Þjóðviljinn - 15.04.1983, Blaðsíða 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 15. apríl 1983
Hittu naglann á höfuðið með handverkfær-
um frá okkur. Við bjóðum úrval af handverk-
færum, rafmagnsverkfærum, málningarvör-
um, lími, þéttiefnum, lökkum, skrúfum,
boltum, róm, lyklaefni, penslum, lásum,
læsingum, og fl. fl. Okkar verð er þér
hagstætt. Komdu í heimsókn.
Opið í hádeginu og
á laugardögum til hádegis
IPPBÚÐIN
VW HÖFim/A
Mýrargötu2 - sími 10123
blaðið
semvitnaðerí
Siminn er
Er ekki tilvalid
að gerast áskrifandi?
81333
UUMFERÐAR
RÁÐ
Góð orð
duga skammt.
Gott fordæmi
skiptir mestu
máli
Ráðstefna Samtaka móðurmálskennara:
A að hætta mál-
fræðikennslunni?
B œncLasbcólinn
ú IIvunncyri
Dregið í ferða-
happdrættinu
Nú í vor er ætlunin að
brauðskráðir búfræðingar frá
Bændaskólanum á Hvanneyri, fari
í náms- og skemmtiferð til Noregs
og Svíþjóðar. Hin síðustu ár hefur
þetta verið árlegur viðburður og
hefur þá ýmist verið farið til Nor-
egs, Færeyja eða Skotlands. Þetta
árið urðu Noregur og Svíþjóð fyrir
valinu. Flogið verður út með flug-
vél Samvinnuferða þann 22. júní
og lent í Þrándheimi, þar verður
rúta tekin á leigu og ferðast um
Noreg og Svíþjóð. Helsti skipule-
ggjandi ferðarinnar er Trausti
Eyjólfsson kennari og mun hann
einnig verða fararstjóri.
Ýmsar leiðir hafa verið farnar til
að fjárntagna ferð þessa og má þar
nefna verslunarrekstur og sölu
happdrættismiða. S.l. laugardag,
9. apríl var dregið í happdrættinu
og komu eftirtalin númer upp:
1. vinningur á miða nr. 1239. 2. á
918. 3. á 1387. 4. á 219. 5. á 818. 6.
á 1142. 7. á 274. 8. á 1148. 9. á
1460. 10. á 1532.
Nemendur annars bekkjar á
Hvanneyri þakka öllum þeim, er
styrktu þetta happdrætti þessu.
1 dag hefst í Borgartúni 6 ráð-
stefna Samtaka móðurmálskenn-
ara um málfræðikcnnslu í íslensk-
um skólum, en hún er deilu- og um-
ræðuefni jafnt meðal kennara sem
nemenda.
Spurt verður hvort eigi að hætta
málfræðikennslu, um markntið
móðurmálskennslu, orðflokka og
þátt málfræði í kennslu erlendra
tungumála. Frummælendur verða
Hcimir Pálsson, Eiríkur Páll
Eiríksson, Kolbrún Sigurðardóttir,
Árni Pétursson, Indriði Gíslason,
Höskuldur Þráinsson og Eygló
Eyjólfsdóttir. Síðdegis í dag og í
fyrramálið starfa umræðuhópar,
en niðurstöður umræðuhópa verða
kynntar á málþingi kl. 14 á morg-
un, iaugardag. Um kvöldið fer
fram árshátíð Samtaka móðurmál-
skennara. -ekh
KARTÖFLURNAR
úr J>ykkvabænum
hafa aldrei verið betri
Þykkvabæjarkartöflur
* Franskar -
* Parísar -
* Forsoðnar -
Flestum finnst franskar
kartöflur og Parísarkartöfiur
bragðast einstaklega vel með öllum
grilluðum og steiktum mat. Kjötréttum
ogfiskréttum. Og viljirþú venjulegar
kartöfiur þá eru þcer forsoðnu úr
Þykkvabœnum ekki bara tilbúnar
eftir örskamma stund heldur einnig
ákafiega gómsœtar. En bragðgœði
kartafina erengin tilviljun. í Þykkva-
bœnum hafa verið rœktaðar kartöflur
í áratugi. Og bragð þeirra og útlit
endurbætt jafnt og þétt. Kartöfluverk-
srniðja Þykkvabœjar byggir á þessari
hefð. Stöðugar endurbœtur fram-
leiðslunnar ár eftir ár. Kartöfiurnar
úr Þykkvabœnum hafa aldrei
verið betri.
ISý úrvalsframleiðsla
- nýjar úrvalskartöflur.
Með forsoðnum kartöfium höfum við
tekið af þér mesta ómakið. Þú hitar
þœr bara upp á 3-5 mínútum í
sjóðandi vatni.
Franskar eða Parísar kartöflur án
fyrirhafnar: Þú hitar kartöfiurnar í
ofnskúffunni, grillinu, pönnunni eða
þykkbotna potti. Leikur einn! Upp-
skriftir á umbúðunum.
Dreifing: Símar 12388 & 23388
KARTÖFLUVERKSMIÐJA ÞYKKVABÆJAR HF.
p'