Þjóðviljinn - 29.04.1983, Blaðsíða 11
Föstudagur 29. apríl 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
íþróttir Víðir Sigurðsson
Úrslitaleikur bikarkeppni HSÍ í kvöld:
Lokauppgjör tveggja stórliða
inga, Þorbergur fer til Vestmanna-
eyja en hinir hætta. Með KR-liðið
er meiri óvissa, Anders Dahl fer
örugglega og vafi er með nokkra
leikmenn íviðbót. Alfreð Gíslason
er í sigtinu hjá vestur-þýskum fé-
lögum, Gunnar bróðir hans hefur
verið volgur fyrir sínu gamla liði,
K A, þótt KR-ingar fullyrtu í gær að
hann yrði urn kyrrt, og leyndar-
dómsfull hula ríkir yfir dvalarstað
Stefáns Halldórssonar næsta vetur.
Það er erfitt að spá fyrirfram um
sigurvegara í þessurn úrslitaleik.
Allt bendir til þess að hann verði
tvísýnn og spennandi og í vetur
hafa þau unnið hvort annað á víxl. í
mótsleikjum hafa Víkingar þar
vinninginn, 5:3, en Anders Dahl
tók skýrt fram að KR hefði sigrað í
tveimur æfingaleikjum liðanna,
þau væru því jöfn, 5:5, og leikurinn
í kvöld þar með lokauppgjör þeirra
á milli í vetur.
Eins og áður sagði hefst leikur-
innkl. 20.15 enáundan,eðakl. 19,
mætast Valúr og ÍR í úrslitaleik í
bikarkeppni kvenna. Á eftir, eða
kl. 22, hefst í Sigtúni uppskeruhá-
tíð handknattleiksmanna en þar
verður verðlaunaafhending fyrir
allar deildir karla og kvenna. Pað
er full ástæða til að hvetja hand-
knattleiksáhugamenn til að mæta á
þennan lokaleik handknattleiks-
vertíðarinnar, þar verður varla
nokkur svikinn, nema kannski
stuðningsmenn tapliðsins í
leikslok.
-VS
Kveðjuleikur beggja þjálfara og margra leikmanna
í kvöld kl. 20.15 mætast í
Laugardalshöllinni tvö af sterkustu
handknattlciksliðum landsins,
Víkingur og KR, í úrslitaleik
bikarkeppni HSÍ. KR-ingar mæta
til leiks sem handhafar bikarsins,
Víkingar sem íslands- og
Reykjavíkurmeistarar. Bæði lið
hafa því að stórum takmörkuni að
stefna, KR að halda bikarnum í
Vesturbænum og Víkingar að ná
því einstæða afreki að vinna
þrefalt.
„Við viljum ekki verða aftur
númer tvö“, sagði þjálfari KR,
Anders Dahl Nielsen, í gær.
Anders leikur nú sinn síðasta leik
fyrir KR en hann heldur heim til
Danmerkur og leikur þar næsta
vetur. „Með æfingaleikjum verður
þetta ellefta viðureign liðanna í
vetur, liðin þekkja hvort annað út
og inn, en Víkingar hafa það þó
framyfir okkur að hafa leikið
lengur saman. Við gerum okkar
besta“, sagði Anders.
Þjálfari Víkings, Bogdan Kow-
alczyck, er einnig að kveðja, þetta
verður síðasti leikur Víkinga undir
hans stjórn. „íslandsmótið hefur
alltaf verið í fyrirrúmi hjá okkur“
sagði hann. „Áf þeim sökum höf-
um við ekki alltaf náð upp þeirri
stemningu í bikarkeppninni sem er
nauðsynleg. Þetta er ekkert eins-
dæmi, meistaralið um alla Evrópu
hafa átt við sama vandamál að
Leikir Víkings og KR í vetur hafa einkennst af mikilli baráttu og mönnum stunduin orðið heldur heitt í
hamsi. Þarna hefur -eik- fest á filmu brottvísun danska þjálfarans hjá KR, Anders Dahl Nielsen, í einni
viðureign liðanna í úrslitakeppni íslandsmótsins.
stríða, en við breytum því kannski
núna. Við höfum nýtt markmið að
stefna að, vinna þrefalt, og að auki
hætta margir eftir þennan leik og
þá langar að sjálfsögðu óhemju
mikið í bikarinn“.
Víkingur og KR urðu í fyrsta og
öðru sæti á nýloknu íslandsmóti og
betri útslitaleik geta handknatt-
leiksunnendur því vart farið framá.
Það er einnig ljóst að þetta verður í
síðasta skipti sem þessi tvö lið
verða skipuð öllum þeim leik-
mönnum sem hafa náð svo góðum
árangri í vetur. Auk Bogdans yfir-
gefa Þorbergur Aðalsteinsson,
Ólafur Jónsson, Árni Indriðason
og Páll Björgvinsson raðir Vík-
Hvað gerist í út-
lendingamálunum
hjá Juventus?
Dooley
kennir
kennurum
Jim Dooley, landsliðsþjálfari í
körfuknattleiíc, verður með nám-
skeið á vegum íþróttakennarafé-
lags íslands á morgun, laugardag, í
íþróttahúsi Kennaraháskólans. Frá
kl. 13-18 fer hann í gegnum nýj-
ustu kennsluatriðin í körfuknatt-
leiknum með íþróttakennurum og
eru þeir eindregið hvattir til að
mæta og eru beðnir um að taka
íþróttagallann með sér.
/
Armann
sigraði
Ármenningar urðu sigurvegarar
á Múllersmótinu í svigi sem fram
fór í 17. skipti í Bláfjöllum í fyrra-
kvöld. Sveit þeirra hlaut saman-
lagðan tíma 291,6 sekúndur en
sveit í R sem var önnur fékk tímann
304,3 sekúndur. Mótsstjóri var Er-
lendur Björnsson.
í sigursveit Ármenninga voru
Helgi Geirharðsson, Einar Úlfs-
son, Kristinn Sigurðsson og Árni
Þór Árnason. Sveit ÍR skipuðu
þeir Þór Ómar Jónsson, Gunnar
Smárason, Arnar Þórisson og Örn-
ólfur Valdimarsson.
-VS
Reykj avíkurmótið
í knattspyrnu:
V íkingur —
Fylkir 2:1
í gærkvöldi fór fram leikur á
Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu.
Áttust þar við Víkingar og Fylkir
úr Árbæjarhverfi og sigruðu Vík-
ingar 2:1. Næsti leikur er á laugar-
dag milli KR og Vals.
- GFr.
ítölsku meistararnir í knatt-
spyrnu, Juventus, hafa valdið
mörgum aðdáendum sínum von-
brigðum í vetur. Lið með sex
heimsmeistara innanborðs plús
tvær af skærustu stjörnum evróp-
skrar knattspyrnu, Frakkann Mic-
hel Platini og Pólverjann Zbigniew
Boniek, hefði á pappírunum átt að
fara létt með að verja mcistaratitil
sinn og gera það með glæsibrag.
Annað hefur verið uppi á tening-
unum. Slæmur kafli um miðbik
vetrar þar sem liðið lék sjö leiki í
röð án sigurs sá fyrir því að AS
Roma náði góðu forskoti sem Ju-
ventus vinnur tæplega upp þótt
heldur hafi dregið saman með
liðunum að undanförnu. Þegar
þrjár umferðir eru eftir af ítölsku 1.
deildinni hefur Roma 38 stig gegn
35 hjá Juventus svo Rómverjar
virðast hafa titilinn í höndum.
Á móti kemur að Juventus hefur
gengið vel í Evrópukeppni meist-
araliða, hafa þar m.a. slegið út
Evrópumeistarana ensku, Aston
Villa, með tveimur sannfærandi
stigum. Liðið leikur þar til úrslita
gegn Hamburger frá Vestur—
Þýskalandi þann 25. maí og þar
krefjast ítalir sigurs, þeir sætta sig-
ekki við að verða númer tvö.
Stórstirnunum erlendu, Platini
og Boniek, hefur gengið illa að ná
upp sínu fyrra formi á sínu fyrsta
keppnistímabili í ítölsku knatt-
spyrnunni. Platini hefur sótt sig
eftir því sem liðið hefur á keppnis-
tímabilið og er nú kominn í hóp
markahæstu manna 1. deildarinnar
en Boniek hefur valdið miklum
vonbrigðum. Vitað er að félagið
hefur verið að leita að nýjum út-
lendingum í staðinn en þó verður
að telja líklegt að það vilji halda
Platini áfram eftir frammistöðu
hans nú síðari hluta vetrar.
Hver kemur í staðinn fyrir Boni-
ek? Margir hafa verið tilnefndir en
þrjú nöfn virðast nú vera efst á lista
Italanna, tvö vestur-þýsk og eitt
enskt.
Uli Stielike, varnarmaðurinn
snjalli frá Real Madrid á Spáni,
hefur verið undir smásjá og mun
sjálfur vera meira en lítið tilkippi-
legur ef til kæmi. Á móti kemur að
Juventus vantar tæpast varnar-
menn, menn eins og Gentile, Scirea
og Cabrini eru styrkar stoðir í
blóma síns ferils.
Pierre Littbarski, hinn ungi út-
herji frá Köln, sent er talinn einn
.efnilegasti knattspyrnumaður Evr-
ópu um þessar mundir. Aldur
hans, eða öllu heldur æska, vinnur
með honum, hann er aðeins 22 ára
gamall en hefur þegar skapað sér
stórt nafn og mikið álit í evrópskri
knattspyrnu.
Gordon Cowans, nýliðinn í
enska landsliðinu, er sá þriðji og
kannski óvæntasti í þessum hópi.
Cowans er miðjumaður í þeim stíl
sem þykir vinsælastur á ltalíu og
forráðamenn Juventus hrifust
mjög af honum þegar félagið mætti
Aston Villa í Evrópukeppninni í
mars. Cowans hefur leikið mjög
vel í vetur, byrjaði vel með enska
landsliðinu í sínum fyrstu lands-
leikjum nú á síðustu vikum og hann
á framtíðina fyrir sér; þótt hann
virðist vera búinn að leika með
Villa í fjölda ára er hann aðeins 24
ára gamall.
Vangavelturnar eru miklar og
óvíst hvað gerist. Juventus er félag
sem ekki er ánægt með að vera
númer tvö, á hvaða vígstöðvum
sem er, og lætur einskis ófreistað til
að næla í bestu knattspyrnumenn
heims til að ná betri árangri. Ef
þeir skila ekki sínu verða þeir að
víkja, hvoVt sem nafnið er Boniek
eða Platini.
-VS
KR-lngar
fara tfl
Færeyja
Löngu og ströngu keppnistíma-
bili hjá 1. deildarliði KR í hand-
knattleik lýkur ekki með úrslita-
leiknum í bikarkeppninni í kvöld.
Um aðra helgi, dagana 7.-10. maí
vcrða þeir ■ Færeyjum í boði þar-
lenda handknattleikssambandsins
og leika þrjá leiki gegn landsliði
Færeyinga.
Þetta verður þriðja utanlands-
ferð KR-inga á tímabilinu, fyrst var
það Norðurlandaferð sl. sumar og
síðan Þýskalandsför um jólin.
Keppnistímabilið er því farið að
spanna 11-12 mánuði, KR-ingar
hófu æfingar þann 1. júní í fyrra-
sumar og frí því af skornum
skammti.
Það er skammt stórafmæla á milli
hjá íþróttafélögum
höfuðborgarinnar þessa dagana.
Á sumardaginn fyrsta fögnuðu
Víkingar sínum 75 afmælisdegi og
á sunnudaginn, sjálfan 1. maí, ná
Framarar sama áfanga.
Knattspynufélagið Fram var
stofnað þann 1. maí 1908.
Knattspyrnan var í fyrirrúmi
hjá Frömurum fyrstu áratugina
en félagið sendi fyrst lið til keppni
á íslandsmótinu í handknattleik
árið 1940. Deildaskipting var tek-
inn upp innan félagsins árið 1963,
körfuknattleiksdeild var stofnuð
1969, skíðadeild 1972 og blak-
deild 1979. Þá var félag Fram-
kvenna stofnað 1977 og hafa þær
unnið geysimikið starf innan fél-
agsins.
Framarar standa í miklum
framkvæmdum á þessu afmælis-
Fram
75 ára
þairn
1. maí
ári. í byggingu er annar áfangi að
félagsheimili þeirra, en sá fyrsti
var tekinn í notkun árið 1975.
Unnið hefur verið að nýjum gras-
velli við hlið þess gamla sl. þrjú ár
og verður hann tilbúinn í sumar.
Á svæði félagsins við Safamýri
vonast Framarar einnig eftir því
að geta reist íþróttahús innan
fárra ára en þeir hafa ekki enn
fengið samþykkt fyrir því á'fjár-
lögum þrátt fyrir að hafa sótt um í
þrjú ár.
Innan félagsins eru taldir um
1500 virkir félagar og um 700 til
viðbótar eru skráðir hjá aðal-
stjórn svo alls teljast Framarar á
þriðja þúsundið.
Framarar verða með opið hús,
kaffisamsæti og annað því fylgj-
andi, í Átthagasal Hótel Sögu á
afmælisdaginn, sunnudag, og
hefst það kl. 16. Þar verður tekið
á móti Frömurum og öðrum vel-
unnurum félagsins.
-VS
-vs