og kennsluhætti i
, heimspekideild. Áttundi fundur verður
í Árnagarði stofu 201 kl. 14 á laugar-
dag. Fundarefni: Heimspekideild, Há-
skólinn og þjóðfélagið. Framsögu-
menn: Halldór Guöjónsson kennslu-
stjóri, Halldór Halldórsson fréttamaður
og Páll Skúlason prófessor. Allir vel-
komnir.
Fuglaverndarfélagið:
Fræðslufundur verður haldinn i Norr-
æna húsinu á þriðjudagskvöld kl.
20.30.
Magnús Magnússon sýnir þar nýja
kvikmynd sem hann nefnir „Fuglar í
dag - menn á morgun'1. Myndin er
tekin i samráði við liffræðideild Há-
skólans af fuglalífi á Mývatnssvæðinu.
Öllum heimill aðgangur.
ýmislegt
MÍR-salurinn:
Sovéska kvikmyndin „Prinsessan á
bauninni" byggð á ævintýri H.C.
Andersens verður sýnd á sunnudag kl.
16.00 i MÍR-salnum við Lindargötu.
Myndin er gerð 1975 og er Boris Ryts-
arév leikstjóri.
Lífeflisæfingar:
Á mánudaginn hefjast í fræðslumið-
stöðinni Miðgarði kvöldnámskeið í lífe-
flisæfingum. Þessar æfingar eru tölu-
vert frábrugðnar þeirri likamsrækt sem
flestir þekkja, því markmið þeirra er
ekki að hlaða vöðvum utan á likamann
heldur veita útrás fyrir ýmsar nei-
kvæðar og jákvæðar tilfinningar.
Hugstjórnarþjáifun:
Á sunnudag verður Miðgarður með
námskeið í hugstjórnarþjálfun en slík
þjálfun kennir aðferðir sem auka hlut-
fall af alfa-heilabylgjum i vökuástandi.
Alexanderstækni:
Enn eitt námskeið á vegum Miðgarðs,
miðstöðvar fyrir lífefli. Það er breski
kennarinn Rosalind R. Ross sem
kennir svonefnda Alexanderstækni
sem hefur það að markmiði að kenna
fólki rétta líkamsPeitingu, leiðrétta
rangar líkamsstellingar og auka fegurð
og samhæfingu líkamans.
Frekari auglýsingar um þessi nám-
skeiö öll er að fá í sima (91) 12980.
Fjárhagsráð Sunnuhlfðar:
Páskamarkaður verður haldinn á veg-
um Fjárhagsráðs Sunnuhlíðar, hjúkr-
unarheimilis aldraðra í Kópavogi í kjall-
ara heimilisins á morgun og hefst
hann kl. 13.00.
leiklist
í dag opnar Skúli Ólafsson
myndlistarsýningu í Gallerí
Lækjartorgi.
Skúli er fæddur í Vestmanna-
eyjum 12. sept. 1952. Hann
stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskóla Islands í fimm ár og
lauk þar nánti í grafík árið Í977.
Skúli hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga hérlendis og er-
lendis, og auk þess haldið tvær
einkasýningar í Gallerí Landlyst,
Vestmannaeyjum, en Skúli býr
nú og starfar í Vestmannaeyjum.
Að þessu sinni sýnir Skúli ex-
pressioniskar litblýantsmyndir og
blekteikningar og fjalla sumar
myndanna um mannslíkamann á
surrealískan hátt. Einnig verða lil
sýnis nokkrar vatnslitamyndir -
expressioniskar fantasíur.
Sýningin stendur yfir dagana
26. mars til 4. apríl og verður opið
daglega frá kl. 14 - 18, nema
fimmtud. og sunnud til kl. 22.