Þjóðviljinn - 17.09.1983, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 17.09.1983, Blaðsíða 19
Helgin 17.-18. september 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 -MFA------------------------------- Félagsmálaskóli alþýðu 1. önn 16.-29. október 1. önn veröur haldin í Félagsmálaskóla al- þýöu dagana 16. - 29. okt. nk. í Ölfusborg- um. Viðfangsefni annarinnar er einkum eftirfar- andi: Félags- og fundarstörf, ræöumennska, framsögn, skipulag og starfshættir ASÍ, saga verkalýöshreyfingarinnar, vinnuréttur, stefn- uyfirlýsing ASÍ, kjararannsóknir, og vísitölur, undirstööuatriöi félagsfræöi, vinnuvernd og hópefli (leiöbeining í hópvinnu). Námstarfið fer fram í fyrirlestrum, hópvinnu og almennum umræöum. Flesta daga er unnið frá kl. 08.30 -19.00 með hléum. Nokk- ur kvöld á meðan skólinn starfar veröa menningardagskrár, listkynningar, upplestur og skemmtanir. Félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eiga rétt á skólavist í Félagsmálaskólanum. Hámarks- fjöldi á önninni er 25. Umsóknir um skólavist þurfa að berast skrifstofu MFA fyrir 12. október. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu MFA Grensásvegi 16, sími 84233. Menningar- og fræðslusamband alþýðu Iðnráðgjafi á Vestfjörðum Starf iönráögjafa í Vestfjarðarkjördæmi er laust til umsóknar. Umsóknir, sem tilgreini menntun og fyrri störf, sendist stjórn Fjórðungssambands Vestfiröinga, Hafnarstræti 6, 400 - ÍSAFJÖRÐUR, fyrir 10. október nk., merkt IÐNRÁÐGJAFI. FJÓRÐUNGSSAMBAND VESTFIRÐINGA FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Félagsstarf eldri borgara í Reykjavík Hin vinsælu matreiöslunámskeiö fyrir eldri herra hefjast aö nýju mánudaginn 19. sept- ember kl. 14.30 í Alftamýrarskóla. Upplýsingar veittar og tekið á móti pöntunum á skrifstofu félagsstarfsins aö Noröurbrún 1, sími 86960. Félagsmálastofnun Reykjavíkur A iSfrA Gangavörður Hálft starf gangavarðar viö Hjallaskóla í Kóp- avogi er laust til umsóknar. Umsóknum sé skilaö fyrir 24. september á Skólaskrifstofu Kópavogs, Digranesvegi 12. Skólafulltrúi jj| Ritari óskast Viðskiptaráðuneytið óskar aö ráöa ritara frá 1. október nk. Góð kunnátta í vélritun og ensku nauösynleg. Umsóknir sendist viöskiptaráðuneytinu Arn- arhvoli fyrir 25. þ.m. Reykjavík, 15. september 1983. Gleymdu þér í nokkra daga íGlasgow. Frábær helgarferö fyrir aðeins 8.202.- krónur Borg í næsta nágrenni Þú átt kost á ódýrri og ánægjulegri skemmtiferð til Glasgow. Ef til vill þeirri bestu, sem þú hefur farið hingað til. gerðar. í Glasgow eru fjölmargar verslunargötur, margar hverjar þeirra eru göngugötur með fal- legum blómaskreytingum og nægum tækifærum til að tylla sér niður og njóta umhverfisins. Eftir tæplega 2ja klukkustunda flug lendir Flug- leiðaþotan á flugvellinum rétt fyrir utan Glasgow og þú ert kominn inn í eina af skemmtilegustu borgum Evrópu áður en þú veist af. Sjötíu skemmtigarðar í borginni við ána Það hefur átt sér stað gjörbylting í Glasgow. Borgin er hrein, lífleg og nýtískuleg. Um leið heldur hún hinu gamla og rótgróna yfirbragði með byggingarstíl Viktoríutímabilsins, stórkost- legum safnbyggingum, listasöfnum, bókasöfnum, fallegri dómkirkju í gotneskum stíl, köstulum og sveitcisetrum í næsta nágrenni. Hvorki meira né minna en 70 lystigarðar setja lit á umhverfið, og ekki má gleyma göngubrautinni meðfram ánni Clyde, sem teygir sig 5 km frá miðborginni út í sveitina. Ef þú vilt tilbreytingu, þá er önnur stórkostleg borg í aðeins klukkustundar fjarlægð, ef ekið er eftir næstu hraðbraut, - Edinborg. Þar geturðu skoðað heimsfrægan kastala um leið og þú lítur við í verslunum Princes Street, verslun- argötu sem á sér fáa líka. Verslanaparadís Eins og þú getur ímyndað þér, vilja Skotcimir gera góð kaup - og þú auðvitað líka. Þess vegna eru verslanir Glasgowborgar sérstaklega vel úr garði Fáar borgir bjóða fjölbreyttara skemmtanalíf Skoska óperan, ríkishljómsveitin og ballettinn eru auðvitað í Glasgow. Skoski fótboltinn á líka sína aðdáendur. Skotar eiga Evrópumeistaraliðið 1983 og landsvöllur Skotlands er í Glasgow við Hamp- den Park. Fimm hörku fótboltalið með Celtic og Rangers í broddi fylkingar hafa aðstöðu í borginni. í Glasgow eru nýtísku kvikmyndahús, leikhús og söngleikjahús. Þar eru fjölleikahús og látbragðs- leikir, kabarettar, næturklúbbcir, dansstaðir og diskótek. í Glcisgow er úrval prýðilegra veitinga- staða með skoskum nautakjötsréttum, ítölskum, frönskum, indverskum og austurlenskum matseðl- um. Flugleiðir Það tekur tæplega tvær klukkustundir að fljúga frá Reykjavík til Glasgow með Flugleiðum, sem fljúga alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga (þriðjudaga og laugardaga frá og með 1. nóvem- ber) til Glasgow. FLUGLEIÐIR Gott fólk hjá traustu félagi Ókeypis bæklingur á íslensku Hafðu samband við söluskrifstofu Flugleiða, um- boðsmann eða ferðciskrifstofu og fáðu ókeypis eintak af bæklingi breska ferðamálaráðsins um Glasgow og nágrenni borgarinnar. Hann er stút- fullur af nytsamlegum upplýsingum og litríkum ljósmyndum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.