Þjóðviljinn - 15.04.1983, Side 1
DJÚÐVIUINN
apríl 1983
föstudagur
81. tölublað
48. árgangur
Afturhaldsöflin reiðubúin að taka höndum saman eftir kosningar
ATVINNULEYSI
OG EIGNAHRUN
Asbest verður enn um sinn notað við hemlaviðgerðir (ijósm. Atli)
Notkun á asbesti
bönnuð hérlendis
Fyrir skömmu undirritaði Svav-
ar Gestsson heilbrigðis- og félags-
málaráðherra reglugerð, þar sem
lagt er bann við innflutningi og
notkun asbests hér á landi, vegna
þess að rannsóknir víða um heim
hafa leitt í Ijós að innöndun asbests
getur leitt til lungnakrabbameins
og krabbameins í himnum auk ann-
arra sjúkdóma. Það er einkum
meðhöndlun efnisins á vinnustöð-
um og rykmengun sem hefur þessa
hættu í för með sér.
Örfá undantekningartilfelli eru
frá þessari reglugerð, þar sem veitt
verður undanþága undir eftiriiti
Vinnueftirlits ríkisins ef um er að
ræða viðhald og viðgerðir á bygg-
ingum, vélum og öðrum búnaði ef
það er nauðsynlegt til að búnaður-
inn haldi gildi sínu og ekki er unnt
að nota önnur efni.
Slíkar.undanþágur verðaeinung-
is veittar gegn skilyrðum um ítar-
legar varúðarráðstafanir og er í
reglugerðinni kveðið á um merk-
ingu asbestsvara, varnir gegn as-
bestsmengun o.fl.
Þótt þessar undantekningar séu
leyfðar er gert ráð fyrir að verulega
dragi úr notkun asbests hér á landi
og öll ný notkun á efninu verður
bönnuð, svo sem asbestsklæðning-
ar húsa og annarra mannvirkja, as-
best í gólfflísum, vefnaði og til ein-
angrunar, en asbest hefur mikið
verið notað til einangrunar skipa.
Það er einkum varðandi hemla-
borða bifreiða sem ekkert efni
virðist geta komið í stað asbests.
Má nefna sem dæmi að notkun efn-
isins er bönnuð í Svíþjóð og Banda-
ríkjunum, nema við gerð hemla-
borða. Þá verða asbeströr heimiluð
við lagningu aðveituæða hita-
veitna. - S.dór
Öllu verðlagi verður sleppt lausu
til þess að framkalla samdrátt
og atvinnuleysi
- Hægri öflin í Framsóknarflokknum og Sjálfstæðis-
flokknum eru að ná saman. Hægri stjórn mun stefna
þjóðinni í atvinnuleysi. Atvinnuleysi þýðir eignahrun
hjá alþýðufólki og niðurskurð félagslegrar þjónustu.
Það er þetta sem blasir við eftir kosningar ef íhaldsöflin
komast til valda segir Svavar Gestsson formaður Al-
þýðubandalagsins í kynningu á G-listanum í Reykjavík í
blaðinu í dag.
Tveggja ára lögbinding á kaup,
frjáls verðlagning, stórfelldar
hækkanir á opinberri þjónustu,
stórhækkun vaxta sem sleppt verð-
ur lausum, vináttusamningur við
Alusuisse og hernaðarfram-
kvæmdir í Helguvík. Það er þetta
sem við blasir ef hægri öflin fá byr,
jafnvel strax í maí.
„Sterk stjórn" Framsóknar-
flokks og Sjálfstæðisflokks mun
ekki efna til kosninga á næstu miss-
erum. Fyrri samstjórnir þessara
flokka hafa reynst launafólki hinar
verstu stjórnir og knúið fram
heimsmet í verkfallsátökum. Hall-
dór Ásgrímsson varaformaður
Framsóknarflokksins hefur lýst því
yfir að ekki eigi að standa í þrefi við
allskonar aðila heldur lögbinda
kaupið og afnema samningsréttinn
í tvö ár. A sama tíma myndi verðlag
þjóta upp vegna þess að það yrði
gefið frjálst að kröfu Verslunar-
ráðs og Davíðs Oddssonar sem
hækka vill hitaveitugjöld um
186%. Fyrst þarf verðbólgan að
fara enn hærra og framkalla at-
vinnuleysi til þess að hægt sé að
ráða við efnahagsmálin. Það er
kenning Verslunarráðsins og Sjálf-
stæðisflokksins. - ckh
Fundur Sjálfstæðis-
flokksins með
Ragnari Halldórssyni:
Enginn
nefndi
orkuverð
Enginn af framsögumönnum á
fundi Sjálfstæðisllokksins í Hafn-
arfirði sá ástæðu til að minnast orði
á orkuverðið til álversins og al-
mennings, og var þó fundurinn
helgaður stóriðjumálum og sér-
stakur frummælandi Ragnar Hall-
dórsson, forstjóri ísal.
Þess í stað lagði Gunnar Schram
áherslu á að reist yrðu þrjú til fjög-
ur stóriðjuver á borð við ísal á
næstu árum. Jafnframt verði álver-
ið stækkað skv. fyrirliggjandi áætl-
unum.
Sem fyrr segir var Ragnar Hall-
dórsson, forstjóri ísal og formaður
Verslunarráðs, meðal frummæl-
enda á þessum fundi Sjálfstæðis-
flokksins. Aðrir frummælendur
voru Árni Grétar Finsson, sem
mærði samskiptin við ísal, Matthí-
as Á. Matthiesen, sem taldi útilok-
að að Sjálfstæðisflokkurinn fengi
meirihluta, Gunnar G. Schram,
Salome Þorkelsdóttir og Ólafur G.
Einarsson, sem taldi að Kísilmálm-
verksmiðjan á Reyðarfirði væri
kannski betur sett nálægt Hafnar-
firði.
Ragnar Halldórsson taldi sig
hafa átt góð samskipti við fyrstu
þrjá iðnaðarráðherrana, en taldi
Hjörleif Guttormsson aldrei hafa
ætlað að semja.
Formaður
húsnæðismála-
stjórnar, Ólafur
Jónsson, fullyrðir
að hlutfall lána
Húsnæðisstofnunar
sé nú 35.5% en það
hafi verið 29% á
síðasta valdaári
ríkisstjórnar Geirs
Hallgrímssonar.
Við miimuin
kosningafuuta
G-listans
í Reykjavík
í Háskólabíói
á morgun.