Þjóðviljinn - 07.05.1983, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 07.05.1983, Qupperneq 14
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 7. - 8. maí 1983 Anna Áslaug og Hjálmar: Það kom aldrei neitt annað til greina en tónlistin. Ljósm.: Atli. Tónlistin ofar öllu Síðustu tónleikar Musica Nova á þessu starfsári verða á Kjarvalsstöðum á sunnudagskvöld kl. 20.30. Það verða einleikstónleikarönnu Áslaugar Ragnarsdóttur á píanó en hún hefur undanfarin ár starfað í Munchen. Hún leikurverk eftir Satie, Messiean, Berio, Stockhausen, Liszt og bróður sinn Hjálmar Ragnarsson. Við náðum tali af þeim systkinum á fimmtudag. - Hvaða verk eftir þig eru það sem Anna Áslaug leikur, Hjálmar? - Þetta eru þrjár prelúdíur sem eru svo nýjar að blekið er varla þornað á nótunum. Þær eru samdar nú í kringum kosningarnar, og undir áhrifum frá þeim (þess skal getið að Hjálmar er eigin- maður Sigríðar Dúnu Kristmunds- dóttur, nýkjörins þingmanns). Prelúdíur eru litlir forleikir og þessar eru að mörgu leyti í hefð- bundnum stíl líkt og prelúdíur Chopins og Rachmaninoffs. Þær eru mjög harðar en um leið mjög rómantískar og krefjast þess að flytjandinn hafi krafta í kögglun- um. Síðasta prelúdían er samin upp úr kórlaginu Steinninn við ljóð eftir Stefán Hörð Grímsson en það samdi ég fyrr í vetur. - Nú starfar þú í Þýskalandi, Anna Áslaug. Hefurðu nóg að gera við píanóleik þar? - Ég kenni þar við tónlistarskóla en spila frekar lítið nú orðið en þó alltaf eitthvað það sem til fellur. Eg spilaði t.d. á Háskólatónleikum hér heima í byrjun apríl. - Ertu kannski á heimleið? - Ég læt hverjum degi nægjasína þjáningu. Hjálmar: Já, já, hún er á heim- leið. - Þið eruð börn Ragnars H. Ragnar skólastjóra Tónlistarskól- ans á ísafirði og systir ykkar er líka tónlistarkennari. Kom aldrei til greina annað en þið færuð í tónlist? - Við byrjuðum öll að læra á pí- anó 5-6 ára gömul hjá föður okkar og þó að við stæðum kannski fram- mi fyrir einhverju vali síðar, þá kom eiginlega ekki neitt annað til greina en að fara í tónlist. Þetta hefur verið svo snar þáttur í lífi okkar. - Semur þú tónlist, Anna? - Nei, það hef ég ekki gert síðan ég var 14—15 ára, þá hætti ég því. - Nú stjórnar þú Háskólakórn- um og semur tónlist, Hjálmar. Hefur þú lífsviðurværi þitt af þessu tvennu? - Ég kenni líka fulla kennslu við Tónlistarskólann og er húsmóðir. - Hvenær hefur þú tíma til áð semja? - Það geriégeftir kl. 10 á laugar- dagskvöldum. Ég sem seint á kvöldin og einstaka dag fæ ég líka til þeirra verka. - Er það ekki truflandi fyrir tón- skáld að vinna svo mikið með? - Ég tel að það sé mjög gott fyrir Viðtal við systkin- • • r in Onnu Aslaugu Ragnarsdóttur og Hjálmar Ragnars- son tónskáld að taka þátt í tónlistar- flutningi. En það þurfa þó að vera takmörk fyrir því hvað álagið er mikið. - Er eftirspurn eftir nýjum tón- smíðum? - ísland er eitt af fáum löndum í heiminum þar sem tónverk bíða ekki nema örfáa daga á borðinu. Anna Áslaug: Það er meiri áhugi á nútímatónlist hér en víðast hvar annars staðar. Hjálmar: Flytjendur sitja um að fá verk frá tónskáldum, enda eru þau í nánum tengslum við al- mennan tónlistarflutning hér en ekki einangruð fyrirbæri eins og vill verða sums staðar erlendis. -r Hvernig er þetta í Þýskalandi, Anna? - Þar er flutningur nútímatónl- istar miklu einangraðri en hér. Hún er flutt í pfnulitlum sölum og vitnast lítið meðal almennings því að ekkert er skrifað um hana í blöðunum. Það er að vísu fastur þáttur í útvarpi er nefnist Musica Viva þar sem Öutt er nútímatónlist en einungis eftir þekkt tónskáld. Ný tónskáld eiga erfitt með að komast að og þar eru flytjendur líka ekki eins spenntir að fá verk eftir unga, óþekkta menn. - Er íslensk tónlist flutt í Þýska- landi? - Nei, mjög lítið. Ég er oft spurð um Jón Leifs og Atla Heimi en ís- lensk nútímatónlist er mjög lítið flutt. Hjálmar: Já, hún er mun minna flutt þar en í ýmsum öðrum löndum. Það hefur verið mikið um slíkan flutning á Norðurlöndum, Hollandi, Belgíu, Frakklandi, Bandaríkjunum og upp á síðkastið á Bretlandi en Þjóðverjar hafa svo stóra hefð að baki sér að þeir telja sig lítið þurfa að leita til annarra þjóða í tónlist. - Hefurðu áður flutt verk eftir Hjálmar, Anna? - Nei, enda eru þessar prelúdíur fyrstu verkin sem hann hefur samið fyrir sólópíanó. - Hvað viltu segja um önnur verk á efnisskránni? - Ég leik t.d. píanóverk eftir Franz Liszt sem hann samdi síðustu æviár sín og hafa líklega aldrei áður verið flutt á íslandi. Þau eru um margt frábrugðin fyrri verkum hans og í þeim gætir vaxtarbrodda 20. aldar þó .að hann kæmist aldrei inn í þá öld sjálfur. „Þetta er æðislega erfitt og reynir mjög á þrekið en er geysilega skemmtilegt“. Sú sem mælir þessi orð er Ásdís Magnúsdóttir ballerína hjá íslenska dansflokknum en hún dansar nú aðalhlutverk í Fröken Júlíu í Þjóðleikhúsinu á móti Niklas Ek, einum þekktasta sólódansara Svía. Frumsýning á verkinu var í gær. Blaðamaður Þjóðviljans hitti Ásdísi að máli á miðvikudaginn eftirstrangar æfingar þann daginn. Hún lét fara vel um sig í sófa í setustofu Þjóðleikhússins eftirerfiðan dag og beið með ójireyju eftir að komastheimtilsín. feiknagóður dansari. - Er ekki styrkur fyrir þig að dansa á móti svo góðum dansara? — Það kallar það besta fram í manni sjálfri þegar mótdansarinn er pottþéttur og 100%. Ég hef áður dansað á móti Helga Tómassyni og Per Arthur Segerström og það er mjög gaman að fá hingað-svona stjörnur að öðrum ólöstuðum. - Telurðu þig vel undirbúna hjá íslenska dansflokknum að takast á hcndúr svona erfltt hlutverk? - Já. Nanna Ólafsdóttir er mjögfínn kennari og þjálfar mjög vel bæði þreklega og danslega. Þetta hefur verið mjög stíft að undanförnu og ég hef oft verið þreytt en nú finn ég að ég er aðfá aukið þrek á ný. Þetta kemur svona í bylgj um. - Hafa æfingar staðið yfir lengi? - Ég fór fyrst til Stokkhólms í mars og var þar í viku og lærði hlutverkið. Við Nanna fórum síðan yfir þetta í sameiningu hér heima og svo kom Jeremy 21. apríl og síðan Hin ástríðufulla FROKEN JÚLIA - Hvernig er að taka að sér svo margslungið hlutverk sem Fröken Júlía er, Ásdís? - Þetta er mjög ástríðufull túlkun þar sem hver einasta hreyfing hefur sína merkingu. Að því leyti er þetta mun erfiðara en hlutverk Giselle sem ég dansaði ífyrra. Þar er um að ræða hefðbundinn, rómantískan ballett þar sem ekkert kemur á óvart en hér má segja að hver hreyfing sé túlkun á einhverri setningu í leikriti Strindbergs. Hér er allt eldheitt frá byrjun til enda. - Er ekki lífsreynsla að starfa undir stjórn svo frægs dansahöfundar sem Birgit Cullberger? - Ég hef nú dansað undir stjórn annarra frábærra stjórnendaáður, t.d. Sir Anton Dolin, John Gilpino.fi. ogvissulegaerum við heppin að fá allt þetta ágætisfólk til okkar. Þaðernú reyndar Jeremy Leslie Spinks sem hefur aðallega æft upp dansana í þessu stykki en Birgit Cullberg er hér og hefur vakandi auga með öllu. - Þetta er eitt þekktasta verk Cullberg, ekki satt? - Jú, það mun vera. Þessi ballett hennar er meira en 50 ára gamall og hefur verið sýndur um allan heim. - Segðu mér aðeins af þér sjálfri og feril þínum. - Ég er Reykvíkingur og byrjaði ung að dansa en hætti svo. Ég var svo að verða 15 ára þegar ég tók þráðinn upp á nýj an leik og hef síðan dansað stöðugt. - Ilefurðu sótt menntun til útlanda? - Ég hef farið á námskeið erlendis á sumrin, t.d. nokkrum sinnum til New York og einu sinni fórum við Auður á samkeppni til Rússlands en það er nú svo langt síðan að það er best að vera ekkert að segja frá því. Maður hafði samt ofsalega gott af því. Ég hef svo undanfarin ár dansað mörg hlutverk með íslenska dansflokknum. - Og mótdansari þinn að þessu sinni er ekki af lakara taginu? - Nei, hann er æðislegur. Niklas Ek er reyndar sonur Birgit Cullberg og er sólóisti í Konunglegu sænsku óperunni. Hann er hefur verið haldið stíft áf ram. Þetta hefur verið góður æfingartími. Niklas Ek kom þó ekki fyrr en í gær en ég var áður búin að æfa með honum úti. Síðar mun svo Per Arthur Segerström taka við hlutverkinu. - Fáið þið dansarar hjá Islenska dansflokknum nægileg tækifæri? - Við vildum gjarnan hafa fleiri sýningar en plássleysi hér í húsinu háir okkur. - Er gott að dansa í Þjóðleikhúsinu? - Já,þaðergott. Þettaermjög sjarmerandi hús. - Svo að ég víki að öðru. Þessar æfingar taka allan þinn tíma. Áttu eitthvað afgangs fyrir einkalífið? -Ég á mann og barn og það verður að segjast að maðurinn minn er afskaplega góður og hugsar alveg um barnið meðan ég eríeldlínunni. - Þú ert lítið heima? - Já, það er helst að maður liggi upp í loft þegar komið er heim. Ég dáist að þolinmæði hans en hann vissi að hverju hann gekk þegar hann giftist mér. Og það er sko öruggt að maður dj ammar ekkert. Aðalatriðið er að fá nægilegan svefn og lifa reglulegu lífi þegar svona gengur yfir. Ég fæ líka svo mikla útrás við að dansa svona hlutverk að ég þarf ekki að fara á böll. - Þú ert sem sagt ekkert áfjáð í að dansa á dansgólfi á einhverjum skemmtistaðnum? - Eftir að vera búin að vera á tánum allan daginn væri það nánast óhugsandi að fara að troða sér í háhælaða skó. - Segðu mér eitt. Hver er galdurinn við að standa á tánum? - Við erum í sérstökum táskóm og er gips frammi í tánni. Það er ekki svo mikið mál þegar búið er að læra það en að baki liggur að vísu margra ára þj álfun. - En karldansarar dansa aldrei á tánum? - Nei, enda öfundum við þá oft. Stundum erum við aumar. - Hvernig stendur á því að þeir dansa ekki á tánum? - Það er gömul hefð. Dansmærin átti að líta þannig út að hún væri fljúgandi en ekki jarðbundin. Karldansarinn átti svo að tengja hana við jörðina. Helgin 7. - 8. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 Ljóörænar aquarellur Hver einasta hreyfing hefur sína merkingu - En það er yfirleitt ekki dansað á tánum í nútímabailett? - Nei, þá eru ballerínurnar yfirleitt ekki á táskóm. í þessu verki er ég ein á táskóm. Fröken Júlía er aristókrati en hitt fólkið er þjónustu- og bændafólk. Þetta er eitt erfiðasta hlutverk sem ég hef fengið sporum en fyrir hana virðist ekki vera um annað að ræða. - Að lokum Ásdís. Ætlarðu að halda áfram að dansa af fullum krafti? - Já,svo sannarlega. Meðan guðgefur mér styrk og kraft til þess þá geri ég það. - GFr Hafsteinn Austmann í Listasafni alþýðu: Ég hef gaman af abstraktinu ennþá. Ljósm.: Atli. hef einu sinni áður haldið sýningu þar sem eingöngu voru vatnslitamyndir en það var íBogasalnum 1961. - En hvað eru aquarellur? - Þá er pappírinn látinn spila í gegn öfugt við þekjulitina. Kínverjar nota þessa aðferðt.d. mjög mikið. - Ogþúheldurfastviðabstraktið? - Já, ég hef ekki fundið neina þörffyrir að breyta til. Ég hef gaman af þessu ennþá og er ekki hræddur við að möguleikar þessséu tæmdir. Hafstéinn fæddist á Vopnafirði 1934, stundaði myndlistarnám í Reykjavík og París og hefur auk þess farið fjölda námsferða víða erlendis. Verk hans er víða á söfnum. Sýningin er opin alla virka daga nema mánudaga kl. 2-7 síðdegis og umhelgarki. 2-10. -CFr - Hvernig finnst þér að túlka þessa persónu? - Mér finnst mjög gaman að fara inn í svona persónu og pæla hana út. Yfirleitt er ég lengi að komast inn í hlutverk en svo heltaka þau mig. Ég er alveg eldheit á sviðinu þannig að fólk heldur kannski að ég sé svona en þegar sýningu lýkur er ég orðin eins ogjökulláný. - Þú skilur þá Fröken Júlíu? - Það er nú það. Ég skil hana á vissan hátt. Tíðarandinn spilar náttúrlega mjög mikið inn í hvernig hún bregst við. Nútímakona mundi ekki drepa sig í hennar Hafsteinn Austmann opnar sýningu í Listasafni alþýðu í dag, laugardag, opnar Hafsteinn Austmann listmálari sýningu í Listasafni alþýðu og stendur hún til 22. maí. Við litlum inn hjá Hafsteini þar sem hann var að hengja upp og spurðum hvers konar myndir þetta væru. - Égsýnihéreingöngu vatnslitamyndir, svokallaðar aquarellur sem er elsta og göfugasta aðferðin í myndlist. - Eru vatnslitirþérmjöghugleiknir? 1 - Égbyrjaðisvonaásínum tímaog málaði ekki annað fyrstu árin en ég hef þó aðaliega unnið með olíuliti um árin. Ég Ég skil Fröken Júlíu á vissan hátt en tíðarandinn spilar náttúrulega inn í

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.