Þjóðviljinn - 29.04.1983, Page 16
meirihlu tast j óm
sagði Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins
Ég tel
Við fórum yfir stöðuna eins og
hún er núna í þjóðmálunum. For-
setinn ræðir svo við þrjá aðra aðila
frá stjórnmálaflokkunum á eftir og
tekur svo sínar ákvarðanir að þeim
loknum.
Svavar Gestsson hefur undan-
farna daga átt viðtöl við forystu-
menn flokkanna um stjórnmálaá-
standið. Á miðvikudagsmorgun
ræddi hann við Geir Hallgrímsson
og Vilmund Gylfason og síðdegis
þann dag við Kjartan Jóhannsson.
I gær ræddi Svavar við Steingrím
Hermannsson og síðdegis ræddu
þau Guðrún Helgadóttir og Svavar
við þingmenn Kvennalistans, þær
Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur,
Kristínu Halldórsdóttur ög
Guðrúnu Agnarsdóttur.
Þegar Svavar kom frá viðræðum
við forseta í gær spurði blaðamaður
Morgunblaðsins hvort hann hefði
gefið forsetanum einhver ráð varð-
andi stjórnarmyndun.
Forsetinn tekur sínar sjálfstæðu
ákvarðanir án minnar hjálpar. Ég
skýrði henni frá viðhorfi Álþýðu-
bandalagsins til stöðunnar í stjórn-
málunurh eins og hún er nú.
að forsetinn taki sínar sjálfstæðu
ákvarðanir og ég er ekki með pred-
ikanir yfir Forseta Islands eins og
Morgunblaðið.
Svavar var síðan spurður um
hvert væri viðhorf Alþýðubanda-
lagsins nú?
Ég tel að höfuðatriðið sé að
mynda meirihlutastjórn og það
fljótt.
Hvers konar stjórn?
Að sjálfsögðu væri það að sú
stjórn gengi sem næst sjónarmið-
um Alþýðubandalagsins og við
leggjum á það áherslu að fram-
kvæmdur verði sá samstarfsgrund-
völlur sem við lögðum fram í kosn-
ingunum og við erum tilbúin að
stuðla að því að koma honum í
framkvæmd. Ég tel hinsvegar að
þeir flokkar sem hafa verið utan
stjórnarráðsins um hríð telji að það
sé kominn tími til að þeir komist
þangað inn, þótt ég sé annarrar
skoðunar og það er kannski ekki
óeðlilegt að þeir fái að spreyta sig
fyrst.
Svavar var spurður hvort álmálið
og flugstöðvarmálið á Keflavíkur-
flugvelli yrðu sett á oddinn í stjórn-
armyndunarviðræðum Alþýðu-
bandalagsins eins og Mogginn
hefði skýrt frá í dag?
Ég hef nú bara ekki lesið Morg-
unblaðið í dag, en hinsvegar hljóta
þessi mál að verða rædd í sambandi
við stjórnarmyndun.
Svavar var þá spurður hvort á
þetta hefði verið lögð áhersla í
viðræðum undanfarið?
Pið megið ekki gleyma því að
það eru engar stjórnarmyndunar-
viðræður hafnar enn. Ég er til að
mynda búinn að tala við forystu-
menn allra flokkanna. Þar lagði ég
fram samstarfsgrundvöllinn okkar
og bað þá að kynna sér hann sem
best, en ég legg áherslu á að engar
stjórnarmyndunarviðræður eru
hafnar.
Loks var Svavar spurður um
hvernig honum litist á Geir Hall-
grímsson sem forsætisráðherra?
Mér finnst nú nær að spyrja
Sjálfstæðismenn hvernig þeim lítist
á hann sem slíkan, ekki mig.
-S.dór.
Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins hjá forseta íslands í gær.
Hann benti blaðamönnum á að nær væri að spyrja Sjáifstæðismenn hvern-
ig þeim litist á Geir sem forsætisráðherra frekar en sig!
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir þingmaður Kvennalistans sagði að ekki
hefði skort pólitísk bónorð undanfarna daga. Ljósm. eik.
Mildð biðlað tð okkar
segir Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
þingmaður Kvennaframboðsins
„Forseti gaf mér ýmis ráð og við
spjölluðum vítt og breitt. Fundur-
inn var ákaflega ánægjulegur“,
sagði Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir þingmaður Kvennafram-
boðsins þegar hún kom af fundi
Vigdísar Finnbogadóttur síðdegis í
gær.
„Ég tel ekki rétt að tala um
stjórnarmyndunarviðræður í
fjölmiðlum áður en formlegar við-
ræður hefjast“, sagði Sigríður,
aðspurð um hugmyndir hennar um
næstu ríkisstjórn.
En nú hafið þið í Kvennafram-
boðinu átt viðræður við fulltrúa
annarra flokka. Eru það ckki form-
legar stjórnarmyndunarviðræður?
„Við höfum rætt við þá fram-
boðsaðila sem hafa boðið okkur á
sinn fund. Við höfum ekki boðið
neina á ol^kar fund. Það er ansi
mikið um að menn biðli til okkar“
Er samstjórn ykkar með
Sjálfstæðis- og Alþýðuflokki hugs-
anleg að þínu mati?
„Um það vil ég ekkert segja".
Munuð þið þrjár þingmenn
Kvennaframboðsins taka einar af-
stöðu um stjórnarþátttöku ykkar ef
af yrði?
„Kvennaframboðið hefur ekkert
flokksapparat en við þrjár sem
erum kjörnar munum ekki ráða því
einar heldur félagar í okkar sam-
tökum“.
Teljið þið ykkur í stakk búnar til
að taka sæti í ríkisstjórn?
„Það á eftir að reyna á okkar
hugvit og skynsemi“.
Eru línur eitthvað að skýrast
varðandi stjórnarmyndun?
„Það er of snemmt að segja
nokkuð um það“, sagði Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir.
-Ig-
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 manudag til fostudags. Utan þess tíma er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum símum: Ritstjórn Aöalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná i afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Mmim
Föstudagur 29. apríl 1983
St j órnmálaástandið:
Formennirnir á
fund forseta
en vildu fátt segja að fundi loknum
Formenn stjórnmálaflokkanna gengu
í gær á fund Vígdísar Finnbogadóttur
forseta Islands og ræddu við hana
stjórnmálaástandið eins og það blasir nú
við.
Fyrstur kom Geir Haligrímsson, kl.
13.30 en síðan kom Steingrímur Her-
mannsson, þá Svavar Gestsson, Kjartan
Jóhannsson, Vilmundur Gylfason og
loks Sigríður Dúna, sem skipaði efsta
sæti kvennalistans í Reykjavík.
-S.dór
Vilmundur Gylfason:
Skynsamlegast að segja ekkert
„Ég lagði áherslu á það við for-
setann, að fuiltrúi stærsta þing-
flokksins fengi stjórnarmyndunar-
umboðið.
Þá skiptir engu hvort viðkomandi
sitji innan eða utan þings“, sagði
Vilmundur Gylfason formaður
Bandalags jafnaðarmanna þegar
hann kom af fundi forseta.
Hver er staða bandalagsins í yfir-
standandi stjórnarmyndunarvið-
ræðum?
„Mér finnst skynsamlegast að
segja ekkert um það núna, né hvað
er líklegast í þeim efnum. Ég legg
hins vegar áherslu á að þing komi
saman fljótlega," sagði Vilmundur
Gylfason. -Ig.
Kjartan Jóhannsson:
Framsókn og íhald fara saman
Kjartan Jóhannsson formaður
Alþýðuflokksins sagði aðspurður
þegar hann kom af fundi forseta, að
hann teldi líklegast að Sjálfstæðis-
flokkur og Framsóknarflokkur
næðu saman um ríkisstjórnar-
myndun.
Hann sagðist hafa orðið var við
þreifingar þar á milli og menn gætu
líka lesið sér til á milli línanna hjá
forystumönnum þessara flokka.
-Ig-
Steingrímur Hermannsson:
Efnahagsaðgerðir fyrlr 1. júní nauðsyn
Við ræddum um stöðu þjóðmál-
anna, efnahagsmálin og ég gerði
forseta grein fyrir því sem við
Framsóknarmenn teljum mikil-
verðast í stöðunni..
.. og hvað er það?
Auðvitað niðurtalningin. Síðan
ræddum við um stöðu atvinnumál-
anna og sjávarútveginn og ég tel að
þetta hafi verið gagnlegar alhliða
umræður. Ég lagði áherslu á að
mynduð yrði sterk meirihluta-
stjórn sem allra fyrst.
Ert þú með einhverjar hug-
myndir um meirihlutastjórn?
Við erum tilbúnir Framsóknar-
menn að taka þátt í viðræðum um
myndun meirihlutastjórnar við
hvern sem er.
Við Sjálfstæðisflokkinn?
Já, eins og aðra.
Hvað viltu segja um aðgerðir í
efnahagsmálum fyrir 1. júní?
Ég tel að efnahagsaðgerðir fyrir
1. júní séu nauðsynlegar hvað sem
stjórnarmyndun líður.
Og þá að þessi starfsstjórn sjái
um það ef ekki næst að mynda
meirihlutastjórn fyrir þann tíma?
Ég tel það já, en ég tek fram að
ég tel ekki að setja eigi bráða-
birgðalög nema hreint neyðar-
ástand skapist, en fari svo verður
að gera það, sagði Steingrímur
Hermannsson.
-S.dór
Höfuðatriðið er