Þjóðviljinn - 07.05.1983, Síða 16
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 7. - 8. maí 1983
kvikmyndir
i veturvarhaldin
kvikmyndahátíö mikil í Vestur-
Berlín og voru þar alls sýndar
326 kvikmyndir. Innan
keppninnar voru sýndar 23
myndiraf fullri lengd, en þær
kepptu þóekki allartil
verölauna (ein slík var Tootsie).
Þrettán stuttar myndir voru
pýndar innan keppni - en
feiknarlega mikiö var sýnt af
öörum myndum frá löndum
sem venjulega mega sín lítils á
kvikmyndamarkaöi, gamlar
myndirofl.
Hrafn Arnarson hefur sent Þjv.
grein um hátíöina sem fyrir
misgáning hefurlengi beðiö
birtingar og fer hún hér á’eftir,
allmikiö stytt.
Ást eftir pöntun - sovésk.
Belfast 1920
Kvikmyndahátíöin
í Berlín
Aöalverðlaunin, - gullbjötninn
- voru veitt til tveggja mynda, þ.e.
spönsku myndarinnar „Býflugna-
búsins", „La colmena," leikstýrö
af Mario Camus og til ensku mynd-
arinnar „Belfast 1920“ (Ascend-
ensé) leikstjóri er Edward Benn-
ett. Mario Camus hefur einkum
starfaö sem leikstjóri hjá spænska
sjónvarpinu, hann hefur einrtig
skrifaö handrit fyrir Carlos Saura.
í myndinni „Býflugnabúið" er
sögusviöiö Madrid stuttu eftir
borgarastyrjöldina, brugðið er upp
svipmyndum úr lífi margra ólíkra
manna, en lita nrá á þá sem fulltrúa
mismunandi stétta og hópa
spænsks þjóðfélags þessa tíma.
Myndin gerist aöallega í kaffilrúsi
sem veröur smækkuö nrynd
þjóðfélagsins, þjóðfélagið r hnot-
skurn. Leikurinn í myndinni er
framúrskarandi góöur. Frásagnar-
aðferöin og samtenging sena gera
myndina létta, leikandi og*
skemmdilega.
Belfast er fyrsta leikna kvik-
myndirr senr Ewdard Bennett leik-
stýrir. Hann hefur fram til þessa
fengist viö gerð heimildarmynda.
Fessi kvikmynd hans er ’aöallega
lýsing á sálarltfi ungrar konu.
Connie, sem er leikin á sannfær-
andi hátt af Julie Covington.
Myndin lýsir því hvernig Connie
upplifir þjóöfélagsátök þessa tíma,
bróðurmissir og borgarastríðið
leiða til alvarlegra geðtruflana.
Urn leið og persónulegum örlögum
Connie eru gerð skil er brugðið
upp mynd af almennri stjórnmál-
aþróun og þróun stéttabaráttu
írsks þjóðfélags.
Frumleiki
og leikstjórn
Silfurbjörninn fyrir mesta frum-
leika í kvikmyndagerð fékk Tyrk-
inn Erden Kiral fyrir sína „Arstíð í
Hakkari“. Myndin er gerð eftir
skáldsögu Ferit Edgú og lýsir
vetrardvöl kennara í afskekktu
þorpi í norðurhiuta Anatolíu. Kjör
þorpsbúa eru ntjög bágborin,
tækni á lágu stigi, miðaldarleg við--
horf og fáfræði einkerma líf fólks-
ins. Myndin lýsir á manneskju-
lcgan, rólegan og fallegan hátt
hvernig kennarinn verður hluti af
þorpslífinu, hann kynnist lífi fólks-
ins þjáningum þess og vonum.
Myndin er óvenju fallega tekin.
Silfurbjörninn fyrir besta leik-
stjórn fékk Frakkinn Eric Rohmer
fyrir myndlna „Pauline á strönd-
inni“. Myndin fjallar um hóp ungs
fólks sem dvelst síðsumars í bað-
strönd, hún lýsir hugmyndum
þeirra um tilfínningar sínar og
ástina.
Leikarar
Silfurbjörninn fyrir besta leik í
kvenhlutverki fékk sovéska
leikkonan Jevgenija Glúschenko
Hrafn Arnarson
skrifar um
kvikmyndir
fyrir leik sinn í myndinni „Ástfang-
in að eigin ósk“. Leikstjórinn Serg-
ej Mikalaljev, varð m. a. þekktur
fyrir ntynd sína „Permija" frá árinu
1974. í nýjustu myndinni lýsir hann
á skemmtilegan hátt ástarsam-
bandi Veru og Igors, (leikinn af
Oleg Jankovskí), sýnt er hvernig
þau reyna að hafa áhrif hvort á
annað og reyna að breyta hvort
öðru til samræmis við óskir sínar og
vilja. Lýsingin á skapgerð og til-
finningalífi höfuðpersónanna er
óvenju vel gerð. Myndin er mann-
eskjuleg og fyndin.
Silfurbjörninn fyrir besta leik í
karlhlutverki fékk Bandaríkja-
ntaðurinn Bruce Dern fyrir leik
sinn í mynd Jason Milles, „That
championship season". Myndin er
byggð á samnefndu leikriti eftir
Milles og fjallar um samband fimm
manna, fyrrverandi skólafélaga.
Peir eru allir í háttsettum stöðum,
og þeir hittast kvöld eitt hjá einum
þeirra og rifja upp gömlu góðu
dagana.
Austurríkismaðurinn Xaver
Schwarzenberger, sem var mynd-
atökumaður hjá R. W. Fassbinder,
fékk silfurbjörninn fyrir frábæra
frammistöðu einstaklings. Hann
leikstýrði myndinni „Der stille Oz-
ean". í henni er grein frá því á lát-
lausan og einfaldan hátt, hvernig
vísindamanni, sem orðið hafa á
mistök í starfi tekst að vinna úr
sektartilfinningum sínum og öðlast
sjálfsvirðingu á ný.
Hlutu lof
Þrjár kvikmyndir hlutu lof-
samleg ummæli, þ. e. kfnverska
myndin „Ókunnugir vinir“
Ieikstýrð af Xu Lei, danska myndin
„Det er et yndigt land“ leikstýrð af
Morten Arnfred. Og loks „Dieses
rigorose Leben“ eftir Vadim
Glowna, frá Þýska sambands-
lýðveldinu.
Af þessum þremur fannst mér
Úr spænsku verðlaunamyndinni Blýflugnabúið.
danska myndin sú besta. Þar var
lýst á sannfærandi hátt erfiðleikum
bónda, þ. e. hvernig fjárhagserfið-
leíkar og mistök í fjárfestingu ýta
undir og koma af stað deilum innan
fjölskyldu og hjónabands. Margar
aðrar myndir innan keppninnar
voru ntjög athyglisverðar. Nýjasta
mynd Margareta von Trotta (tiun
hefur m. a. gert „Die Bleierne
Zeit") vakti verulega athygli, en
skoðanir voru ntjög skiptar um
gæði hennar. Myndin er lýsing á
vináttusambandi tveggja kvenna,
sem Hanna Schygullu og Angelika
Winkler leika. Myndin greinir við-
brögð karlmanna, eiginmanna og
vina við þessu sambandi. Trotta
lítur á þessa mynd sem framlag til
kvenréttindabaráttu/umræðu og
urn leið sem greiningu á hefð-
bundnu karlrembingsviðhorfi.
Ymsar aðrar athyglisverðar
myndir voru innan keppninnar.
Nefna má „Stríð og friður“, sem
gerð er í sameiningu af Heinrich
Böll, Alexander Kluge, Volker
Schlöndorf, Stefan Aust og Axel
Engstfeld, og er myndin líkleg til
að verða hluti af þeirri umræðu um
friðar- og afvopnunarmál, sem nú
fer fram hér í Sambandslýðveld-
inu. (Þess má geta að samtök
blaðamanna sem skrifa urn kvik-
myndir, lét frá sér fara friðarávarp,
„Berlínar-friðarávarpið“, þar eru
settar fram kröfur urn stöðvun víg-
búnaðarkapphlaups og afvopnun.
Undir þetta ávarp hafa skrifað fjöl-
margir aðilar sem tengjast kvik-
myndum og kvikmyndagerð.)
Athygli vakti bandaríska mynd-
in „In the King of Prussia“
leikstýrð af Emilie de Antonio.
Myndin fjallar um málshöfðun
gegn áttakaþólskum friðarsinnum,
sem brutust inní vopnaverksmiðju
í sept. 1980, en hún heitir „King of
Prussia" og er í Pensylvaníu.
Friðarsinnarnir eyðilögðu
sprengjuodda kjarnorkuraketta og
helltu blóði yfir leyniskýrslur.
á leikskólann v/Hlíöarveg á ísafirði, fóstru-
menntun áskilin.
Umsóknarfrestur er til 20. maí 1983. Um-
sóknir sendist til undirritaðs, sem einnig veitir
nánari upplýsingar.
Félagsmálafulltrúinn ísafirði
Austurvegi 2, sími 94-3722
400 ísafirði.
Iialjörflur
Forstöðumann
vantar
Sfi Framkvæmda-
nefnd
vegna stofnana í þágu
aldraðra
býður til kynningarfundar til að ræða hug-
myndir um söluíbúðir fyrir aldraða. Til fundar-
ins er boðið:
- Fulltrúum stéttarfélaga og lífeyrissjóða.
- Verktökum og byggingarsamvinnufé-
lögum.
- Fulltrúum stjórna í samtökum aldraðra.
Rætt verður um lóðir, fjármögnun, útboðs-
form, stærðir húsa og þjónusturýmis.
Fundurinn verður nk. þriðjudag 10. maí, kl.
17.00, í Húsi verslunarinnar, 9. hæð, fund-
arsal.
Framkvæmdanefnd vegna stofnana í
þágu aldraðra.
Páll Gíslason, formaður.