Þjóðviljinn - 29.04.1983, Blaðsíða 2
2 SÍÐ.A - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 29. apríl 1983
Minn-
ingar-
athöfn um
Kristián
VIII.
Konungdómur Kristjáns VIII.
stóð ekki lengi. Hann ríkti aðeins
átta ár, andaðist 21. janúar 1848,
en lát hans fréttist ekki út til ís-
lands fyrr en 14. apríl.
Kristján konungur hafði í ýmsu
reynst hliðhollur Islendingum og
þótti þeim hlýða að efna til
minningarhátíðar er lát hans
spurðist. Af guðsþjónustu gat þó
ekki orðið þar sem dómkirkjan
var ekki fullfrágengin. Fór at-
höfnin því fram í hátíðarsal
Lærða skólans, (Latínuskólans),
og gengust forstöðumenn hans og
Prestaskólans, þeir Sveinbjörn
Egilsson rektor og dr. Pétur Pét-
ursson, einkum fyrir henni.
Minningarræðuna flutti dr. Pétur
en þeir Sveinbjörn rektor og Gísli
Thorarenssen ortu hvor sinn
sálminn og skólapiltar sungu
undir stjórn Péturs Guðjóns-
sonar organista og söngkennara.
Viðstaddir athöfnina voru um
300 manns og þótti hún í öilu fara
vel fram og virðulega.
-mhg
Skák
Þegar vora tekur fer allt mannlíf að
hressast. Gróður fer að taka við sér og
farfuglar gera hreiður sín hér og þar.
Þá skríða trillukarlarnir úr híði sínu
og gera sig klára fyrir sumarvertíðina.
Þá er fjör í bœ. Þjóðviljinn lagði leið sína
niður að höfn
og út á Ægissíðu og festi það á filmu
er fyrir augu bar...
Karpov að tafli - 130
Karpov var í góöu formi í flokkakeppninni
og vann fjórar fyrstu skákir sinar. Fyrst
Spasskí, þá Grigorjan og Kupreichik og
loks Gurgenidze. Hann klikkti svo út meö
jafnteflum gegn Tal, Petrosjan og Beljav-
skí. Viö skulum líta á niðurlag skákar hans
viö Gurgenidze:
Karpov - Guregenidze
Sterkt fripeð á b - línunni tryggir hvítum
sigurinn en á leíöinni bætir Karpov við sig
einum ávinningi...
30. eS! Hc5
(Auövitað ekki 30. - dxe5 3I. c5 o.s.frv.)
31. exd6 exd6
32. Hc2! Hxc2
33. Bxc2 Hxc4
34. Be4 Hc8
35. b6 Hb8
36. b7 Bf5
(Annars kemur 37. Ha1 og 38. Ha8.)
37. Bxf5 gxf5
38. Kf2 Kf6
39. Ke3 Ke5
40. Hb5+ Ke6
41. Kd4 f4
- Hér fór skákin í biö en svarlur gafst upp
án þess 'að tefla frekar. Hann lendir í
leikþröng fyrr eöa siðar.
Bátsverjar á Val RE. Frá vinstri: Magnús Þórisson, Reynir Haukur
Hauksson og Hilmar Helgason.
Ætti að leiða
heitt vatn
í Faxaflóa
...Og þá
brotnaði
mótorinn
„Þetta er heldur dræmt“ sögðu
þeir félagarnir á Val RE þar sem
þeir voru að dytta að netunum og
ætluðu út um kvöldið.Aprílmán-
uður hefur oft verið besti mán-
uðurinn en hann hefur brugðist.
Sjórinn er alltof kaldur. Ætli það
sé ekki best að láta hitaveituna
renna í Faxaflóa. Þá færi þetta
Niður við Ægissíðu hittum við
trillukarl cins og þeir gerast best-
ir, Sigurjón Gíslason heitir hann
og var að dytta að trillunni sinni í
vorblíðunni. Hann smíðaði sína
trillu sjálfur fyrir mörgum árum.
Hann hefur átt heima í Holtunum
alla sína tíð.
»Ég ræ einn. Það þykir mér
best. Þó kemur fyrir að menn séu
með mér í þessu, Hvernig mér líst
á sumarið? Tja, það er nú það. Ef
það verður eitthvert sumar. Jú
ætli þetta kómi ekki allt þegar
það fer að hlýna. Þeirhafa nú víst
orðið varir hérna úti fyrir. Ó, já.“
Hvenær heldurðu að þú komist
út?
,,Ég veit það ekki. Maður þarf
að dytta að trillunni. Þetta er tal-
svert verk. Mótorinn brotnaði
hjá mér í hitteðfyrra þegar tril-
luna rak hér upp í vonskuveðri.
Þá fékk ég mér nýjan mótor.
Þetta er góður mótor hygg ég. Ég
ætla á rauðmagann til að byrja
með. Svo rennir maður fyrir ýsu
og þorsk. Það held ég...“
—hól.
kannski eitthvað að glæðast,
sögðu þeir og hlógu.
Valur RE er 30 tonna bátur
sem gerir út á þorsk. Meiningin
var að leggja netin einhversstað-
ar út frá Akranesi. Til marks um
aflaleysið sögðu þeir að í síðasta
túr hefðu fengist 2 tonn sem
auðvitað væri afleitt í apríl.
Gíslason.
Þessar vösku prjónákonur voru að kynna sér hið nýja band frá Álafossi
í versiuninni að Vesturgötu 2 þegar okkur bar að garði. Talið frá
vinstri: Ingibjörg Ófeigsdóttir, Anna Kristín Hrólfsdóttir, Lára Gunn-
arsdóttir, Mariín Haraldsdóttir og Guðrún Haraldsdóttir. Þær sögðu
hið nýja band mjög skemmtilegt og spáðu því vinsældum. (Liósm.
-eik-).