Þjóðviljinn - 07.05.1983, Qupperneq 17

Þjóðviljinn - 07.05.1983, Qupperneq 17
Helgin 7. - 8. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17 CHARLIE NICHOLAS Eftirsóttasti knattspyrnu- maður Bretlandseyja Hann er 21 árs gamall, hár grannur og dökkhærður Skoti. Hann nýtur óhemju mikilla vinsælda í heimalandi sínu, hvar sem hann leikur listir sínar hrópa þúsundir áhorfenda nafn hans: Char- Lee, Char-Lee. Þar sem hann svífurumdansgólf diskótekanna í Glasgow í leðurbuxum og ermalausum bol f lýgur þeim sem á horfa síst í hug að þarna fari eftirsóttasti knattspyrnumaður Bretlandseyja um þessar mundir, undradrengurinn frá Celtic, Charlie Nicholas. Verða diskótekin honum að falli? Eða leggur hann knattspyrnuheiminn að fótum sér? Leitar uppi dansstaðina, klæðist eftir allra nýjustu tísku, gullin keðja um hálsinn og hringafjöld á fingrum. Kemur ekki nafnið Ge- orge Best upp í hugum einhverra? Charlie Nicholas hefur skorað 44 mörk fyrir Celtic í vetur, flest stór- lið Englands eru á höttunum á eftir honum og láta fylgjast með honum í hverjum leik. í sumar þegar samningur hans rennur út, getur hann raunverulega valið um hvert hann fer. Yfirgnæfandi líkur eru á að hann fari til Englands, til Li- verpool, Tottenham eða Manc- Martin Berkofsky Leikur píanóverk eftir Franz Liszt Vallée D'Obermann Deák Deux Legendes Sónata í H moll í Þjóðleikhúsinu Mánudaginn 9. maí kl. 20.30 Miðasala hefst í Þjóðleikhúsinu þriðjudaginn 3. maí. hester United, en þó er ekki loku fyrir það skotið að hann leiki áfram í sínu heimalandi í græn/hvíta Celtic-búningnum. Á krossgötum Charlie Nicholas stendur á krossgötum í lífi sínu og það hefur ekki farið fram hjá hans nánustu. Margur efnilegur knattspyrnumað- urinn hefur gleymt sér í glaumi stórborganna og ekki náð að upp- fylla þær vonir sem við hann voru bundnar. Rena, móðir hans, segir: „Ég er áhyggjufull, hann er ungur og freistingarnar eru margar. Ég vona bara að hann lendi ekki í slæmum félagsskap. Chic, faðir hans, tekur í sama streng: „Von- andi fer hann ekki til stórborgar eins og Manchester eða London. Mið-England myndi henta honurn betur, lífsstíllinn þar er öðruvísi og hefði betri áhrif á hann. Framkvæmdastjóri Celtic, Billy NcNeill, hefur sínar áhyggjur. „Charlie hefur svo einstaka hæfi- leika að mér'þætti sárt að horfa upp á þá verða að engu vegna utan- aðkomandi aðstæðna. Annars hef ég trú á að hann spjari sig. Gleymum ekki að hann er þegar orðin stjarna, hér í Glasgow. Hon- um hefur tekist að aðlagast því á réttan hátt, hann umgengst sömu félagana og áður, frægð og frami hafa engu breytt í því efni“ Yfirverkstjóri - Reykjavíkurhöfn Reykjavíkurhöfn óskar aö ráða yfirverk- stjóra. Verksvið: Verkstjórn við verklegar framkvæmdir við hafnarmannvirki og aðra mannvirkjagerð á vegum Reykjavíkurhafnar. Æskileg iðnaðarmenntun með framhalds- námi. Laun samkvæmt kjarasamningi Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar. Nánari upplýsingar gefur yfirverkfræðingur. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist undirrituðum eigi síðar en 13. maí nk. Hafnarstjórinn í Reykjavík, 28. apríl 1983, Gunnar B. Guðmundsson. Missti bíiprófiö En það er ljóst að piltur þarf að gæta sín. Fyrir stuttu gekk hann í gegnum kæruleysistímabil og til minja um það er tapað ökuskírteini fyrir ölvun við akstur. Upp við mark andstæðinganna á knattspyrnuvellinum verða mark- verðirnir hins vegar aldrei varir við kæruleysi af hans hálfu. Lands- liðsmarkvörður Skota, Alan Ro- ugh hjá Hibernian, segir: „Það má aldrei líta af honum augunum. Charlie getur skotið úr öllum hugsanlegum og óhugsan- legum færum, það er ómögulegt að reikna hann út því hann er ekki feiminn við að reyna hið ólíklega." Celtic uppgötvaði Charlie Nic- holas þegar á unga aldri þar sem hann lék sér með knött í verka- mannahverfi Glasgow. Félagið tók hann þegar undir sinn verndar- Væng, þjálfararnir gerðu sér strax grein fyrir óbeisluðum hæfileikum hans og leyfðu honum að þróa sína hæfileika að mestu leyti óhindrað fyrstu árin. Þeir settu ekki hömlur á hann, reyndu ekki að láta hann falla inn í eitthvert tilbúið mynstur, Meðfæddir hæfileikar Skotans unga laða að áhorfendur í þúsundatali hvar sem Celtic leikur. heldur slípuðu hann smám saman með hóflegri tilsögn. Uppskeran hefur orðið eins og til var sáð, Charlie er fjölhæfur knattspyrnu- maður með nær ótakmarkaða möguleika og þótt hans sterkasta hlið sé að leika í fremstu víglínu og skora mörk er hann nánast jafnvíg- ur sem miðvallarspilari. Slæmt fótbrot Eftir að hafa slegið í gegn á fyrsta ári í aðalliði Celtic, gekk Charlie í gegnum mikla erfiðleika veturinn 1981-82. Hann fótbrotnaði í leik með varaliðinu, þangað hafði hann verið settur um stundarsakir til að vinna upp á ný þverrandi sjálfsör- yggi, og þar með var sá vetur hon- um glataður á knattspyrnuvell- inum. Viðhort’ fjöldans breyttust, áhangendur Celtic afskrifuðu ungu stjörnuna sína og sögðu hann ein- ungis neista sem væri slokknaður eftir eitt keppnistímabil. Þetta tímabil reyndi mjög á hinn unga snilling og hann komst í gegnum það af stakri prýði, fótbrotið greri með tímanum og hann varð enn einbeittari. Charlie Nicholasætlaði sér að sanna að hann væri ekki bú inn að vera og það hefur honum svo sannariega tekist í vetur. Það er ljóst að Skotinn ungi get- ur lagt knattspyrnuheiminn að fót- um sér og ekki þarf að hafa áhyggjur af fjármálunum á næst- unni. Hvert sem hann fer verða árslaun hans aldrei undir 100 þús- undum punda strax á fyrsta ári. Hvort hann reynist nægilega sterk ur á svellinu þegar á hólminn er komið er hins vegar spurning sem enginn getur svarað enn á fullnægj andi hátt. Snillin er fyrir hendi, en tekst honum að nýta hana á réttan hátt eða veröur Charlie Nicholas fórnarlamb skemmtanalífs stór- borganna eins og svo margur efni- legur knattspyrnumaðurinn á undan honum? - VS íslenska járnhlendifélagid hf. augiýsir starf Verkfræðings eða eðlis/efnafræðings í ofndeild laust til umsóknar. Starfið er einkum fólgið í umsjón með dag- legum rekstri járnblendiofna. Ennfremur verður unnið að ýmiss konar sérverkefnum. Æskilegt er að viðkomandi hafi einhverja reynslu í stjórnun. Ennfremur er menntun á rafeinda- og tölvusviði æskileg en ekki skil- yrði. Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Sig- tryggur Bragason, framleiðslustjóri, í síma 93-3944. Umsóknir skulu sendar járnblendifélaginu eigi síðar en 25. maí n.k. Umsókn fylgi ýtar- legar upplýsingar um náms- og starfsferil ásamt prófskírteinum. Grundartanga, 29. apríl 1983.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.