Þjóðviljinn - 17.09.1983, Blaðsíða 26

Þjóðviljinn - 17.09.1983, Blaðsíða 26
26 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Hdgin 17.-18. september 1983 ALÞYÐUBANDALAGIÐ Sigurður Rannveig Alþýöubandalagiö Hafnarfirði Bæjarmálaráðsfundur Fyrsti fundur bæjarmálaráös ABH á nýbyrjuöu starfsári verður haldinn í Skálanum Strandgötu 41, kl. 20.30 mánudaginn 19. sept. Dagskrá: 1) Nýtt miðbæjarskipulag fyrir Hafnarfjörð. Kæra RT vegna breikkun ar Lækjargötu. Rannveig Traustadóttir og Sigurður Gíslason skýra málið. 2) Undirbúningur fyrir bæjarstjórnarfund 20. n.k. 3) Önnur mál. Áríðandi er að allir nefndarmenn ABH mæti á þennan fund bæjarmála- ráðs. Þá skal minnt á að fundir ráðsins eru opnir öllum félagsmönnum. Fjölmennum. Stjórn Bæjarmálaráðs ABH Alþýðubandalagið Selfossi og Hveragerði Sameiginlegur fundur Alþýðubandalagsfélaganna á Selfossi og í Hveragerði um laga og skipulagsmál verður haldinn að Kirkjuvegi 7, Selfossi, miðvikudaginn 21. september kl. 20.30. Adda Bára Sigfúsdóttir og Olafur Ragnar Grímsson mæta á fundinn og kynna tillögur laga- og skipulagsnefndar og svara fyrirspurnum. Félagar eru hvattir til að mæta vel. Stjórnir félaganna Alþýðubandalagið í Reykjavík Starfshópar Á næstu dögum og vikum taka til starfa á vegum Alþýöubanda- lagsins í Reykjavík starfshópar um margvfslega málafiokka. Markmið starfshópana er að móta tillögur ABR sem lagðar verða fyrir landsfund Alþýðubandalagsins 17.-20. nóvember. Starf hópanna er opið öllum félagsmönnum og hvetjum við sem flesta að taka þátt í starfinu. Fundir hópana verða auglýstir íflokksdálki Þjóðviljans nú á næstu dögum. Eftirtaldir hópar munu starfa: Starfshópar um laga- og skipulagsmál: Umsjón: Arthúr Morthens og Guðbjörg Sigurðardóttir Starfshópur um utanríkis- og friðarmái: Umsjón: Helgi Samúelsson. Starfshópur um húsnæðismál: Umsjón: Einar Matthíasson. Starfshópur um efnahags- og kjaramál: Borghildur Jósúadóttir. Starfshópur um menntamál: Umsjón: Stefán Stefánsson Starfshópur um sjávarútvegsmál: Umsjón: Ólafur Sveinsson Starfshópur um örtölvumál: Umsjón: Þorbjörn Broddason Starfshópur um náttúruverndarmál Fundir ofanskráðra hópa verða auglýstir næstu daga. Allar frekari upplýsingar veita umsjónarmenn og skrifstofa ABR. Stjórn ABR Alþýðubandalagið Reykjavík Starfshópur um menntamál Fyrsti fundur starfshóps um menntamál verður miðvikudaginn 28. september kl. 20.30 að Hverfisgötu 105. Nánar auglýst síðar. Umsjónarmenn Alþýðubandalagið í Skagafirði. Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Skagafirði verður haldinn í Villa Nova nk. fimmtudag 22. september og hefst kl. 20.30. Venjuleg aðalfundastörf. Ragnar Arnalds alþm. mætir á fundinum. Stjórnin Alþýðubandalagið á Akureyri Fundur verður haldinn í bæjarmálaráði mánudaginn 19. september kl. 20.30 í Lárusarhúsi. Dagskrá: 1) Starfsáætlun bæjarmálaráðs á komandi vetri. 2) Dagskrá bæjarstjórnarfundar 20.9. Bæjarmálaráð er opið öllum félögum Alþýðubandalagsins. Mætið vel og stundvíslega. Aðalfundur kjördæmisráðsins á Norðurlandi vestra. Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Norðurlandi vestra heldur aðal- fund sinn helginal. og 2. október n.k. í Villa Nova á Sauðárkróki. Fundurinn hefst kl. 14 laugardaginn 1. október. Dagskrá verður nánar auglýst síðar. Stjórn kjördæmisráðsins. íþróttastyrkur SÍS 1984 til FRÍ , ,Þetta eru viðskipti“ - Þetta eru viðskipti, á erlendum málum kallað „sponsorship“ sagði Örn Eiðsson formaður Frjáls- íþróttasambands Islands er hann þáði krónur 400.000.00 úr hendi Erlendar Einarssonar forstjóra SÍS. Framkvæmdastjórn SÍS af- henti styrkinn í gær sem eitthvert sérsambanda íþróttahreyfingar- innar fær árlega. Forstjórinn lét sérstaklega í ljós þær vonir sínar að minnkandi verð- bólga gætti fjársins vel, svo að það kæmi íþróttamönnum að miklu gagni. Orn Eiðsson sagði að styrk- urinn kæmi sérstaklega þeim til góða sem sköruðu framúr í frjáls- um íþróttum. Minntu þeir báðir á ólympíuleikana á næsta ári. Forystumenn íþróttahreyfingar- innar lýstu yfir sérstakri ánaegju með þenhan styrk og alúð SÍS í garð hreyfingarinnar. Sögðu þeir að aldrei hefði orðið vart neinnar óeðlilegrar tilætlunarsemi af hálfu SÍS til þeirra sem notið hefðu stuðningsins. Flestir þeirra töldu ómögulegt að reka íþróttahreyfinguna nema fjármagn frá fyrirtækjunum kæmi til. í samningi um íþróttastyrkinn segir í 4. grein að „Frjálsíþrótta- sambandið heimili sambandinu að nota starfsemi og aðstöðu FRÍ og umsvif frjálsíþróttalandsliðanna, bæði heima og erlendis til auglýs- inga og fræðslu um samvinnu- hreyfinguna á hvern hátt sem Sam- bandið óskar og eðlilegt getur tal- ist“. í annarri grein samningsins segir að Frjálsíþróttasambandið noti fé þetta einsog því er unnt og það tel- ur hagkvæmt, til viðskipta við Sam- bandið, kaupfélögin og samstarfs- fyrirtæki þessara aðila“. -óg iMengun frá holræsum við Skúlagötu: Engiii svör um úrbætur Tillögu um kostnaðaráœtlun vísað frá Úrbætur í holræsamálum við Skúlagötu verða ekki tekin út úr áður gerðum áætlunum um úrbæt- ur í holræsamálum, þrátt fyrir áform um stórfellda uppbyggingu íbúðarbyggðar á þessu svæði. Með þessum röksemdum vísaði meiri- hluti borgarstjórnar því frá á fimmtudag að gerð verði áætlun um að koma holræsum þar í við- undandi horf eins og Sigurjón Pét- ursson lagði til. Landsliðið skipað Jóhannes Atlason landsliðsþjálf- ari í knattspyrnu tilkynnti í gær 16- manna hópinn fyrir landsleikinn við Irland sem háður verður á Laugardalsvellinum næstkomandi miðvikudag. í síðasta landsleik ís- lands gegn Hollendingum í Gron- ingen léku átta atvinnumenn en nú bætist níundi atvinnumaðurinn í hópinn en það er Janus Guðlaugs- son sem leikur með v.-þýska 2. deildarliðinu Fortuna Köln. Hópurinn sem Jóhannes gaf upp í gær er þannig skipaöur: Markverðir: Þorsteinn Bjarnason ÍBK. Bjarni Sigurðsson ÍA. Aðrir leikmenn: Viðar Halldórsson, FH. Sigurður Lárusson ÍA. Sigurður Halldórsson ÍA. Ásgeir Elíasson Þrótti. Sigurður Grétarsson Breiðablik. Ásgeir Sigurvinsson Stuttgart. Atli Eðvaldsson Dússeldorf. Pétur Ormslev Dússeldorf. Janus Guðlaugsson Fortuna Köln. Arnór Guðjohnsen Anderlecht. Pétur Pétursson Antwerpen. Sævar Jónsson CS Brúgge. Lárus Guðmundsson Waterschei. Jóhannes Eðvaldsson Motherwell. húsbyggjendur ylurinn er Ifegóður I '■■I* AlnmiAnm ainannrnnarnlacl a Afgreiðum einangrunarplast á Stor Reykjavikursvæðið frá manudegi — fóstudags. Afhendum vöruna á byggingarstað. viðskiptamonnum að kostnaðar lausu. Hagkvæmt verð og greiðsluskilmalar við flestra hæfi. Borgarplan ht Miklar umræður urðu á fundin- um um holræsamálin og bréf Skúla Johnsen borgarlæknis þar sem hann segir það skilyrði fyrir þéttri íbúðabyggð við Skúlagötu að hol- ræsin verði lagfærð. Davíð Odds- son borgarstjóri sagði áhuga Sig- urjóns Péturssonar á þessu máli nú undarlegan, - rannsóknir sem sýna að örverur og sýklar úr skolpmeng- uðum sjó dreifast yfir stórt svæði frá ströndinni í norðanátt og bréf borgarlæknis vitnar í, væru orðnar 15 ára gamlar og allan þann tíma hefði við Skúlagötu verið umfangs- mikil matvælaiðja hjá Sláturfélagi Suðurlands. Sigurjón Pétursson sagði það enga afsökun fyrir því að skella skollaeyrum við varnaðarorðum borgarlæknis þó þetta ástand hefði verið viðvarandi um árabil. Hins vegar setti vissulega að mönnum óhug þegar litið væri til matvæla- framleiðslu þarna og væri undar- legt að ekki hefðu verið gerðar at- hugasemdir við það áður. Sigurjón sagðist ekki minnast þess að borg- arlæknir hefði áður komið með slíkar ábendingar vegna fyrirhug- aðrar íbúðabyggðar, þó holræsa- mál væru víða í ólestri, og ítrekaði að miðað við alvöru málsins væri óverjandi fyrir meirihlutann að hundsa aðvörun borgarlæknis. Hann spurði að lokum hvort það væri virkilega ætlun meirihlutans að hefja framkvæmdir við Skúla- götu á næsta ári án þess að gera umbeðnar úrbætur, en fékk engin svör. -ÁI Haustsýning FÍM Allt úr pappír Haustsýning FÍM verður opnuð á Kjarvalsstöðum þann 15. október n.k. Haustsýningin er nú með öðrum hætti en venja hefur verið. Nú verða þar eingöngu sýnd myndverk unnin á pappír eða í pappír - s.s. hvers konar myndir unnar með hinum ýmsu efnum á pappír, svo og klippmyndir (collage), papp- írsskúlptúrar og t.d. svifmyndir úr pappír. Öllum er heimilt að senda mynd- ir til sýningarnefndar félagsins, sem jafnframt skipar dómnefnd sýningarinnar. Myndum skal skilað á Kjarvals- staði föstudaginn 7. október kl. 4- 6. Nánar verður auglýst um mót- töku mynda á næstunni. ■» Sænskur listamaður, Roj Fri- berg, mun sýna teikningar á Haustsýningu í boði FÍM. Roj Fri- berg er víða kunnur fyrir teikning- ar sínar, og hefur sýnt myndir sínar víða um lönd. Hann hefur einnig unnið Ieikmyndir fyrir t.d. Dra- maten í Stokkhólmi. Sýningin stendur til sunnudags- ins 29. október. ftotyrn7i>o l>»otd of Mtfniww ♦! 71ii @ @ | ffl BORGARSPÍTALINN Ffl j| | LAUSARSTÖÐUR '|f | |S Hjúkrunarfræðingar ® ICj Stöður hjúkrunarfræðinga á lyflækningadeild, A-6. [S ICl Stöður hjúkrunarfræðinga á skurðlækningaeild [5| f3 (skurðstofu), sérmenntun ekki skilyrði. iCJ ra... 13 fijl Sjukraliðar fg rri Stöðursjúkraliða á lyflækningadeild (öldrunardeild B- [qJ 6) Vaktavinna. jg |3 Starfsmenn á geðdeild ® Stöður aðstoðarmanna á geðdeild A-2. Vaktavinna. i= IGJ Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu hjúkrunar- jEj Í3 forstjóra í síma 81200. l3 Í3 (3 13 Í3 Reykjavík, 16. sept. 1983. BORGARSPÍTALINN 0 81 200 Í3 f3 [3 f3 Se1e]b]e]e]b]e]e]b]b]e]e]b]eIe]e]e]e]b]e]

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.