Þjóðviljinn - 15.04.1983, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf-
ingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Pjóöviljans.
Framkvæmdastióri: Guörún Guömundsdóttir
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson.
Umsjónarmaður Sunnudagsblaös: Guðjón Friöriksson.
Auglýsingastjóri: Sigríöur H. Sigurbjörnsdóttír.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Siguröardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Blaðamenn: Auöur Styrkársdóttir, Álfheiöur Ingadóttir, Helgi Ólafsson,
Lúövík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gislason,
Óskar Guömundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson.
íþróttafréttaritari: Víöir Sigurösson.
Utlit og hönnun: Helga Garöarsdóttir, Guöjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Atli Arason.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson.
Skrifstofa: Guörún Guðvarðardóttir, Jóhannes Haröarson.
Simavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guöjónsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir.
Innheimtumenn: Brynjóltur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson,
Ólafur Björnsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir
Útkeyrsla, afgreiðsla og augtýsingar:
Síöumúla 6, Reykjavík, simi 81333.
Umbrot og setning: Prent.
Prentun: Blaöaprent h.f.
Kjósum enga
afturhaldsstjórn
• Vera má að Geir Hallgrímsson sé mikilhæfur stjórn-
málamaöur. En hann er ekki efni í mikinn sagnfræðing.
í Morgunblaðinu í gær er sagt frá fundi á Isafirði þar
sem Geir mun hafa sagt að menn horfðust nú í augu við
versta viðskilnað nokkurrar ríkisstjórnar í sögu
lýðveldisins. Megum við minna á lokaár viðreisnar-
stjórnar Framsóknarflokks og Alþýðuflokks. Þá
greiddu íslendingar atkvæöi með fótunum og flýðu
land svo þúsundum skipti undan atvinnuleysi Sjálfstæð-
isflokksins.
• Það er þakkarvert af Geir Hallgrímssyni aö gefa kost
á þessurn samjöfnuði. Nú á síðustu vikum kosningabar-
áttunnar hefur það verið augljóst aö í undirbúningi er
samstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks eftir
kosningar. Landsmenn hafa þekkt tvær slíkar ríkis-
stjórnir í seinni tíð, 1950 til 1956 og 1974 til 1978. Þetta
hafa verið hatrammar afturhaldsstjórnir og stofnaö til
harðvítugra átaka við samtök launafólks í landinu. Það
er segin saga að þegar Framsóknartlokkurinn og Sjálf-
stæðisflokkurinn ná saman þá eru það stækustu aftur-
haldsöflin úr báðum flokkum sem ráða ferðinni.
• Nú eru allar horfur á því að Ólafur Jóhannesson og
Tómas Árnason annarsvegar og leiftursóknarstrákar úr
Sjálfstæðisflokknum hinsvegar nái saman eftir kosning-
ar. Það verður bandalag sem keyrir niður launakjörin í
landinu með afnámi samningsréttar og meö því að
koma hér á „hæfilegu atvinnuleysi‘7 Atvinnuleysið
verður notað sent aðferð til þess að ná tökum á stjórn
efnahagsmála. Það má vel vera að takast megi að koma
snyrtilegum tölum um þjóðhagsstærðir á blað meö því
að innleiða atvinnuleysi. En hérer um líf ogstörf lifandi
fólks að ræða, en ekki tölur á blaði. Og nú getur fólk
ekki lengur greitt atkvæði með fótunum eins og í lok
viðreisnaráratugsins vegna kreppuástandsins erlendis.
Menn verða því að berjast við atvinnuleysisstjórn hér
heima. Ráðlegast er að geyma það ekki fram yfir kosn-
ingar, heldur hefja baráttuna gegn atvinnuleysisstjórn-
inni þegar á kjördag.
• Kvennalistinn og Bandalag Vilmundar eru stikkfrí í
átökunum um stjórn landsins og skila auðu í álmáli,
hermáli og í baráttu gegn yfirvofandi afturhaldsstjórn.
Alþýðuflokkurinn boðar betri leiðir en það eina sem
hann hefur bent á er leið Jóns Baldvins Hannibalssonar
til nýrrar viðreisnar með Sjálfstæðisflokknum. Hann
vill nýja atvinnuleysisstjórn.
• Þeir sem vilja bægja frá hættunni á atvinnuleysis-
stjórn kjósa G-listann 23. apríl því Alþýðubandalagið
setur atvinnuöryggið ofar öllum öðrum markmiðum í
efnahagsmálum. - ekh.
Uppgjörsleið
G-listans
• Alþýðubandalagið setur fram aðferð tii þess að
draga úr verðbólgu án þess að launakjör dragist aftur úr
öllu öðru og atvinnuöryggi sé stefnt í voða. Það leggur
til að öllum hækkunum - hinum mörgu vísitölum sem í
gangi eru - verði safnað saman á eina dagsetningu og
þær síðan „styttar út“ hver á móti annarri. Hugsanlega
væri hægt að stytta út 2/3 hluta þeirrar hækkunar sem
ella kæmi til framkvæmda. Hugmyndin er sú að launa-
fólk, atvinnurekendur, lántakendur, sjómenn, útvegs-
menn og bændur stæðu eins á eftir og ef þeir hefðu
fengið allar þær hækkanir sem þeim bar samkvæmt
sínum vísitölum. Samhliða þessu þarf að taka á öllum
þáttum efnahagslífsins og þrýsta verðbólgunni niður
með samræmdu átaki á öllum sviðum. Auðvitað verður
slíkt uppgjör ekki gert nema allir leggi eitthvað af
mörkum, og það er mikilvægt að sterkur verkalýðs-
flokkur hafi stjórn á framkvæmdinni. - ekh.
klippt
Skipurit I
Ástandiö í dag
KR, Valur
Valddruslur
íþróttafréttamenn —> Verðbólga
á blöðum
Samtrygging fótboltafélaganna
Bandalag
knattspyrnu-
manna
Hefur þú lesandi góöur séð ein-
hvern annan spila fótbolta heldur
en þá sem eru í valdamestu fót-
boltafélögunum í landinu?
Auövitaö ekki. Ástæöan er ein-
föld. KR, Vaiur, Víkingur, Fram
og öll hin félögin einoka fyrstu
deildina í knattspyrnunni og
reyndar flestar deildir og flest
mót í fótboltanum.
Gegn þessari samtryggingu
fótboltafélaganna höfum við á-
kveðið svar. Viö höfum ákveðið
að stofnsetja Bandalag knatt-
spyrnumanna - knattspyrnufé-
lagið gegn hinum knattspyrnufé -
liögunum.
Samtryggingin
Það er greinilegt og öllum
auðsjáanlegt, að stóru knatt-
spyrnufélögin hafa samtryggð
völd. Takið eftir því, að í knatt-
spyrnuráði Reykjavíkur, - og
Knattspyrnusanibandi íslands
- hafa menn úr þessum félögum
hreiðrað um sig. Og þeir stjóma
öllu saman í sátt og samlyndi. Það
er því í meira lagi blekkjandi þeg-
ar þessi knattspyrnufélög þykjast
vera að spila á móti hvert öðru í
kappleikjum. Það er lítill munur
á jreim í rauninni.
Fótboltavaldið
á fjölmiðlunum
Það er mörg spillingin sem
þrífst hjá stóru knattspyrnufélög-
unurn. Þannig hafa menn sem all-
ir eru í einhverjum þessara félaga
hreiðrað um sig bæði á dag-
blöðunum og í ríkisfjölmiðlun-
um.
Hingað til hefur enginn frá
Bandalagi knattspyrnumanna
fengið að ráða sig hjá dagblöðun-
um eða í ríkisfjölmiðlunum.
Hvers eiga venjulegir fótbolta-
menn að gjalda?
Aðskilnaður
valds og valds
Það hefur runnið mörgum ófé-
lagsbundnum knattspyrnumann-
inurn til rifja, að sjá hvernig dóm-
arar dæma fótboltaleiki. Þannig
fer hver dómarinn á fætur öðrum
- og dæmir leiki meðal félaga sem
hann gjörþekkir sjálfur til. Dóm-
ararnir eru sjálfir úr hinum ýntsu
knattspyrnufélögum. Þeir dæma
sjálfir um framkvæmdaatriðin
sem þeir eiga að dæma eftir.
Þetta er að sjálfsögðu alveg óþoF
andi.
Það er kominn tími til að taka
þetta dómsvald sem er í rauninni
líka löggjafarvald - og setja það
útaf vellinum. Útaf með dórnar-
ann. Síðan geta fótboltaménnirn-
ir sjálfir séð um framkvæmdaatr-
iðið. Hins vegar er sjálfsagt að
Knattspyrnuráðið setji eftirlits-
nefnd, mjög virka, sem sjái um
faglega umfjöllun á þessum
leikjum. Bæði á vellinum og útá-
við. Þannig væri hægt að skipa
nokkrar eftirlitsnefndir á fjöl-
miðlunum til að sjá um að í-
þróttafréttamennirnir skrifi ekki
meira um eigin lið en efni standa
til.
Valddreifingin
Það er líka nauðsynlegt að
upphefja þessa sveitarlegu
deildarskiptingu í fótböltanum.
Þannigá að leggja2.3. og4. deild
niður og hafa bara eina stóra
deild - þarsem allir keppa við
alla. Síðan á að fjölga éftirlits-
nefndum.
En umfram allt er nauðsynlegt
að samræma dómana eftir fag-
legum leiðum. Það er nauðsyn-
legt að fótboltavaldið leysi dóm-
araveldið af hólmi. Þess vegna
eiga allir knattspymumenn í
landinu að kjósa einn yfirdóm-
ara, sem síðan getur skipað eftir-
litsnefndir með faglegri umfjöll-
un sjálfur. Þannig næst vald-
dreifing sem er svo nauðsynleg.
Á annesjum eystra og vestra geta
fótboltamenn séð um sína leiki
sjálfir. Það er til nokkuð sem
heitir frjáls fótbolti.
Það þarf varla að taka fram að
um leið er búið að leysa allan
vanda annan, svosem verðbólgu
sem er í rauninni ekki annað en
bein afleiðing hinna óréttmætu
knattspyrnudóma. Og svo af-
rakstur fjölmiðla. - óg
Skipurit II
Bandalag knattspyrnumanna
Yfirdómari=fagleg umfjöllun
Valddruslur
I
(Yfirdómari
fæðist)
velur i
bankaráð og
knattspyrnuráð
Yfirdómari segir áhorfendum
að fara heim.
Yfirdómari
velur
eftirlitsnefndir
verðbólga
búin
Allt er orðið gott aftur.
Hókus Pókus Bandalags Knattspyrnumanna