Þjóðviljinn - 15.04.1983, Síða 11
Föstudagur 15. apríl 1983 ÞJOÐVILJINN - SIÐA 11
*
Félagið
Ísland—DDR
Kvikmynda-
sýning í dag
í dag föstudag, gengst Félagið
Ísland-DDR fyrir kvikmyndasýn-
ingu í ráðstefnusal Hótel Loftleiða,
og hefst hún kl. 18.00.
Sýning þessi er í tiíefni 500 ára
afmælis Marteins Lúthers, sem
haldið verður hátíðlegt með marg-
víslegum hætti í þýska alþýðulýð-
veldinu í ár.
Á dagskrá verða tvær stuttar
myndir: Undirbúningur að Lút-
hersári og Kirkjur í þýska alþýðu-
lýðveldinu.
Aður en kvikmyndasýningin
hefst, mun sendifulltrúi DDR á ís-
landi. hr. Rolf Böttcher. eera íirein
fyrir undirbúningi Pýska álþýðu-
lýðveldisins að Lúthersári og þeim
hátíðahöldum, em þar fara frant í
ár.
Mæðrafélagið:
Gefur
stórgjöf
Á 25 ára afmælishátíð Styrktar-
félags vangefinna 23. mars s.l. af-
henti Mæðrafélagið sambýlinu að
Háteigsvegi 6 kr. 125.000. í máli
Brynhildar Skeggjadóttur, vara-
formanns félagsins, við það tæki-
færi gat hún þess að ákveðið hefði
verið að leggja félagið niður, en
það var stofnað 26. febrúar 1936.
Be/nt samband viö París
og Bordeaux
Flutningur er okkar fag
EIMSKIP
Sími 27100
Til borganna kom ég
á óstjórnartímum
Betlarinn og keisarinn á æfingu
Allar nánari upplýsingar um Frakklandsþjónustuna
eru veittar í meginiandsdeild Eimskips
Árni Bergmann
skrifar um
leikhús
Stúdentaleikhúsið:
Lofgjörð um efann
Leikstjóri: Rúnar Guðbrandsson.
Það var hugulsemi hjá Stúdent-
aleikhúsinu að muna eftir Bertolt
Brecht á tímum þegar virðing fyrir
mannlegri skynsemi sýnist á
nokkru undanhaldi - a.m.k. í bili -
þegar möguleikar alvarlegrar
gagnrýni eru mjög dregnir í efa,
þegar kröfuharka um vinnubrögð í
listum er í vaxandi mæli talin flækj-
ast fyrir sjálfvirkni tilfinninga í at-
höfnum sem líkja et'tir lista-
verkum.
Sigfús Daðason flutti pistil um
Brecht og Sigrún Björnsdóttir söng
nokkra þá ágætu söngva sem svo
erfitt er að flytja á íslensku. Ljóð
voru flutt og stuttir prósaþættir og
þrír einþáttungar.
Þetta var um margt skemmtileg
dagskrá, en þegar á heildina er litið
vantaði á hana þann herslumun
sem sættir áhorfandann vel við
hlutskipti sitt. Það er til að mynda
trúa mín að það hefði verið hægt að
gera sýnu meira með kröftum
Stúdentaleikhússins úr þeim ljóða-
textum sem valdir voru til flutn-
ings.
Eins og vænta mátti beindist at-
hyglin fyrst og fremst að einþátt-
ungunum. Svo illa vildi til, að sá
fyrsti og elsti - um sigursælan
keisara sem fer heldur betur hall-
oka í samræðu við blindan betlara
(einn þeirra manna sem er orðinn
frjáls vegna þess að hann hefur
engu að glata) - fór nokkuð fyrir
ofan garð og neðan vegna utan-
aðkomandi truflana - en það
heyrðist samt að skörulega var með
hlutverk betlarans farið.
í miðjunni var einþáttungurinn
tvískiptur frá kennsluleikjatíma
Brechts um 1930 - „Hinn jákvæði
og hinn neikvæði". Þetta varð eftir-
minnilegasti atburður kvöldsins:
textinn, uppsetningin, raddnýting
- allt stefndi þetta að þeim á-
hrifum, að minna áhorfendur á að
þetta væri leikrit sem ekki er leik-
rit, rétt eins og í textanum sjálfum
er brugðið upp dæmi um að það
sem var („venjan mikla") er ekki
óhagganlegt lögmál og mál til kom-
ið að taka upp nýja háttu, eins þótt
þeim sem það gera verði mætt með
háði og spotti,
Að lokum var sýnt frægt atriði úr
syrpunni um „Ótta og eymd þriðja
ríkisins" sem er eina meiriháttar
leikverkið sem við munum að
Brecht hafi samið um þýska
samtíð. Það er um menntahjón
sem engjast herfilega af ótta við að
vinnustúlkan eða þá sonur þeirra
heyri eitthvað sem betur væri ósagt
í Hitlers-Þýskalandi og beri í yfir-
völdin. Magnað atriði reyndar og
lýsir því miöur miklu fleiri samfé-
lögum en því sem þátturinn er
sprottinn upp úr. Leikendurnir
gerðu ýmislegt ágætlega og það var
vel til fundið hjá leikstjóranum að
gera veggi hússins og ntublur stof-
unnar úr lifandi fólki: veggir hafa
eyru, segir þar. Aftur á móti á sá,
sem séð hefur sitthvað af „rétttrú-
uðum" leikstíl í túlkun á Brecht,
nokkuð erfitt að sætta sig við það
hve mjög leikst jórnin hafði skrúfað
frá ofsafengnum viðbrögðum og
leyft taugatitringi að ærslast. Hóf-
samari og ísmeygilegri aðferðir
hefðu dugað betur til að festa þetta
atriði við okkar tíma, okkar
vitund.
áb.
Með beinu sambandi við nýjar
þjónustuhafnir í París og
Bordeaux höfum við enn
á ný bætt nýju landi í
vikulega siglingaþjónustu
Eimskips til meginlands
Evrópu.
Alhliða flutningaþjónustan
„alla leið heim á hlað” er að
sjálfsögðu í fullu gildi í
Frakklandi. Við sækjum vöruna
til verksmiðjudyra eða skilum henni
beint í hendur kaupanda hvar sem er í
Frakklandi.
Hagstæðir samningarvið þrautreynda og
örugga umboðsmenn og flutningafyrirtæki
auka afgreiðsluhraða og lækka
heildarkostnaðinn.
Einmitt þannig á góð
flutningaþjónusta að vera!
Umboðsmaður í Bordeaux:
Alfred Balguerie S.A.
447 Bd. Alfred Daney
33075 Bordeaux Cedex
Sími: (56) 393333
Telex: 560031
Umboðsmaður í París:
Alfred Balguerie S.A.
c/o Jean Faucher
Bassin N1 -Hall A8
92230 Gennevilliers
Sími: 5620343
Telex: BALAN 650461