Þjóðviljinn - 07.05.1983, Qupperneq 23
Helgin 7. - 8. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23
Fjölmennt
íslandsmót
Umsjón
Ólafur
Lárusson
íslandmótið i tvímenning 1983
hefst í næstu viku, á uppstigningar-
dag kl. 13.00. Þá verða spilaðar
tvær umferðir, og þriðja umferðin
í undanrás verður spiluð á föstudag
og hefst kl. 14.00.
Mótið verður með sama sniði og
undanfarin ár, þ.e. 24 efstu pörin
komast í úrslit.
Úrslitin verða í beinu framhaldi,
og hefjast á laugardag, og verður
spilað þá og um kvöldið og lýkur
síðan keppni á sunnudegi. Mótið er
opið öllum þátttakendum, og síð-
ast er þátturinn vissi voru um 50
pör skráð í mótið, flest utan af
landi. Má því búast við að þátttak-
endur verði um 70 - 80 pör, en
frestur til að skila inn þátttökutil-
kynningu rennur út miðvikudaginn
11. maí nk. Sjálfsagt er að hvetja
alla spilara sem tök hafa á til að
vera með á mótinu. Þetta er jú einu
sinni íslandsmót og öllum opið sem
vilja.
Jón Baldursson og Valur Sig-
urðsson, sigurvegarar í íslands-
mótinu sl. 2 ár spila ekki saman
lengur, en fróðlegt verður að fylgj-
ast með árangri þeirra nú á móti
sínum nýju félögum, Sævari Þor-
björnssyni og Sigurði Sverrissyni.
Víst er, að um hörkukeppni verður
að ræða.
Keppnisstjóri verður að vanda
Agnar Jörgensson. Og spilastaður
Domus Medica.
Jón og Sævar
sigruðu
Portoroz-mótið
Jón Baldursson og Sævar Þor-
björnsson sigruðu Portoroz mót
Samvinnuferða og Bridgesam-
bandsins. Þeir báru höfuð og
herðar yfir önnur pör í lok-
aumferðinni, og sigruðu mjög
glæsilega. Alls tóku 36 pör þátt í
mótinu og var skipt í 3 x 12 para
riðla. (Raunar mættu 37 pör til
leiks, eri Guðmundur Herm. og
Björn Eysteinsson fórnuðu sér
fyrirfjöldann). Spilaðarvoru2um-
ferðir í undanrás og síðan 1 umferð
í úrslit, þar sem pörum var raðað
eftir árangri í A, B, C riðla.
í A-riðli urðu Jón og Sævar efstir
einsog og áður sagði, en í 2. sæti
urðu Jón Andrésson og Ragnar
Björnsson. Þeir leiddu mótið eftir
2 umferðir, en gáfu eftir í lokin. Og
í 3. sæti urðu svo Selfyssingarnir
Vilhjálmur Pálsson og Þórður Sig-
urðsson. Og í 4. sæti bræðurnir
Rúnar Magn. og Ragnar Magnús-
synir.
1 B-riðli urðu efstir Egill Guð-
johnsen og Runólfur Pálsson og í
C-riðli Aðalsteinn Jörgensen og
Stefán Pálsson.
Keppnisstjórn var með því lak-
ara sem undirritaður hefur kynnst
nú hin seinni ár. Spilað var í nýju
menningarmiðstöðinni við Gerðu-
berg (ósköp er þetta langt og ó-
þjált, má ekki nefna staðinn
Breiðvang?) og er óhætt að óska
borgarbúum til hamingju með
þetta glæsilega húsnæði.
Einnig Bridgesambandinu og
Samvinnuferðum-Landsýn, fyrir
mót sem þetta. í beinu framhaldi
má geta þess, að Samvinnuferðir
hafa í hyggju að taka Eddu á leigu í
haust og efna til stuttrar vikuferðar
til Newcastle og Bremen, þarsem
spilamennska mun ráða ríkjum.
Gjaldið fyrir þessa vikuferð er
mjög lágt, en rýmið takmarkað.
Hafa ekki einhverjir áhuga? Hafið
þá samband við Helga Jóh. hjá
S.L.
Frá Bridgefélagi Kóp-
avogs
Úrslit í Board-a-match sveita-
keppni félagsins urðu þessi:
1. sveit Sigurðar Vilhjálmssonar
111 stig.
2. sveit Þóris Sigursteinssonar 109
stig.
3. sveit Armanns J. Lárussonar
101 stig.
4-5. sveit Sigurðar Sigurjónssonar
98 stig.
4-5. sveit Jóns Hilmarssonar 98
stig.
Með Sigurði voru í sveit: Vil-
hjálmur Vilhjálmsson, Vilhjálmur
Sigurðsson og Sturla Geirsson.
Nú stendur yfir firmakeppni hjá
félaginu, sem jafnframt er ein-
menningskeppni.
Frá Bridgeféiagi
Selfoss og nágrennis.
Ellefta og síðasta umferð aðal-
sveitakeppni félagsins var spiluð
fimmtudaginn 28. apríl.
Lokastaðan í mótinu varð þessi:
1. Sveit Sigfúsar Þórðarsonar. 199
stig.
2. Sveit Þórðar Sigurðssonar. 172
stig.
3. SveitGunnarsÞórðarsonar. 160
stig.
4. Sveit Brynjólfs Gestssonar. 155
stig.
5. Sveit Hrannars Erlingssonar.
135 stig.
6. Sveit Páls Árnasonar. 93 stig.
7. Sveit Sigg. 83 stig.
8. Sveit Jóns B. Stefánssonar. 82
stig.
9. Sveit Valeyjar Guðmundsdótt-
ur. 65 stig.
10. Sveit Ragnars Óskarssonar. 60
stig.
11. Suðursveit. 33 stig.
12. Sveit Stefáns Garðarssonar. 22
stig.
Aðalfundur og árshátíð félagsins
voru svo haldin laugardaginn 30.
apríl. Kjörin var stjórn og er hún
þannigskipuð: Formaður: Valgarð
Blöndal. Gjaldkeri: Eygló Gráns.
Ritari: Gestur Haraldsson. Vara-
stjórn: Sigfús Þórðarson, Valey
Guðmundsdóttir og Halldór
Magnússon.
Vorþreyta?
Einhver vorþreyta virðist vera
komin í blaðafulltrúa bridgefélag-
anna í landinu. Félögin eru jú enn
starfandi, og þaraf leiðandi ætti
eitthvað fréttnæmt að vera á ferð-
inni hjá félögunum.
Nú er verið að setja af stað
Sumarbridge 1983 með því að fá
Domus undir spilamennskuna.
Þessi keppni er orðin árlegur við-
burður hjá Bridgedeild Reykjavík-
ur. Keppnisstjórar verða sem fyrr,
Ólafur Lárusson og Hermann Lár-
usson. Nánar síðar.
Að lokum. Félögin eru hvött til
að ljúka þessu keppnistímabili með
skeleggum fréttum af gangi mála, í
staðinn fyrir að láta málin „deyja“
út.
leikhús • kvikmyndahús
;fÞJOÐLEIKHUSIfl
Lína langsokkur
í dag kl. 15. Uppselt
sunnudag kl. 15 Uppselt
50. sýning uppstigningardag kl. 15
Grasmaðkur
I kvöld kl. 20
Cavalleria
rusticana og
Fröken Júlía
2. sýning sunnudag kl. 20. Upp-
selt
3. sýning þriðjudag kl. 20
4. sýning uppstigningardag kll. 20
Litla sviöið:
Súkkulaði
handa Silju
miðvikudag kl. 20.30
Tvær sýningar eftir.
Miðasala 13.15-20. Sími 1-1200
LEIKFEIAG
REYKIAVÍKLIK \gjjm
Úr lífi
ánamaðkanna
2. sýn. í kvöld kl. 20.30.
Grá kort gilda
3. sýn. þriðjudag kl. 20.30.
Rauð kort gilda.
4. sýn miðvikudag kl. 20.30.
Blá kort gilda.
Skilnaður
sunnudag kl. 20.30.
Fáar sýningar ettir.
Salka Valka
fimmtudag kl. 20.30.
Siðasta sinn.
Guðrún
föstudag kl. 20.30.
Erik Mörk
les úr verkum H.C. Andersen
mánudag kl. 20.30.
Miðasala í Iðnó kl. 14-20.30. Sími
16620.
Hassið
hennar mömmu
Aukamiðnætursýning I Austur-
bæjarbíói laugardag kl. 23.30.
Miðasala í Austurbæjarþíói kl. 16-
23.30. Sími 11384.
NEMENDA
LEIKHÚSIÐ
LEIKIISTARSKOU IStANOS
UNDARBÆ sm 21971
Miðjarðarför
eða innan og
utan við
þröskuldinn
eftir Sigurð Pálsson
Leikstjóri: Hallmar Sigurðsson
Leikmynd: Grétar Reynisson
Lýsing: David Walters.
2. sýning sunnudag kl. 20.30
3. sýning mánudag kl. 20.30
4. sýning fimmtudag kl. 20.30
ISLENSKA
ÓPERANr
Gamanóperetta
eftir Gilbert & Sullivan.
Sýning laugardag kl. 20.
Uppselt.
Orfáar sýningar eftir.
Simi 11475.
Salur A
Frumsýning
Óskarsverðlaunamyndarinnar
Tootsie
Islenskur texti.
Bráðskemmtileg, ný amerísk úr-
valsgamanmynd í litum og Cin-
emascope. Aðalhlutverkið leikur
Dustin Hoffman og fer hann á kost-
um í myndinni. Myndin var útnefnd
til 10 Óskarsverðlauna og hlaut
Jessica Lange verðlaunin fyrir
besta kvenaukahlutverkið. Myndin
er alls staðar sýnd við metaðsókn.
Leikstjóri: Sidney Pollack. Aðal-
hlutverk: Dustin Hoffman, Jess-
ica Lange, Bill Murray, Sidney
Pollack.
Sýnd kl. 2.30, 5, 7.30 og 10.
Hækkað verð.
Salur B
Þrælasalan
Spennandi amerisk úrvalskvik-
mynd í litum um nútíma þrælasölu.
Aðalhlutverk: Michael Caine, Pet-
er Ustinov, William Holden, Om-
ar Shariff.
Endursýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Barnasýning kl. 3
Dularfullur
fjársjóður
Miðaverð kr. 30.
Skuggar
fortíðarinnar
(Search & Destroy)
Ofsaspennandi nýr „þriller" með
mjög harðskeyttum karate-
atriðum.
islenskur texti.
Aðalhlutverk: Perry King, Georg
Kennedy og Tisa Farrow.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Strok
milli stranda
Bráðsmellin gamanmynd. Madie
(Dyan Cannon) er á geðveikrahæli
að tilstuðlan eiginmanns sins.
Strok er óumflýjanlegt til að gera
upp sakirnar við hann, en mörg Ijón
eru á veginum.
Leikstjóri: Joseph Sargent. Aðal-
hlutverk: Dyan Cannon, Robert
Blake, Quinn Redeker.
Sýnd kl. 3, 7 og 9.
Sýnd kl. 5.
Siðasta sinn.
LAUGARÁ
Næturhaukarnir
Ný æsispennandi bandarisk saka-
málamynd um baráttu lögreglunn-
ar við þekktasta hryðjuverkamann
heims. Aðalhlutverk: Sylvester
Stallone, Billy Dee Williams og
Rutger Hauer.
Leikstjóri: Bruce Malmuth.
Sýnd kl. 5, 9 og 11.
Bönnuð yngri en 14 ára.
Týndur
Sýnum i nokkra daga vegna fjölda
tilmæla þessa frábæru verðlauna-
mynd með Jack Lemmon og
Sissy Spacek.
Sýnd kl. 7.
Ath., aðeins i nokkra daga.
Barnasýning kl. 3 sunnudag
Cap. America
Hörkuspennandi mynd um ofur-
mennið Cap. America.
a19 ooo
í greipum
dauðans
Rambo var hundeltur, saklaus.
Hann var „Einn gegn öllum", en
ósigrandi. - Æsispennandi ný
bandarísk Panavision litmynd,
byggð á samnefndri metsölubók
eftir David Morrell. Mynd sem er nú
sýnd viðsvegar við metaðsókn,
með Syivester Stallone - Ric-
hard Crenna. Leikstjóri: Ted
Kotcheff.
Islenskur texti.
Bðnnuð börnum innan 16 ára.
Myndin er tekin í Dolby stereo.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Til móts
við gullskipið
Æsispennandi og viðburðarík lit-
mynd, byggð á samnefndri sögu
eftir Alistair Maclean. - Það er
eitthvað sem ekki er eins og á að
vera, þegar skipið leggur úr höfn,
og það reynist vissulega rétt... Ric-
hard Harris - Ann Turkel - Gor-
don Jackson.
Islenskur texti.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 3,05 - 5,05 - 7,05 - 9,05 -
11,05.
Á hjara veraldar
Sýnd kl. 3 - 5 - 7 - 9 og 11,10
Trúboðarnir
Spennandi og sprenghlægileg lit-
mynd, um tvo hressilega svika-
hrappa, með hinum óviðjatnan-
legu Terence Hill og Bud
Spencer.
Islenskur texti
Sýnd kl. 3,10-5,10-7,10-9,10-
11,10.
TÓNABÍÓ
Frumsýning stórmyndarinnar:
Bardaginn um
Johnson-hérað
(Heaven’s Gate)
Leikstjórinn Michael Cimino og
leikarinn Christopher Walken
hlutu báðir Óskarsverðlaun fyrir
kvikmyndina „The Deer Hunter".
Samstarf þeirra heldur áfram í „He-
aven's Gate“, en þessi kvikmynd
er dýrasti vestri sem um getur i
sögu kvikmyndanna. „Heaven's
Gate“ er byggð á sannsögulegum
atburði sem átti sér stað i Wyoming
fylki i Bandarikjunum árið 1890.
Aðalhlutverk: Christopher Walk-
en og Kris Kristofferson ásamt
John Hurt (The Elephant Man) og
Jeff Bridges (Thunderbolt and
Lightfoot).
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
ftllSTURBÆJARRjn
Nana
Mjög spennandi og djörl, ný kvik-
mynd í litum, byggð á þekktustu
sögu Emile Zola, sem komið hetur
út i ísl. þýðingu og verið lesin upp i
útvarpi. - Nana var fallegasta og
dýrasta gleðikona Parisar og fórn-
uðu menn oft aleigunni tyrir að fá
að njóta ástar hennar.
Aðalhlutverk: Katya Berger,
Jean-Pierre Aumont.
Islenskur texti.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýndkl. 5, 7, 9 og 11.
húsbyggjendur
ylurinner
" góður
Afgniium emangiuniipliti i
Stor-R«yk|ivikurtyaóió ftt
mtnudegi — fottudagt
Afhcndum voruno • byggingdtuó
imonnum id kottn*
Hogkvamt vert og
greidtlutkilmalti
vrd flettra heli
Sttn*
Salur 1
Frumsýning grínmyndarinnar
Ungu
læknanemarnir
Hér er á ferðinni einhver sú albesta
grínmynd sem komið hefur I
langan tima. Margt er brallað á
Borgarspítalanum og það sem
læknanemunum dettur í hug er
með ólíkindum. Aðvörun: Þessi
mynd gæti verið skaðleg heilsu
þinni, hún gæti orsakað það að þú
gætir seint hætt að hlæja. Aðal-
hlutverk: Michael Mckean, Sean
Young, Hector Elizondo. Leik-
stjóri: Garry Marshall.
Sýndkl. 3, 5,7, 9 og 11.
Hækkað verð.
Salur 2
Porky’s
Sýnum aftur bessa frábæru grín-
mynd, sem var þriðja aðsóknar-
mesta myndin í Bandaríkjunum i
tyrra, það má með sanni segja að
Porky's sé í sérflokki.
Aðalhlutverk: Dan Monahn, Mark
Herrier, Wyatt Knight.
Sýnd kl. 3, 5, 7 9 og 11.
Salur 3
Þrumur og
eldingar
(Creepshow)
Grín-hrollvekjan Creepshow sam-
anstendur al fimm sögum og hefur
þessi „kokteill" þeirra Stephens
King og George Romero fengið
trábæra dóma og aðsókn erlendis,
enda hefur mynd sem þessi ekki
verið tramleidd áður.
Aðalhlutverk: Hal Holbrook, Adri-
enne Barbeau, Fritz Weaver.
Myndin er tekin i Dolby stereo.
Sýnd kl. 5, 7.10, 9.10 og 11.15.
Bönnuð innan 16 ára.
Litli
lávaröurinn
Sýnd kl. 3.
Salur 4
Allt á hvolfi
Splunkuný, bráðfyndin grinmynd í
algjörum sérflokki, og sem kemur
öllum i gott skap. Zapped hefur
hvarvetna fengið frábæra aðsókn
enda með betri myndum í sínum
flokki. Þeir sem hlóu dátt að Pork-
y's fá aldeilis að nota hláturt-
augarnar á Zapped. Sérstakt gest-
ahlutverk leikur hinn frábæri Ro-
bert Mandan (Chester Tate úr
SOAP-sjónvarpsþáttunum). Aðal-
hlutverk: Scott Baio, Willie Aam-
es, Robert Mandan, Felice
Schachter. Leikstjóri: Robert J.
Rosenthal.
Sýnd kl. 3 og 5.
Lífvöróurinn
(My Bodyguard)
Bodyguard er fyndin og frábær
mynd sem getur gerst hvar sem er.
Myndin Ijallar um ungan dreng
sem verður að fá sér lífvörð vegna
þess að hann er ofsóttur af óaldar-
flokki í skólanum.
Aðalhlutverk: Chris Makepeace,
Adam Baldwin, Matt Dillon. Leik-
stjóri: Tony Bill.
Sýnd kl. 7, 9 og 11.
_________Salur 5__________
Atlantic City
Frábær úrvalsmynd, útnefnd til 5
Óskara 1982.
Aðalhlutverk: Burt Lancaster,
Susan Sarandon. Leikstjóri: Lou-
is Malle.
Sýnd kl. 5 og 9.