Þjóðviljinn - 17.09.1983, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 17.09.1983, Blaðsíða 7
Helgin 17.-18. september 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 ÍMI55AN sssae æfiysKa útvarpið heimsótt Bikarúrslit nálgast Aðeins Reykjavíkursveitir eftir í Bikarnum Þættinum er aðeins kunnugt um úrslit í einum leik í 3. umferð (8 sveita úrslitum) Bikarkeppni Bridgesambandsins. Sveit Olafs Lárussonar Reykjavík sigraði sveit Boga Sigurbjörnssonar Siglufirði. Leikurinn var allan tímann í járnum, en fyrir síðustu umferð átti sveit Ólafs 15 stig til góða. Lokatöl- ur urðu 108-97 fyrir sveit Ólafs. Með honum í sveit eru: Hermann Lárusson, Hrólfur Hjaltason og Jónas P. Erlingsson. Aðrir leikir í 3. umferð eru: Runólfur Pálss. - Sævar Þorbjörns- son, Þorarinn Sigþórsson - Karl Sigurhjartarson og Arni Guð- mundsson - Gestur Jónsson. Sveitir Þórarins og Gests voru í EDDU-ferðinni, þannig að leikir þeirra sveita verða væntanlega ekki á dagskrá fyrr en í næstu viku. Eddu-ferðin Því miður hafa litlar fréttir borist úr EDDU-ferðinni hjá bridge- mönnum. Vitað er þó að ferðafólkið fékk ekki beint veður ársins í ferðinni, og ku mannskapurinn hafa haldið sig neðanþilja fyrstu dagana. Von- andi hefur það lagast er á ferðina leið, en þátturinn ntun greina frá helstu úrslitum um borð, um leið og einhver sér ástæðu til að koma þeim fréttum frá sér. Frá Bridgefélagi Reykjavíkur Vetrarstarfsemi félagsins hófst s.l. miðvikudag með eins kvölds tvímenningi. 22 pör spiluðu með mitchell fyrirkomulagi. Hæstaskor fengu: A-V Stefán Pálsson - Umsjón Ólafur Lárusson Ragnar Magnússon 324 Sigurður Sigurjónss. - JúlíusSnorrason 311 Guðlaugur Jóhannsson - Örn Arnþórsson 300 Kristján Blöndal - Valgarð Blöndal 292 N-S Sigurður B. Þorsteinss. - Gylfi Baldursson 337 Ásmundur Pálsson - Karl Sigurhjartarson 320 Helgi Nielsen - Alison Dorash 315 Gunnar Þórðarson - Leif Österby 303 Meðalskor var 270. Næsta miðvikudag 21. sept. verður eins kvölds tvímenningur (aftur á dagskrá. Sérstök athygli er vakin á því að þá verður spilað í Gerðubergi, menningarmiðstöð efra Breiðholts. Spilamennska hefst kl. 19:30. Frá Bridgefélagi Hafnarfjarðar Vetrarstarf Vetrarstarf Bridgefélags Hafn- arfjarðar hefst mánudaginn 19. september. Byrjað verður á léttri upphitun, t.d. eins kvölda tví- menningum en fljótlega hefst svo aðaltvímenningurinn. Að venju er byrjað stundvíslega kl. hálf átta í íþróttahúsinu við Strandgötu. Frá Bridgefélagi Kópavogs Bridgefélag Kópavogs hefur hauststarfsemi sfna nk. fimmtudag 22/9. Á dagskrá er eins kvölds tví- menningur. Félagsmenn og aðrir eru hvattir til að vera með frá byrj- un. Spilað er í Þinghól í Hamra- borg og hefst spilamennska kl. 19.30. Keppnisstjóravandræði? Mikil vandræði steðja nú að bridgelífi á höfuðborgarsvæðinu. Keppnisstjóravandræði hafa verið mikil og fáir gefið sig í að stjórna keppnum félaganna. Þetta þýðir, að menn einsog Agnar Jörgensson neyðast til að stjórna hjá þremur félögum, B.R., TBK og B,- kvenna. Nýr keppnisstjóri er kom- inn til Breiðfirðinga, Guðmundur S. Hermannsson og tekur hann við af kempunni Guðmundi Kr. Sig- urðssyni. Vandræði eru hjá Bridgefélagi Kópavogs og Hafnfirðingum, og ekki útséð hverjir stjórna þar í vetur. Her- mann Lárusson verður sennilega áfram hjá Breiðhyltingum (var einnig í Firðinum í fyrra, hvað sem verður) og eflaust má halda áfram upptalningunni. Hvernig væri nú að gera eitthvað í málinu, áður en allt kemst í óefni? Gera keppnis- stjórastarfið meira áhugahvetjandi fyrir þá sem vilja spreyta sig? Helgarmót í bridge Frjó ista hugmynd sem komið hefur fram í sögu íslenskrar skák- listar, eru helgarmótin hans Jó- hanns Þóris. Þátturinn hefur áður minnst á þetta, og enn á ný virðist manni að bridgehreyfingin geti fetað í fót- spor Jóhanns og myndað eins kon- ar keppniskeðju landshorna á milli. Mörg félög héldu „stórmót" á síðasta ári, og er ekkert nema gott um það að segja. Fleiri félög munu eflaust fylgja í kjölfarið á þessu keppnistímabili, auk hinna sem árlega halda nú mót (einsog Skagamenn, Selfyssingar o.fl.) Virðist manni, að ekki væri fráleitt, að einsog 8-10 félög innan Bridge- sambandsins tækju sig nú saman og mynduðu samvinnuhreyfingu í þessu tiltekna máli. Varla þarf að hafa mörg orð um nauðsyn slíkra móta, það sanna undirtektir þær sem skákmenn hafa fengið víða um land. Þátturinn sér í anda félög einsog Keflvíkinga, Hafnfirðinga, Bridgedeild Breiðfirðinga í Reykjavík, Akurnesinga, Borg- nesinga, Stykkishólmsbúa, ísfirð- inga, Hvammstangabúa, Sauðkræklinga, Siglfirðinga, Ak- ureyringa, Húsvíkinga, Héraðs- búa, Hornfirðinga, Selfyssinga og Vestmanneyinga, taka höndum saman og myndi órofa keðju helg- armóta, sem haldin yrðu einu sinni eða svo í mánuði þetta keppnis- tímabilið. Svona mót hafa áróðurs- gildi, skemmtigildi og yfirleitt mannbætandi áhrif á mannfólk allt. Hefur einhver áhuga? Pepsi Áskorun! 52% 0 völdu Pepsi af þeim sem tóku afstöðu útéjf1 Pepsi 4719 Coke 4429 Jafn gott 165 Ails 9313 Láttu bragöió ráða TILLITSSEMI -ALLRA HAGUR Gœði og verð sem koma á óvartl IMISSAIM N8S*N-MJ5UN Sunny Fjölskyldubíll fyrirfullvaxiðfólk Ný vél fyrir framhjóladrifið Bílasýning laugardag og sunnudag kl. 2-5 SÝNINGARSALURINN/RAUÐAGERÐI S33560

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.