Þjóðviljinn - 07.05.1983, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 07.05.1983, Qupperneq 7
Helgin 7. - 8. maí 1983 ÞJÓÐVHJINN - SÍÐA 7 Þórarinn Þórarinsson frá Eiðum: Skrúfufélagið í Fljótsdal Við lestur greinar eftir Guðlaug Arason, er birtist í helgarblaði Þjóðviljans 12.-13. febrúar, er hann nefnir „Hvenærvarfyrsta verkfallið?“ og nefnirí því sambandi árið 1899, rifjaðist uppfyrir undirrituðum samtal er hann átti við gamlan Héraðsmann 1930. - Þessi aldraði maður hét Kristján Jónsson með viðurnefninu Vopni vegna uppruna síns frá Vopnafirði. Kristján Vopni, eins og hann tíðast nefndist, var eins konar heimilis- maður á Eiðum í tíð búnaðarskólans þar, bæði sem aðstoðar„kennari“ og starfsmaður við búið. í Eiðasögu minnist höfundur, Benedikt Gíslason frá Hofteigi, Kristjáns og segir hann „mikinn gáfumann og sér um skoðanir, fræðimaður á sögu og forna háttu, leikinn og lesinn í fslendingasögun- um og forntungunni". Hann var fæddur á Vopnafirði 1860 og kom austur í Fljótsdal 14 ára gamall (1874) eftir því sem Kristján sagði mér. Hann minntist þess að þá hefði hann séð kartöflur í fyrsta skipti, hefðu þrjár verið bornar á borðið þar sem hann mataðist. Það var í Bessastaðagerði í Fljótsdal. Þá var þar á bæ ungur maður sem Kristján heillaðist af að eigin sögn. Guðmundur hét hann og var Halla- son, sérlega gjörfulegur, hvatlegur og hvatvís, sagði Kristján. - Guð- mundur þessi varð síðan bóndi á Hreimsstöðum í Hjaltastaðaþing- há. Hann kvæntist Ragnhildi Ól- afsdóttur frá Mjóanesi og meðal barna þeirra var Einar Guðmunds- son, kunnur heildsali í Reykjavík. Þegar Kristján kemur austur í Fljótsdal 1874, eins og áður sagði, var Guðmundur Hallason ásamt fleiri vinnumönnum í Fljótsdal búnir að binda með sér samtök í þeim tilgangi að fá árskaupið sitt hækkað. Mig minnir Kristján segja að árskaupið - sumarkaupið? - hafi verið 20 kr. auk einhverra fata. Vel má þó vera að hér misminni mig. Bændur í Fljótsdal, þeir er vinnumenn héldu, brugðust ókvæða viðog bönnuðu þeim fé- lögum hús sín til fundarhalda og hefðu þeir neyðst til að halda fundi sína úti. Félagið fékk skjótt nafn og var kailað „Skrúfufélagið“. Var nafngiftin, að sögn Kristjáns, rakin til séra Péturs Jónssonar prests á Valþjófsstað, sem þar var prestur á árunum 1858-1877. Þetta hefur því verið á síðustu árum séra PétUrs. Því miður hafði ég ekki rænu þá að spyrja Kristján Vopna nánar um þennan félagsskap, Skrúfufélagið, nema hvað hann sagði að mikill hiti hefði verið í mönnum, einkum eftir að félagsmenn voru ekki taldir í hús- um hæfir, en það mundi Kristján að flestir vinnumannanna hefðu sagt upp vistinni og neyddust þá bændur til að hækka kaupið um 2 krónur og á þá hækkun féllust fé- lagsmenn. ÍS1515 E! 15 00 E! 15 @ 15 E E! E? E! 15 @ E E! ícl Icl ÍS rs rs rs rs rs rs rs rs rs rs rs rs BORGARSPÍTALINN LAUS STADA rs rs rs rs rs rs ,ÍS Hjúkrunarfræöingar Hjúkrunar- og endurhæfingardeild. Staða aðstoðardeildarstjóra á hjúkrunar- og endurhæfingardeild á |—. Grensás er laus til umsóknar. ICl Gjörgæsludeild, (post-op) vinnutími kl. 13.00-17.00. rs Skurðdeild, sernam ekki skilyrði. f—1 Skurðlækningadeild A-3 og A-5, fullt starf og hlutastarf. Hjúkrun- IGJ arfræðinga vantar til sumarafleysinga. rs Upplysingar eru veittar a skrifstofu hjukrunarforstjora i sima 81200. jg Reykjavík, 6. maí 1983. BORGARSPÍTALINN 0 Q81 200 [q] Borgarspítalinn. eíe1e1e1e1e1e1e1e1e1e1e1e1e1e1e1e1e1e1e1 e1 Útboð Tilboö óskast í innanhússfrágang á húsi fyrir þroskahefta íTungudal viö ísafjörð. Heildar- stærð hússins er um 1550nT. Útboösgagna má vitja hjá Magnúsi Reyni Guömundssyni, Bæjarskrifstofunum á ísa- _ firði, og á Teiknistofunni Óöinstorgi, Óðins- götu 7, Reykjavík, gegn 2.500.00 kr. skila- tryggingu. Tilboö veröa opnuö hjá Magnúsi Reyni Guömundssyni, föstudaginn 20. maí 1983 kl. 11.00. Svæðisstjórn Vestfjarðasvæðis um málefni þroskaheftra og Byggingarnefnd Styrktarfélags vangefinna Vestfjörðum. Upplýsingar Tæknilegar upplysingar Steinsteypa er blanda af sandi, möl, sementi, vatni og íblöndunarefnum, er hafa bætandi áhrif á steypuna. Steinsteypa er flokkuð niður í brotþolsflokka eftir styrkleika. Algengustu brotþolsflokkar eru í röð eftir vaxandi styrkleika S-120, S-160, S-200, S-250 og S-350, en þessi flokkun táknar 28 daga brotþol 15 X 30 cm sívalninga, sem steyptir eru úr viðkomandi steypublöndu. í venjuleg hús er S-200 algengast. Þykkleiki steinsteypu er mældur eftir því hversu marga cm sérstök keila úr blautri steypu sígur þegar mótið er fjarlægt. Því hærra sem sigmálið er, því þynnri er steypan. Venjuleg tregfljótandi steypa er með sigmáli 5-10 cm , þunnfljótandi með meira en 20 cm sigmáli. Steypan verður því þynnri sem meira vatni er bætt I hana. Of mikið vatn í steypu hefur skaðleg áhrif. Aldrei skyldi setja meira vatn í steypu, en minnst verður komist af með. I steinsteypu er blandað ýmsum efnum til að breyta eiginleikum hennar. Loftblendi- og þjálniefnið H-Loft frá Woermann er sett í alla steypu frá Steypustöðinni hf til að auka veðrunarþol steinsteypunnar, draga úr vatnsþörf og auðvelda niðurlögn hennar. Flotefni eru sett í steypuna, þar sem steypan þarf að vera fljótandi, léttfljótandi eða þunnfljótandi við niðurlögn, eða þar sem þarf að fá slétta áferð á steypufleti, án þess að þau veiki hana, eins og verður við þynningu með vatni. Eftir ítarlegar samanburðarrannsóknir á hinum ýmsu efnum mælir Steypustöðin hf með flotefninu Flot 78. Steinsteypan er burðarás mannvirkisins. Gæta verður vel við niðurlögn steinst'eypu að ekki myndist göt í veggi eða að steypa skilji sig og myndi malarhreiður. Vandið til allrar meðferðar steinsteypu. Alkalískemmdir í þeim mannvirkjum á Reykjavíkursvæðinu, sem notuð hefur verið möl og sandur úr Hvalfirði hefur borið á skemmdum í steinsteypu, vegna efnabreytinga er eiga sér stað milli sementsins, saltsins og steinefnanna. Kísilsýraísteinefnunum myndarmeðalkalíumsementsinsog saltsins kísilsýruhlaupsem sprengir steypuna. Til að koma í veg fyrir slíkar skemmdir hefur kísilryki verið bætt út í sementið, og notkun óvirkra steinefna verulega aukin í samræmi við niðurstöður rannsókna er Steinsteypunefnd hefur látið gera. Steypustöðin hf hefur ávallt notað og haft á boðstólum óvirk steinefni. Steinsteypukaup Sú hugmynd að dreifa steinsteypu meö bifreiðum frá blöndunarmiðstöö þróaðist í Bandaríkjunum og fyrst slíkra stöðva íEvrópu.Steypustöðin hf var reist á Islandiáriðl947. Steypustöðin hf býður húsbyggjendum þjónustu sína. Við reynum að fullnægja óskum viðskiftavina okkareftir bestu getu. Skrifstofa okkar er við mynni Elliðaánna að Sævarhöfða 4. Sími okkar er 33600. Hafið samband við einhvern eftirtaldra aðila: Jón Ólafsson skrifstofustjóra, Svein Valfells verkfræðing, Halldór Jónsson verkfræðing. Steinsteypupantanir Verkstjóriokkar,sem tekur við steinsteypupöntunum,heitir Ottó Gíslason, s. 36470 eða 33600. Steypu þarf helst að panta með nokkrum fyrirvara þar eð hana þarf að framleiða um leið og hún er afhent. Steypustöðin hf tekur að sér að sjá um pöntun á steypudælu eða krana, ef annars er ekki óskað.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.