Þjóðviljinn - 17.09.1983, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 17.09.1983, Blaðsíða 11
Helgin 17.-18. september 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11 í hliðstæðum tíma Hart í bak eftir Jökul Jakobsson Lcikstjóri: Hallmar Sigurðsson Leikmynd og búningar: Steinþór Sig- urðsson Lýsing: Daníel Williamsson Tónlist: Eggert Þorleifsson Hclstu hlutverk: Jón Sigurbjörnsson, Soffía Jakobsdóttir, Pétur Einarsson, Edda Heiðrún Backman og Kristján Eranklín Magnús. Sýningin á Hart í bak fyrir tveimur áratugum markaði tví- mælalaust straumhvörf í íslensku leikhúslífi og jafnframt í ferli Jökuls Jakobssonar. Á þessum tíma höfðu íslensk leikrit lengi ver- ið olnbogabörn leikhúsanna hér: þau leikrit sem slógu verulega í gegn voru erlend, en íslensk leikrit fengu yfirleitt lélega dóma hjá gagnrýnendum og jafnframt, með sárafáum undantekningum, dræma eða mjög slaka aðsókn. Meðal þeirra verka, sem fengu slíka útreið, var ef ég man rétt frumraun Jökuls Jakobssonar sjálfs á sviðinu, Pókók. Ýmsir kenndu því um, að íslendingar kynnu ekki að skrifa fyrir svið og áttuðu sig ekki á því að önnur lögmál ríktu í gerð leikrita en skáldsagna, aðrir héldu því hins vegar fram að leikhúsin sýndu ís- lensk verk meira af skyldu en áhuga og kastað væri höndum til sýninganna, en allt eins má vera að ástæðurnar hafi verið aðrar og flóknari. En þetta ástand breyttist mjög rækilega við sýninguna á Hart í bak: engum duldist að kominn var fram á sjónarsviðið maður, sem kunni að skrifa fyrir leiksvið, og verkið fékk betri viðtökur en áður voru dæmi um, því að það var sýnt einum þrjú hundruð sinnum á þremur leikárum. Þessi sigur varð ekki aðeins upphafið á frjóum leikritunarferli Jökuls Jakobs- sonar, heldur olli hann einnig bylt- ingu í íslenskri leikritagerð og ger- breytti afstöðu leikhúsgesta til hennar, þannig að í kjölfar hans fóru önnur íslensk leikrit að slá í gegn, uns svo var komið að leikhúslíf hér á landi mótaðist af þeim, ekki aðeins í Reykjavík heldur einnig meðal leikflokka úti um land. Þannig hefur ástandið allt að því snúist við frá því sem var á sjötta áratugnum. Vegna þess að Hart í bak var bæði tímamótaverk og auk þess orðið að einskonar þjóðsögu í ís- lensku leikhúslífi, gat ekki hjá því farið að enduruppfærsla þess á því sama leiksviði þar sem það sló í gegn, væri nokkurt kvíðaefni. Á þeim tuttugu árum, sem liðin eru, hefur firnamargt gerst í leikhúslífi og leikritun hér á landi, smekkur manna hefur breyst og kröfurnar Einar Már Jónsson skrifar um leiklist aukist, og því var það engan veginn víst að þessi gamli leikhúsviðburð- urhefði staðisttímanstönn. Á hinn bóginn eru tuttugu ár nægilega langur tími til þess að pendúllinn sveiflist aftur til baka: ósjaldan ber það nefnilega við að listaverk, sem náð hafa miklum vinsældum, hverfa inn í einhvers konar hreinsunareld, þau hætta að höfða til manna og þykja kannske gam- aldags, en þau sem eru lífvænleg koma þaðan að lokum aftur, kannske eftir tvo eða þrjá áratugi, og eru þá orðin „sígild”. Ég sá ekki Hart í bak, þegar þar var sýnt í Iðnó fyrir tuttugu árum, og get því ekki borið þessa sýningu saman við hina fyrri, - enda væri slíkur samanburður hvort sem er heldur hæpinn, því með honum væru menn í rauninni að bera veru- leika saman við þjóðsögu, hversu traust sem minnið annars er. En óhætt er hins vegar að fullyrða að leikritið hefur elst mjög vel: það virkar jafn ferskt á áhorfandann og það væri nýsamið, og verður ekki séð áð sú gróska, sem varð í ís- lenskri leikritun eftir að það var Þjóðviljinn tekur nú upp þá nýbreytni að umfjöllun um leikhús er ekki í hönd- um „löggilts” gagnrýn- anda. í staðinn hefur blað- ið fengið ýmsa áhuga- menn um leiklist og menn- ingarmál, góðkunningja leikhússins og fyrirferðar- menn í þjóðlífinu til að skrifa um verkin sem sýnd verða í leikhúsunum í vet- ur. Fyrstur ríður á vaðið Ein- ar Már Jónsson, kennari við Sorbonne háskólann í París. Á vetrum situr Einar í háborg franskrar menning- ar en í áraraðir hefur hann á sumrin fjallað um erlend málefni í Þjóðviljann. Áður en Einar heldur á ný til Par- ísar fór hann fyrir Þjóðvilj- ann á fyrstu frumsýningu vetrarins í Iðnó. ór samið, skyggi á það á nokkurn hátt. Segja má jafnvel að Hart í bak sé enn jafn óvenjulegt leikrit og það var fyrir tveimur áratugum, og mætti reyndar skrifa um það langt mál. Á síðari árum hefur íslensk leikritagerð mjög hneigst til raun- sæis, ekki síst á þann hátt að leikrit- in eru yfirleitt mjög vendilega stað- sett í íslandssögunni og taka til meðferðar vandamál, sem nátengd eru höfuðstraumunum í þróun ís- lensks þjóðfélags, eða lýsa persón- um, sem ekki er hægt að skilja öðru vísi en sem afsprengi þeirra sveiflna, sem orðið hafa í landinu síðustu áratugi. Þau segja gjarnan frá því hvernig miklar breytingar ganga yfir þjóðfélagið eins og hol- skeflur, sem kaffæra suma en lyfta öðrum, og rugla alla vega tilfinn- ingar manna og mat, eða þau lýsa persónum, sem eru að tapa sálinni, eða búin að því, í miskunnarlausu lífsþægindakapphlaupi. Það er eng- inn langur tími til, því að fortíðin er horfin og hefur ekki skilið annað eftir en nokkrar eftirlegukindur, heldur er tíminn víddalaus og allur í einum hnút. Hart í bak sýnir áhorfandanum hins vegar inn í allt annan heim: það lýsir eins konar jaðramannlífi í ljóðrænni hnignun, sem þróast í óralangri kyrrstöðu tímans („fjöru- tíu ár eða kannske fimmtíu”), ó- rofínni af holskeflum hemáms, verð- bólgu og lífsþægindakapphlaups, og hrærist í lokuðum heirni, þar sem eina undankomuleiðin er flótti, - ekki til sólarlanda heldur til þeirra hálfa, þar sem hægt er að vinna sig upp og verða mikill mað- ur. í þessum heimi eru mönnum allar bjargir bannaðar vegna at- burða, sem gerðust áratugum áður og hentu afa þeirra, þar eiga menn sparifé, og þar búa port- og spá- konur í skúrum (án þess þó að vera í flokki „útigangsmanna”). Þótt þessi ljóðræni veruleiki verksins sé víðsfjarri jreirri íslands- sögu, sem leikritaskáld síðustu ára hafa miðað verk sín við, er hann samt ekki ósannur né heldur óís- lenskur. Við að horfa á Hart í bak fannst mér gjarnan að verið væri að fjalla um íslenskan veruleika eins og hann hefði getað orðið ef þjóðfélagið fyrir síðustu heimsstyrjöld hefði þróast áfram án nokkurra umróta eða hol- skeflna í ein tuttugu ár. í stað þess að vera njörfað niður í kaldrana- legri rás nútímans, þar sem menn verða í dauðans ofboði að keppast við að fylgjast með, gerist Hart í bak því í eins konar hliðstæðum tíma, sem rennur hægar áfram og í öðrum víddum. Það er í þessu sem frumleiki Jónatan skipstjóri og Árdís, stúlkan að austan (Jón Sigurbjörnsson og Edda Heiðrún Backnian) verksins er fyrst og fremst fólginn, bæði þegar það fyrst var sýnt og einnig nú, og mætti jafnvel segja að það sé orðið enn tímanlegra en áður var. Hreint raunsæi er nefni- lega takmarkað og kernst auðveld- lega í blindgötu, en ljóðræn veru- leikasýn leikritsins bendir á hugs- anlega leið út úr henni: það er kannske kominn tími til þess eftir tvo áratugi að leita aftur í smiðju Jökuls Jakobssonar og nema af honum. Þessi nýja uppfærsla Hallmars Sigurðssonar er mjög góð, einkum fyrir þá sök að þessi kjarni leikrits- ins kemur þar nrjög vel fram, og stuðla öll atriði að því. Eftir þeim takmarkaða samanburði að dærna, sem ljósmyndir leyfa, stuðlar leik- myndin nú enn nreir en hin fyrri að því að skapa tilfinningu fyrir hlið- stæðum tíma: þar eru íslenskir kof- ar frá fyrri hluta aldarinnar settir inn í einhvern nútímaramma, sem þó er ekki úr Reykjavík eftir- stríðsáranna. í frábærri túlkun Jóns Sigurbjörnssonar verður nið- urlæging Jónatans strandkapteins allt önnur en ytri niðurlæging gam- alla manna úr fyrra samfélagi, sem strandaðir eru í hávaða verðbólgu- þjóðfélagsins: hún stafar af því að hann stendur enn frammi fyrir því UMFERÐAR RAÐ Veist þú hverju þaö getur forðað að hafa brugðist á úrslitastund, - í veruleika nútímans myndi slík til- finning hafa rokið út í veður og vind jafn greiðlega og faktúru- fölsun gærdagsins, og þarf ljóðræn- an veruleika leikritsins í öðrum tímavíddum til að leiða hana fram í dagsljósið. Soffía Jakobsdóttir ger- ir Áróru að kvenpersónu, sem er allt öðru vísi en gamalkunn lífsgæðakapphlaupsgribba nútím- ans, en þó hliðstæð henni á vissan hátt, - hún fær annað yfirbragð og annan lit við það að skapharka hennar á við annað að etja en gripasöfnun í kapp við verðbólgu. Ánnars verður að segja, að þessi sýning er fyrst og fremst sigur liðs- ins í heild, og falla leikararnir undantekningarlaust vandlega inn í hlutverk sín í heildarmyndinni. Pétur Einarsson, sem leikur Finn- björn, og Þorsteinn Gunnarsson, sem leikur Stíg, sköpuðu báðir mjög eftirminnilegar persónur úr litlum hlutverkum. Og ástæða er til að geta þess sérstaklega að Edda Heiðrún Backman og Kristján Franklín Magnús, sem þreyttu bæði frunrraun sína á sviðinu í Iðnó í þetta sinn, skiluðu erfiðum hlutverkum af hinni mestu prýði, og áttu verulegan þátt í því að sýningin varð eins góð og raun bar vitni. e.m.j. tVHEEL HIGHROOF DELIVERY VAI\I HIGHROOF VAN 4 WD. Fjórhjóladrifinn 2 manna Extra lágur gír þ.e.a.s. 5 gíra Mjör hár undir lægsta punkt. Sparneytinn. Burðargeta Vi tonn Lengd: 1.66 m Breidd: 1.22 m Hæð: 1.43 m Bílasyning laugardag og sunnudag kl. 2-5 Tilvalinn bíll í smáflutninga

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.